Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 40
Svona var umhorfs i vé/arrúmi Gideons frá Vestmannaeyjum en eins og skýrt var fri i DV i gær sprakk oliumælirþannig að mikilleidur braust út iskipinu. EH/DV-mynd — Grímur Gíslason FRETT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá í sima 68-78-58. Fyrir SIEV5INN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66 11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krénur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Rækjunes hirti 5% aukalega af skipta- verðmæti sjómanna: MISTÖK í TÖLVU- UTSKRIFT? Fyrirtækið Rækjunes hirti 5% aukalega af skiptaverðmæti sjó- manna á 5 bátum á hörpuskel í septembermánuði. Er sjómennirn- ir kvörtuöu var því lofað að þeim yrði endurgreidd þessi upphæð í næsta mánuöi en þá brá svo við aö aftur vorutekinaf þeim5%. Hér er um töluveröar upphæðir að ræða því skiptaverðmæti bát- anna báöa mánuöina nam á milli 8 og lOmilljónum kr. Finnur Jónsson hjá Rækjunesi sagöi i samtali við DV að mistök hefðu orðið í tölvuútskrift sem ollu því að 5% voru tekin af sjómönnun- uin. Svokölluð ruslaprósenta hefði óvart verið hækkuð um5%. Hann sagði að þegar væri byrjað aö handvinna leiðréttingu á þessu hjá fyrirtækinu og bjóst hann viðað sjómennirnir fengju þetta endur- greittáallranæstudögum. -FRI Biskup til Póllands Biskupinn yfir Islandi, herra Pétur Sigurgeirsson, og eiginkona hans, Sólveig Ásgeirsdóttir, halda til Póllands á morgun í boöi pólska samkirkjuráðsins. Með þeim í för verða þeir Guðmundur Einarsson framkvæpidastjóri og Páll Jónsson, sparisjóðsstjóri í Keflavík. Biskup mun predika í Varsjá og meðan á heimsókn hans stendur verður dreift 20 lestum af íslenskri sild sem Hjálparstofnun kirkjunnar hefur nýlega sent til Póllands. -EIR. Vegna gengisbreytingar, kann verð sem upp er gefiö í jólagjafa- handbók DV, sem fylgir blaðinu í dag, að hafa breyst. Allt verð þar er frá því fyrir gengisfellingu. LOKI Heitir þetta ekki að brjóta \ aiiar brýr að baki sór? Kaldirkarlaráferð: Frjalst,ohaö dagblaö NÓVEMBER 1984 FIMMTUDAGUR 22 Skemmdu tíu brýr í skióli náttmyrkurs Vöruflutningabíll með tengivagn í eftirdragi á leið frá Reyðarfirði var stöðvaður í Oræfasveitinni um síð- ustu helgi og viö mælingar kom í ljós að tengivagninn var of breiður til aö komast yfir þær brýr sem eru á leið- inni. Þótti þarna vera komin skýring á skemmdum á einum 10 brúm sem vegaeftirlitiö hafði veitt athygli. Eigendur bílsins höfðu áöur fengið synjun er þeir sóttu um leyfi til að aka bílnum frá Hvolsvelli og austur á land með vélar á tengivagni þar sem jjeim var bent á að vagninn væri of breiður til að komast yfir brýr þær sem eru á leiðinni. Þrátt fyrir það hélt bíllinn af stað í skjóli myrkurs og tróð sér yfir hverja brúna á fætur annarri þannig að stórsá á flestum þeirra. Verst mun þó Markarfljóts- brú vera farin og ýmsar trébrýr hreinlega brotnar að hluta. Lögreglan rannsakar nú málið. -EIR Nemendur Breiðholtsskóla í sundnámi í Vesturbæjarlaug þótt sundlaug sé við skólann: STOÐUGAR RUTUFERÐIR MEÐ TÆPLEGA 300 NEMA Nemendur í 3., 5. og 9. bekk