Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1987, Blaðsíða 8
30 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987. Mynd- bönd Umsjón: Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Sigurður Már Jónsson V DV-LISTINN MYNDIR 1. (1) Out of Afrika 2. (3) Commando 3. (7) 9 '/2 vika 4. (2) Cobra 5. (6) At Close Range 6. (4) Highlander 7. (8) Iron Eagle 8. (-) Of Pure Blood 9. (-) Jewel of The Nile 10.(-)Agnes of God ÞÆTTIR Það er litlar breytingar að sjá á sjö fyrstu sætunum á DV-listanum að þessu sinni en hins vegar skríða nýjar myndir inn í þrjú neðstu sætin. Stórmyndin Out of Afrika heldur toppsætinu enda verið feiki- lega vinsæl. Þá er 9 'A vika á hraðleið upp listann. Þáttalistinn er svo til óbreyttur - aðeins hafa orðið smátilfæringar á þáttum inn- an listans en engir nýir komið inn. Að þessu sinni birtum við sölu- listann frá Bandaríkjunum en þar er Jane Fonda allsráðandi með leikfimiþætti sína. Þá hefur Star Trek II verið hvorki meira né minna en 135 vikur á lista en Star Trek-myndimar njóta mikilla vin- sælda. 1. (2) Að yfirlögðu ráði 2. (1) Whose Baby? 3. (3) Lancaster Miller Affair 4. (5) V 5. (4) Munchen Strike BANDARIKIN 1. (1) Jane Fonda’s Low impact Areobic Workout 2. (4) Sleeping Beauty 3. (3) Jane Fonda’s New Workout 4. (2) Indiana Jones and the Temple og Doom 5. (6) Secrets of the Titanic 6. (7) Callanetics 7. (10)The Sound of Music 8. (6) Star Trek III 9. (9) Star Trek II 10.(12) Star Trek I Einn á ferð © AFTER HOURS Útgefandi: Warner/Tefli. Framleiðendur: Amy Robinson, Griffin Dunne, Robert F. Colesberry. Leikstjóri: Martin Scorsese. Handrit Joseph Mlnion. Aöalhlutverk: Griffin Dunne, Rosanna Arquette, Teri Garr o.fl. öilum leyfð. 1 mörgum mynda sinna íjallar Martin Scorsese um fólk sem af einhverjum ástæðum lendir utan- garðs í nútímaþjóðfélagi. Dæmi um það er leigubílstjóripn í Taxi Dri- ver, boxarinn Jack LaMotta í Racing Bull eða grínarinn Rubert Pupkin í King of Comedy. í After Hours sýnir Scorsese enn margbreytileika mannlífsins. Myndin gerist öll á einni nóttu. Ungur maður, Paul, situr á kaffi- húsi og lætur sér leiðast. Þar hittir hann fyrir tilviljun stúlkuna Marsy. Svo fer að hún býður hon- um heim til sín, í hið skuggalega Soho hverfi. Síðan þróast málin á ótrúlegan hátt. Fyrst týnir Paul öllum peningunum sínum og getur ekki borgað leigubílinn. Síðan lendir hann í rifrildi við Marsy. Því næst lendir hann í slagtogi við ýmsa þaðan af vafasamari persón- ur. Loks er hann eltur af öllum íbúum hverfisins, grunaður um þjófnað. Söguþráðurinn í After Hours er reyndar svo stórbrotinn og ótrúleg- ur að ómögulegt er að komast nokkurs staðar til botns. Að óskekju hefði mátt fækka eitthvað persónunum sem koma fram á sjón- arsviðið, hver annarri skrautlegri. Að öðru leyti er After Hours mjög fagmannlega unnin. Myndataka Michael Ballhaus er til að mynda hreint stórkostleg. Scorsese stjóm- ar sínu fólki ennfremur af rögg- semi. Griffin Dunne er ógæfan uppmáluð í hlutverki Paul og Rosanna Arquette gerir hlutverki Marsy vinstúlku hans ágæt skil. Einnig er vert að minnast Teri Garr sem sýnir stjörnuleik í hlut- verki þjónustustúlku. Þess má geta að myndin endar eins og áhorfendur á forsýningu