Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1989, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1989, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989. Utlönd Ortega fagnar með Castro Castro heldur nú upp á það að þrjátiu ár eru liðfn frá þvi að hann komst til valda á Kúbu. Reagan Bandarikjaforseti mun örugglega ekki verða í hópi þeirra leiðtoga sem fara til Kúbu til að samgleöjast Castro. Mynd Lurle Daniel Ortega, forseti Nicaragua, fer í dag til Kúbu til að taka þátt í hátíðarhöldum vegna þrjátíu ára byltingarafmælis þar. Ortega verður viðstaddur aðalatriði hátíðarhaldanna sem er opnun mikillar sýningar sem sýnir árangur þrjátíu ára stjórnar kommúnista á þessari eyju í Karíbahafmu. Ortega mun væntanlega verða á Kúbu fram að helgi. Castro komst til valda á eynni í janúar 1959 eftir að hann velti Fulgen- cio Batista einræðisherra af stóh. Vilja bjarga Dóná Rúmlega sjötíu og fimm þúsund Ungverjar hafa skrifað undir bænar- skjal þar sem beðið er um að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um bygg- ingu mikillar stlflu í Dóná, að sögn opinberrar fr éttastofu landsins í gær. Það voru umhverfisvemdarsamtök sem hafa björgun Dónár fyrst og fremst á stefnuskrá sinni sem stóðu fyrir bænarskjalinu og munu af- henda stjórnvöldum þaö. Andstæðingar stíflunnar segja að hún muni útrýma villtu dýralífi og menga þetta stærsta vatnsfall Evrópu. Ungverska þingið samþykkti í nóvember að halda áfram undirbúningi stiflunnar sem verður gerð með aðstoð Austurríkismanna. Fangelsisflótti i Mexíkó Bandaríkin leita ásjár PLO Hermenn úr konunglega breska flughernum leita að braki úr júmbóþotu Pan Am flugfélagsins í námunda við bæinn Lockerbie í Skotlandi. Simamynd Reuter Talsmenn Hvíta hússins skýrðu frá því í gær að bandaríski sendiherrann í Túnis hefði beðið háttsettan leið- toga PLO um aðstoð viö rannsókn á því hverjir sprengdu Pan Am þotuna sem fórst í Skotlandi þann 21. desem- ber síðastliðinn. Beiðnin kom .fram á óformlegum fundi á laugardag í bandaríska sendi- ráðinu í Túnis milli Robert Pelletre- au, sendiherra Bandaríkjanna, og Hakam Balaaoui, einum helsta leið- toga PLO, að sögn talsmanns Hvíta hússins. Sagt var að sendiherrann heföi notað tækifærið og tjáð Balaaoui að Bandaríkin myndu fagna hvers kyns upplýsingum sem PLO kynni að geta grafið upp í málinu. Balaaoui mun hafa samþykkt að koma þessum boðum áleiðis til Ara- fats. Að sögn embættismanna munu hvorki Bandaríkin né PLO hafa litið á fundinn, sem fram fór á laugardag, sem þátt í formlegum viðræðum sem hófust fyrir þremur vikum. Fundur- inn á laugardag fór fram að beiðni Balaaouis, fyrst og fremst til að hann gæti kynnt sig fyrir sendiherranum. Fyrr í gærdag hafði Reagan forseti sagt fréttamönnum að honum hefði ekki borist neitt boð frá Arafat um aöstoð við rannsókn þessa máls. Hann sagðist hins vegar vera sann- færður um aö Arafat myndi láta Bandaríkin fá upplýsingar ef hann kæmist yfir þær. Um helgina höfðu embættismenn í Hvíta húsinu borið til baka fregnir um að beðið hefði verið um aðstoð PLO. Salah Khalaf, næstæðsti leiðtogi PLO, sakaði í gær Mossad, ísraelsku leyniþjónustuna, um að hafa grand- að Pan Am þotunni. Sagði hann að þetta hefðu ísraelsmenn gert til að spilla fyrir þeim árangri sem upp- reisn Palestínumanna á hemumdu svæðunum hefði skilað. Hann sagði að PLO hefði enga hagsmuni af því að sprengja upp þotu með saklausu fólki. Skoska lögreglan afhenti í gær átj- án lík til aðstandenda og einnig fund- ust bútar úr stélhluta vélarinnar. Nú hafa áttatíu og eitt lík af tvö- hundruð íjörutíu og tveimur, sem fundist hafa, verið afhent aðstand- endum. Tuttugu og átta