Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1988, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1988, Blaðsíða 30
42 MÁNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1988. Jarðarfarir Meruiing Guðrún Valgerður Guðjónsdóttir, Ægisíðu 64, Reykjavík, verður jarð- sungin frá Neskirkju þriðjudaginn 2. febrúar kl. 15. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Kveðjuathöfn um séra Hannes Guð- mundsson, Fellsmúla, fer fram í Skarðskirkju, Landssveit, í dag, 1. febúar, kl. 14. Útfor hans verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðju- daginn 2. febrúar kl. 13.30. Eyjólfur Guðmundsson, fyrrv. verkstjóri, Lindargötu 22a, Reykja- vík, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju þriðjudaginn 2. febrúar kl. 13.30. Markús Þórhallsson rafmagnsverk- fræðingur, Nesbala 17, Seltjarnar- nesi, verður jarösunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðju- daginn 2. febrúar kl. 13.30. Magnús Magnússon skipstjóri, Langeyrarvegi 15, Hafnarfirði, verð- ur jarðsunginn frá Garðakirkju þriðjudaginn 2. febrúar kl. 13.30. Jarðsett verður í Hafnarfjarðar- kirkjugarði. Katrín Karlsdóttir, sem lést 27. þ.m., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 2. febrúar kl. 10.30. Útfór Karitas Þórðarson, fer fram fimmtudaginn 4. febrúar kl. 15 frá Fossvogskapellu. Vilborg Dagbjartsdóttir Wigelund lést 20. janúar sl. Hún fæddist á Velli í Grindavík 26. desember 1911. For- eldrar hennar voru hjónin Dagbjart- ur Einarsson og Valgerður Guðmundsdóttir. Vilborg giftist Pet- er Wigelund en hann lést árið 1973. Þau hjónin eignuðust tvær dætur. Útför Vilborgar verður gerð frá Ás- kirkju í dag kl. 13.30. Fundir Aðalfundur kvennadeildar Barðstrendingafélagsins veröur haldinn þriðjudaginn 2. febrúar kl. 20.30 að Hallveigarstöðum. Verýuleg aðalfundarstörf. Gengið inn Öldugötu- megin. Kvenfélag Fríkirkjunnar í Reykjavík heldur aðalfund sinn að Hallveigarstöð- um nk. fimmtudagskvöld 4. febrúar kl. 20.30. Kvenfélag Háteigssóknar heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 2. febrúar kl. 20.30 í Sjómannaskólanum. Venjuleg aðalfundarstörf og rætt um af- mæli félagsins. Gestur fundarins verður Hanna Þórarinsdóttir og segir hún frá sínu starfi. Kvenfélag Laugarnessóknar heldur aðalfund sinn í safnaðarheimilinu í dag, 1. febrúar, kl. 20. Venjuleg aðal- fundarstörf og veislukafft . Kvenfélagið Fjallkonurnar Fundur verður í Fella- og Hólakirkju 2. febrúar kl.20.30. Á fundinn kemur Jónina Magnúsdóttir og kynnir postulínsmáln- ingu. Ýmislegt verður til skemmtunar. Kaffi og kökur. Kvenfélag Bústaðasóknar heldur aðalfund sinn mánudaginn 8. fe- brúar í safnaðarheimili Bústaðakirkju kl. 20.30. Hádegisverðarfundur presta verður mánudag 1. febrúar í safnaðar- heimili Bústaðakirkju. Sinfónían í sveitinni Selma Guðmundsdóttir og kariakórinn Stefnir á sinfóníutónleikum í Mosfellsbæ. Ekki er annað að sjá og heyra en að Sinfónían sinni landsbyggðinni allsæmilega. Satt að segja sýnist mér að hún sé með tónleika utan Reykjavíkur minnst einu sinni í mánuði að meðaltali og jafnvel oft- ar, sem er dijúg ábót skyldukon- sertum í höfuðstað allra landsmanna. Þetta er reyndar að- eins hluti heildarstarfs Sinfó- níunnar, hún er líka með skólatónleika, útvarpsupptökur og serenöður á spítölum og svoleiðis svo að öllum má vera ljóst að hún vinnur vel fyrir kaupinu sínu. Ég vona að menn átti sig líka á að hún þarf að æfa og það talsvert mikið. Einn utanbæjarkonsertinn var í fyrradag. Að vísu var hann í Mos- fellsbæ, sem maður telur venjulega úthverfi höfuðborgarinnar, en á skýrslum og skrám er þetta víst sjálfstæður landshluti. Þess vegna var flutt þarna, í íþróttahúsinu að Varmá, alveg sjálfstæö efnisskrá nema eitt verkið, Jupitersinfónían Tónlist Páll P. Pálsson stjórnar Sinfóníunni og