Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Blaðsíða 2
2 Fréttir DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986. Fréttir Fréttir Göndull gæti hafa grandað flugvélinni Veður norður af Snæfel lsn es(j al 1- garði á laugardag var það slæmt fyrir flugvélar að það gæti verið meginor- sök þess hvernig fór fyrir TF-ORM. Háloftaathugun sem gerð var frá Keflavíkurflugvelli á hádegi á laug- ardag, skömmu fyrir flugslysið, sýnir að skilyrði í lofthjúpnum yfir Vestur- landi voru hagstæð fyrir myndun fjallabylgja og hins hættulega rotors, eða gönduls, sem allir flugmenn ótt- ast. Veðurtunglamynd, sem tekin var um svipað leyti, sýnir greinilegar fjallabylgjur á þessu svæði. Ennfremur bendir háloftaathugun til að talsverð ísing hafi verið í yfir þrjú þúsund feta hæð og upp í átta þúsund feta hæð. Flugmaður TF-ORM tilkynnti sig yfir Stykkishólmi í sex þúsund fetum en bað síðan um lækkun niður í fimm þúsund fet. Vindur á láglendi á flugleið vélar- innar var sex til sjö vindstig af suðri. í þrjú þúsund feta hæð, en svo hátt ná Ljósufjöll, voru hins vegar níu vindstig. I vindsveipum má ætla að vindhraði hafi verið miklu meiri. Veðurfræðingar telja líklegt að í þessum skilyrðum hafi norðan við Ljósufjöll, hlémegin, ekki aðeins ver- ið fjallabylgjur heldur einnig veður- fyrirbrigði sem á ensku kallast rotor en nefnt hefur verið göndull á ís- lensku. Borgþór H. Jónsson veðurfræðing- ur skrifaði vorið 1984 grein um fjalla- bylgjur. Borgþór segir að í fjallabylgj- um verði flugmenn að hafa í huga að búast megi við mikilli kviku, miklu upp- og niðurstreymi, hæðarmælis- skekkju, stundum mikilli ísingu og að lægsta „örugga“ flughæð sé ekki alltaf örugg í fjallabylgjum. „Mesta hættan í fjallabylgju er kvikan í og neðan við rotorinn og niðurstreymið hlémegin við fjallgarð- inn og rotorinn." segir Borgþór. „Niðurstreymið hlémegin við rotor- inn og uppstreymið neðan við hann geta hrifið flugvél inn í rotorinn ef flugmaður reynir að fljúga ofan eða neðan við hann. Enginn flugmaður ætti að reyna slíkt. Hitamismunur frá hitastigi ISA (International Standard Atmosphere) og raunhita í lofthjúpn- um og þrýstingsfall vegna bylgju- streymisins ásamt miklu niður- streymi nálægt fiallatindum, en þeir eru oftast huldir skýjakambinum, valda því að flugmaður sem flýgur í lægstu „öruggri" flughæð rekst oftast á fiallið í staðinn fyrir að fljúga yfir það. Flugmaður sem flýgur inn i rotor missir algjörlega stjóm á vélinni. Það fer því mest eftir heppni og gerð vélar- innar hvort hann sleppur lifandi frá því,“ segir Borgþór í grein sinni. Hvort og að hve miklu leyti þessi veðurfyrirbrigði áttu þátt í flugslys- inu getur enginn fullyrt um á þessu stigi. Flugslysanefnd á eftir að fá ná- kvæma skýrslu Veðurstofunnar, yfirheyra þá sem komust lífs af og kanna aðra þætti, svo sem hugsan- lega vélarbilun. -KMU FJALLABYLGJA MINNI Þessi teikning sýnir hvernig fialla. fiallabylgjur og göndull geta orðið hlémegin Flugslysanefnd rannsakar flak TF-ORM í Ljósufiöllum. DV-mynd GVA. Stöðvaðist annar hreyfill TF-ORM ? „Bíðum eftir að geta yfirheyrt mennina sem komust af“ - segir Pétur Einarsson flugmálastjóri. TF-ORM