Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1984, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1984, Blaðsíða 5
DV. MIÐVIKUDAGUR 21. NOVEMBER1984. 5 Ritstjórinn andvígur formanninum Guðmimdur Árnl Stefánsson, rltstjóri Alþýðublaðsins. „Eg er ekki tilbúinn til að leggja niö- ur Alþýðublaðið fyrr en menn bjóða upp á annan og betri valkost til að hafa samband viö flokksfólk,” sagði Guð- mundur Árni Stefánsson, ritstjóri Al- þýðublaðsins, aðspurður um ummæli nýkjörins formanns Alþýðuflokksins. Jón Baldvin Hannibalsson sagði í við- tali við DV á mánudag að hann vildi leggja niður Alþýöublaðiö semdagblað og hafna ríkisstyrknum til blaösins en sagðist ekki endanlega vera búinn að hafna hugmy ndinni um vikublað. Guðmundur Arni sagðist einnig vera andstæðrar skoðunar við Jón Baldvin — Ekki tilbúinn að leggja Alþýðublaðið niður, segir Guðmundur Árni Stefánsson varðandi ríkisstyrkinn. , J5g fer ekki leynt með að ég tel aö ríkisvaldið eigi að stuðla að frjálsri skoðanamyndun í landinu meö þessum hætti, ” sagði Guö- mundur Ámi. ,,Frekar ætti að auka ríkisstyrkinn stórkostlega frá því sem nú er. Þetta fyrirkomulag tíðkast víð- ast hvar á Vesturlöndum. Lýðræðið kostar peninga Mér finnst sjálfsagt aö hið opinbera stuðli aö því að sem flest sjónarmið fái aö njóta sín þannig að vald f jármagnsins ráði þvi ekki alfariö hverjar raddir heyrast og hverjar ekki. Mér finnst ekkert óeðlilegt við þaö aö áskrifendur Alþýðublaðsins, 3500 talsins, njóti þessara lýðræðislegu réttinda á sama hátt og aðrir,” sagði GuðmundurÁmi. Rekstur Alþýðublaðsins hefur á und- anfömum árum gengið mjög illa og blaðið safnað miklum skuldum. Þá tóku flokksmenn sig til og yfirtóku 6 milljónir meö skuldabréfum. Síðan var helmingur af hlutafé Alþýöublaðsins í Blaðaprenti hf. seldur. Nú mun rekstur- inn ganga vel og að sögn Arna Gunn- arssonar, sem sæti á i blaðstjóminni, gæti blaöiö komið út áfram þótt ríkis- styrkurinn yrði felldur niður. OEF RASTVO NORÐUR FYRIR JÓLIN? Stefnt er að því að rás tvö komist norður, vestur og austur fyrir heiðar fyrir jól. Haraldur Sigurðsson, yfir- verkfræðingur radiódeildar Pósts og síma sagðist þó vera hóflega bjartsýnn á þetta. Tafir hefðu oröið á afgreiðslu tækjabúnaöar en fengist hann fljótlega tæki ekki langan tíma að koma honum upp ef veður og færð hindruðu ekki. Á Norðurlandi verður komiö fyrir sendum á Hrútafjarðarhálsi, Blöndu- ósi, Hegranesi, Vaðlaheiði og Húsa- víkurf jalli. I þessari lotu veröa margir afskiptir, Olafsfirðingar t.d. og Dal- víkingar, nema þeir geti hlustað á Vaðlaheiöi. Siglfirðingar ná aftur á móti rásinni. Settur verður upp sendir á Gagnheiði en ekki fleiri fyrir Austfirði að sinni. Því er eina leiðin fyrir Austfirðinga til aö ná rás tvö að geta hlustað beint á Gagnheiöina. Rás tvö nær nú I Stykkishólm en fyr- ir jólin á að koma upp sendum viö Patreksfjörð, bæi á Snæfjallaströnd og Skutulsf jörð. Sendingar munu hins veg- ar ekki nást frá Tálknafiröi að Súg- andafirði. JBH/Akureyri Landlæknir í Kaup- mannahöfn Guðjón Magnússon aðstoöarland- læknir hefur verið settur landlæknir frá og með 4. október til 31. mai á næsta ári vegna leyfis Olafs Olafsson- ar, skipaðs landlæknis. I umræddu leyfi dvelur Olafur Olafsson í Kaup- mannahöfn þar sem hann starfar hjá Alþjóða heilbrigöismálaráðinu. -EIR rr~— ■ ■ ■ ■ i i ■ ■ ■ ■ i ■ ■ i L Málm-&byggingar- iönaðarmenn! Kynning á framleiðsluvörum VAN LEEUWEN §g^22.nw. Sindra-Stál h.f. hefur gerst umboðsaðili á íslandi fyrir Van Leeuwen. Fulltrúi Van Leeuwen, Gerard Hams, kemurog kynnir fyrirtækið ásamt möguleikum þess fyrir íslenskan málm- og byggingariðnað. Van Leeuwen er einn stærsti seljandi í Evrópu af alls konar rörum ásamtýmsu efni til pípulagna. Af framleiðslu þeirra má nefna svartar og galvaniseraðar pípur, heildregnar pípur, prófílpípurog suðufittings. Kynrringin verðurað Borgartúni 31 fimmtudaginn 22. nóv. kl. 10-12 og 14-18. SINDRA STALHF PÓSTHÓLF 881, BORGARTÚNI 31, 105 REYKJAVÍK, SÍMAR: 27222 & 21684 Þýskir og ítalskir/öklaháir skór og kuldaskór fyrir dömur og herra Kuldaskór á herra í úrvali, spariskór á dömur, mikið úr- val, spariskór á herra f úrvali frá Skóverslun Þórðar Péturs- sonar, Laugavegi 95, sími 13570 og Kirkjustræti 8, sfmi 14181, um stór- kostlegt úrval AF SKÓFATNAÐI Hágæ ðaku/das tíg vó/ fráþýska fyrirtækinu JUBO, ök/ahá, miðhá, oghá. Úrva/ af götuskóm frá Drengjaskór, telpna- skór, stærðir frá 28— 35. Nýjustu tískulitir, svart, grátt, hvítt, brúnt og beige. c' jp

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.