Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1985, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1985, Blaðsíða 4
22 DV. FÖSTUDAGUR12. JULl 1985. Hvað er á seyði um helgina? Messur Guftsþjónustur í Reykjavíkurprófastsdæmi sunnudaginn 14. júli 1985. ÁSKIRKJA: Guösþjónusta kl. 11.00. Síðasta messa fyrir sumarleyfi. Sr. Arni Bergur Sigurbjömsson. BOSTAÐAKIRKJA: Guósþjónusta kl. 10.00. Ath. sumartímann. Sr. Olafur Skúlason. DOMKIRKJAN: Messa í kapellu Háskóla Islands kl. 11.00. Dómkórinn syngur. Organ- leikari Marteinn H. Friðriksson. Sr. Hjalti Guðmundsson. LANDAKOTSSPITALI: Messa kl. 10.00. Org- anleikari Birgir As Guðmundsson. Sr. Hjalti Guðmundsson. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjónusta kl. 10.00. Sr. Lárus Halldórsson. FELLA- og HOLAKIRKJA: Lesmessa kl. 11.00. Sr. Helga Soffía aðstoðarprestur annast. Sóknarprestur. HALLGRlMSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sr. Karl Sigurbjömsson. Þriðjudag 16. júlí: Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. LANDSPlTALINN: Guðsþjónusta kl. 10.00. Sr. Karl Sigurbjömsson. HATEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sr. Tómas Sveinsson. BORGARSPlTALINN: Guðsþjónusta kl. 10.00. Sr. Tómas Sveinsson. I'OPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00. S -. Þorbergur Kristjánsson. LANGHOLTSKIRK JA: Guðsþjónusta kl. 11.00. Prestur sr. Sigurður Haukur Guðjóns- son. Organleikari Jón Stefánsson. Sóknar- nefndin. NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Guðmundur Oskar Olafsson. Miðvikudag 17. júli: Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 18.20. Sr. Guðmundur Oskar Olafsson. SELJASOKN: Guðsþjónusta í ölduselsskóla kl. 11.00. Fyrirbænasamvera í Tindaseli 3, þriðjudag 16. júlí kl. 18.30. Sóknarprestur. Þingvallakirkja Guðsþjónusta á sunnudag kl. 15. (Ath. breyttan messutíma). Sóknarprestur. Garða- og Hafnarfjarðarsóknir Guðsþjónusta í Garðakirkju kl. 11, organisti Helgi Bjamason. Sr. Gunnþór Ingason, Tilkynningar Samvinnuskólanemar 1 Miðgarð Um helgina koma samvinnuskóla- nemar saman í Miðgaröi í Skagafriði. Þetta er árlegur fagnaður, alltaf hald- Allt efni sem á að koma í helgarkálfinn „Hvað er á seyði um helgina?" þarf að hafa borist rit- stjórn blaðsins fyrir há- degi á miðvikudögum. Hér á síðunni eru nokkrar myndir eftir Sichov, sem er í bókinni lceland Crucible. Myndin hór að ofan sýnir Hrafn Gunnlaugsson. Gróandim listum ísl — víðtæk sýning veri að Kjarvs Hilda hf. og Bókaútgáfan Vaka hafa tekið höndum saman um viðamikla kynningu á gróandanum í nútímalistum Islendinga. Kynningin er samsett úr þremur meginþátt- um, þ.e. stórri ljósmyndasýningu, kvik- mynd og vandaðri bók. Hér er um einstæðan viðburð að ræða í menningarlifi Islendinga og þótt víðar væri leitað, því ekki er vitað til að nokkum tíma hafi verið efnt til jafn víð- tækrar kynningar á öllum listgreinum heill- ar þjóðar. Ráðgert er að fara með kynningu þessa víða um lönd á næstu árum, en forsýning hennar verður opnuö á Kjarvalsstöðum á morgun og mun standa þar fram til 28. júlí, frá klukkan 14 til 22 daglega. Kynningin hefur hlotið yfirskriftina Iceland Crucible. Magnús