Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1986, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1986, Blaðsíða 1
i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i NÝIEINKABANKINN Á FÆÐINGARDEILDINNI Stjórnendur Verslunarbankans hafa tekið sömu afstöðu og stjórn- endur Iðnaðarbankans til hug- myndanna um nýjan, stóran einka- banka. Þeir samþykktu þátttöku í viðræðum og sýna málinu mikinn áhuga. Samband íslenskra spari- sjóða hefur ennfremur ákveðið að fylgjast náið með. Ljóst er að hug- — stórfé þarf í uppgjör Útvegsbankans við líf eyrissjóð myndin nýtur mikils og almenns fylgis. Viðskiptaráðherra er því kominn með hana á fæðingardeild- ina. Varðandi Útvegsbankann og vandamál hans, sem einkabanka- hugmyndin er sprottin af, liggur fyrir að ríkið mun ekki aðeins verða að leggja fram fé upp í tapið af Hafskipsviðskiptunum, sem nemur hundruðum milljóna króna. Verði bankinn lagður til einka- bankanum þarf að gera upp lífeyr- issjóð starfsmanna. Forsætisráð- herra telur það kosta jafnvel hundruð milljóna til viðbótar. Rinrik Greipsson hjá lífeyrissjóðn- um segir þó óvíst að upphæðin sé svohrikaleg. Auk Útvegsbanka, Iðnaðarbanka og Verslunarbanka kemur til álita að Alþýðubankinn renni inn í nýja, stóra einkabankann. Samband sparisjóða hefur áhuga á eignarað- ild til þess að njóta þar sameigin- legrar þjónustu. Ekki kemur til greina að leggja neinn sparisjóð inn í bankann. Þá er vitað um mikinn áhuga ýmissa öflugra sam- taka og fyrirtækja, svo og einstakl- inga. Flest bendir því til þess að stóri einkabankinn sé í burðarliðn- um. HERB Fyrsti Reykvíkingurinn á afmælisárinu ásamt fjölskyldu sinni. Foreldrarnir Sigríður Hafdís Þórðardóttir og Þorsteinn J. Þorsteinsson og stóru bræðurnir Jón Steindór til vinstri og Páll Arnar. DV-mynd KAE Fyrstu börn ársins: Annasömen stórslysalaus áramót Fleiri slökkviliðs- útköll en nokkru sinnivegna sinubruna Rúðubrotog drykkjuskapur íHöllinni — sjá áramótayfirlit ábls.2 ■: „Voða fínn strákur” — segja foreldrar afmælisbarns Reykjavíkur. Fyrsta barnið fæddist á Akureyri Fyrsta barn Reykjavikur á 200 ára afmælisárinu fæddist á Landspítal- anum rúmlega þrjú á nýársnótt. Það er drengur, stór og mikill, enda tæpar tuttugu merkur og 57 sentímetrar. Hann er þriðja barn foreldra sinna, Þorsteins J. Þorsteinssonar skrif- stofumanns og Sigríðar Hafdísar Þórðardóttur fóstru. „Við eigum tvo stráka fyrir, 4ra og 7 ára, og gerðum okkur vonir um stelpu í þriðju atrennu en þetta er voða finn strákur,“ sagði mamman stolt og hossaði þeim litla sem lét sér fátt um finnast alla athyglina og bara gretti sig. Sá stutti náði þvi þó ekki að verða fyrsta barn ársins, það fæddist rúm- lega hálftíma fyrr á Akureyri. Það er líka drengur, tæpar tólf merkur og 48 sentímetrar. Foreldrar hans eru Benjamín Valgarðsson, starfsmaður Rarik, og Rósa Kristín Níelsdóttir fiskverkunarkona. Hann er annað barn þeirra, en þau eiga 4ra ára dóttur fyrir. „Við erum alveg í skýjunum," sagði Rósa Kristín, í samtali við DV. „Hann er svo sætur. Fæðingin gekk eins og í sögu þótt sá stutti hefði ekki átt að koma i heiminn fyrr en ídag.“ - KÞ Borgarstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddsson, kveikti á önd- vegissúlum tveim á Vestur- landsvegi í gærdag. Sex öndveg- issúlum hefur verið komið fvrir á helstu innkomuleiðum til Reykjavíkur og verður kveikt á þeim allt árið, en í ár er 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar. Fjöldi manna var viðstaddur athöfnina á Vesturlandsvegi í gær þegar kveikt var á súlunum. Á myndinni má þekkja Magnús L. Sveinsson, forseta borgar- stjórnar, og Vilhjálm Þ. Vil- hjálmsson borgarfulltrúa. DV-mynd K AE.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.