Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1985, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1985, Blaðsíða 6
6 DV. LAUGARDAGUR4. MAl 1985. Sælkerinn Sælkerinn Sælkerinn Sælkerinn Enn versnar þjónusta Atvr 29. april sl. mátti lesa hér í blaðinu frétt þess efnis að ÁTVR endurskoð- aði vínlistann, fjöldi tegunda hverfur engar nýjar tegundir á næstunni. Svo mörg voru þau orð. Eins og áður hefur verið bent á hér á Sælkera- síðunni er þjónusta ÁTVR hvergi nógu góð. Hér er ekki við starfsfólk ATVR að sakast heldur stjómvöld, því ÁTVR er ríkisfyrirtæki eins og kunnugt er. Sem dæmi um slæma þjónustu fyrirtækisins fá starfsmenn vínsölu- búðanna enga menntun eða fræðslu um vín og vínframleiðslu. I búðunum er ekki hægt að fá bæklinga um vín eða upplýsingar um þær tegundir sem á boðstólum eru. I Noregi, Sví- þjóð og Finnlandi eru einkasölur eins og hér á landi. I þessum löndum gefst starfsfólkinu kostur á fræðslu og sænska einkasalan gefur út tugi bæklinga á ári hverju um vín. Þess má geta að á síðasta ári dró úr áfengisneyslu Svía. En nú á sem sagt að taka af skrá þær tegundir sem ekki seljast. Það er kannski skiljanleg ráðstöfun en það er ekki viturlegt að láta hreina tölfræði ráða í þeim efnum. Sumar áfengistegundir koma ávallt til meö að seljast í litlu magni. Þær eru t.d. notaðar í kokkteila og mat. Nú sumar ágætar víntegundir hefur fólk ekki hugmynd um. Réttara væri að endurskoða þær áfengistegundir sem á boðstólum eru. Staðreyndin er sú að vínlisti ÁTVR er nánast hlægi- legur. Það rnætti halda að þau vín sem á boöstólum eru hafi veriö valin af algjöru handahófi. — Það virðist engin kerfisbundin hugsun liggja að baki, t.d. er lítið úrval af Bordeaux og Burgundarvínum en töluvert úrval af öðrum vínum, t.d. eru tvær tegundir af Beaujolais vínum frá sitt hvoru fyrirtækinu. Sama má segja um Chianti vínin ítölsku. Nær væri aö hafa eitt Chianti vín og t.d Barolo Barbera eða Bardolino vín. Þá er úrvalið af hvítum Bordeaux vínum fyrir neðan allar hellur. Hins vegar Umsjón: Sigmar B. Hauksson Alt <»m mml Margir kannast við hið ágæta danska blað „Alt om mad” á la Carte. Þetta blað var mjög vinsælt meöal sælkera á Norðurlöndum. Nýlega bárust Sælkerasíöunni þær fréttir aö blaðið væri hætt að koma út. Blaðið var víst of dýrt í framleiðslu. Það er þó huggun að við hér á Islandi höfum hið ágæta blað Gest- gjafann, blað sem Hilmar B. Jónsson og Elín Káradóttir gefa út. Gestgjafinn er án efa vandaöasta sérrit á Islandi í dag. Það er skrifaö af mikilli kunnáttu, í smekklegu broti. Litmyndirnar eru sérstaklega vel unnar. Sælkerasíðan þorir að fullyrða að Gestgjafinn er með betri blöðum um mat á Norðurlöndum. Uppskriftimar eru miðaöar við íslenskar aðstæöur og því ber sérstaklega að fagna. Þegar það er haft í huga að mikill hluti þeirra matreiðslubóka sem ge&iar eru út hér á landi eru algjörlega framandi fýrir Islendinga.Sem sagt.Hilmar og Elín, til hamingju. Hilmar B. Jönsson og Elin Káradóttir ritstjórar. er óhemju úrval af þýskum vínum og sum þeirra algjört rusl. Til eru ein- hver ósköp af Liebfraumilch vínum. Við höfum ekkert að gera með allar þessar tegundir. Vegna