Jónsson. Ljósmyndirnar Á kynningunni er sýning á 330 ljósmynd- um af um 170 íslenskum listamönnum úr öllum greinum, eftir heimskunnan Ijós- myndara, Vladimir Sichov. Hann starfar að staðaldri fyrir ýmis helstu myndskreytt viku- og mánaðarrit vestan hafs og austan og hefur fengiö fleiri myndir birtar en nokkur annar ljósmyndari í heiminum á síð- ustu sex árum. Ljósmyndasýningin á Kjarvalsstöðum er stærsta, fjölbreytilegasta og listrænasta mannamyndasýning sem nokkru sinni hefur verið efnt til hérlendis. Kvikmyndin Annar hluti kynningarinnar er hálftíma kvikmynd um grósku íslenskra lista í nútímanum. Myndin nefnist Iceland Crucible og er gerð af tveimur kunnum bandarískum kvikmyndagerðarmönnum, Hal Calbom og Phil Davies, sem átta sinn- um hafa verið sæmdir hinum eftirsóttu Emmy-verðlaunum fyrir sjónvarpsþætti sína. Til skamms tíma unnu þeir fyrir bandaríska sjónvarpsstöðina NBC, en starfa nu sjálfstætt. Kvikmyndin er í litum og koma þar viö inn í Miðgaröi. Grábrókarfélagið margfræga verður til staðar, eins og því er einu lagið, en það er með óvenju- legri kvennahreyfingum hérlendis. Dansleikur verður í Miðgarði á laugar- dagskvöldið og mun hljómsveitin Upp- lyfting halda uppi fjörinu, en meðlimir hennar hafa verið í Samvinnu- skólanum. Sætaferðir verða á dans- leikinn frá Sauöárkróki, Blönduósi, Skagaströnd og Hofsósi. Tjaldað verður viðMiögarð. Sædýrasafnið er opið alla daga frá kl. 10—19. Um helgar eru sýningar á tamningu á há- hymingi á klukkutíma fresti frá kl. 13-17. Trúnaðarbréf afhent Nýskipaður sendiherra Frakklands, hr. Yves Mas, og nýskipaður sendi- herra Noregs, hr. Niels Lauritz Dahl, afhentu forseta Islands trúnaðarbréf sín í dag að viðstöddum Geir Hall- grímssyni utanríkisráðherra. Síðdegis þáðu sendiherrarnir boð forseta Islands á Bessastöðum ásamt fleiri gestum. Sendiherrar Frakklands og Noregs hafa báðir aðsetur í Reykjavík. Ferðablaðið LAIMD Ferflablaðið LAND er nú komiö út öðru sinni og mega landsmenn eiga von á að, fá það inn um bréfalúgur sínar á næstu dögum. Land er án efa útbreiddasta tímarit sem gefið er út á Islandi en það er prentað í 80.000 ein- tökum og dreift ókeypis á hvert ein- asta heimili á landinu. Ferðablaðið Land er 180 bls. að stærð og komiö í tímaritsbrot í stað dagblaðabrotsins í fyrra. Ritið hefur aö geyma mikið magn upplýsinga er að gagni mega kom þeim Islending- um sem hyggjast ferðast innanlands í sumarleyfinu. Otgefandi er E. THORSTEINSSON HF. Ferðablaðið LAND er ársrit sem hóf göngu sína í fyrra og mæltist þá þegar vel fyrir. Hefur efni blaðsins nú verið aukið að mun þótt enn skorti því miöur nokkuö á aö alls staðar sé um tæmandi upplýsingar að ræða. I blaöinu er fjallað ítarlega um hvem landshluta fyrir sig og fjölmörg sveitarfélög eru kynnt og rakin sú þjónusta sem þau bjóða ferðamönn- um. Þá er og fjallaö um allmörg fyr- irtæki sem ferðamálum sinna og rætt við fjölda einstaklinga sem starfa í þessari ungu, en ört vaxandi, atvinnu- grein. Ferðablaðiö LAND hefur einnig að geyma aragrúa uppflettiatriöa. Þar er að finna tímatöflur fyrir áætlunar- ferðir á landi, sjó og í lofti; sömuleið- is opnunartíma ýmissa safna, sund- staða o.s.frv. LAND er