hennar vildu. I stað þess að festast inni í múmíu kemst Paul til vinnu sinnar eftir sérdeilis viðburðaríka nótt. Og hvílík nótt. Sjón er sögu ríkari. Paul og múmían í Soho. ★★V2 Á valdi ástrídna 9 Zi vika Útgefandi: Steinar Framleiðendur: Keith Barish og Frank Konigsberg Leikstjóri: Adrian Lyne Aöalhlutverk: Mickey Rourke og Kim Basinger Bönnuö yngri en 16 ára 9 'A vika fékk mikla forkynningu út af þeim vandræðum sem framleiðendur og leikstjóri myndarinnar lentu í á meðan á töku myndarinnar stóð. Samkomulagið milli aðalleikkonunnar, Kim Basinger, og leikstjórans var víst ekki upp á það besta og hún kærði framkomu hans við sig - taldi hann ganga nærri persónufrelsi sínu við að fá hana til að lifa sig inn í hlutverkið. Eftir að gerð myndarinnar lauk tók ekki betra við. Það þurfti að klippa hana niður til að hún slyppi framhjá siðvöndu og hræsnis- fullu kvikmyndaeftirliti Bandaríkjanna. Þá voru einhver svipuð vandamál við auglýs- ingaherferðina. Það er því að nokkru vængbrotið lista- verk sem ber fyrir augu okkar og er það miður að listamenn þurfi að búa við fyrir- bæri eins og kvikmyndaeftirlitið bandaríska sem gerir engan mun á klámi og list. 9 'A vika segir frá ástarsambandi tveggja persóna, Elísabeth og John, sem virðast taka ástina inn í of stórum skammti. Það sem endist ílestum æfina klára þau á 9 'A viku. Sambandið reynir allverulega á sálar- líf Elísabeth en John gerir mjög svo óvenju- legar kröfur til hennar - bæði líkamlega og sálrænt. 9 'A vika er ákaflega mikið fyrir augað og er ekki hægt að segja annað en að myndataka og klipping sé bæði frumleg og sérstök. Persónuleg og allt að því afhjúp- andi myndataka ræður ríkjum. Þó er einhver kaldranaleg fjarlægð yfir öllu sam- an. Stundum sést iðandi kroppur Basinger eða þeirra beggja inni í miðju myndramm- ans á meðan köld og hráslagaleg sviðsmynd fyllir upp í myndina. Er langt síðan maður hefur séð jafnmikla tilbeiðslu á mannslíka- manum í einni mynd - og það án þess að fara nokkurn tímann yfir mörkin. Þrátt fyrir sögusagnir um samkomulag Basinger og Lyne er ekki annað að sjá en að leikstjórn myndarinnar sé með miklum ágætum og frammistaða leikaranna mjög góð. Það eru hins vegar brotalamir í handriti sem draga úr mætti myndarinnar. Sögu- þráðurinn er sundurlaus og fráhrindandi. Auðvitað getur seinni tíma klipping haft sitt að segja en varla er það eina skýringin. Eftir að hafa horft á fagra og sterka mynd er manni nákvæmlega sama hvað verður um persónurnar. Það getur þó vel verið að það hafi einmitt verið tilgangur höfundar- ins. -SMJ *V:2 ©I Glaðningur fyrir Stonesaddáendur Running out of Luck Útgefandi: Steinar Handrit: Julien Temple & Mick Jagger Tónllst: Mick Jagger Leikstjóri: Julien Temple Aðalhlutverk: Mick Jagger, Jerry Hall, Rae Dawn Chong og Denis Hopper Bönnuö yngri en 16 ára Allt síðan Bítlarnir gerðu sínar frægu músík- ævintýra- og gamanmyndir (music- al-comedy-adventure) á sjöunda áratugnum hefur sú von blundað í brjóstum annarra tónlistarmanna að hægt væri að gera eitt- hvað í líkingu við þessar myndir. Margir hafa reynt en árangurinn hefur sjaldnast verið neitt til að hrópa húrra fyrir. í raun er ekki vitlaust að álíta að þessar myndir Bítlanna hafi