karlakórnum Stefni á tónleikunum í Iþróttahúsinu að Varmá. eftir Mozart, var á seríutónleikum um daginn. Tónleikarnir hófust á Jupiter og það var Páll P. Pálsson sem stjórnaði. Ég man ekki hvað hann heitir sá sem stjórnaði henni um daginn. En mér fannst hún hljóma miklu skemmtilegar hjá Páli og lokaþátturinn, sem alÚr DV-mynd S vildu kveðið hafa, var spennandi og afar vel upp byggður. Einleikari á þessum tónleikum var Selma Guðmundsdóttir píanó- leikari og viðfangsefni hennar var píanókonsertinn eftir Katsjatúr- ían. Líklega var þetta hennar „debut“ með hijómsveitinni nema Leifur Þórarinsson hvað hún lék sama verk á Loga- landi daginn áður. Og þá var þetta líka stórglæsilegt „debut“ og ekki neinn byijendabrag að heyra. Kon- sertinn er mjög erfiöur og þó hann sé á yfirborðinu týpiskt Sovét- Hollywood þá leynast í honum ótal túlkunargildrur. Selma leysti slík- ar þrautir af miklu öryggi og sigldi framhjá vinsælum væmnisvoða án þess að blikna. Það var vel af sér vikið. Rúsínan í pylsuendanum var svo söngur Karlakórsins Stefnis í Þér landnemar eftir Sigurð Þórðarson og Finlandiu Síbehusar. Mega Mos- fellingar sannarlega vera stoltir af kór sínum; hann er ljómandi góður. LÞ Samtök um sorg og sorgar- viðbrögð halda fræðsluíúnd þriðjudagskvöldið 2. febrúar. Fundurinn verður í safnaðar- heimiH HaHgrímskirkju og hefst kl. 20.30. PáU Eiríksson geðlæknir ræðir um sorg og sorgarviðbrögð. Auk fyrirlesturs og umræðna verða kaífiveitingar og gott tóm til samræðna. Allir eru velkomnir. nóamarkaður Flóamarkaður verður haldinn í sal Hjálpræðishersins þriðjudag 2. feb. og miðvikudag 3. febrúar frá kl. 10-17. Mikiö úrval af góðum fatn- aði. Fyrirlestrar Fyrirlestur um mikilvægi skjalastjórnar í fyrirtækjum og stofnunum Dr. James C. Bennett, prófessor í við- skipta- og hagfræðideild ríkisháskóla Kaliforniu, flytur opinberan fyrirlestur í boöi félagsvísindadeildar Háskóla ís- lands 1. febrúar kl. 17.15 í stofu 101 í Odda, húsi félagsvísindadeildar við Sturlugötu. Fyrirlesturinn fjallar um mikilvægi skjalastjórnar í fyrirtækjum og stofnunum. Hann er fluttur á ensku og öUum opinn. Dr. Bennett er þekktur fræðimaður og fyrirlesari á sviði skjala- stjómar. Árshátíðir Árshátið Húnvetningafélagsins verður 6. febrúar nk. í Domus Medica og hefst með borðhaldi kl. 19. Jafnframt verður þetta afmæUsfagnaður en félagið verður 50 ára 17. feb. í ár. Miðasala verð- ur í félagsheimilinu, Skeifunni 17, miðvikudaginn 3. febrúar og fóstudaginn 5. febrúar nk. kl. 17-20, báða dagana, sími 31360. Fréttir „Ég er ekkert óánægður með þessa könnun. Samkvæmt henni erum við á venjulegu róli. Við eigum að njóta stuðnings um fjórðungs kjósenda ef allt er eðlilegt," sagði Péll Pétursson, formaður þingflokks Framsóknar- fiokksins. „Það er engin ástæða til að vera óánægður. Ríkisstjórnin hefur staðið í ströngu og það er ekki óeðlilegt að stjómarandstaðan nái sér tímabund- ið á strik nú. Hún hefur haft tækifæri Páll Pétursson: Erum á venjulegu róli til þess aö andskotast á okkur yfir jólin og komist upp með alls konar rangfærslur ári þess að við höfum haft tækifæri til að leiðrétta þær nema að litlu leyti. Þó að þessir fiokk- ar sæki í sig veðrið núna vegna árása á matarskatt verður ekki framhald á því þegar ráðstafanir okkar eru að fullu komnar fram. Þá kemur í ljós að þeir hafa verið að beijast við vind- myllur. Þaö vekur sérstaka athygli við þessa könnun að Kvennalistinn virðist vera kominn í svipaða stöðu og Alþýðuflokkurinn var í á síðasta kjörtímabih, á meðan hann gat þvaðrað ábyrgðarlaust um það hvernig hann vildi hafa þjóðafélagið. Það varð annað uppi á teningnum þegar Alþýðuflokkurinn þurfti að fara að takast á viö vandann og þurfti að taka ábyrgö á gerðum sín- um,“ sagði Páh Pétursson. -ój „Samkvæmt þessari könnun hefur. Alþýðuhandalagið