Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1987, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1987, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjóm - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjáíst,óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987. Skákmótíð í Gausdal: Enn sigraði Margeir Margeir Pétursson stórmeistari hefur sigrað á alþjóðlega skákmót- inu í Gausdal í Noregi, enda þótt ein umferð sé eftir á mótinu. Margeir er nú með 7,5 vinninga af 8 möguleg- I gær sigraði Margeir finnska al- þjóðlega meistarann, Irjola og er með 7,5 vinninga, en næsti maður á mótinu er með 6 vinninga. Af öðrum úrslitum í gær má nefna að Hannes Hlífar Stefánsson sigraði norskan skákmann og er með 4 vinninga og Þröstur Þórhallsson gerði jafntefli í sinni skák. Hann þarf að vinna síð- ustu skákina til þess að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli á þessu móti. Síðasta umferðin í Gausdal verður tefld í dag. Þess má geta að þetta er annað árið í röð sem Margeir J* Pétursson sigrar á þessu skákmóti. -ój Eldur hjá Þroskahjálp Laust fyrir klukkan eitt í nótt kom upp eldur í endurhæfingarstöð Þroskahjálpar við Suðurvelli í Keflavík. Brunavamir Suðumesja mættu fljótlega á vettvang og slökktu eldinn. Enginn var í húsinu þegar eldurinn kom upp en húsið, sem er timburhús, er töluvert skemmt af völdum elds og reyks. Eldsupptök eru ókunn en málið er í rannsókn. -JFJ Akureyri: Bílvelta Bílvelta varð á Akureyri um klukkan hálftíu í gærkvöldi. Öku- maðurinn þurfti að fara á slysadeild án þess þó að meiðsli hans væru al- varleg. Bíllinn er aftur á móti talin mikið skemmdur. ' Fyrr um daginn varð þriggja bíla árekstur og urðu töluverðar skemmdir á ökutækjunum. Einungis einn bílstjóranna þurfti að fara á slysadeildina og voru meiðsl hans talin smávægileg. Bílamir em taldir töluvert skemmdir. -JFJ JVC LOKI Nú er stjörnustríð í ríkisstjórninni! Uppgjör Útvegsbankann: Ríkissjóður tekur á ^III mA A C imSIImiiA sig aiit ðo íiv miiijaro - get ekki sagt tii um töiuna ennþá segir Jón Baldvin Hannibalsson fjármáiaráðhena Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra sagði i samtali við DV fyrir nokkrum dögum að sú upphæð sem rfkissjóður verður að taka á sig vegna uppgjörs Útvegsbankans yrði miklu hærri en búist hafði verið við. Talað var um að ríkissjóður tæki á sig 800 milljónir, þar af em Hafskips- skuldir 400 milíjónir en hitt em skuldir sem ómögulegt er að inn- heimta. Samkvæmt ömggum heimildum má reikna með að það sem ríkissjóð- ur verður að taka á sig sé á bilinu 1,2 til 1,5 milljarðar króna. „Ég get ekki staðfest þetta, enda er enn unnið að þvi að reyna að innheimta skuldir og það er ekki fyrir- séð hve miklu tekst að ná inn, en eins og ég sagði á dögunum er um miklu hæiri upphæð að ræða en við áttum von á,“ sagði Jón Baldvin í samtali við DV í gær. Þeir aðilar sem kaupa hlut ríkisins í Útvegsbankanum munu ganga að hreinu borði. Engar skuldir verða látnar fylgja bankanum, ríkissjóður mun taka þær allar á sig. Og það er einmitt ástæðan fyrir því að Versl- unarbankinn er nú aftur tilbúinn til að ræða hugsanlega sameiningu og allavega kaup á hlutabréfum í Út- vegsbankanum, að sögn Áma Gestssonar, formanns bankaráðs Verslunarbanka fslands. -S.dór Veittust að útlendingi Tveir menn veittust að útlendingi í Hafnarstræti í Reykjavík klukkan rétt rúmlega níu í gærkvöldi. Hvorki var um líkamsárás né rán að ræða en út- lendingnum var nokkuð brugðið. Mennimir vom horíhir þegar lögregl- an mætti á staðinn og fúndust ekki. -JFJ Akureyri: Risarotta beK bam Jón G. Haukssan, DV, Akureyit Það getur verið framtakssamt og hugmyndaríkt, unga fólkið okkar, og þar sem skólarnir eru enn ekki byrjaðir hefur það nógan tima og kraftarnir fá að njóta sin. Þessa hressu krakka rakst Ijósmyndari DV á í góða veðrinu á dögunum. Þeir höfðu opnað litla verslun þar sem þeir seldu ýmislegt smálegt á hóflegu verði. Á myndinni eru útlendingar að kaupa eitthvað til að kæla sig í reykvísku sólinni og má sjá að viðskiptin ganga snurðulaust fyrir sig. Þess má geta að ágóðinn af rekstri verslunarinnar rennur til Rauða krossins. DV-mynd S Risastór rotta beit sjö ára gamlan di-eng í puttann við fjölbýlishús á Akureyri í síðustu viku. Drengurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem sár hans var hreinsað og hann sprautaður. Nokkur böm vom að leik fyrir utan fjölbýlishúsið þegar þau sáu tvær rott- ur. Bömunum þótti þetta spennandi, reyndu að hræða rottumar og tókst að króa þær af. Pilturinn, sem var bit- inn, ætlaði þá að gera eitthvað við aðra þeirra en hún snerist þá til vam- ar og beit hann í puttann. „Ég hef ekki séð svona stóra rottu áður, hún var risastór og biksvört,“ sagði Hallgrímur Aðalsteinsson, íbúi við fjölbýlishúsið, um stærð rottanna. Í4 í 4 \4 é i 4 4 4 Veðrið á moigun: Þunviðri að mestu Það verður fremur hæg austan- og norðaustanátt á landinu öllu Rign- ing verður austanlands en að mestu þurrt í öðrum landshlutum. Bjart- viðri víðast hvar vestanlands. Hiti verður á bilinu 4 til 12 stig, hlýjast á Suðvesturlandi. I gær kviknaði í vömbíl á Hellis- heiði, var hann á vesturleið. Bfllinn var að flytja þökur og virðist, að sögn lögreglunnar, hafa ofhitnað á leið upp Kambana. Fljótlega gekk að ráða nið- urlögum eldsins og hafði það verið gert með handslökkvitækjum þegar slökkvilið mætti á staðinn. Bíllinn er óökufær en ekki talinn ónýtur. -JFJ Fýluferð hjá slokkviliði Bilun varð í eldskynjara á Borgar- spítalanum í gær og var slökkviliðið kvatt á vettvang. Þrír bílar voru send- ir að spítalanum í snarhasti en fljót- lega kom í ljós að um fyluferð var að ræða og bilunin fannst. -JFJ 4 4 4 4 4 4 í 4 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.