Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Blaðsíða 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1986. 3 Steingrímur heimsækir Carisson Ákveðið hefur verið að Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra fari í opinbera heimsókn til Svíþjóðar og verði þar 6. og 7. október. Hann verð- ur þar í boði starfsbróður síns, Ingvars Carlsson. HERB hlaut Bæjarfógeti 15 mánaða fangelsisdóm Sakadómur Vestmannaeyja hefur dæmt í máli bæjarfógetans í Vest- mannaeyjum og aðalbókarans við sama embætti, þeirra Kristjáns Torfa- sonar og Ólafs Jónssonar. Voru þeir hvor um sig dæmdir í fimm mánaða fangelsi en reising höfö skilorðsbundin að því er þrjá mánuði varðar. Enníremur voru Kristján og Ólafur dæmdir til að greiða allan sakarkostn- að, þar með talin saksóknaralaun til ríkissjóðs, 100.000 kr. og málsvamar- laun til veijenda sinna, 100.000 kr. til hvors. Við ákvörðun refsingar var m.a. höfð hliðsjón af því að ákærðu höfðu aldrei áður sætt refsingu. Lán og innistæðulausir tékkar í ákæruskjali ríkissaksóknara, dag- settu 30. ágúst í fyrra, var báðum gefið að sök brot í opinberu starfi og að hafa...„hvor um sig og báðir saman misnotað embættis- og starfcaðstöðu sína við bæjarfógetaembættið ýmist sjálfum sér eða öðrum til ávinnings og fyrirgreiðslu og þá jafnframt með gerðum sínum hallað rétti hins opin- bera og rýrt að sama skapi hlut þess í sjóðum embættisins frá því sem ann- ars heföi verið.“ Ákæran skiptist í tvo kafla. í fyrsta kafla var ákærðu gefið að sök að hafa lánað sjálfum sér og öðrum úr sjóðum embættisins og rangfært bókhald þess í því sambandi. Hvað Kristján varðaði var hér um að ræða rúmar 171.000 kr. en hvað Ólaf varðaði rúmar 432.000 kr. Dómurinn taldi ákærðu sanna að sök hvað þetta varðaði. í öðrum kafla var ákærðu báðum gefið að sök að hafa geymt í sjóði embættisins, um óhæfilega langan tíma, 11 innistæðulausa tékka árið 1983, samtals að upphæð rúmar 883.800 kr. sem notaðir höfðu verið til greiðslu á opinberum gjöldum til bæj- arfógetaembættisins og jafnframt að hafa vanrækt að framvísa þeim svo að viðhaldið væri tékkarétti. Dómur- inn sakfelldi Kristján fyrir geymislu tékkanna en sýknaði Ölaf þar sem Kristján bæri einn ábyrgð á því sem forstöðumaður embættisins. Hinsveg- ar sakfelldi dómurinn Ólaf fyrir ýmis afskipti af tékkunum og rangfærslur í bókhaldi í því sambandi. Ólögmæt afskipti af banka- innleggi I ákæruskjalinu var hinum ákærðu gefið að sök að hafa haft ólögmæt af- skipti af bankainnleggi með tékkum að upphæð rúmar 2.168.000 kr. sem ríkisendurskoðandi hafði útbúið við sjóðtalningu 18. mai 1983. Sök ákærðu vegna bankainnleggs- ins þótti gegn neitun þeirra hinsvegar ekki nægilega sönnuð og voru þeir sýknaðir af þeim þætti ákærunnar. Loks var ákærðu gefið að sök að hafa heimilað afhendingar á vöru- sendingum án lögboðinnar tollmeð- ferðar og greiðslu aðflutningsgjalda til ríkissjóðs á árunum 1982 og 1983, Kristján í fimm tilvikum og ólafur í þremur. Dómurinn taldi sök Kristjáns ekki sannaða gegn neitun hans að því er varðar 2 afhendingar. Hann var hins- vegar sakfelldur fyrir að hafa bæði heimilað sjálfur og látið heimila af- hendingar á 3 vörusendingum án lögboðinnar meðferðar. Ólafúr var einnig sakfelldur fyrir að hafa heimil- að afhendingu á 3 vörusendingum. Af hálfu ákæruvaldsins sótti málið Bragi Steinarsson vararíkissaksókn- ari en verjendur Kristjáns og Ólafe voru þeir Benedikt Blöndal hrl. og Sveinn Snorrason hrl. Dóminn kváðu upp Gunnlaugur Bri- em yfirsakadómari sem dómsformað- ur, Ásgeir Pétursson bæjarfógeti og Haraldur Henrysson sakadómari en þeir voru skipaðir umboðsdómarar í málinu. -FRI Þ/ÓNUSTAIÞACU atvihhuUfs Víðtæk og traust þjónusta við málmiðnaðinn. Stál og málmar fyrir byggingariðnaðinn. Sérþjálfaðir sölumenn leiðbeina um val á efni, vélum og tækjum. SINPRA M STAL HF BORGARTUNI31, SlMAR 27222 & 21684 ÖFLUG ÞJÓNUSTA VEGNA SÉRVERKEFNA. Fréttir Fréttir Fréttir ' Fréttir ARGUS/SlA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.