rétt nokkuð við frá því í síðustu könnun DV,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Olafur Ragnar Grímsson: Betur má ef duga skal Alþýðubandalagsins. „Við þurfum hins vegar að gera betur og þessi könnun segir, eins og könnun Helgarpóstsins, að okkur miðar aðeins áfram frá könnunum síðasta árs. En betur má ef duga skal,“ sagði Ólafur Ragnar Gríms- son. -ój „Eg skil þetta ekki. Við höfum undanfariö verið með fundáherferð um landið og höfum átt þar verulegu fylgi að fagna og hlotið góðar við- tökur,“ sagði Albert Guðmundsson, Albert Guðmundsson: Skil þetta ekki formaður Borgaraflokksins. „Við höfum ekki orðið varir við minnkandi fylgi, þvert á móti. Hins vegar hafa fiölmiðlar reynt aö fela okkur á þingi og þeir hafa htið sagt frá okkar málum og því að við höfum verið mjög starfsamir þar. Ég skil þetta ekki,“ sagði Albert Guðmunds- son. -ój Friðrik Sophusson: Oska Kvennalistanum til hamingju REYKJVMÍKURBORG JLautein Stödcvi „Það er ástæða til að óska Kvenna- hstanum til hamingju með þessa niðurstöðu. Skýringin á fylgi hans er hklega sú að hann hefur aldrei þurft að taka á sig þá ábyrgð sem fylgir því aö stjórna og er því á ýms- an hátt óþekkt stærð,“ sagði Friörik Sophusson, varaformaður Sjálfstæð- isflokksins. „Ríkisstjórnin hefur staðiö fyrir miklum og umdeildum breytingum að undanfórnu sem ég veit að munu skila sér þegar frá líður. Við skulum átta ókkur á því að skoðanakönnun er sköðanakönnun en það eru kosn- ingar sem ghda.“ -SMJ Gatnamálastjórinn í Reykjavík auglýsir til umsóknar nýjar stöður stöðuvarða. í störfum þessum, sem hentað geta jafnt konum sem körlum, felst: 1. Yfirmaður stöðuvarða sem annast daglega stjórn- un og skipulagningu. 2. Tveir aðstoðarmenn yfirmanns. 3. Stöðuverðir sem annast eftirlit með stöðumælum borgarinnar, og umferðarlagabrotum hvað varðar stöðu bifreiða, í samræmi við umferðarlög sem taka eiga gildi 1. mars nk. Þeir umsækjendur, sem ráðnir verða, sækja nám- skeið hjá lögreglunni í Reykjavík til undirbúnings og þjálfunar í starfinu. Um launakjör fer eftir kjarasamningi St.Rv. og Reykjavíkurborgar. Umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum skal skila til starfsmannastjóra borgar- verkfræðings, Skúlatúni 2, fyrir 5. febrúar nk. sem jafnframt veitir upplýsingar um starfið. „Þetta eru sannariega góð úrsht fyrir Kvennahstann. Við höfum ver- ið á uppsveiflu í öllum skoðanakönn- unum eftir kosningar en þetta er í fyrsta skipti sem við forum yfir 20%,“ sagði Guðrún Agnarsdóttir, Guðtún Agnarsdóttír: „Góð úrslit“ þingmaöur Kvennalistans. „Það er mjög ánægjulegt að finna að vaxandi fjöldi fólks finnst mál- staður okkar og málflutningur eiga erindi við sig. Greinilegt er að síðustu aðgerðir ríkisstjómarinnar hafa ekki orðið til að afla sjómarflokkunum vinsælda sem eðlilegt er og mættu þeir draga lærdóm af því og taka mark á vilja fólksins." -SMJ Jón Baldvln Hannibalsson: „Afar fróðleg niðurstaða „Afar fróðleg niðurstaða," sagði Jón Baldvin Hannibalsson fjármála- ráðherra. „Lítum á stjórnarflokk- ana: Það hefur ekki farið á milii mála að öll spjót hafa beinst að Al- þýðufiokknum undanfarið sem frumkvæðisaðila í ríkisstjóm að skattabreytingum. Þær hafa verið umdeildar og að hluta til óvinsælar. Alþýöuflokkur tapar minnsta fylgi stjórnmálaflokkanna en Framsókn- arflokkur, sem hefur haldið sig til hlés, tapar mestu. Ef litið er á stjómarandstöðuna þá heldur Kvennalistinn áfram að safna óánægjuöflum undir sinn pilsfald. Þá hefur andlitslyfting Alþýðu- bandalagsins ekki skilað meiri árangri en svo að Olafur Ragnar er varla hálfdrættingur á viö stelpum- ar. Borgaraflokkur á útleið en Sjálf- stæðisflokkur hressist lítið við það. Þetta er niðurstaðan í svartasta skammdeginu, svo fer að rofa til. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.