Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1987, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1987, Blaðsíða 48
FRETT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 MÁNUDAGUR 13. APRÍL 1987. Steingrímur Hermannsson: Vona að þetta haldi svona áfram „Niðurstöður þessarar könnunar eru í samræmi við það sem við höfum fundið,“ sagði Steingrímur Hermanns- son um skoðanakönnun DV. „Fólk er meira farið að hugleiða máleíhin og þann árangur sem náðst hefur. Kjósendur vilja ekki verðbólgu á ný. Fólk tekur okkur vel um allt land, það finnum við. Ég vona bara að þetta haldi svona áfram til kosn- inga,“ sagði Steingrímur Hermanns- son. -ój Svavar Gestsson: Alvarleg áminning „Þessi tala hjá okkur er of lág,“ sagði Svavar Gestsson, formaður Alþýðu- ’oandalagsins. um skoðanakönnun DV. „Þarna kemur fram að Borgara- flokkurínn er bóla. Það merkilegasta er þó kannski það að Framsóknar- flokkurinn bætir við sig. Út á hvað ætli það sé? Nema það sé myndin af Gorbatsjov. Samkvæmt þessu geta núverandi stjómarflokkar setið áfram, íhald 1 og íhald 2 með Framsókn. Það er býsna alvarleg áminning tveim vikum fyrir kosningar." -HERB Siglufjörður: Líkmannsinsfundið Guömundur Davídsson, DV, Siglufiröi; Lík Guðmundar Bjarnasonar frá Si- glufirði fannst fyrir hádegi í gær. Undanfarið hefur farið fram mikil leit að Guðmundi en hans var saknað fyr- ir rúmri viku. Lík Guðmundar fannst við Oldu- brjótinn, steinbryggju á Siglufirði. Við bryggjuna er mikil mengun frá síldar- verksmiðjum og hamlaði það leit gífurlega. Talið er að Guðmundur hafi fengið aðsvif á bryggjusporðinum og fallið f sjóinn. Ávallt feti framar 68-50-60 ;!4o'bIlas ÞRQSTUR LOKI S fyrir Sjálf- stæðisflokkinn! Skoðanakónnun DV: Borgaraflokkurínn hrapar í Reykjavík skekkjumarka í skoðanakönnunum. þingmenn kjördæmakjöma í borg- Engu að síður sýnir samanburður á inni. Jón Baldvin er ekki inni nema þessari könnun og könnun í marslok hann fengi jöfnunarsætl Framsókn áberandi sveiflur enda er staðan fengi einn samkvæmt könnuninni óljós og ótrygg. nú. Sjálfstæðisflokkurinn fengi nú í skoðanakönnun DV í borginni fimm kjöma. Alþýðubandalagið fyrir hálfum mánuði fékk Alþýðu- fengi aðeins einn samkvæmt könn- flokkurinn 18 prósent. Framsókn uninni nú. Kvennahstinn fengi þtjá fékk þá bara 5,5 prósent Bandalag kjöma. Borgaraflokkurinn fengi tvo jafnaðarmanna hafði þá 0,8 prósent kjöma samkvæmt skoðanakönnun- en komst nú ekki á blað. Sjálfstæðis- inni nú. Ekki er unnt að segja um flokkurinn hlaut þá 27,3 prósent. skiptingu jöfhunarsæta fyrr en rúð- Alþýðubandalagðið hafði 13,3 pró- urstöður kosninga liggja fyrir og sent Flokkur mannsins var með 0,8 sést hvað listamir hafa í hinum prósent. Kvennalistinn fékk þá að- ýmsu kjördæmum. Reykjavík hefur eins 7,8 prósent. Borgaraflokkurinn 14 fasta þingmenn og fær líklega 4 hafði í marslok 26,6 prósent. jöfnunarsæti. Staðan í könnuninni nú mundi -HH þýða að Alþýðuflokkurinn fengi tvo Borgaraflokkurinn fer mjög mikið niður í Reykjavík þegar skoðana- könnun DV nú er borin saman við könnun fyrir hálfum mánuði. Kvennalistinn hefur rokið upp. Samkvæmt könnuninni nú fær Alþýðuflokkurinn 14,5 prósent í Reykjavík og hefur farið niður. Framsókn fær 9,1 prósent. Sjálfstæð- isflokkurinn fær nú 29,1 prósent í borginni. Alþýðubandalagið hefur aðeins 10 prósent nú. Flokkur mannsins fær 1,8 prósent. Kvenna- listinn æðir upp í 19.1 prósent. Borgaraflokkurinn fær nú 16,4 pró- sent í borginni. Athuga skal að lítils háttar breyt- ingar á fylgi flokkanna rnilli kannana eru ekki marktækar vegna Þeir höfðu tilefni til að skála á laugardagskvöldið, leikhúsmennirnir Stefán Baldursson, Kjartan Ragnarsson og Hallmar Sigurðsson, eftir 200. sýninguna á söngleiknum Land míns föður í Iðnó. Alls hafa 40 þúsund manns séð sýninguna og nú er ráðgert að taka stefnuna á Svíþjóð