Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1985, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1985, Blaðsíða 3
DV. MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR1985. 3 Jón Baldvin Hannibalsson á fundiá Dalvík: „Mð ætium að skattieggja stór- fyrirtæki og stóreignamenn" Hann kom tíu mínútum of seint á laugardaginn var en þaö þótti Dalvík- ingum ekki mikið. Um daginn þegar Jón Baldvin Hannibalsson ætlaöi aö halda fund á Dalvík sátu þeir og biöu í klukkutíma en ekki lét hann sjá sig. Ástæðan fyrir seinkuninni var sú að Olafsfirðingar vildu ekki sleppa Jóni Baldvin af fundinum í Ólafsfirði fyrr en rétt fyrir klukkan 17.00 sem var auglýstur fundartími á Dalvík. Formaðurinn byrjaði á að afsaka þessa seinkun og sagði frá því að í Olafsfirði kallaðist hann nú „Góöi dát- inn Sveik”. Hann mætti nefnilega ekki heldur á auglýstan fund þar um daginn. Kratar hafa aldrei sterkir verið á Dalvík en eiga þó mann í bæjarstjórn. 1 síðustu alþingiskosningum var sögð sú gamansaga aö þeir hefðu haldið stjórn- málafund í símaklefanum fyrir framan kaupfélagið og verið ve) mætt. í Víkurröst voru 50—60 manns núna, líklega úr flestum stjórnmálaflokkum eðautanþeirra. Peningapáfinn IMordal Jón Baldvin Hannibalsson er þekktur fyrir allt annaö eri að tala óljóst um hlutina eða undir rós. Kjaft- for er hann eins og hann.á kyn til. Þaö sagöi Jón Baldvin sjálfur á fundinum. I klukkutímalangri ræðu fossaði af vörum hans greining á ógnarástandi sem í þjóöfélaginu væri, hverjum væri um aö kenna og hvers mætti vænta ef stefna Alþýðuflokksins yröi farin. Islenska þjóðin væri að drukkna í erlendum skuldum, 2 af hverjum 4 fiskum úr sjó færu í að borga þær. Seðlabankaveldið væri allt að drepa. „Hans heilagleiki Jóhannes peninga- páfi Nordal,” eins og Jón Baldvin orðaði það, héldi ársfund Seðla- bankans á útmánuðum með ráð- herrum, ráðuneytisstjórum og kommi- sörum. Þar flytti „páfinn” ræðu og lýsti vandanum fram undan og peningaleysinu. Stj órnmálamennirnir töluðu svo eins og Nordal þegar þeir kæmu af fundinum. Urræðin væru engin. Jón Baldvin sagði aö frændi hans væri járnbindingamaður í Seðla- bankahöllinni. Hann segði að þetta væri járnbentasta bygging á Islandi. Væri merkilegt að slíkt kjarnorku- byrgi þyrfti utan um peninga sem væru ekki til. I framhaldi af því svaraði hann þeirri spurningu hverjir ættu Island og taldi þaö vera erlenda fjármagnseigendur. Skattleggja stóreignamenn I málflutningi sínum kom formaður Alþýðuflokksins aftur og aftur að því að verkamaðurinn hefði veriö rúinn launum sínum undanfarin ár og fjár- magn flutt á fárra hendur. 1 ræðu- púltinu veifaði hann í hægri hendi ljós- riti sem hann fékk frá manni í Vest- mannaeyjum af launaseðli hans. Vikum saman í haust haföi sá fengið útborgaðar innan við 1000 krónur. „Þetta þjóöfélag er aö gliöna í sundur,” sagði Jón Baldvin. I framhaldi af þessu kom ítarleg um- fjöllun um húsnæðismálin og píslar- göngu fólks í þeirri baráttu að koma þaki yfir höfuöið. Stefna krata væri að taka peninga af ríka fólkinu og endur- reisa húsnæðislánakerfiö, sagði Jón Baldvin. „Við ætlum að skattleggja stórfyrirtæki og stóreignamenn.” Vísi- töluna varöi hann en sagði þaö hafa verið brjálæöi af ríkisstjórninni að stöðva ekki lánskjaravísitöluna um leið og kaupið var fryst. Hann sagðist ekki fylgjandi ránskjaravísitölu Jóhannesar Nordal en áður en pen- ingar voru verðtryggðir hefði hins vegar verið framið bankarán á gömlu fólki á hverjum einasta degi. Kjarninn í húsnæðismálaboðskap Jóns Baldvins var þessi: Afnema láns- kjaravísitöluna vegna þess að hún væri vitlaus. 2. Leggja peningana sem kæmu inn með eignaskattsauka í húsnæðis- lánakerfið og lengja lánstímann í ekki skemmri tíma en 40 ár. Breyta úthlut- unarpólitikinni á þann hátt að hús- Ummæli fundargesta Sigurður Jónsson framkvæmda- stjóri:„Mér þótti þetta fint. Ég er að hugsa um að kjósa hann í fyrsta skipti. Maðurinn hefur mikinn per- sónuleika, hann er það heilbrigður að vera tilbúinn aö breyta eftir sannfær- ingu sinni. Eg hef einhvem veginn trú á honum, ætli það sé ekki mest vegna þess að hann lætúr skoðanir sínar óhindrað i ijós. Eins og málin standa í dag þá ætla ég að kjósa hann. Jón Tryggvason forstjóri: „Mér fannst fundurinn ágætur. Hann var óvenju vel sóttur miðað viö stjórn- málafundi hér