Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1986, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1986, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1986. 5 Stjómmál ión Baldvin á fundi í Reykjavík: Prófkjör sjáKstæðismanna á Yestfjörðum: VÍII fiármálaráðuneytið Báflir þingmennimir J gefa kost á sér aftur „Alþýðuflokkurinn lætur máleíhin ráða í afetöðu sinni til mögulegrar rík- isstjómarsamvinnu við aðra flokka eftir næstu kosningar," sagði Jón Baldvin Hannibalsson, formaður flokksins, á fjölmennum fundi í Múla- kaffl sL laugardagsmorgun. Að sögn formannsins berst flokkur- inn berst fyrir samræmdri launastefnu þar sem endanlega verði tryggt að lág- launafólkið fái leiðréttingu mála sinna og skattakerfið verði endurskoðað í réttlætisátt. Fyrst og fremst þannig að skattlausir stóreignamenn taki loks þátt í sameiginlegum kostnaði þjóð- félagsins. Þá verði misréttið í lífeyris- sjóðsmálunum leiðrétt og lánamálum húsnæðiskerfisins komið í það horf að fólk fái lánin áður en það er um sein- an og þeir gangi fyrir sem þurfa á þeim að halda frá opinberum sjóðum. Einnig berst flokkurinn fyrir vald- dreifingu í landinu, þannig að dreif- býlið fái leiðréttingu mála sinna og endurskipulagningu í landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum. Jón Baldvin sagðist alls óhræddur að hefja samstarf við Sjálfstæðisflokk- inn um þessi mál, reyndar væri það álitlegasti kosturinn í stöðunni. Fram- sóknarmennina í Sjálfstæðisflokknum myndi þá smám saman daga uppi og frjálslyndisfnkin í stuttbuxnadeild flokksins gætu sem best stofhað hrein- an íhaldsflokk væri þetta stjómarsam- starf þeim um megn. Framsóknarflokkurinn væri að bresta enda skildi þjóðin það alls ekki að halli þyrfti að vera á erlendum við- skiptum í mesta góðæri sögunnar og kæmu þar til sex milljarða króna vaxtagreiðslur sem stofhað var til út í loftið á Framsóknaráratugnum. Framsókn ætti að fara í endurhæfingu og hugsa málið. Alþýðubandalagið mætti vera með í ríkisstjóminni þótt þar í flokki ríkti reyndar algjör upplausn. Verkalýðs- armur flokksins, sem væri ekkert annað en kratar, ættu auðvitað hvergi annars staðar að vera en í Alþýðu- flokknum, hitt væri bara hippalið sem þroskaðist með aldrinum. Um annað „smáflokkakraðak", eins og Jón Bald- vin orðaði það, fjallaði hann lítið, sagði Bandalag jafnaðarmanna vera að líða undir lok og þeim hefði bara verið nær að taka í útrétta sáttahönd Alþýðuflokksins. Kvennalistinn væri þó búinn að staðfesta sig í íslenskri pólitík. I mögulegu ríkisstjómarsamstarfi sagði formaður Alþýðuflokksins flokkinn myndi sérstaklega leggja áherslu á að fá fjármálaráðuneytið vegna löngu tímabærra breytinga á skattakerfinu og stofnunar eins lífeyr- issjóðs fyrir alla landsmenn. Auk þess myndi flokkurinn gera kröfu í félags- málaráðuneytið vegna húsnæðismál- anna og valddreifingar út á lands- byggðina. Þá yrði eitt atvinnumála- ráðuneyti nauðsynlega að fylgja með vegna beinna tillagna flokksins í fram- tíðaruppbyggingu í landinu og nefhdi Jón Baldvin sérstaklega landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytin. Eeyrvir Traustagon, DV, Flateyxi: Níu aðilar ætla að taka þátt í próf- kjöri sjálfstæðismanna sem fram fer á Vestfjörðum 11. og 12. október. Báðir þingmenn kjördæmisins gefa kost á sér, Matthías Bjamason og Þorvaldur Garðar Kristjánsson. Frestur til þátttöku í prófkjörinu rann út síðastliðinn laugardag. Kos- ið verður um fjögur efetu sætin á framboðslista fyrir alþingiskosning- ar. Allir flokksbundnir sjálfetæðis- menn hafa rétt til þátttöku, svo og þeir sem- undirrita stuðningsyfirlýs- ingu við flokkinn. Þegar hefur verið verið ákveðin röð nafha á prófkjörs- seðlinum. Efet nafna verður Hildi- gunnur Högnadóttir, Isafirði. öðrum frambjóðendum verður raðað eftir stafróferöð. Þeir em: Matthías Bjamason, ísafirði, Óli M. Lúðvíks- son, Isafirði, Ólafur Kristjánsson, Bolungarvík, Þorvaldur Garðar Kristjánsson, Reykjavík, Einar K. Guðfinnsson, Bolungarvík, Guðjón A. Kristjánsson, Isafirði, Guðmund- ur H. Ingólfeson, ísafirði, og Hall- grímur Sveinsson, Hrafhseyri. I síðustu kosningum klofnuðu sjálfetæðismenn og buðu fram tvo lista. Sigurlaug Bjamadóttir kenn- ari var i fararbroddi fyrir öðrum lLstanum. Nú er ljóst að þessi listi mun ekki bjóða fram og Sigurlaug hyggur ekki á framboð. aítarskóli •^LAFS GAUKS Jón Baldvin Hannibalsson talar á fundinum í Múlakaffi. DV-mynd GTK Innritun allra aldursflokka er hafin og fer fram daglega kl. 2-5 e.h. í skólanum, Stórholti 16, sími 27015. Upplýsingasími á öðr- um tíma er 685752. - FISHER Hönnuöir Fisher hafa lagt sig alla fram við hönnun þessa stórglæsilega myndbandstæk- is. Útkoman er, eins og sést, glæsilegt tæki, hlaðið tækninýjungum. VHS-HQ fullkomið myndgæðakerfi - þráðlaus fjarstýring - 14 daga upptökuminni - digital teljari - kyrr- mynd - snertitakkar - leitari með mynd - sjálfvirk bakspólun. Fisher tæki eru traust og örugg tæki með mjög lága bilanatíðni og ekki spillir útlitið. Tæki framtíðarinnar frá Fisher. Verð kr. 39.950 Nx\\\!í/V/. vXVw\il//Áv SJÓNVARPSBÚDIN Borgartúni 16 - Reykjavík, sími 62-25-55 Strandgötu 23 - Akureyri, sími 96-26563 I íllÍlí t! nllÍ'! SYNTHESI2EO TUNING SYSTEM PAUSE/STILL REC II REVVa--------PLÁY---- ----ÖSFF ...;;" ^ m ; Sparaðu krónuna og eyrinn. Kauptu Fisher. Fisher gæði í hverjum þræði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.