Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Blaðsíða 28
28 DV. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNl 1986. Kristinn Einarsson kaupmaður lést 31. maí sl. Hann fæddist 6. desember 1896 á Grímslæk í Ölfusi. Foreldrar hans voru Einar Eyjólfsson og Guð- rún Jónsdóttir. Kristinn lauk prófi frá Verslunarskóla Islands árið 1916. Hann rak búsáhalda- og leikfanga- verslunina K. Einarsson og Bjöms- son áratugum saman. Eftirlifandi eiginkona hans er Ella Marie Ein- arsson. Þeim hjónum varð íjöggura barna auðið. Útför Kristins verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag kl. 15. Sigríður Ólafsdóttir frá Gesthúsum lést 14. maí sl. Hún fæddist á Álfta- nesi 26. febrúar 1895, dóttir hjónanna Guðfinnu Jónsdóttur og og Ólafs Bjarnasonar. Sigríður giftist Jens P. Hallgrímssyni en hann lést árið 1979. Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið. Útför Sigríðar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Ásta Kristjánsdóttir, Eskihlíð 14a, er látin. Gíslína Magnúsdóttir frá Hnjóti lést 8. júní. Guðborg. Sigurgeirsdóttir, Reynimel 32, andaðist þann 7. júní í Landa- kotsspítala. Karítas Ósk Bjarnadóttir lést af slys- förum 4. júní. Þóra Thorlacius, Hjarðarhaga 40, lést í Landspítalanum aðfaranótt 9. júní. Jón Grétar Guðmundsson, Gnoðar- vogi 70, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju, miðvikudaginn 11. júní kl. 15. Útför Jóns Ólafssonar frá Mýrar- húsum, Akranesi, verður frá Foss- vogskapellu í dag, þriðjudaginn 10. júní, kl. 15. Guðbjörg Árnadóttir frá Kolsholti, Litlagerði 14, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 11. júní kl. 13.30. Útför Ólafs Bergsteinssonar, Árgils- stöðum, fer fram frá Breiðabólsstað- arkirkju í Fljótshlíð fimmtudaginn 12. júní kl. 14. Guðrún Kristjánsdóttir frá ísafirði, lést 8. júní að Elliheimilinu Gmnd. Páll Þorláksson rafverktaki lést 27. maí sl. Hann fæddist 6. september 1934. Foreldrar hans voru hjónin Kristjana Ömólfsdóttir og Þorlákur Jónsson. Páll lauk prófi í rafvirkjun frá Iðnskóla íslands árið 1952 og stofnaði ungur sitt eigið fyrirtæki sem hann vann við alla tíð síðan. Eftirlifandi eiginkona hans er Ást- hildur Pétursdóttir. Þeim hjónum varð tveggja barna auðið. Útför Páls verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. REYKJAVÍK Gnoðarvog, Ljósheima, Suðurlandsbraut. Hlunnavog, GARÐABÆR Njörvasund, Brúarflöt, Markarflöt, Sigluvog, Sunnuflöt. AFGREH3SLA Þverholti 11 - Sími 27022 Menning Menning Menning Arrau - öðlingurinn við slaghörpuna Listahátíö i Reykjavik Tónleikar Claudio Arrau í Háskólabíói 9. júni. Efnisskrá: Ludwig van Beethoven: Píanó- sónata í D-dúr op.10 nr.3; Píanósónata i C-dúr op.53; Pianósónata í Es-dúr op.81; Píanósónata i f-moll op.57. Tónleikar Claudio Arrau em lík- lega það tónlistaratriði á Listahátíð sem hvað flestir hafa beðið með mestri eftirvæntingu. Hann er í hópi þeirra pianóöldunga sem orðið hafa að þjóðsagnapersónum í lifanda lífi. Það er annars makalaust hvað pían- istar virðast endast vel. Arrau er eins og kunnugt er langt frá því að vera neitt einsdæmi um píanista sem leika sem aldrei íyrr þegar þeir em komnir langt fram yfir þann aldur sem markar.eftirlaunaskeiðið. Sam- Listahátíð í dag: Myndlistarsýningar: Picasso „Exposition inatt- endue“, Kjarvalsstaðir. Karl Kvaran: Yfirlitssýning, Listasafri íslands. Reykjavík í myndlist, Kjar- valsstaðir. Klúbbur Listahátíðar: Hljómsveit Grétars Örvarsson- ar. Söngatriði. Leynigestur