á Dalvík, að minnsta kosti þar sem er bara einn maður. Mér list bara vel á Jón Baldvin en ekki þori ég að lofa því að ég kjósí hann. Viö skulum sjá til hvernig hann stendur sig með framhaldið. ” Jón Baldvinsson, bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins: „Mér finnst hann tala skemmtilega og tæpitungulaust. Aö mörgu leyti er ég sammála honum, til dæmis um vaxta- pólitíkina. Manni hefur fundist barátta manna gegn raunvöxtum furðuleg. Eins held ég að rétt^é aö það þurfi að stokka upp þetta sjóða- og fyrirgreiðslukerfi. — Ef kosið verður i sumar?! Alþýöuflokkurinn verður með um 20%, mér finnst það ekkert óraunhæft ef Jón Baldvin heldur sama dampi. JBH. næðislán verði miöuð viö 90—110m2 íbúðir. Þeir sem byggi stærra geri það á eigin kostnað. Bjóða olíusöluna út Áfram geystist Jón Baldvin og tók hvern málaflokkinn fyrir af öðrum. Byggöastefnuna sem hefði verið rekin á undanförnum árum kallaði hann „mannlega niðurlægjandi og hagfræði- lega heimsku”. Framsókn mætti eiga hana fyrir sér. Héruöin væru peninga- lega máttvana, til að framkvæma eitt- hvað þyrftu menn að knékrjúpa „fyrir alvitlausustu nefnd Alþingis sem heitir fjárveitinganefnd”. Það ætti að taka upp fjórðungaskipulag á Islandi. Fjórðungarnir fengju vald í eigin málum, þar með talið peningavald. I hverjum fjórðungi yrði einn ríkis- banki. I sjávarútvegi yröi að leggja stór- aukna áherslu á markaðsleit. Fyrst olíufélögin gætu ekki boöið olíuna á við- unandi verði ætti að bjóða olíusöluna út á erlendum markaði. Það væri þó líklega eins og að skera hjartað úr ýmsum sjálfstæðismönnum og fram- sóknarmönnum að koma fram með slika tillögu. Undir lok ræðu sinnar ræddi Jón Baldvin um stjórnmálaflokkana. Framsóknarflokkurinn væri íhalds- samasti kerfisflokkur landsins sem stæði vörð um SlS og spillt milliliða- kerfi í landbúnaði. Það væri öllum fyrir bestu aö hann fengi hvíld enda þyrfti hann á andlegri endurhæfingu aö halda. Sjálfstæðisflokkurinn væri sundurleitur og forystulaus. Þarna væru samankomnir fulltrúar stórfyrir- tækja, „frjálshyggjufríkin” og „fram- sóknarmennirnir” úr landbúnaðinum. Alþýðubandalagið væri stalínískur og það sem Svavar segði væri oft „róttækt kjaftæði, stimdum rótarlegt kjaftæði.” Svavar væri ansi reffilegur foringi en það þyrfti að skipta um forrit í honum. Kvennalistinn væri lengst til vinstri og gerði ekki ráð fyrir að konur væru líka menn sem gætu haft mismunandi skoðanir. Hann sagði lítið um Banda- lag jafnaðarmanna. 1 nýlegri skoðanakönnun DV um fylgi stjórnmálaflokka kom fram að Alþýðuflokkurinn hefur þrisvar til fjórum sinnum meira fylgi en í könnun blaðsins í haust. Þessu hampaði for- maður kratanna líka kampakátur og sagði: „Þetta er bara byrjunin; trúið mér.” Fyrirspurnir Fyrirspurnir voru á eftir en þær voru í daufara lagi enda komiö fram að mat og menn farnir að tínast í burtu. Spurn- ingu um hvort Alþýðuflokkurinn væri tilbúinn til viðræðna við Alþýðubanda- lag um samstarf vinstri flokka svaraði Jón Baldvin: „Mín skoöun er sú að við eigum aö vera tilbúnir að ræða við Alþýðubandalagið. Ég tel mig ekki yfir það hafinn að ræða við fólk.” Spurt var um hvernig ætti að halda áfram atvinnuuppbyggingu án þess að taka erlend lán. Jón Baldvin vitnaði þá í ýmiskonar fjáraustur hins opinbera, til dæmis í niðurgreiðslur landbúnaðar- vara og útflutningsbætur. Búið væri líka að henda 400 milljónum í Saltverk- smiðjuna og nú væri verið aö koma upp stálbræðslu sem Svíar hældu sér af að hafa prangað inn á okkur. Nú hafi ver- ið lokað 80 slíkum stálbræðslum i Evrópu vegna þess að þær séu úreltar. I þessari umræðu kom Jón Baldvin inn á hugmyndirnar um stofnun þriggja þróunarsjóða atvinnuveganna. Hann sagðist á móti þeirri hugmynd og vilja frekar einn f járfestingarbanka. Kvótakerfi sagðist Jón Baldvin ekki hafa trú á til langframa, hvorki í land- búnaði né sjávarútvegi. Það leiddi til stöðnunar og gerði vörur dýrari þegar til lengdar léti. I landbúnaðarmálum vildi hann láta bændur sjálfa fá í reynd stjórn á vinnslu og dreifingarkerfi. Verðið fyrir afurðir yrði miðað við full- unnar vörur og því beinn hagur bændanna að lækka allan kostnað við framleiðsluna. JBH Hlýtt af athygli á boðskap formanns Alþýðuflokksins. snmvlHHH SOLUBOÐ. ...vöruverÖ í lágmarki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.