þannig að mörgu leyti eins konar ferðahandbók og getur áreiðanlega í mörgum tilvik- um komið í staö slíkra. Matthias Bjarnason samgönguráö- herra fylgir blaðinu úr hlaði með ávarpi og segir þar m.a. að veruleg breyting hafi að undanförnu orðið á afstöðu bæði almennings og ráða- manna til feröamála sem atvinnu- greinar. „Augu manna hafa opnast meir og meir fyrir því,” segir ráðherra, „að ferðamálin, hvort heldur rætt er um erlenda ferðamenn tii Islands, Is- lenska ferðamenn til útlanda eða is- lenska ferðamenn hér á landi, er at- vinnugrein sem taka ber fuilt tillit tU.” Síðast en ekki sist má geta þess aö LAND er prýtt miklum fjölda fagurra litmynda víðs vegar af landinu og eru þær flestar teknar af Mats Wibe Lund. Tilkynningarþjónusta, 91-686068 Auk sólarhrings neyöarvaktar Landssam- bands flugbjörgunarsveita og Landssam- bands hjálparsveita skáta býðst nú almenn- ingi sú þjónusta aó geta tilkynnt um feröir sin- ar um óbyggðir landsins. Meö því aö tilkynna um brottför, ferðaslóö- ir, feröamáta og áætlaöan heimkomutima í síma 91-686068, auka ferðalangar öryggi sitt, því ef þeir hafa ekki skilaö sér á nokkum veg- inn tilsettum tíma, verða hafnar eftirgrennsl- anir, nema tilkynnt verði um seinkun. Með þessari þjónustu vilja flugbjörgunar- og hjálparsveitir endurgjalda almenningi áralangan stuöning viö starfsemi sveitanna. Þess má geta, aö Vaktþjónusta Securitas mun vakta sima tilkynningarþjónustunnar. Neyðarsími 91-686068 I samvinnu viö Vaktþjónustu Securitas í Reykjavík hafa Landssamband flug- björgunarsveita og Landssamband hjálpar- sveita skáta komið á fót neyðarsíma 91- 686068. Neyðarsíminn er vaktaður hjá Securi- tas allan sólarhringinn og getur fólk, er óskar aðstoöar hjálpar- og björgunarsveita, hringt í neyðarsímann. Vaktþjónusta Securitas mun þá kalla út forsvarsmenn LFBS og LHS. Meö aögangi aö skyndiútkallskerfi („friöþjóf- um”), getur Securitas kallað út forsvars- mennina, þótt ekki náist til þeirra í síma. Lykilmenn hjálpar- og björgunarsveitanna á Faxaflóasvæðinu bera einnig á sér „friöþjófa- tæki”, svo kalla megi þá út til leitar og aöstoö- ar á sem allra stystum tíma. Partíplata hljómsveitar Birgis Gunnlaugssonar Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar sendir nú frá sér sína fyrstu hljómplötu og er út- gáfudagur hennar þriðji júlí. A plötunni eru tíu eldhress og skemmtileg lög, flestöll meö textum eftir Birgi Gunnlaugsson, og tvö lög eru samin af tveimur meðlimum hljóm- sveitarinnar, þeim Nikulási Róbertssyni og Gunnari Jónssyni. Hér er á feröinni blönduö partiplata fyrir alla aldurshópa og ætti hver einasti Islendingur aö eiga eintak til aö hafa sér til sáluhjálpar og hressingar. Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar skipa eftirtaldir menn: Birgir Gunnlaugsson gítar- leikari og aðalsöngvari hljómsveitarinnar, Olafur Garöarsson trommuleikari, Gunnar Bemburg bassaleikari, og Nikulás Róbertsson, hljómborö og söngur. Einnig koma fram á hljómplötu þessari þeir Siguröur Rúnar Jónsson, Vilhjálmur Guöjónsson og Olöf Sesselja Oskarsdóttir sem leika á hin ýmsu hljóðfæri. Sérstakar þakkir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.