Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1988, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1988. Fréttir Stjómin hefur áður lent í mórgum „krísum“ Nú verður tekist á um grundvallaratriði segir Jón Baldvin Hannibalsson „Miðað við þær kröfur, sem uppi voru um allt að 20 prósent gengis- fellingu, lögbindingu kjarasamn- inga og afnám rauðra strika, tel ég að niðurstöður helgarinnar séu viðunandi. Við vildum gengisfell- ingu við lægstu mörk, 9 prósent, lýstum okkur andsnúna lögbind- ingu og lögðum til viðræður við verkalýðshreyfinguna um sjálf- virkar viðmiðanir á laun og lán, sagði Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra Jón Baldvin sagðist álíta að erfið- asti hjallinn á fundum ríkisstjóm- arinnar á næstu tveimur vikum væri ákvörðun um þær þrjár tillög- ur um stefnumarkandi atriði sem Alþýðuilokkurinn hefði lagt fram ásamt þeim 17 sem hægt hefði ver- ið að framkvæma strax: Að ríkis- stjórnin taki skuldbindandi ákvörðun um að ríkissjóður verði rekinn með umtalsverður tekjuaf- gangi á næsta ári eða sem nemur einu prósenti af landsframleiðslu (2,5-3 milljarðar). Að ríkisútgjöld hækki ekld á árinu 1989 að raun- gildi. Að tekin veröi skuldbindandi ákvörðun um að einstakir ráð- herrar flytji frumvörp um að af- nema aíla sjálfvirkni fiárlaga, markaða tekjustofna og annað slíkt, hver í sínum málaflokkum. Upp á ríkissjóð standa nú kröfur upp á hundruð miUjóna vegna markaðra tekjustofna, til dæmis í landbúnaði. Framlög til hans nálg- ast nú ráöherralaun á hvert lög- býh. Ráðherrarnir yröu með þessu aö taka tilUt til óöryggis markaðar- ins eins og aðrir. Þetta eru aðgerð- ir sem draga úr nýrri gengisfelUng- arþörf. Þær beinast að því að veita aðhald í ríkisfiármálum og á lána- markaði og betri nýtingu fiármuna. - Getur þessi ríkisstjóm barið saman ráðstafanir á tveimur vik- um frekar en fiórum dögum? „Ég rifia upp að þessi sfiórn hefur lent í mörgum „krísum". Hún hef- ur afgreitt mörg stór mál sem spáð hefur verið að hún gæti ekki. Það hefur verið tekist á um Útvegs- bankann, landbúnaðarmál, láns- fiárlög, söluskattinn, virðisaukann og PLO og forsetaheimsókn til Sov- étríkjanna. Nú er tekist á um grundvallaratriði í stefnu, hvort sfiórnin vilji standa við eigin ákvarðanir í stefnumálum sínum. Getur hún leyst það á tveimur vik- um? Já. Ekki síst fyrir það aö það væri gríðarlegur ábyrgðarhluti að hella þjóðinni út í kosningar eins og ástand efnahagsmála er í dag,“ sagði Jón Baldvin. -gse Það urðu allir svo óskaplega hissa - segir Hlrf Svavarsdóttir verðlaunahafí í keppni norrænna danshöfunda „Skemmtilegt var hvað allir urðu óskaplega hissa þegar þeir sáu ís- lenska dansflokkinn. ísland er yngsta landið með minnstu reynsl- una í listdansi en við vorum með mest spennandi verkefnið bæöi danslega séð og koreografískt,1' segir Hlíf Svavarsdóttir, hstdansstjóri Þjóðleikhússins, sem hlaut verðlaun fyrir frumsaminn ballett í sam- keppni norrænna danshöfunda um helgina í norsku óperunni í Osló. Það var einróma álit dómnefndar að ís- land skaraði fram úr. í verðlaun hlaut Hlíf svokölluð Pe- trushkaverðlaun. Styttuna fékk hún til eignar þar sem þetta er í fyrsta skipti sem keppnin er haldin en í framtíðinni fær sigurvegarinn far- andverðlaun. Ætlunin er að keppnin verði haldin annað hvort ár og alltaf á mismun- andi stöðum, á Norðurlöndunum fímm. „Ég stakk auövitað upp á því að keppnin yrði haldin næst á íslandi. Mér finnst það alveg upplagt vegna þess að Borgarleikhúsið fer að kom- ast í notkun. En ég veit ekki hvort þaö verður hægt og engin ákvörðun hefur verið tekin ennþá um hvar keppnin fer næst fram,“ segir Hlif. Hlíf byijaði að vinna að verkinu 11. apríl með íslenska dansflokknum. „Þá var ég ekkert byrjuð að semja dansinn. Ég var búin að ræða við Þorkel Sigurbjömsson sem samdi tónlistina og búningateiknarann, en ég byrja aldrei að semja dansinn fyrr en ég kem í stúdíó." - En fylgja sigrinum mörg atvinnu- tilboð? „Sigrinum fylgir uppsetning á þessu verki eða einhveiju öðm verki eftir mig á einu af Noröurlöndunum. Ég verð ráöin til einhvers Noröur- landanna til þess að sefia verkið upp á næsta ári en ég veit ekki enn í hvaða landi það verður. Það verður ljóst í september. Þá var ég einnig beðin um að senfia nýtt verk fyrir Þjóðarballettinn í Helsinki i Finnlandi.