Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 19
DV. FIMMTUDAGUR 22. NOVEMBER1984. 19 Mikil seiöa- gengd i ísa- fjarðardjúpi Frá Val Jónatanssyni, ísafirði: Rækjuveiðar hófust í Isafjarðar- djúpi 12. nóvember sl. Það eru 33 bátar sem stunda veiöamar og hafa þær gengið vel það sem af er. Mikil ýsu- og loðnuseiði eru í Djúpinu og hefur rækjukvóti bátanna verið minnkaður úr 6 tonnum á viku í 3 tonn vegna þess hve seiðagengd er mikil. Bátamir em aðallega við veiðar innst i Djúpinu, við Borgarey og í Mjóafirði. Aö sögn rækjusjómanna er mikill smokkfiskur í Djúpinu og kann hann að vera valdur að þvi aö rækjan er á tiltölulega litlu svæði. Rækjuveiðar verða stundaöar til 7. desember og ráðgert að byrja aftur 10. janúar. Hafþór er á úthafsrækju og hefur gengið þokkalega. Línubátar hafa aflað mjög vel og verið með þetta 10—15 tonn i róðri. Einnig hefur afli togara veriö góður. Fróðir menn segja að vertíð hafi alltaf verið góð eftir aö smokkfiskur hafi gengið hér vestra. -EH. FISKIFRÆÐ- INGAR ERU LÍKA MENN Frá Emil Thorarensen, Eskifirði: Geysimikil loönuveiði hefur verið síöustu sólarhringa austur af Glettinganesi og heita má að stanslaus. loðnulöndun hafi verið á Eskifirði frá því 15. nóvember. Nemur loðnumagnið sem á land er komið, á- samt því sem er í höfninni, um 30 þúsundtonnum. Sl. nótt var afar góð veiði. Fylltu sumir loðnubátarnir sig í einu kasti og vitað var um einn sem fékk 1500 tonna kast. Frá loðnumiðunum er um sjö tíma sigling til Eskifjarðar. Er það mikill munur í samanburði við 30—40 tíma stím frá Vestfjarðamiðum eins og var fyrr í haust. Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson fann loðnugöngu á Dombanka þannig að nú má segja að loðna sé yfir hálft landgrunnið, þ.e.a.s. frá Dombanka austur fyrir Glettinga- nes. DV haföi samband við skipstjórann á aflaskipinu Jóni Kjartanssyni SU, Þorstein Kristjánsson, sem kom til Eskif jarðar um hádegiö í dag með full- fermi. Hann sagði að nú væm þeir svo til búnir með sinn kvóta sem nam 9000 tonnum. Þorsteinn sagðist ekki trúa því fyrr en hann sæi það aö ekki yrði bætt við kvótann, ef ekki nú þá eftir áramót. „Það er sárt að þurfa aö hætta á veiðum þegar mikið af loðnu er á miðunum. Eg hef alltaf haft það á til- finningunni, og raunar trúað þvi, að meiri loðna væri á miðunum en fiski- fræðingar telja. Samanber það sem kom upp í vetur sem leið; það mikla loðnumagn sem var á miðunum í febrúar en hafrannsóknarskipin vom þá búin að flengjast um allan sjó og höfðu ekkert fundið allan janúar. Hefðu þær mælingar komist til stjóm- valda hefði trúlega engin loönuveiði verið i febrúar, en þá gaus upp loðna um allan sjó. Þetta þýðir hve fiski- fræðingar vita lítið hvað er í sjónum. Og fiskifræðingarnir vita ekkert meira um það en við sjómennimir,” sagði Þorsteinn að lokum. -EH. Þessir vetrar- dagar era ó- venjufallegir. Hér speglast Esjan og nán- asta umhverfi Tjaraarinnar í þunnu skæni Reykjavíkur- tjarnarinnar. DV-mynd. GVA. VILT ÞÚ TAKfl ÞÁn í AÐ LÆKKAIÐGJÖLD BIFREIDATRYGGINGfl? KOMDU ÞÁHIUDS VIÐOKKUR 50% EFTIR AÐEINS 3 ÁR! (tilefni 20 ára afmælis Hagtryggingar veitum við nú 50% afslátt af ábyrgðartryggingu eftir aðeins 3ja áratjónlausan akstur, 55% eftir 5 ár og 65% eftir 10 ár. Eftirtjónlausan akstur í 10 ár samfellt fellur iðgjaldið niður á 11. ári. EIGUM VIÐ EKKISAMLEIÐ? Þú getur gengið til liðs við okkur fyrir 1. des. Við verðum öflugri og áhrifameiri með hverjum bifreiðaeiganda sem tryggir hjá okkur. Þú flytur réttindi þín hjá öðru vátryggingar- félagi með þértil okkar. Hafðu samband sem fyrst, símiokkarer68-55-88. Enn fremur veita umboðsmenn allarupplýsingar. TAKTU TRYGGINGU - EKKIÁHÆTTU HAGTRYGGING HF Suðurlandsbraut 10,105 Reykjavík, simi 685588. JÓN LOFTSSON HF. RAFBÚÐ HRINGBRAUT121 SlM110600 KÆRIRÐU ÞIG UM LAGA RAFMAGNSREIKNINGA? OSRAM Ijós og lampar eyöa broti af því rafmagni sem venjuleg Ijós eyöa og lýsa þó margfalt meira. OSRAM flúorsent Ijós eyöa 11 wöttum þegar þau bera 75 watta birtu. Svo endast þau miklu lengur. OSRAM DULUX —1 handhægt Ijós þar sem mikillar lýsingar er óskaö. Mikiö Ijósmagn, einfalt í uppsetningu og endist framar björtustu vonum. OSRAM LJÓSLIFANDI ORKUSPARNAÐUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.