Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1987, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1987. Fréttir Brunamálastofnun vill nýtt þak á tívolíhúsið Sérkennileg staða er komin upp í Eden-Borg, tívolíinu í Hveragerði. Brunamálastoíhun vill ekki sam- þykkja splunkunýja 9.000 fermetra þakklæðningu. Eigendumir segja stoínunina hafa haft sýnishom af efninu i marga mánuði og enga at- hugasemd gert íyrr en langt var komið að klæða með því þakið íyrir páska. Ef skipta þarf um klæðningu kostar það 6 milljónir króna. Það sem er ef til vill merkilegast í málinu er að báðir aðilar segja að næstum ekkert geti bmnnið í tívolí- inu nema þá þakið. Þar að auki em öflugar brunavamir í því, 14 út- gönguleiðir næst stærstu tækjunum og í því er einnig varsla allan sólar- hringinn. Ólafur Ragnarsson lög- maður, talsmaður eigenda, segir að Brunamálastofnun hafi fallist á að fá umsögn um þakefnið erlendis frá - en næstum ekkert getur brunnið þar nema þakið Hér sést hluti þaksins sem brunamálastjóri vill láta skipta um klæðningu á. DV-mynd EJ og því sé ekki afgreitt að skipt verði um klæðningu. Hann segir ennfremur að framleið- andi klæðningarinnar, Hallux í Svíþjóð, segi að aldrei hafi hvarflað að mönnum að efhið stæðist ekki kröfur Brunamálastofhunar. Berg- steinn Gizurarson brunamálastjóri segir að tívolíið hafi bráðabirgða- leyfi í tvo mánuði og sennilega verði það framlengt. Hann segir að eigend- ur hafi haft um þrjár tegundir bámplasts að velja frá sama fram- leiðanda og hinar tvær séu fullnægj- andi að mati stofhunarinnar. Brunamálastjóri segir að enda þótt víða sé meiri brunahætta en í tívolí- inu þá sé það nýtt hús og bygging þess eigi því að samræmast gildandi reglum frá upphafi. Þess vegna verði að skipta um klæðninguna ef húsið eigi að hljóta samþykki. -HERB Tiltektin má ekki koma niður á þeim sem síst skyldi sagöi Kristín Halldórs- dóttireftirfundinn með Steingrími. Að baki þeim stendur Kristín Einarsdóttir. DV-mynd GVA Opinberar þreifingar - segir Kristín Halldórsdóttir Enginn hafnað því að skoða stjómarsamstarf -sagði Steingrímur Hermannsson „Næsta skrefið er að ég ætla að tala við Svavar, Albert og Stefán Valgeirsson," sagði Steingrímur Hermannsson, formaður Framsókn- arflokksins, að loknum fundi sínum með Jóni Baldvini Hannibalssyni, formanni Alþýðuflokksins, síðdegis í gær. Fyrr um daginn hafði Steingrímur rætt við Þorstein Pálsson, formann Sjálfstæðisflokksins, og fulltrúa Kvennalistans, alþingismennina Kristínu Halldórsdóttiu- og Kristínu Einarsdóttur. „Þessar viðræður hafa allar verið mjög hreinskiptar. Mér finnst ég sjá betur næstu framtíð að minnsta kosti. Enginn hefur hafhað því að skoða hugsanlegt stjórnarsamstarf mál- efnalega. Þetta hefur fyrst og fremst verið leit að vilja. Ég hef viljað at- huga hvort einhvers staðar væri sá ágreiningur að vonlaust væri. Eins og ég hef margsinnis sagt er ég að leita að möguleika til myndun- ar þriggja flokka ríkisstjómar og ég undanskil engan í því,“ sagði Stein- grímur. -KMU Dæmið er flókið „Það voru ræddir möguleikar sem hugsanlega geta verið á stjómar- myndun," sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, eftir fund með Steingrími Hermannssyni, forsætisráðherra og formanni Fram- sóknarflokksins, í Stjómarráðshús- inu við Lækjartorg í gærmorgun. „Ég geri ráð fyrir að franihaldið velti á þeim umræðum sem formaður Framsóknarflokksins á núna við - sagði Þorsteinn Pálsson aðra stjómmálaflokka. Það liggur auðvitað ekkert fyrir um það hvort sú staða kemur upp í þessum viðræðum að við teljum að fyrir liggi stjómarkostur sem við erum ásáttir um. Við förum bara