“ - Þarftu þá að flytja til þessara landa um tíma? „Nei, nei, ég ætla mér aö byggja Hlff Svavarsdóttir verðlaunahafi I keppni norrænna danshöfunda. DV-mynd KAE upp ballettinn á íslandi. Til þess kom til aö sefia upp sýningamar þegar ég til landsins. En ég skrepp bara út þar að kemur. -JBj Efhahagsumræður rfltisstjómarinnar: Árangurinn ekki traustvekjandi - segir Steingrimur Hermannsson „Ríkisstjórain er veikari eftir dager rúmir 7milljaröarenefhún þessa helgi fyrir að hafa ekki verið yrði afnumin í desember fáeri tilbúnari í aðgerðir. Hún var tekin kostnaöurinn niður í 2 milljarða. í bólinu á svarta miðvikudeginum Það sagði Steingrímur upphæð sem í fyrri viku. Árangur hennar er væri viðráðanleg. ekki traustvekjandi,*' sagði Stein- „Við viljum ekki að lánskjara- grímur Hermannsson á blaöa- visitalan fái aö leika lausum hala mannafundi í gær. á meðan fólk þarf að þola skerðingu Steingrímur var að eigin sögn á launum sínum,“ sagði Steingrím- knúinn til að boða til þessa blaða- ur. mannafundar eftir ummæli Þor- í máli Steingríms kom fram að steins Pálssonar um tillögur Fram- viðræður ríkissfiómarinnar um sóknarflokksins í efnahagsmálum. efnahagsaðgerðir um helgina Þorsteinn hafði látið hafa það eftir hefðu byggst á tillögum hans og sér að tillögumar væra óábyrgar. Alþýöuflokksins. Hann sagðist því „Ég get ekki setið undir þessum miður ekki geta greint frá fleiri til- ummælum," sagöi Steingrímur. lögum. Sjáifstæðisflokkurinn hefði Á fundinum dréiföi Steingrímur ekki lagt neitt annað fram en mús- umræddum tillögum. Efnisatriði ina sem kölluð hefur verið miölun- þeirra voru rakin í DV í gær. Stein- artillaga forsætisráðherra. grímur varði sérstaklega tillögur Steingrímur sagðist vona að rík- sínar um afiiám lánskjaravísitölu issfiómin kæmist að niöurstööu ogsagðiþærhafaveriðmistúlkað- þrátt fyrir atburði helgarinnar. ar. Ætlan hans hefði ekki verið sú „Við skulum vona að Eyjólfur að þær kæmu til framkvæmda hressist," sagði Steingrimur og átti strax. Kostnaöurinn við afnám viðrfltíssfiómÞorsteinsPálssonar. vísitöluxmar af húsnæðislánum í .«Se Bandalag starfsmanna ríkis og bæja: Flestfélögin hafa náðfram endurskoðun samninga Næstum öll félög ríkisstarfs- manna í BSRB hafa samið við hiö opinbera um kauphækkanir. Hækkunin nemur 5-6 prósentum auk áfangahækkana. Samningar þessara félaga era lausir um næstu áramót en endurskoðunarákvæði var í samningum ef almennar kauphækkanir yrðu á samnings- tímanum. Krisfián Thorlacius, formaöur BSRB, sagði í samtali viö DV að kauphækkanir BSRB væru sam- bærilegar við þá samninga sem ASÍ hefur gert þar sem samið var um 11% kauphækkun en BSRB félagar fengu 3% hækkun um áramót og 2% í byijun febrúar. Félag íslenskra símamanna er eina félagið sem hafnaði tilboöi rík- isins en félögin, sem þegar hafa samiö, eru Félag flugmálastarfs- manna, starfsmenn í Stjómarráði, Hjúkranarfélag íslands, Lands- samband lögreglumanna, Ljós- mæðrafélag íslands, Póstmannafé- lag íslands, Starfsmannafélag rík- isstofnana, Starfsmannafélag Rík- isútvarpsins, Starfsmannafélag Sjónvarps, Starfsmannafélag Sjúkrasamlags Reykjavíkur, Toll- varðafélag íslands, Starfsmannafé- lag Reykjavíkurborgar og Starfs- mannafélag Siglufiarðarkaupstað- ar. -JBj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.