Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Blaðsíða 19
DV. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1986. 19 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir „Fylgjast með HM-keppn- inni gegnum skráargatið“ - segir Bobby Robson. Wilkins í 2ja leikja bann ;< H 'Ar * i■ vv g/ss,<5,s ... ; *s‘ 4 • Erlingur Kristjánsson. Erlingur til Noregs Þráinn Steönsscan, DV Akureyri: Erlingur Kristjánsson, einn besti leikœaður KA í handknattleik og knattspyrnu, fer til Noregs í haust og mim Ieika með Fredensborg/Ski í handknattleiknum næsta vetur. Þjálf- ari norska liðsins er Helgi Ragnarsson sem sl. leiktimabil þjálfaði SIF í Staf- angri með frábærum árangri. Þjálfari Fredensborg/Ski var Gunnar Einars- son en hann er nú hættur þar. Erlingur Kristjánsson lauk prófi frá Háskóla íslands í vor í viðskiptafræði. Hann mun leika með KA í knattspym- unni í sumar í 2.deildinni. Sterkur miðvörður sem leikið hefur fjóra landsleiki fyrir ísland. í handknatt- leiknum á síðasta leiktímabili var Erlingur einn af máttarstólpum liðs KA sem náði sínum besta árangri í l.deild - fjórða sæti. hsím „ Ég viðurkenni alls ekki að leikmenn mínir séu í of mikilli þjálfun. Eins og leikmenn annarra liða verða þeir þreyttir í síðari hálfleiknum. Fólk get- ur ekki metið aðstæður hér, lamandi hitann, sólina. Það er svolítið annað að liggja við sundlaugina í 20 mínútur eða leika hér knattspymu í 90. Það er eðlilegt að leikmenn þreytist en ég hef ekki áhyggjur af því. Við höfum aðeins tapað einum leik af síðustu 14 og það var leikur sem við áttum alls ekki að tapa,“ sagði enski landslið- seinvaldurinn, Bobby Robson, í Mexíkó. Hann er nú gagnrýndur mjög vegna frammistöðu enska HM-liðsins, bæði af enskum blaða- og fréttamönn- um í Mexíkó en þó einkum heimafyrir. „ Ég hef ekki áhyggjur af þessari gagnrýni að heiman. Fólk þar fylgist með HM-keppninni gegnum skráarga- tið, veit ekkert í hverju við stöndum. Ef við hefðum ekki æft vel hefðu leik- menn mínir ekki það úthald sem þeir hafa sýnt hér,“ sagði Robson. Vissu- lega hefur frammistaða enska liðsins komið á óvart, verið miklu lakari en reiknað var með, einkum þegar það er haft í huga að það hafði ekki tapað leik í heilt ár fyrir HM-keppnina. Meðal kunnraleikmanna hér á árum Tveir leikir í l.deildíkvold Tveir leikir fara fram í 1. deild í kvöld. Eru það leikir Þórs og ÍBV á Akureyri og leikur UBK og Fram í Kópavogi. Leikimir, sem eru úr 3. umferð, áttu að fara fram 24. mai en var frestað vegna Reykjavikurleik- anna. Báðir leikimir hefjast kl. 20.00 í kvöld. -SMJ Miklar breytingar hjá Stuttgart „Bernd hefur staðið sig frábærlega hjá Stuttgart í gegnum tíðina. En ég óttast að hans tími sé búinn. Ég efast um að hann nái að komast i sitt gamla form eftir meiðslin sem hrjá hann núna,“ sagði Egon Coordes, þjálfari Stuttgart, þegar hann tilkynnti að samningur liðsins við Bemd Föster yrði ekki framlengdur. Samningurinn rennur út 30. júní og eftir það verður Bcmd að finna sér annað lið. Þar með em tveir af þeim leikmönn- um sem hafa sett hvað sterkastan svip á hið sigursæla Stuttgart-lið horfhir á braut. Föster-bræðumir hafa verið nokkurskonar vörumerki hjá liðinu allt síðan 1978. Þá gekk Bemd til liðs við yngri bróður sinn, Karl-Heinz Föster, sem þá var kominn til liðsins. Karl-Heinz var hinsvegar nýlega seld- ur til Mónakó í Frakklandi þannig að hvorugur bræðranna verður með lið- inu næsta vetur. Bemd er orðinn 32 ára og spilar í vöminni eins og bróðir hans. Hann missti af öllum leikjum síðasta keppnistímabils nema fyrsta leiknum en þá meiddist hann. Immel keyptur fyrir metfé Stuttgart hefur nú keypt v-þýska landsliðsmarkmanninn Eike Immel fiá Borussia Dortmund. Söluupphæðin er sú hæsta sem um getur í V-Þýska- landi fyrir markmann