furðulegra álagningarreglna á léttum vínum virðist sem þau séu sum hver farin að þynnast, t.d. er Liebfraumilch Anheuser 8,5% og kostar flaskan af því 170,- kr. Hið ágæta vín Bereich Nierstein er 11,3% og kostar flaskan af því 230,- kr. Það skal þó tekið fram að ekki er hægt að bera þessi vín alfarið saman en verömunurinn er of Enn versnar þjónusta ÁTVR. Ekki er vifl starfsfólk ÁTVR afl sakast heldur stjómvöld. mikill þegar þaö er haft í huga að Bereich Nierstein er „meira” vín. Þá eru á boðstólum einhver ósköp af portúgölskum rósavínum en aðeins ein tegund af frönsku rósavíni. Þá eru á boðstólum tvær tegundir af bandarískum Burgundy vínum, að vísu frá tveimur fyrirtækjum. Nóg væri að hafa vín frá öðru hvoru fyrir- tækinu og svona mætti lengi telja. Þá vantar á listann ýmsar tegundir sem sjálfsagt væri að hafa. Nefna mætti Créme de Cassis og Calvados og fjöl- margar léttvínstegundir. Vissulega má fækka tegundum, því nóg er af ruslinu — en fara veröur eftir gæðum vínanna en ekki tölum. Svo virðist sem yfirvöld líti á ÁTVR sem mjólkurkú. Þjónusta við viðskipta- vini virðist vera bannorð. Það er kannski kominn tími til að fela einka- aðilum sölu áfengis hér á landi. Ástandið eins og það er í dag er alls ekkiviöunandi. Lausnin er hjá okkur -yfirbyggingar 12 tonna flutningsgeta 13 tonna flutningsgeta Tvær þrælgód ar lauksúpur Góð súpa er heil máltið. Lauksúpur eru sérlega matarmiklar og eru þær vinsælar hér á landi. Hér koma uppskriftir að tveimur nokkuö svo óvenjulegum lauksúpum. Það er auðvelt aö matreiða þessar súpur og þær eru hvor um sig heil máltið, þá fyrri köllum við „lauksúpu með eggi”. Það sem þarf er: 500 g laukur 2 msk. smjör 1 litri kjötsoð (1 lítri vatn og 2 teningar kjötkraftur) 4egg pipar og salt Skerið laukinn í þunnar sneiðar og steikið hann í potti í smjörinu. Þegar hann er orðinn mjúkur og brúnleitur er k jötsoðinu hellt í pottinn. Súpan er krydduð með salti og pipar og látin sjóða kröftuglega. Lækkið því næst strauminn. Brjótið eggið og setjið í bolla og hellið varlega úr bollanum í pottinn. Þegar eggið er orðið hvítt er næsta eggi hellt i pottinn og svo koll af kolli þar til öll 4 eggin eru komin i pottinn. Súpan er látin sjóða við vægan hita í 3 mínútur og því næst borin á borð í pottinum. Þá er það „súpa frá Tourin”. Þessi súpa er frönsk að uppruna. Það sem þarfíþessasúpuer: 51aukar 4 sneiðar reykt flesk (beikon) 1 litri vatn 2 eggjarauður 1 tsk. vínedik salt og plpar eftir smekk 2 súputeningar Byrjiö á því að skera laukinn í þunnar sneiöar. Setjið pott á hlóðir helst með þykkum botni. Skerið beikonið í strimla og steikiö í pottinum. Þá er laukurinn settur í pottinn og straumurinn lækkaður. Þegar laukurinn er vel mjúkur er hann kryddaður með salti og pipar. Þá er vatniö sett í pottinn og súpu- teningamir. Látið svo súpuna malla í um það bil 15 mín. Þeytið saman í skál eggjarauðurnar og vínedikið. Hrærið þessa blöndu kröftuglega saman við súpuna. Látið súpuna malla enn, hún má þó ekki sjóða. Þá er súpan tilbúin. Ristið 2—4 brauðsneiðar, skerið þær í teninga og setjið þá í skál sem borin er fram meðsúpunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.