verið undanfari tónlistar- myndbanda nútímans. Mick Jagger er óneitanlega einn af litrík- ustu persónuleikum rokksögunnar og hann og hljómsveit hans eru ótvíðrætt meðal þekktustu tónlistarmanna síðustu ártatuga. Langlífi þeirra á toppnum er ótrúlegt og örugglega engin tilviljun. Jagger tók sig til í fyrra og gaf út sóló- plötu - þá fyrstu á 20 ára ferli sínum. Þessi mynd er í raun tónlistarmyndband við þessa plötu kappans. Á milli þess sem hann er að flytja lög sín (sem eru auðvitað stórgóð eins og vænta mátti) fáum við að fylgjast með kappanum á ruglingslegu ferðalagi um Brasilíu þar sem hann verður viðskila við Jerry Hall og fylgdarlið sitt. Söguþráðurinn verður aldrei til þess að vekja áhuga áhorf- andans þó að sá ágæti maður, Julien Temple, sem leikstýrði Absolute Beginners, siti við stjórnvölinn. Þá vantar þá gaman- semi sem hlýtur að bera myndir sem þessa uppi. Það er helst þegar Jagger ber fyrir sig sjálfshæðni og gerir grín að frægð persónu sinnar að hægt er að glotta. Reyndar er ansi gott atriði þegar hann reynir í örvænt- ingu sinni að benda einföldu sveitafólki á það hver hann raunverulega er með því að finna plötu með Rolling Stones. Það eina sem hann finnur hins vegar í plöturekkan- um eru plötur Julio Iglesias! Þessi mynd höfðar líklega eingöngu til aðdáenda Micks Jagger og er ólíklegt að þeir láti hana fram hjá sér fara. -SMJ Á flótta Einkamálaauglýsmg BONNIE AND CLYDE Útgefandi: Warner/Tefll. Leikstjóri: Arthur Penn. Aðalhlutverk: Warren Beatty, Faye Dunaway. Bönnuð yngri en 16 ára. Þetta er ein af þekktari myndum Arthur Penn (Little Big Man o.fl.). Tuttugu ára gömul hasarmynd um glæpahjúin Bonnie and Clyde. Sagan er rakin allt frá því að Bonnie Parker hittir Clyde Barrow, ungan ævintýramann nýsloppinn úr fangelsi. Hvorugt þeirra er gefið fyrir tilbreytingar- leysi daglega lífsins. í staðinn ræna þau banka og aðrar stofhanir þar sem eitthvað fémætt er að finna. Penn segir þessa sögu af nákvæmni og alúð. Umfram allt dregur hann fram hið mannlega í fari persónanna og freistast ekki til að búa til hetjuímyndir. Sér til aðstoðar hefur hann einvalalið leikara, Beatty, Dunaway, Hackman og fleiri. Útkoman er eftir því. Bonnie and Clyde er ein af þessum sígildu myndum sem aldrei bregðast. Elnkamál Útgefandl: Háskólabfó Leikstjóri: Peter Markle Aðalhlutverk: Bill Schoppert, Karen Ladry og Paul Elding Öllum leytð Fráskilinn maður í blóma lífsins ákveður að finna sér konu og leitar til dagblaðanna og auglýsir einfaldlega eftir þeirri réttu. Það gengur þó illa fyrst í stað. Að lokum finnur hann eina sem við fyrstu sýn virðist vera sú rétta. Þessi mynd sýnir greinilega að áhrif Wo- ody Allen eru mikil í henni Ameríku. Hann er búinn að gera hjónabandsvandamál og sálarlíf miðaldra millistéttarfólks að miklu tískufyrirbæri kvikmyndanna. Einkamál er nokkurs konar eftiröpun á þessum myndum Allens, þó reyndar sé rétt að geta þess að hún er gerð 1982. Allen gerir þessu efni bara miklu betri skil - og er þá sama hvar drepið er niður fæti. Leikur, leikstjórn, handrit og myndataka í Einkamálum er ekki nema ómur einn miðað við myndir Allens. Þar að auki er hún lítið fyndinn. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.