eða 1,7 milljón marka (32 milljónir kr.). Immel dvelst nú í Mexíkó með v-þýska landsliðinu. -SMJ DV-lið 5. umferðar Eftirfarandi leikmenn skipa DV-lið 5. umferðar íslandsmótsins í 1. deild. Halldór Pálsson (ÍBV) Þorsteinn Vilhjálmsson Henning Henningsson (Fram) (FH) Daníel Einarsson(3) Ársæll Kristjánsson (Víði) (Val) Júlíus Tryggvason Sigurður Björgvinsson(2) (Þór) (ÍBK) Sveinbjöm Hákonarson Helgi Bentsson (ÍA) (Víði) Júlíus P. Ingólfeson Hilmar Sighvatsson (ÍA) (Val) Það er að mörgu leyti nýtt lið sem við stillum upp eftir 4. umferð. Aðeins Daníel og Sigurður hafa verið í DV-liðinu áður. áður, sem nú eru í Mexíkó og hafa gagmýnt Robson, eru Bobby Charlton og Emlyn Hughes. Sagt er að Charlton hafi verið með tárin í augunum eftir jafnteflisleik Englands við Marokkó á föstudag. Fyrirliði enska liðsins, Bryan Rob- son, slasaðist á öxl eftir 36 mín. og gat ekki leikið meir. „Ég mun taka ákvörðun um það eftir æfinguna i dag hvort Bryan leikur gegn Póllandi á miðvikudag. Við verðum að bíða og sjá hvemig honum gengur," sagði Bobby Robson á blaðamannafundin- um. Þess má geta að Ron Atkinson, stjóri Man. Utd, félags Bryan Robson, hefur miklar áhyggjur af leikmannin- um. Hafði samband við landsliðs- þjálfarann og vildi helst að Bryan yrði strax sendur heim til Englands. Ray Wilkins var rekirrn af velli gegn Ma- rokkó þegar hann kastaði knettinum í dómarann. Hafði áður fengi bókun. Aganefrid FIFA tók mál hans fyrir í gær. Wilkins var dæmdur í tveggja leikja bann fyrir „að skaða dóma- rann“ eins og segir í tilkynningu aganefridarinnar. Vilja sigra í riðlinum „Ég vona að leikmenn mínir verði efstir í riðlinum - F-riðlinum. Með því mundu þeir leika áfrarn hér í Monter- rey, þeim mikla hitapotti, og það gæti haft áhrif í 2. umferðinni. Við mundum þá standa betur að vígi en leikmenn þeirra liða sem þurfa að koma hingað. Enn er mikil óvissa um efsta sætið í riðlinum. Það er engin ástæða til að taka létt á málum gegn enska liðinu á miðvikudag. Það á eftir að sanna sig hér á HM og við munum gera allt til þess að verða í efsta sætinu,“ sagði landsliðsþjálfari Pólverja, Antoni Pi- echniczek, í Mexíkó í gær. Á miðviku- dagskvöld gæti því orðið harður leikur milli Englands og Portúgal. Englend- ingar verða að sigra í leiknum, helst með tveggja marka mun, ef þeir ætla sér að komast í 2. umferð. Leikur Portúgal og Marokkó verður á sama tíma. Klukkan 22 á miðvikudagskvöld að íslenskum tíma. Landsliðsþjálfari heimsmeistara ít- alíu, Enzo Bearzot, hefúr valið lið sitt gegn Suður-Kóreu í A-riðli í dag. Leik- urinn verður kl. 18 að ísl. tíma í Puebla. „Við verðum að sigra hvað sem það kostar og munum leika sókn- arleik frá fyrstu mínútu," sagði Bearzot í Mexíkó í gær. Hann varð að gera eina breytingu á liði sínu þar sem bakvörðurinn Giuseppe Bergomi er í leikbanni. Tvívegis bókaður. f • Bobby Robson. hans stað leikur Fulvio Collovati eftir því sem Bearzot gaf í skyn í gær. Hins vegar telja ýmsir að Bearzot hafi einn- ig augastað á gamla garpinum Marco Tardelli. Þeir leika báðir með Inter Milanó og léku báðir í úrslitaleiknum við Vestur-Þjóðverja á Spáni 1982. Talið öruggt að Giuseppi Galderisi verði í liðinu og Paolo Rossi því áhorf- andi í þriðja leik ftalíu á HM. hsím i ■■■■ FRA OG HEMAFTUR FYR/RAÐE/NS KR. 16.550.- Flug til Færeyja er ekki aðeins ódýrt — það er skemmtilegt og það er líka nýstárlegt því eyjarnar átján hafa ótrúlega margt að bjóða góðum gesti. Eftir dvöl í Færeyjum er hægt að fljúga beint þaðan til Skotlands — í innkaup í Glasgow eða skoða heillandi fegurð skosku Hálandanna. Aflaðu þér upplýsinga hjá næstu söluskrifstofu Flugleiða, umboðsmanni eða ferðaskrifstofu um þennan ódýra og nýstártega ferðamöguleika.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.