í þessar viðræður og reynum að meta þær efnislega. Við miðum auðvitað fyrst og fremst við það, ef við eigum að eiga aðild að stjóm, að við höfum trú á því að sú stjóm geti unnið sín verk og hafi þjóðfélagslega sterk ítök til þess að koma sínum málum fram. Við erum tilbúnir til þess að kanna möguleika á stjórn sem við höfum trú á að haldi verðbólgu niðri og geti framhaldið því starfi sem við höfum verið að leggja gmnn að með okkar þátttöku í ríkisstjóm á liðnu kjörtimabili. En úrslit kosninganna vom þau að dæmið er flókið," sagði Þorsteinn. -KMU „Þetta em opinberar þreifingar," sagði Kristín Halldórsdóttir, alþingis- maður Kvennalista, eftir ftmd hennar og Kristínar Einarsdóttur alþingis- manns með Steingrími Hermannssyni um miðan dag í gær. „Við skiptumst á skoðunum, meg- ináherslum, og hugmyndum. Hann hafði skilið svo mikið af öllu því sem við höfum sagt ykkur fréttamönnum hver væri okkar megináhersla, sem sagt að leiðrétta kjör þeirra lægstlaun- uðu, öryrkja og aldraðra, námsmanna, og við töluðum auðvitað um efhahags- ástandið í dag. Við lýstum þeirri skoðun okkar að tiltektin mætti ekki koma niður á þeim sem síst skyldi. Þeir yrðu að bera byrð- irnar sem gætu það. Það er fyrst og fremst forgangsröð- unin sem er öðruvísi hjá okkur en hinum flokkunum. Þeir eru flestir með ágætar hugmyndir um bætta stöðu fjölskyldunnar, konunnar og bam- anna. Þau málefni hafa bara því miður orðið að bíða. Við erum ekki tilbúnar til þess að láta þau bíða. Þegar við tölum um bætt kjör þeirra sem verstu kjörin hafa þá er það meira en bara að keyra upp tekjurnar. Það er ýmislegt annað í aðbúnaði, til dæm- is bama, og þjóðfélagið hefur afskap- lega lítið komið á móts við konur sem em famar að vinna úti. Það hefúr gerst á örfáum árum að yfir 80% kvenna vinna úti. Átak í dagvistunar- málum, bættur aðbúnaður í skólum og umhverfismál hljóta að vera mjög stór mál hjá okkur. Eins Lánasjóður námsmanna og Framkvæmdasjóður fatlaðra." - Þú hefur ekki ennþá nefnt utanrík- ismálin. „Það er ekkert vafamál að þau hljóta að verða rædd ítarlega við alla hina. Við erum miklir friðarsinnar og viljum ekki sjá óbreytt ástand í þeim málum,“ sagði Kristín. -KMU Engin hugarfarsbreyting - sagði Jón Baldvin Hannibalsson „Það varð engin hugarfarsbreyt- ing, væntanlega hjá hvorugum okkar,“ sagði Jón Baldvin Hannib- alsson, formaður Alþýðuflokksins, eftir rúmlega klukkustundar langan fund með Steingrími síðdegis í gær. „Að einhverju leyti hafa mál skýrst, þar á meðal hver þessi ágreiningsmál eru og eins hvar gæti hugsanlega verið samstaða. Stefna í landbúnaðarmálum er efst á blaði ágreiningsmála. Þetta voru auðvitað hreinskilnar umræður. Það er ekkert launungar- mál að á flokksstjómarfundi okkar jafnaðarmanna um síðustu helgi kom fram mikill stuðningur við hug- myndir um nýsköpunarstjórn. Reyndar á hugmyndin um samstarf við Kvennalista þar líka fylgi að fagna þótt hugsanlegt sé að eitthvað hafi dregið úr því vegna þess hversu óljóst er hver þeirra málefni em. Það er grundvallarsjónarmið að við jafnaðarmenn förum því aðeins í ríkisstjórn að við getum treyst því að okkar vera þar marki djúp spor. Við erum að tala um róttækar breyt- ingar á stjómkerfi, á hagstjóm, á ríkisfjármálum, á efnahagsmála- stjórninni almennt, og við erum að tala um róttækar breytingar á at- vinnustefnu, bæði í landbúnaðar- málum og sjávarútvegsmálum. Við erum að tala um þetta sem forsendur fyrir því að það takist í ríkisbúskapnum að afla fjár til þess að veita í forgangsröð verkefnum sem við teljum að hafi verið van- rækt,“ sagði Jón Baldvin. -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.