Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1985, Blaðsíða 5
DV. LAUGARDAGUR15. JUNI1985.
5
£TLAR M) BYGGJA EIN-
BYLISHUS A FORNMINJUM
Mikill hiti er í íbúum Seljahverfis í
Breiöholti vegna fyrirhugaörar
byggingar rúmlega 300 fermetra ein-
býlishúss á stað sem samkvæmt
aðalskipulagi á að vera opið, grænt
svæði. Hafa undirskriftalistar gengið
milli nágrannanna vegna þessa.
Forsaga málsins er sú að á um-
ræddu svæði eru elstu fornminjar
Breiðholts, en þar stóð gamli Breið-
holtsbærinn, sem hverfið er kennt
við. Fyrir ofan er talin hafa staðiö
kapella frá 14. öld og viö hana er sagt
að kirkjugaröur hafi verið. Hafa
komið upp bein þama á lóðinni þeg-
ar rótað hefur verið í jarðveginum.
Er meiningin að grafa þama upp ein-
hvem tíma og friða svæðiö. Á þeim
forsendum er svæðiö grænt á aðal-
skipulagi.
Svo gerist það fyrir mánuði aöJón
H. Bjömsson, eigandi Alaska, fer að
grafa þarna grunn, enda með bygg-
inganefndarleyfi upp á vasann. Þótti
nágrönnunum þetta furðulegt og
hafa farið býsna hljótt ef verið væri
að breyta aðalskipulaginu svo. Fóm
þeir því af stað með undirskrifta-
söfnun og sendu borgarstjóm sem
afturkallaöi leyfið og sendi bygg-
inganefnd málið aftur til umfjöllun-
ar.
„Þetta er hreinn og klár gmnnur,
sem þama er kominn og miklar
— nágrannarnir æf ir
breytingar hafa verið gerðar á land-
notkuninni. Þess vegna ætti þetta
mál að fara fyrir skipulags-
nefnd og skipulagsstjóm ríkisins,”
sagði ónafngreindur nágranni.
„Þetta er elstu minjamar hér í
Breiðholti og æskilegt er að grafa upp
rústimar. Við teljum að maðurinn
megi ekki byggja þama, en grunnur-
inn er alveg við gamia Breiðholtsbæ-
inn þarsemhannstóð.”
„Eg hef hugsaö mér að búa í þessu
húsi,” sagði Jón H. Björnsson. „Ann-
að vil ég ekki segja um þetta mál á
þessustigi.”
Málið er því í biðstöðu og beðið er
eftirúrskuröibygginganefndar. -KÞ
Þegar hefur verið grafinn grunnur fyrir einbýlishúsinu. Í baksýn sjást
rústir gamla Breiðholtsbæjarins. Eins og sjá má nær grunnurinn alveg
að bænum. DV-mynd VHV
Sá danski seldist upp
á einni viku
nú tókst okkur að fá dýrarí gerðina, Skoda 120L
sérútbúna fyrír Danmörku með eftirtöldum búnaði:
Stærri vél (1200cc 52 Din hö.)
Tannstangarstýri
Aflhemlar
Fullkomnara mælaborö
Hliöarlistar
Þokuljós aö aftan
Tveggja hraöa rúöuþurrkur
Halogen framljós
Teppi á gólfum
Radial hjólbarðar (165 SR 13)
Bakkljós
Rafmagnsrúðusprautur
Læst bensínlok
Barnalæsingar á afturhurðum
Hallanleg framsætisbök
o.fl.
Og allt þetta fæiðu á dönsku afsláttarveiði
aðeins kr. 188.888- Ath. Opiö í dag.