Ingimar Eydal kvæmt ríkjandi reglum í okkar þjóðfélagi ætti hann að hafa verið ellistyrkþegi í ein sextán ár. En vit- anlega skiptir aldur listamanns engu máli, heldur leikur hans þegar fram fyrir áheyrenduma kemur. Tónlist Eyjólfur Melsted Að veita áheyrandanum inn- sæi í verkið sem heild Claudio Arrau fangaði hugi áheyr- enda sinna þegar á fyrsta tóni. Öll mótun hendinganna er einstök hjá þessum „gentleman" píanósins. Hann gefur h verj um tóni færi á að hljóma til fulls og í hægu köflunum finnst manni sem döggin drjúpi af tónunum líktpg af blómum vallarins í morgunsól. I allra hröðustu hlaup- um er snerpan kannski ekki alveg sem fyrr, en gáfur Arraus gera meira en að vega á móti því. Hvemig hann byggir upp spennuna, vaxandi frá fyrsta tóni til hins síðasta, er hreint makalaust. Hann fær áheyrendur sína til að heyra, og sjá, verkin sem hann leikur í heild sinni. Einstakir tónar missa gildi sitt sem slíkir og áheyrandanum veitist innsæi í verk- ið sem heild. Slíkt er aðeins á færi hinna mestu. Þegar þannig er leikið verka hlutir eins og tækni og hennar systur líkastar útkjálkafraukum á jaðri tónlistarheimsins. Með frið í sálinni Já, mikill meistari er Arrau. Mér hlotnaðist sú náð að heyra Svjat- oslav Richter spila Waldsteinsónöt- una um daginn. Hann lék við ólíkt magnaðri spennu áheyrenda en Arrau lék hér. Ekki treysti ég mér þó til að gera upp á milli. Þessir jöfr- ar píanósins em sem betur fer svo ólíkir og óendanlega snjallir, hvor á sinn hátt. Ekki virtist blessaður öðlingurinn alveg dús við uppröðun prógramm- nefhdarinnar á efhisskránni og hélt ekki sömu röð og tilkynnt var á pró- grammbleðlinum sem útbýtt var á vegum Listahátíðar. Það skipti svo sem engu máli. Mönnum má vera rétt sama hvort þeirra kemur á rrnd- an, Waldstein eða Appassionata, þegar slíkum snilldartökum er beitt. Arrau sá alltént til þess að þeir sem á hann hlýddu- gengu út í sumar- regnið með frið í sálinni. EM Tilkynningar Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn á Akureyri Ferðamálafélag Akureyrar mun í sumar reka upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, fimmta sumarið 1 röð. Undanfarin tvö sumur var upplýs- ingamiðstöðin til húsa í Turninum við göngugötuna en hann hefur nú verið tekinn til annarra nota. í sum- ar verður upplýsingamiðstöðin til húsa í Ánni, húsi Lionsklúbbsins Hængs, sem stendur við Skipagötu gegnt Pósthúsinu. Upplýsingamið- stöðin verður opin frá miðjum júní til ágústloka. í fyrravor gaf Ferða- málafélagið út glæsilegan, mynd- skreyttan Akureyrarbækling með korti af Akureyri. Þessi bæklingur kemur út í byrjun júní, nú með nýju og skýrara korti. Ferðamálafélagið hvetur alla sem bjóða fram einhvers konar þjónustu að senda upplýsingar til félagsins eða hafa samband við starfsmenn upplýsingamiðstöðvar- innar í síma 96-25128 eftir miðjan júní. Sýning á sjúkravörum Haldin verður í Hjúkrunarskóla Is- lands, Eiríksgötu 34, helgina 13.