Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1984, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1984, Blaðsíða 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 24. JOLI1984. 9 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur láta mörg tilleiöast og sjá ekki eftir því síöarmeir. Afgreiöslufólk hvað vera áberandi meira aö gera rétt eftir mánaöamót en 10—15 dögum fyrir þau. Algengt er að unglingarnir borgi inn á flíkur og leysi þær síðan endanlega út um mánaðamót. Viðskiptavinir, sem hafa aldur til aö nota ávísanahefti og kreditkort, nota þau óspart. Til eru dæmi þess aö „gúmmítékki” sé lagður inn og beðið um að hann sé geymdur til mánaðamóta. Þá kvað nokkuð bera á því að fleiri versluðu með kreditkorti eftir miðjan mánuð en fyrri hluta mán- aðar. Margir eyða um efni fram. Eitt dæmið enn er að fólk skrifi innstæðu- lausa ávísun, biöji um að hún verði geymd þar til viðkomandi geti leyst hana út og þá jafnvel með kreditkorti. Borið saman verð milli verslana Hvorki er hugsað um dýrtíð né gæði þegar verslað er, meira er farið eftir útliti þess sem keypt er. Þegar foreldr- ar koma með unglingum, einkum mæð- ur, sem algengt er að komi með 12—14 ára unglingum, þá vilja þær ekki endi- lega að „bamið” velji sér ódýrari flík heldur vandaðri. Ef það er ekki smekk- ur unglingsins er oft ekkert keypt. En eftir að heim er komið tekst þeim mörgum að tala foreldrana til. Þeir fara þá aftur í verslunina nokkru seinna og kaupa óskafh'kina. Fólk sem eitthvað „spáir” í verðið ber þá einna helst saman verð milli verslana. Afgreiðslustúlka í skartgripaverslun sagði: „Hingað komu tvær um daginn með vöru sem þær vildu skila, því þær sáu aðra alveg eins á öðrum stað, sem var mikið ódýrari. Eg tók aftur við vörunni og endurgreiddi þeim, þetta er það vinsæl vara, hún selst hvort eö er strax aftur.” Unglingarnir kaupa eins og félagarnir Almennt er fólk mjög áhrifagjarnt og sem fyrr segir vilja sumir unglingar aðeins kaupa föt eins og félaginn notar. Þá er það einnig algengt, eins og piltur í herrafataverslun sagði, að strákarnir komi inn og biðji um „sett” eins og í glugganum. Utstillingar eru oft þess eðlis aö ginur eru klæddar í flíkur sem vel eiga saman og þaö er ekkert spurt um upphæðir, bara beðið um eitthvað þessu líkt. Sumar starfsstúlkur í tískufata- verslunum sögðust reyna aö hafa áhrif á viðskiptavininn, benda honum á hvað klæðir hann og hvað ekki. Sumir eru þakklátir og láta þær alveg um þetta, en aðrir taka þessu illa og segjast ekki vilja láta þær hafa nein áhrif á valið. Sjálflýsandi vörur „seldar grimmt" Sjálflýsandi hlutir hafa mjög rutt sér til rúms í tískuheiminum og er þar stór tekjulind fyrir framleiðendur en gagn- stætt fyrir heimilin. Litirnir eru skærir í bleikum, gulum, grænum og appel- sínugulum tónum. Bókstaflega allt er hægt aö fá í þessum litum, klæönað og skart frá toppi til táar. Grifflur, eða með öðrum orðum fingravettlingar, sem klippt hefur verið f raman af, eru á verðbilinu frá 140—180 krónur og selj- ast þær alveg grimmt að sögn starfs- manns einnar slíkrar verslunar. Gel í hárið fæst í öllum litum, siðan er það breikið sem ætlar allt um koll að keyra og nú eru komnar breikbuxur og breik- skór. Fyrrnefndu buxurnar kosta 1570 krónur, þær eru skræpóttar og víðar, með uppbroti. Þá eru það ultrabuxur, sem hafa hvítan grunnlit og á þeim eru skærar málningarslettur, ef svo má að orði komast. Fyrir þetta greiða unglingarn- ir 2.100 krónur. Skartgripir og fleira í sjálflýsandi litum hafa víða selst upp samdægurs, að sögn starfsfólks, og fá færri en vilja, því heildsalar verða að skammta vörumar til verslana. Verð á því vinsælasta „Sumir versla alltaf á útsölu og geta jafnvel ekki keypt sér flik nema hún sé á niðursettu verði,” sagði ein af- greiðslustúlka, sem nýlega opnaöi út- sölu til aö rýma fyrir haustfatnaði sem hún kvaðst fá í ágúst. Þar vom buxur á verðbilinu frá 800—1000 krónur. Jakk- ar frá 900 allt í 2000, þó að þetta sé 30— 40% lækkun. Þegar litið var á tísku- fatnað sem ekki var á útsölu vom bux- ur á verðbilinu frá 900—2.200 krónur, en jakkar frá 1.600 allt í 3.500 krónur. Starfsmanni í hljómplötuverslun varð þannig að orði: „Sumir puttar sem rétt ná upp fyrir búðarborðið koma til okkar og biðja um