Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1988, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1988, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 10. MARS 1988. 7 Jón Baldvin Hannibalsson: Ekki frekari ráðstafanir „Ríkisstjórnin greip til sinna ráö- stafana eins og hún haföi sagt fyrir þegar fyrir lágu kjarasamningar sem samrýmdust afstöðu ríkisstjórnar- innar um hjöðnun veröbólgu,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson fjármála- ráðherra. „Kjarasamningar sem slíkir eru ekki í verkahring ríkisstjómarinnar. Frekari samningagerð er algerlega á valdi þeirra verkalýösfélaga sem hafnað hafa sgmningum og þeirra viðsemjenda. Ekki er um það að ræða að ríkisstjórnin grípi til frekari efna- hagsaðgerða.“ Um viðskiptahallann sagði fjár- málaráðherra að enn væri óvissa um hvort hann yrði 8,5 milljarðar eða 10 milljarðar en engin óvissa væri fyrir því að 2/3 hlutar hans væru vaxta- greiðslur vegna ótæpilegra fjárfest- Stjómmál Jón Baldvin Hannibalsson. inga frá tíð fyrri stjórnar, t.d. á skipum og flugvélum. Það lægi fyrir að ekki væri hægt að komast hjá þessum greiðslum en hins vegar væri hægt að komast hjá nýjum fjár- festingum. „Fyrirtæki í sjávarútvegi ættu að endurskoða afstöðu síúa til nýrra fjárfestinga í skipum og þá sérstak- lega fyrirtæki sem hggur fyrir að hafi minni kvóta til umráða." -SMJ Albert Guðmundsson: Stjórnin er fallin „Nú hefur ríkisstjómin setið í sjö mánuði. Við höfðum óskaplega þægi- legt þjóðfélag áður en hún tók við völdum. Á þessum sjö mánuðum hefur þjóðfélagið gerbreyst, frá því að vera þægilegt þjóðfélag í að vera ópersónulegt og þungt fyrir einstakl- inginn,“ sagði Albert Guðmundsson. „Þær ráðstafanir sem ríkisstjórnin hefur gripið til fjórum sinnum á sjö mánuðum hafa verið íþyngjandi sem allir finna þegar á að fara að greiða því opinbera. Ég get ekki túlkaö afgreiðslu kjara- samninga öðru visi en sem mótmæli gegn ríkisstjórninni. Því segi ég um ríkisstjórnina í dag: Hún er fallin þó þeir sitji áfram í stólunum. Ég segi þetta vegna þess að almenningur er að mótmæla aðgerðum hér. Þessar aðgerðir hafa í raun og veru gert lífs- viðurværi fólks lakara frá degi til dags og eru í raun gengisfelling í áfóngum. Þetta er ein gengisfelhng á hverjum degi. Nú er gengið fallið og spurning er hvenær fer ríkisstjórnin sömu leið. Hvað lengi ríkisstjórnin mun standa í dauðateygjunum, það er stóra spumingin í dag. Sem stjórn- Albert Guðmundsson. vald er hún búin - því fyrr sem hún skhur það þeim mun minni skaða veldur þaö þjóðfélaginu í hehd. Fólk- ið í landinu hefur skihð það.“ Albert sagði að ríkisstjórnin stæði nú frammi fyrir því að ekki væri hægt að hækka útgjöld ríkissjóðs um 50% um leið og skattar váeru hækk- aðir um 20-25 mihjarða. Þá væru vaxtagreiðslur ríkissjóðs 4.800 mihj- arðar sem jafnghtu árslaunum 10.000 verkamanna. -SMJ Atvinnumál Botnftskaflinn: 20% utan Verð- lagsráðsverðs í sambandi við þá ákvörðun Sjó- mannasambandsins að skora á aðhdarfélög sín aö segja upp samn- ingum th aö mótmæla ákvöröun yfimefhdar Verðlagsráðs sjávarút- vegsins um að haía