-15. júní nk. sýning á sjúkravörum. Á sýningunni sýna 15 fyrirtæki vörur sínar. Sýningin er til styrktar náms- ferð síðasta útskriftarhóps skólans, hún er opin sem hér segir: Föstudag- inn 13. júní kl. 17-21, laugardaginn 14. júní kl. 13-21, sunnudaginn 15. júní kl. 13-21. Allir eru boðnir vel- komnir og er aðgangur ókeypis. Landssamtök málfreyja á ís- landi, ITC, héldu fyrsta árlega landsþing sitt dagana 6., 7. og 8. júní sl. í Hótel Stykkishólmi. Heiðursgestur lands- þingsins var Muriel Bryant, fram- kvæmdastjóri International Training in Communication. Forseti Landssamtaka málfreyja á íslandi er Erla Guðmundsdóttir úr málfreyju- deildinni Vörðunni í Keflavík. Landssamtök málfreyja á Islandi samanstanda af 22 málfreyjudeildum sem skiptast í þrjú ráð. 1 hverju ráði eru 7-8 deildir. Umsjónarfreyja landsþingsins er Björg Stefánsdóttir úr málfreyjudeildinni Melkorku í Reykjavík. Ferðir Brúðubílsins Þessa viku verður Brúðubíllinn á ferð sem hér segir: Þriðjudag 10. júní: kl. 14 Tungusel, kl. 15 Fífusel. Mið- vikudag 11. júní: kl. 10 Hringbraut, kl. 14 Suðurhólar, kl. 15 Vesturberg. Fimmtudag 12. júní: kl. 10 Rauða- lækur, k!. 11 Gullteigur, kl. 14 Dalaland. Föstudag 13. júní: kl. 10 Stakkahlíð, kl. 11 Hvassaleiti, kl. 14 Tunguvegur. Ferðalög Útivistarferðir Miðvikudagur 11. júní, kl. 20 Esjuhlíðar (kvöld) Gengið um Þverfellið og leitað „gulls“ við Mó- gilsá. Verð 300 kr., frítt f. börn m. fullorðnum. Brottför úr Grófinni (bílastæðinu v. Vesturgötu 2) og BSÍ, bensínsölu ", mín. síðar. Trimmdagar á Jónsmessu: Reykjavíkurganga Útivistar verður sunnudaginn 22. júní, Brottför úr Grófinni kl. 10.30 og frá Skógræktar- stöðinni Fossvogi kl. 13. Kl. 14 verður gengið frá Elliðaárstöð upp í Elliðaárdal. Nánar auglýst um helg- ina. Sjáumst. „Frmnsóknarflokkurinn virðist dottinn út. Hanti setti það sem al- gert skilyrði að Steían Ömar Jónsson yrði áfram bæjarstjóri. Við í Alþýðuflokknum, Alþýðu- bandalaginu og hjá Kvennalistan- um viljum auglýsa. Nú höíúm við þegar haldið þrjá fundi með Sjálf- stæðisflokknum og þær viðræður ganga vel,“ sagði Steingrímur Ing- varsson, bæjarfúlltrúi Alþýðu- flokksins á Selfossi. „Það er nánast handavinna eftir við frágang málefhasamnings Al- þýðuflokksins og Alþýðubanda- lagsins. Ég sé ekki að neitt sé í veginum,“ sagði Guðmundur Oddsson, bæjarfulltrúi Alþýðu- flokksins í Kópavogi, í morgun. Alþýðubandalagið og listi óháðra eru í þann veginn að ganga frá myndun meirihlufa á Reyðar- firði, að sögn hreppsnefndarmanns óháðra, Sigfúsar Guðlaugssonar. Núverandi sveitarstjóra, Herði Hafskipsmálið: Helgi laus Helga Magnússyni, einum mann- anna í Hafskipsmálinu, hefúr verið sleppt úr haldi og sitja nú tveir þeirra eftir, Björgólfúr og Ragnar. Hallvarður Einvarðsson, rannsókn- arlögreglustjóri ríkisins, sagði í samtali við D V í morgun að ekki hefði enn verið tekin ákvörðun um hvort gæsluvarðhald yfir þessum tveimur yrði framlengt en gæsluvarðhald þeirra rennur út á morgun, 11. júní. Ákvörðun um framlenginu verður tek- in í dag eða á morgun. Sjálfstæðisflokkur og Framsókn- arflokkur voru í meirihluta sfðasta kjörtimabil með fjóra og þrjá fúll- trúa. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði manni í kosningunum til Kvenna- lista. Annað breyttist ekki milii Usta. Ef af þessu nýja samstarfi verður hefúr Sjálfstæðisflokkurinn þrjú sæti og hinir þrír flokkamir eitt sæti hver. I bæjarstjóm em níu sæti alls. A-flokkamir hafa ákveðið að Kristján Guðmundsson verði áfram bæjarstjóri. Þessir flokkar hafa þrjú sæti hvor og sex fúlltrúa af ellefú í bæjarstjóm. Þórhallssyni, yerður boðið að gegna starfi sínu áfram. Aðstandendur listanna reikna með að geta gengið frá samkomu- lagi í dag sem lagt verður fyrir félagsfúndi. ás. -FRI Kúvending á Selfossi - út af bæjarstjorastólnum HERB A-flokkamir saman í Kópavogi - Kristján afram bæjarstjóri -HERB Reyðarfjörður: Alþýðubandalag og óháðir í sljóm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.