Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1984, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1984, Blaðsíða 8
8 DV. MIÐVIKUDAGUR 21. NOVEMBER1984. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Milljónir manna hafa orðið illa úti í flóðunum á Suður-Indlandi og tugþúsundir hafa orðið að flýja heimili sin. Mannfrek flóð á Ind- landi og í Kólombfu Mikil flóð hafa verið á Suður-Ind- landi í kjölfar fellibyls sem þar gekk yfir. Hafa 77 þúsundir manna orðið að flýja heimili sín en vitað er um nær 400 semfarist hafa. Flóöin hafa komið harðast niður á Tamil Nadu-fylki og Andhra Pradesh og er talið að rúm ein milljón manna hafi orðið fyrir barðinu á þeim en fióða hafi alls gætt í um 1000 borgum og þorpum. Samtímis eru einhver mestu flóð í Kólombíu, sem þar hafa komið síðan 1972. Um 150 manns hafa drukknað eöa farist í aurskriðum. Nær 40 þúsundir hafa misst heimili sín. Urhellisrigning- ar hafa valdið vatnavöxtum og skriðu- föllum en skriðumar hafa eyöilagt vegi og mannvirki. Mikiö tjón hefur orðið á uppskeru. 138 ríki hafa und- irritað hafrétt- arsátt- málann Vestur-Þýskaland mun sennilega ekki undirrita hafréttarsáttmála Sam- einuðu þjóðanna til staðfestu því aö hann taki gildi sem alþjóðleg lög. En Bonnstjórnin mun á hinn bóginn heldur ekki amast við því aö önnur aðildarríki Efnahagsbandalags Evrópu geri það. Bandaríkin hafa þegar tilkynnt að þau muni ekki undirrita sáttmál- ann vegna ákvæðanna um náma- vinnslu á hafsbotninum. Það mun þó ekki hindra gildistöku sáttmálans sem þurfti undirritun 60 ríkja til þess aö öölast gildi. Þegar hafa 138 ríki undirritaðhann. Fimm EBE-ríki hafa undirritað sáttmálann. Danmörk, Frakkland, Grikkland, Irland og Holland. Þarf ekki nema eitt til viöbótar til þess aö bandalagið sem heild samþykki hann og verður þaö til umræðu í aðalstööv- um EBE í Brussel næsta mánudag. Afstaöa v-þýsku stjórnarinnar kann að verða til þess að hætt verði viö áætl- anir um að setja á laggirnar alþjóðleg- an hafréttardómstól í Hamborg. Stjórnarandstaðan á Indlandi: Kirkpatrick ætlar að hætta hjá Sam- einuðu þjóðunum Jeane Kirkpatrick, sem verið hefur sendiherra Bandaríkjanna hjá Sam- einuðu þjóðunum síðan 1981, sagöi í gær aö hún ætlaði að hætta störfum þegar yfirstandandi allsherjarþingi lýkur (18. desember). Sagðist hún þá ætla að ræða viö Reagan forseta um einhverja leiö til þess að hún gæti horfið aftur til einka- lífsins og hætt opinberu starfi. Jeane Kirkpatrick, sem var prófessor í stjómmálafræðum, vakti athygli Reagans á sér vegna hug- mynda sinna um tengsl Bandarík janna viö einræðisstjómir í Suður- og Miö- Ameríku. Hún er demókrati en mjög hægrisinnuð. Hún var í gær spurð hver mundi verða eftirmaður hennar en hún kvaðst ekkert vita um það. En sá þyrfti að búa sig undir að vera nokkur ár í því sem hún kallaöi mjög erfitt starf. í KLÍPU VEGNA KJARNORKUMÁLA Stjórnir Danmerkur og Noregs era Að sögn fréttaritara DV í Osló varö báðar í fallhættu vegna atkvæða- þó ljóst eftir fundi í nótt aö stjórnin greiðslna hjá Sameinuðu þjóöunum myndi bjarga sér fyrir horn og vinna um kjarnorkumál. atkvæðagreiðsluna á einu atkvæði. Jeane