eina „breikplötu”. Þeir fá plötu, hlusta ekk- ert á hana, borga fyrir og fara.” Platan í dag kostar 399 krónur eða 400 krónur og kvarta fáir undan því. Mest er keypt af 12 tommu plötum. Það eru stórar plötur á 45 snúninga hraöa. Á þeim em 2—3 lög, hálfgerðar langlok- ur, sem er mjög vinsæl tónlist á diskó- tekum. Strákamir em mest fyrir þess- ar plötur en stelpur biðja helst um safnplötur. Tólf tommu plötumar kosta 199 krónur. „Þúsundkall" borgaður heim Til em dæmi þess að unglingar hafi jafnháar tekjur og faðir þeirra eða móðir, sem er fyrirvinna heimilisins. Þó mega margir unglingar ekki heyra það nefnt að borga eitthvað reglulega til heimilisins. Víða er þetta viðkvæmt mál og vilja foreldrar ekki gera leið- indi með því að biöja um pening frá bami sínu, þó aöeins sé um lítiö að ræða. Þeir unglingar sem borga heim greiða almennt ekki meira en 1—2000 krónur á mánuöi þann tíma sem þeir vinna úti. Finnst þeim það meira en nóg og gera sér auðsjáanlega ekki grein f yrir kostnaði heimilishalds. -RR KIWIMEÐ ÖLLUM MAT Kiwi er kínverskur ávöxtur sem fyrst var kynntur fýrir 78 árum. Þá var hann nefndur kínverskt gæsaber eða loðber (samanber gæsahúð sem er loðin). Þá breyttist nafnið í grænt loð- ber og að síðustu, árið 1959, var hinum loðna ávexti gefiö nafnið kiwi, eftir kiwifugli sem er þjóöarfugl Nýja-Sjá- lands. Kiwiávöxturinn er brúnleitur að utan en dökkgrænn að innan. Sé ávöxturinn farinn aö linast örlítið er hann nægilega þroskaður og safaríkur til að neyta hans. Kiwi ætti að vera mjúkur eins og þroskuð pera þegar hann er borðaöur. Allt nema hýðiö er borðað. I miðjum ávextinum em margir smáir dökkir kjamar sem borðast með, samanber banana. Kiwiávöxtur er auðugur af C-víta- mínum, eða um 120 mg í hverjum 100 grömmum, sem er nægilegt C-vítamín fyrir mann á dag. Ávöxturinn hefur nokkuð sérstaka eiginleika. Ef honum er nuddað vel í Ástríða en I síðustu viku birtist á neytendasíðu grein um á vöxt sem nefndur var guava og honum lýst nákvæmlega ásamt mynd. Eitthvað hefur skolast til í nöfn- um og mun réttvera aö ávöxtur þessi heitir ástríðu-ávöxtur (Passionávöxt- ekki guava ur). Hins vegar er guava grænmeti og líkist í lögun smávaxinni gúrku. Það fylgir líka að ástríðu-ávöxturinn er, eins og nafnið bendir til, gómsætur og af einhverjum ástæðum kostar stykkiö sex krónur. APH kjöt, þá verður það meyrt að 1—2 tím- um liðnum. Kílóverð á kiwi er á verðbilinu frá 180 krónum í 230 krónur, hver ávöxtur vegur um 100 grömm. -RR Kiwisalat 400 g klwi 200 g gul og rauð paprika 1 meðalstór laukur 2 appelsínur, ca 200 g hvor 1 epli, ca 200 g 3 msk. salatolia 2 msk. sérríessens 5 msk. sojasósa 1 tsk. sykur salt og nýmalaður pipar eftir smekk. Gul og rauö paprika skorin í þunnar ræmur, laukurinn skorinn í þunnna hringi. Appelsínur, epli og kiwi skræld og skorin í sneiðar, allt sett í skál. Salatolíu, sherríessens og sojasósu hellt yfir, sykur settur í og hrært vel saman. Sett í salatskálar. Salt og pipar stráð yfir eftir smekk. Kiwi með öllum mat Kiwisneiðar soðnar með matnum eða þeim raðaö hráum ofan á réttinn, sama hvort um er að ræða fisk- eða kjötrétt. Ávöxturinn settur saman við hvers konar salöt og borinn fram með mat. Kiwi er ágætt innan í samloku ásamt öðru áleggi. Þá er ávöxturinn mikið notaður til skrauts á kökur og eftirrétti, á ís og brauðtertur. Þá er kiwi einnig mikið til prýði og bragð- auka á ostapinnum. Börnin eiga auðvitaö að vera í belt- um eða barnabílstólum i aftursæt- inu og barnaöryggislæsingar á hurðum. «læ FEROAR Mjog þægilegur hiti, ca 18—25°C. 8—15 daga ferðir, brottfarir alla mánudaga. Gisting á góðum hótelum í 2 verðflokkum. EITTHVAÐ nýtt Yfir heit^íad^bjódum enska badstrond i Bournemoutn. Verð frákr. 15.300 Starfsfólk Iceland Centre í London mun taka á móti farþegum og veröa þeim til halds og trausts í öllum ferðum (íslenskt starfsfólk). Sumarfrí í Bournemouth er fyrir unga sem aldna. Badstrandarlíf, leikir, sport og skemmtanir. Möguleiki á íslenskum barnfóstrum. Boðið verður upp á eins dags ferðir og styttri skoðunarferðir, t.d. til Isle of Wight, um nágrenni Bournemouth og verslunarferð til London. ÚTSÖLURNAR eru byrjaðar. Reynið nýjan og mjög athyglisverðan ferðamöguleika Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.