Ðskverö óbreytt heftir veriö bent á aö Verðlagsráös- verö skipti ekki miklu máli þar sem stór hluti botnfiskaflans sé annað hvort seldur á uppboðsmörkuðum hér heima eða erlendis. Þótt ekki sé hægt að fá nákvæmar tölur um hve mikið magn af fiski er selt á uppboðsmörkuðum mun hggja nærri áö mihi 5 og 7% af af- lanum sé seldur á íslensku fisk- mörkuðunum. Af þorski voru í •fyrra Qutt út 13% af heildaraflan- um en af ufsa og karfa um 5%. Ahur annar botnfiskur er á Verö- lagsráðsverði th fiskvinnslunnar hér heima en taka veröur fram að i sumum thfehum er um yfirborg- anir á fiski að ræða, þótt það sé í minna mæh á þessari vertiö en var í fyrra. Samkvæmt bráðabirgöatölum Fiskifélags íslands var botnfiskafl- inn á síöasta ári 659 þúsund lestir, þar af var þorskafhnn um 380 þús- und lestir. Þaö má því gera ráð fyrir aö um 130 þúsund lestir af botnfiski hafi verið fluttur út ferskur í fyrra en ómögulegt er að segja th ura hvert magnið verður í ár. -S.dór Fiskmarkaðurinn í Englandi: Góður fiskur heldur sér í verði þótt magnið aukist - segir Aöalsteinn Finsen hjá umboðsfyrirtækinu Brekkes í Hull Tómur salur i Hraöfrystistödinni i Eyjum eftir að verkfall Snótar hófst. Fiskurinn, sem annars yröi unninn þar, fer nu á Bretlandsmarkað. DV-mynd Ómar Garöarsson, Vestmannaeyjum „Eg er ekkert hræddur um verð- fah á fiski hér í Englandi Vestmannaeyjabátarnir allir afla sinn hingaö. Ef fiskurinn er góöur helst verðið. Aftur á móti höfum við verið aö fá smáan af Austfjaröamiðum að undan- fömu og hann er fullur af æti og því slappur þegar hann er kominn hingað og verð á honum hefur ver- ið i þéssari viku svona 50 " krónur fyrir kilóið. Þetta er eins th tveggja kilóa fiskur," Aðalsteinn Finsen, framkvæmda- stjóri hjá umboðsfyrirtækinu Brekkes Ltd i Hull. Aöalsteinn sagði að verðið þessa dagana fyrir góðan þorsk væri á rnihi 68 og 70 krónur fyrir kílóið. Á þessum árstíma sagði Aðalsteinn aö hættan væri raest hvaö fiskinn frá íslandi varðar að hann er oft fuhur af æti og verður þvi mjög slappur. Hann benti á að á sama tíma og ástand fisksins væri svona væri besti tírainn á íslandi til veiða, mið vetrarvertið, mest bærist því aö á þessum tíma. Vertíð í Norðursjó hefur veriö heldur slök það sem af er, en aftur á móti hefur veiði verið allgóð í Eystrasaltinu. Afh af þessum slóð- um hefur mikið að segja með verðið á bresku fiskmörkuðunum. -S.dór sp^° Langar þig í myndbandstæki? * 15 aðgerða þráðlaus fjarstýring. * HQ (High Quality) hreint ótrúleg myndgæði. * Sjálfvirkur stöðvaleitari. * Myndleitari i báðar áttir. * Fjórtán daga upptökuminni og fjórar skráningar á þeim tíma. * 30 stöðva minni sem gerir þér kleift að horfa á eina rás en taka upp af annarri. Spólar sjáflvirkt að byrjun þegar spólan er búin. Þegar spóla er sett í fer það sjálfkrafa i gang. (Frame by Frame) nákvæm skoðun atriða með skref- spólun. * Scarttengi. * Klukka og teljari. * (Repeat) Endurtaktu sama hlutinn allt að 5 sinnum. * QSR (Quick Start Recording) skyndiupptaka. Óháð upptökuminni. AFB 33.900,- STGR. 32.205,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.