Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1988, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1988. Fréttir Forráðamenn fiskmarkaðanna í Reykjavík, Hafnarfirði og á Suðurnesjum á fundi í morgun. Þar var rætt um aukna samvinnu og hugsanlega tölvusamtengingu allra markaðanna til hagræðis fyrir þá alla. Aukin samvinna er sögð koma öllum til góða. DV-mynd GVA Fiskmarkaöimir: Ahugi fyrir auk- inni samvinnu og samtengingu - forráöamenn markaöanna funda um málið „Við höfum um nokkurn tíma rætt það með hvaða hætti við gætum auk- ið samvinnu okkar og jafnvel sam- tengingu fiskmarkaðanna í Reykja- vík, Hafnarfirði og á Suðurnesjum. Viö teljum að með því mætti auka hagræðinguna stórlega hjá fisk- mörkuðunum. Þess vegna er þessi fundur haldinn," sagði Einar Sveins- son, framkvæmdastjóri fiskmarkað- arins í Hafnarfirði, í samtali við DV. í morgun komu forráöamenn þess- ara fiskmarkaða saman til að ræða þessi mál. Það er talið tæknilega mögulegt að tölvutengja fiskmarkað- ina og sagði Einar að meö því móti mætti 'spara mönnum á Suðurnesj- um að fara inn til Reykjavíkur eða Hafnarfjarðar til aö kaupa fisk ef ekkert er að fá á Suðurnesjum og öfugt. Logi Þormóðsson, stjórnarformað- ur fiskmarkaðarins á Suðurnesjum, sagði í samtali við DV að þetta mál væri mjög áhugavert en hann sagðist óttast að tölvutenging markaðanna yrði mjög dýr. Það mál þyrfti að kanna en allir markaðirnir eru með tölvukerfl. Einar Sveinsson tók fram til aö fyr- irbyggja allan misskilning að þetta mál væri aðeins til umræðu- en alls ekki komið á framkvæmdastig. „Við hittumst oft þessir karlar og höfum verið að ræða málin. Það rabb hefur svo leitt til þess að við ákváð- um að halda með okkur formlegan fund um þetta með aukna hagræð- ingu fyrir alla í huga,“ sagöi Einar Sveinsson. Fiskmarkaðirnir í Reykjavík og í Hafnarfirði eru kallaðir gólfmarkað- ir. Það þýðir að menn hafa þann fisk sem þeir ætla að kaupa fyrir augun- um. Markaðurinn á Suðurnesjum er aftur á móti fjarskiptamarkaður. Þá gefa bátarnir sem ætla að selja á markaðnum upp hvað þeir eru með og menn bjóða í aflann óséðan. -S.dór Sölumiöstöðin kaUar saman neyöarfimd: Vegna hinnar hrikalegu afkomu sem við blasir - segir Jón Ingvarsson stj ómarformaður „Hvort kalla á þetta neyðarfund skal ég ekkert segja um en hitt er staðreynd að aldrei hefur verið rík- ari ástæða til að kalla saman fund hjá Sölumiðstöðinni en nú. Við okk- ur blasir svo hrikaleg afkomumynd í frystingunni að ekki verður komist hjá því að ræða hana. Teygjan í mál- inu er búin og þolinmæði okkar á þrotum,“ sagði Jón Ingvarsson, stjómarformaður Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, í samtali við DV. Sölumiðstöðin hefur boðað til þessa fundar í dag. Slíkur aukafund- ur sem þessi hefur ekki verið boðaö- ur i Sölumiðstöðinni í fjölda mörg ár. Á þessum fundi mun Jón Ingvars- son flytja yfirlitsræðu og Steingrím- ur Hermannsson forsætisráöherra flytur ávarp. Þá munu þeir Amar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva, Þórður. Friðjóns- son, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, Sigurður Stefánsson endurskoðandi, Ólafur B. Ólafsson framkvæmda- stjóri, Jón Páll Halldórsson fram- kvæmdastjóri, Finnbogi Jónsson framkvæmdastjóri og Sigurður Ein- arsson framkvæmdastjóri halda ræður. Jón Ingvarsson sagði að ein höfuö- ástæðan fyrir slæmri afkomu fryst- ingarinnar væri fall dollarans en um þaö bil 67 prósent í tekjumynstri frystingarinnar eru í dollurum. Fyrir utan viðskiptin við Bandaríkin eru notaðir dollarar í viðskiptum við Sovétríkin og Japan. -S.dór Minni kvóti: Enn nýjar efnahagsaðgerðir? í Þjóðhagsstofnun er nú reiknað hvaða áhrif minni þorskkvóti á næsta ári muhi hafa á útflutnings- tekjur, viðskiptahalla og þjóöartekj- ur. Þá mun minnkandi afli minnka tekjur útgerðar og veiða. Þaö má því búast við að afkoma þessara greina versni enn í útreikningum Þjóð- hagsstofnunar þó útgjöld þeirra muni að sjálfsögðu einnig veröa minni. Ljóst er að útflutningstekjur muni dragast saman um fáeina milljarða. Viðskiptahallinn mun aukast að sama skapi en samkvæmt nýbyrtri þjóðhagsspá var gert ráð fyrir um 12,6 milljarða halla á næsta ári. Það er þó ekki víst að þessi verði raunin þar sem minnkandi afli hefur hingað til ekki einungis haft áhrif á helstu hagstærðir heldur einnig efnahagsstefnu stjómvalda. Það má því búast við aö ríkisstjómin móti aðgerðir til að mæta þessum sam- drætti innan tíðar. -gse DV Aflakvótinn 1989: Samdráttur í veiðum helstu