Breið- holtsskóla, tæplega 300 talsins, eru nú keyrðir á hverjum degi úr Breið- holtsskóla og i Vesturbæjarlaugina i sundkennslu þó að sundlaug sé við skólann. „Þaö skortir búnings- og baöaö- stöðu við sundlaugina. Á sínum tíma voru settir upp þama 4—5 vinnu- skúrar sem bráöabirgðaaöstaða en þeim var svo lokað í fyrra af heil- brigðisyfirvöldum,” sagði Jens Sumarliðason, yfirkennari í Breið- holtsskóla, í samtali við DV er viö spurðum hann um þetta mál. Að sögn Jens er laugin við skólann 10 ára gömul, lítil en nokkuð góð til síns brúks. Mikið hefur verið leitað eftir því að fá úrbætur á búnings- og baöaðstööunni en ekkert gengið hing- að til. Sagði Jens að mikill kostnað- arauki og umstang fylgdi því að þurfa aö senda nemenduma á hverj- um degi vestur í bæ en Vesturbæjar- laugin er sú laug sem lengst er frá skólanum innan borgarmark- anna. „Við fengum ekki inni í öðrum laugum, þær vom allar fullar og í Vesturbæjarlauginni er aðeins um 3ja vikna námskeið að ræða sem nú stendur yfir,” sagði hann. -FRI NÆR DRUKKN- AÐUR ILODNU Tvítugur háseti á Skarösvíkinni frá Hellissandi, Tryggvi Leifur Ottarsson, var nærri drukknaður í loðnu þegar hann barst með loðnu niður í skipslestina í fyrrakvöld. Tryggvi var að spúla millidekkið en tók þá eftir að stífla hafði mynd- ast í ioðnudælunni. Hann losaði um stifluna og skipti það þá engum togum að hann barst með loðnunni niöur um boxalokið á millidekki skipsins. Þegar tókst aö bjarga honum stóð höndin ein upp úr loðnuhrúgunni. Tryggvi var fluttur meðvitundarlaus á heilsugæslu- stööina á Raufarhöfn til súrefnis- gjafar, en síðan á Borgarspitalann í Reykjavík. Tryggvi er nú á bata- vegi. -EH. Gríðarlegt arganga erverra en búistvarvið Talið er að í 250 þúsund tonna þorskafla okkar í ár verði 50 milljónir fiska fimm ára og yngri og 30 milljónir sex ára og eldri. Ætlunin var aftur á móti að veiöa 38 milljónir yngri og 42 milljónir eldrifiska. Frá þessu skýrði Kristján Ragnarsson, formaður LIO, í setn- ingarræðu á þingi útvegsmanna I gær. Ástæöuna nefndi hann að ástand eldri árganga virtist enn verra en talið hefði veriö. Þá sagði Kristján að enda þótt álitið væri að þorskurinn hefði þyngst að jafnaði um 10—15% vegna hagstæðarí lífsskilyrða skil- aöi það sér ekki í afla sem í væm fleiri og smærri fiskar. HERB fækkað íþrjá i t i Ríkisstjómin stefnir að því aö einfalda fjárfestingalánakerfi at- vinnuveganna þannig aðframvegis verði aöeins starfandi þrír sjóðir, búnaöarsjóöur, sjávarútvegssjóð- ur og iðnaðarsjóður. Núna eru f jár- festingasjóðirnir hátt í tuttugu. Þetta var eitt af því sem Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra skýröi frá á þingi Landssambands- islenskra útvegsmanna í gær. Hann sagði að jafnframt ætlaði hann aö skipa nefnd til þess að endurskoða lög og reglur um sjóði og lögbundnar greiðslur tengdar fiskverði. Markmiðiö er að skýra og ein-_ falda fjárstreymi og tekjuskiptingu" innan sjávarútvegsins. Ekki er að búast við nef ndaráliti fy rr en í vor. HERB Sjóðakerfið loksins stokkað upp: Fjárfestingar- | sjóðum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.