var á hárréttri flugleiö „Það er nú unnið á fullu við að tína saman hin margvíslegu gögn og yfirheyrslur hafa farið fram. Það er þó einn þáttur eftir í sambandi við rannsóknina á flugslysinu á Snæfellsnesi. Sá þáttur er mjög stór. Það er að yfirheyra farþegana tvo sem komust lífs af í slysinu," sagði Pétur Einarsson flugmálastjóri í samtali við DV í gær. Þegar Pétur var spurður um hvort það gæti verið að annar hreyfill TF -ORM hefði stöðvast á flugi sagði hann: „Það kemur í ljós þegar mennimir tveir verða yfirheyrðir. Það verður kannað hvort þeir urðu varir við að annar hreyfillinn hefði stöðvast. Annar mannanna sat fyrir aftan flugmanninn og hinn aftast í vélinni. Þeir hefðu orðið varir við það ef hreyfill hefði stöðvast," sagði Pétur. Pétur sagði að verið væri að skoða myndir af slysstað og flugvélinni, fara yfir það sem menn Flugslysa- nefndar skrifuðu og töluðu inn á segulbönd á slysstað. „Það er ljóst að gífurleg ísing, fiallabylgja og niðurstreymi var á svæðinu við Ljósufiöll. Flugmaður TF-ORM var á hárréttri flugleið í blindflugi þegar slysið átti sér stað. Það verður mikið kapp lagt á að finna hvað varð til þess að flugvélin missti flugið og skall í hlíð Ljósu- fialla,“ sagði Pétur. -SOS Sjöunda mesta slys íslenskrar flugsögu Flugslysið í Ljósufiöllum á Snæ- fellsnesi á laugardag er það sjöunda mannskæðasta sem hent hefur íslensk loftför. Aðeins þrisvar áður hafa fleiri farist með íslenskum loftförum hér- lendis. Mannskæðustu slys íslenskrar flug- sögu eru þessi: 183 létust er DC-8 þota Flugleiða fórst í aðflugi að flugvellinum við Colombo á Sri Lanka í nóvember 1978. 25 létust er DC-3 flugvél frá Flug- félagi íslands flaug á Hestfiall í Héðinsfirði austan Siglufiarðar í maí árið 1947. 20 létust er DC-3 flugvél frá Flug- félagi íslands fór í sjóinn undan Vatnsleysuströnd í janúar árið 1951. 12 létust er Viscount-vél Flugfélags íslands fórst í aðflugi að Fomebu- flugvelli við Osló í apríl árið 1964. 8 létust er Fokker-vél frá Flugfélagi íslands fórst á eyjunni Mykines í Færeyjum í september árið 1970. 7 létust er Sikorsky S-55 þyrla fórst við bæinn Hjarðarnes á Kjalarnesi í janúar árið 1975. Tvisvar áður hefur það gerst að fimm manns hafi farist í flugslysi:' árið 1973 þegar TF-VOR, Beechcraft- flugvél Björns Pálssonar, fórst í Búr- fiöllum norðaustan Langjökuls og árið 1982 þegar Piper Aztec-vélin TF-FHJ flaug á Kistufell í Esju. -KMU Svæðinu lokað Lögreglan á Snæfellsnesi hefur lok- að svæðinu upp að Sóldeyjardal í Ljósufiöllum þar sem flugslysið varð. Nú er beðið eftir að hægt verði að ná flaki TF-ORM niður, en það er í 640 m hæð. Frá því að flugslysið varð hefur verið til skiptis frost og hláka á svæðinu. -sos ÞAU FÓRUST MEÐ FLUGVÉLINNI Smári Ferdinandsson flug- maður, 34 ára. Kristján Sigurðsson bóndi, 49 ára. Sigurður Auðunsson hagræö- Auöur Erfa Albertsdóttir, unn- ingarráðunautur, 56 ára. usta Pálmars S. Gunnarssonar. h' jí4 Erla Björk Pálmarsdóttir, árs- gömul, dóttir Auöar Erlu og Pálmars. ÞEIR KOMUST AF Pálmar S. Gunnarsson lög- Kristján Guömundsson sjó- reglumaöur, 36 ára, unnusti maður, 29 ára. Auðar Erlu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.