botnfisk- tegundanna Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið heildarafla helstu botnflsk- tegunda fyrir næsta ár og er þar um nokkurn samdrátt að ræða í þeim flestum. Eins og skýrt var frá í DV fyrir nokkru verður samdráttur þorskafla 10 prósent, hann minnkar úr 355 til 360 þúsund lestum í ár niður í 325 þúsund lestir á næsta ári. Hafrann- sóknastofnun lagði til að aflinn yrði minnkaður um 20 prósent eða í 300 þúsund lestir. Vegna efnahags- ástandsins var ekki talið fært að fara svo neðarlega. Búist er við að heildarkarfaaflinn í ár verði um 90 þúsund lestir en gert er ráð fyrir að hann verði ekki meiri en 75 þúsund lestir á næsta ári. Heimilt er að veiða 65 þúsund lestir af ýsu í ár og er gert ráð fyrir óbreyttu magni næsta ár. í ár var heimilt að veiða 80 þúsund lestir af ufsa en útlit er fyrir að aflinn verði ekki nema um 70 þúsund lestir. Á næsta ári er gert ráð fyrir 80 þúsund lesta afla. Loks er svo dregið verulega úr grá- lúðuveiðum eða úr 50 þúsund lestum í ár niður í 30 þúsund lestir á næsta ári. -S.dór Svalbaröseyrarmálið: Óvíst hvort bændurnir taka tilboði Sambandsins Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri: „Viö funduðum um tilboö Sam- bandsins í gærkvöldi og þaö er nákvæmlega ekkert að frétta af þeim fundi en við ætlum að fara suður til Reykjavíkur í dag og ræð'a við Iðnaðarbankann," sagði Bjarni Hólmgrimsson, bóndi aö Svalbarða við Eyjafjörð, í morgun. Bjarni er einn bændanna 9 sem gengu í ' fjárhagsábyrgðir fyrir Kaupfélag Svalbaröseyrar áður en félagið varð gjaldþrota. Upphæð þeirra ábyrgða nemur i dag um 45 milljónum króna og eru 6 þessara bænda í mun hærri ábyrgðum en hinir, Sambandið itrekaði í gær tilboð sitt viö bændurna um að koma til hjálpar við lausn þessa máls. í til- boðinu felst að Sambandið taki að sér greiðslu þriðjungs upphæðar- innar eða um 16,5 milljónir króna, Samvinnubankinn og Iðnaðar- bankinn taki á sig sömu upphæð ef samningar nást við Iðnaðarban- kann og bændurnir beri þá þriðj- ung eöa 16,5 milljónir. Þetta snýr þannig að bændunum aö 6 þeirra munu þá eiga að greiöa 2,3 mllljónir hver, tveir þeirra 900 þúsund krónur og einn 380 þúsund krónur. Samvinnubankinn mun vera tilbúinn aö lá.na þessa upphæð til 15 ára á lágum vöxtum þannig aö greiðslubyrði hvers bónda á ári verði að hámarki 200 þúsund krón- ur á ári en um 10 milljónir myndu þá snúa að Samvinnubankanum. Samningar hafaekki tekist við Iðn- aðarbankann í þessu máli en það kann að gerast í dag. Upphæðin, sem þar er um að ræða, nemur um 6,5 milljónum króna. Sambandið segir að hér sé verið að ítreka tilboð sem bændunum var gert í sumar en bændumir hafi ekki svaraö. „Þetta er ekki rétt, lögfræðingar okkar svöruðu þessu tilboði skriflega og óskuðu eftir frekari viðr£eðum,“ sagði Bjarni Hólmgrímsson. Mótmæli Alþýðubandalagsins gegn álveri: Eitthvað úr fortíðinni - segir Jón Baldvin „Við ætlumst til þess að menn hlaupist ekki á brott frá samkomu- lagi um að ljúka hagkvæmniskönn- un á nýju álveri í Straumsvík. Við viljum gæta íslenskra hagsmuna í hvívetna en höfum engar skoðanir fyrirfram. Við viljum með vinsemd og alvöru vænta þess af öllum ís- lendingum að þeir skoði öll efnis- rök í málinu og taki afstöðu á grundvelli þess en komist ekki að niðurstöðunni fyrirfram,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra. Svavar Gestsson afhenti Jóni Baldvini mótmæli þingflokks Al- þýðubandalagsins á ríkisstjórnar- fundi í gær vegna málsmeðferðar Jóns Sigurðssonar, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, í álmálinu. Jón Sigurðsson, sem er erlendis, hefur, eins og fram hefur komið í DV, skipað nefnd til að halda áfram samskiptum við þau fjögur erlendu stórfyrirtæki sem vinna nú að hag- kvæmnisathugun á byggingu ál- vers í Straumsvík. „Ég tel þessi mótmæh ótímabær og ástæðulaus. Það sem iðnaðar- ráðherra hefur gert er alls ekki brot á samkomulagi eða vinnu- brögðum,“ sagði Jón Baldvin. - Er ekki ljóst að Alþýðubandalag- ið mun aldrei samþykkja byggingu álvers? „Þeir hafa sagt að það hljóti að sjálfsögðu að fara eftir niðurstöð- um hagkvæmniskönnunar hvaða málefnalega afstaða verður tekin til málsins." - Hvernig skýrir þú þá viðbrögð þingflokksins? „Ja, ætli þetta sé ekki eitthvað úr fortíðinni." - Er álmálið ekki líklegra en flest önnur mál til að verða tilefni stjórnarslita? „Ég hef tröllatrú á þessu stjórn- arsamstarfi. Eftir að viö komum vitinu fyrir Aldi-fyrirtækiö í Þýskalandi held ég að hægt sé að koma vitinu fyrir alla,“ sagði Jón Baldvin. -gse

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.