og sýna á leiklistarhátíö þar í landi. -EIR/DV-mynd BG. Gerir grein fýrir „útlánakvóta“ Þorsteinn Pálsson fjármáiaráð- herra mun í dag gera grein fyrir því hvemig fjármálaráðherrar hafa nýtt þann „útlánakvóta“ sem þeir hafa haft hjá lífeyrissjóði starfemanna ríkisins. Staðfesti Þorsteinn þetta í morgun og mun í greinargerðinni koma fiam hvaða reglur hafa gilt um þessa lánastarfeemi, hve lengi hún hefur verið við lýði og hvemig ráðherrar hafa nýtt sér þessi réttindi sín. Ekki sagði Þorsteinn að stæði til að birta nöfh lánþega enda almennt farið með slíkar upplýsingar sem trúnað- armál. Ráðherrar hafa getað sótt um sér- stakan útlánakvóta hjá lífeyris- sjóðnum sem nemur tíföldu hámarksláni á hveiju misseri, eða 5 milljónum króna miðað við núver- andi hámarkslán. -ój Veðrið á morgun: Él á Suður- og Vestur- landð Suðvestanátt og 6-8 vindstig og él á Suður- og Vesturlandi. En suðvestanátt og 4-6 vindstig og þurrt að mestu á Norður- og Aust- urlandi. Hiti á bilinu 0-4 stig. Albert Guðmundsson: Ánægður ef þetta helst Ef þetta fylgi helst þá er ég ánægð- ur. Við erum með aðeins mánað- argömul samtök og getum því ekki verið óánægð með þessa útkomu. Hitt er annað mál að ég hef orðið var við að fólk er hrætt við að lýsa opinber- lega yfir stuðningi við okkur af einhverjum ástæðum en hvíslar að manni að það styðji Borgaraflokk- inn,“ sagði Albert Guðmundsson, spurður álits á niðurstöðum skoðana- könnunarinnar. „Miðað við þær undirtektir sem við fáum kemur mér það nokkuð á óvart að fylgi okkar skuli dala fi-á síðustu könnun. En ég vil þakka öllum þeim sem styðja okkur og lýsa yfir stuðn- ingi við Borgaraflokkinn," sagði Albert Guðmundsson. _______________________-S.dór Guðrún Agnarsdóttir Gleðst yflr auknu fýlgi „Ég gleðst yfir jafriri og rólegri aukningu á fylgi Kvennalistans fyrir utan hið trausta fylgi hans. Æ fleiri kjósendur virðast kunna að meta mál- stað okkar og vinnubrögð en við leggjum megináherslu á málefni en ekki persónur. Það sést á þessari skoð- anakönnun að fylgi undir persónum er ótryggara þegar til lengdar .Iætur,“ sagði Guðrún Agnarsdóttir, 1. maður á lista Samtaka imi kvennalista, í morgun og hún bætti við. „Mig undrar reyndai' ekki. eftir öldurótið í stjómmálunum síðustu vikur, að nær helmingur aðspurðra skuli ekki taka afstöðu. Þeir munu þó gera það og kvennalistakonur eru bjartsýnar." -S.dór Jón Baldvin Hannibalsson: Bíðum eftir talningunni „Þegar klofhingur Sjálfetæðis- flokksins varð staðreynd töluðu menn um tilfinningarót og Albertsbylgju. Nú virðist vera farið að renna af mönnum, þótt tæplega sýnist þeir alls- gáðir. Ætli þetta geti verið timbur- menn?“ Þetta sagði Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðu- flokksins, meðal annars um skoðana- könnun DV. „Þessi úrslit á landsmælikvarða virðast vera ávísun á áframhaldandi Framsóknarvist, þótt enn vanti nokk- uð á. Það væri vondur kostur. En vika er langur tími í pólitík. Tvær eru eftir. Stærsti flokkurinn núna samkvæmt könnun DV eru óákveðnir eða þeir sem neita að svara, nærri 42%. Þegar talið verður á kosninganóttina ræður þessi flokkur úrslitum.“ ______________________-HERB Þorsteinn Pálsson: Alvarieg staða „Þetta sýnir mjög alvarlega stöðu fyrir Sjálfetæðisflokkinn og augljóst að sá klofhingur, sem nokkrir stuðn- ingsmenn Alberts Guðmundssonar efndu til, ætlar að veikja flokkinn sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir þróun stjómmála í landinu," sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, um niðurstöður skoðanakönnunar DV. „Það kemur á daginn sem við höfum haldið fram að fylgi Borgaraflokksins virðist falla og við gerum þess vegna ráð fyrir því að geta styrkt stöðu okk- ar fram að kosningum og dregið þannig úr alvarlegustu afleiðingimi þessa klofnings.“ -ój

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.