Kirkpatrick við atkvæðagreiðslu hjá Sameinuðu þjóðunum. Bandalag í undir- búningi Stjómarandstöðuflokkarnir á Ind- landi ætla að halda áríðandi fund í dag til að reyna að komast aö samkomu- lagi um kosningabandalag gegn Kon- gressflokknum. Ætlun flokkanna er að koma sér saman um að bjóða sameiginlega fram einn frambjóðanda gegn frambjóðanda Kongressflokksins í hverju kjördæmi landsins. Alls er barist um 544 sæti í neðri deild þings- ins. Flokkarnir verða að ákveða sig inn- an viku en 27. nóvember er síðasti dagur til að skrá framboö. Stjórnmála- skýrendur segja aö stjómarandslaðan hafi enga möguleika gegn stjórn Rajiv Gandhi nema hún myndi kosninga- bandalag áöur en það er um seinan. Ekki hefur tekist aö mynda samstarf í fylkinu Maharashtra, sem kýs 48 þingmenn. Þar hefur flokkur hægri- sinnaðra hindúa lýst yfir aö hann muni bjóða fram sína eigin menn í öllum kjördæmum. Kosningarnar verða haldnar um jólin. HEILU STRÆTIN RJÚKANDI BRUNARÚSTIR EINAR I Danmörku hefur forsætisráðherr- ann, Poul Schluter, hótað aö kalla til nýrra kosninga neyöi þingiö hann til aö greiða atkvæði gegn öðrum NATO- þjóðum vegna tillögu hjá Sameinuðu þjóðunum um að banna fyrstu notkun kjarnorkuvopna. Hann hefur einnig gefið í skyn að hann kunni að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um máliö. Norski forsætisráðherrann, Káre Willoch, hefur hótað að segja af sér ákveði þingið að Noregur greiði at- kvæði með sænsk-mexíkanskri ályktunartillögu um að frysta fram- leiðslu og prófanir á kjarnorkuvopn- um. Einstaka þingmenn hinna tveggja samstarfsflokka Ihaldsflokksins, Kristilega þjóöarflokksins og Miðflokksins, em líklegir til að ganga í lið með stjórnarandstööunni í þessu máli. Hermenn og lögregia með gasgrím- ur stikluðu um brunarústir fátækra- hverfis Mexíkoborgar og athuguðu hvort fleiri fómarlömb leyndust í rúst- unum. Yfir 300 hafa verið taldir af. Þykkur reykur liggur enn í loftinu sólarhring eftir sprenginguna sem olli meiðslum 2.750 manna og gerði þús- undir heimilislausa. Hermenn helltu kalkblöndu yfir sviðnar leifar gæludýra sem lágu á dreif í brakinu. Tölur markaöar á uppi- standandi veggi, aðallega fimmur og sexur, gáfu til kynna fjölda líka sem fundist höfðu inni í sótugu brakinu. Heilu f jölskyldumar höfðu orðiö eld- inum að bráð í næstu strætum við gas- stöðina sem sprakk. Af stöðinni sjálfri var ekkert eftir sem minnti á hvað þar hafði staöið nema tveir kúlulaga gas- geymar sem lágu ofan á rjúkandi ösku- hrúgunni. Svo öflugar höfðu sprengingarnar verið að stærðar steinsteypubrot höfðu þeyst 1,5 km veg. 75 mm stálplata á stærð við vörubíl hafði stungist í gegn- um múra eins hússins. Hún var úr ein- um gasgeyminum sem sprakk. Rjúk- andi leifar af bílum vora víösvegar. Þær fjórar þúsundir, sem misstu heimili sín í bálinu hafa leitaö skjóls i bráðabirgöahælum hingað og þangað í borginni. Meðal annars hefur verið slegiö upp tjöldum á íþróttaleikvangin- um. Margir komust undir húsþak í Guadelupe-dómkirkjunni. Hjálpargögn streyma til Mexíkó- borgarvíðaað. Um orsök sprengingarinnar er ekk- ertvitaöennþá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.