lík hafa enn ekkifundist. Reuter Þrjátíu og fjórir fangar fiúðu úr fangelsi í Mexíkó í gær gegnum göng. Yfirvöld hafa hafið mikla leit að fongunum. Að sögn yfirvalda flúðu fangarnir gegnum þrjátíu metra löng göng úr öryggisfangelsi í borginni Torreon sem er um þrjú hundruð og tuttugu kílómetra frá landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna. Fangamir, sem flestir sátu inni fyrir eiturlyíjasmygl, laumuðust út án þess að fangaverðir yrðu þess varir á milli klukkan sex og níu í gærmorg- un að íslenskum tíma. Settir hafa verið upp vegartálmar í nágrenni borgarinnar. Andófsmaður segir hótun marklausa liiniii! fer--:--- 1 gj PSíÍliÍ 1 ^UBl Sergei Grigoryants, andófsmaóur og rftstjóri hins óopinbera limarits Glasnost, sést hér á mynd sem tekin var þegar hann var I haldi i Jerevan i síöasta mánuðí. Simamynd Reuter Farþegar SAS benda á farangur sinn í Stokkhólmi í gær. Nú fer enginn farangur um borö í SAS flugvél án þess að farþegar bendi fyrst á hann og gangist við honum. Allt sem gengur af er fjarlægt. Simamynd Reuter Sergeí Grigoryants, ritstjóri hins óopinbera tímarits Glasnost, sagði í gær að hótun róttækra Armena um ofbeldisaðgerðir væru falsaðar. Ritstjórinn sagði fréttamönnum að hótunin væri hluti af herferð yfir- valda gegn Karabakh-nefndinni sem er samtök Armena sem berjast fyrir því að Armenía fái yfirráð yfir Nagorno-Karabakh sem nú er undir stjórn Azerbajdzhan. Hótunin var birt í málgagni kommúnista í Armeníu í síðustu viku. Grigoryants sagði aö hótunin væri á of góðri rússnesku til aö geta ver- ið skrifuö af Armena. Höfundurinn lilyti aö vera Rússi eða að minnsta kosti búsettur utan Armeníu. Lögregla hefur handtekiö meðhmi Karabakh-nefndarinnar og sagöi Grigoryants að fimm væru enn f haldi. Sovéskir ráðamenn hafa sakað nefhdarmenn um að reyna að nota sér deilumar um Nagomo-Karabakh til þess að komast til valda. Grigoryants, sem er hálfur Armeni, var á dögunum látinn laus úr haldi í Armeníu þar sem hann hafði setið í haldi í mánuð. Fjölskylda brúðar ferst Brúður og þijátíu gestir í brúðkaupi hennar fórust þegar fólksflutninga- bifreið, sem þau vom í, lenti í árekstri við lest í noröausturhluta Kina á sunnudag. í bifreiðinni var brúöurin og fjölskylda hennar á leið til brúökaupsins. Reuter Sprengjuhótanir raska áætlunum SAS Þrjár sprengjuhótanir neyddu SAS flugfélagiö í gær til að grípa til víð- tækustu öryggisráðstafana sem gerðar hafa verið í sögu fyrirtækis- ins. Varö þetta til að setja úr skorð- um áætlanir félagsins um allan heim. Enskumælandi maöur hringdi í flugfélagið og sagði að spellvirki yrðu unnin á flugvél sem færi í innan- landsflug frá Gautaborg í gærmorg- un, að sögn talsmanna félagsins. Þetta er- þriðja sprengjuhótunin sem SAS skýrir frá opinberlega. Þrátt fyrir að seinkanir yrðu á öll- um flugferöum SAS í gær fundust engin merki um skemmdarverk. „Við tökum allar hótanir alvarlega og öryggiseftirlit er gífurlegt á öllum- flugvöllum sem við fljúgum til,“ sagði John Herbert, talsmaður fé- lagsins. Á laugardag tilkynnti SAS að það hefði fengið bréf þar sem hótað væri að flugvél í innanlandsflugi yrði fyrir skemmdarverkum vegna milligöngu Svía sem leiddi til beinna viðræðna Bandaríkjanna og PLO. Einnig bárust upplýsingar frá Int- erpol um að óþekktur hópur kunni að vera að skipuleggja árás á eina af vélum SAS. Varð þetta til þess að öryggisráðstafanir félagsins um all- an heim voru hertar til muna. SAS harmaöi í gær birtingu á inn- anhússbréfi í sænskum fjölmiðlum. Bréfið var um hertar öryggiskröfur. „Þetta auðveldar aðeins hryöju- verkamönnum að gera árásir og er í öllu falli ekki til þess aö bæta hlut- ina,“ sagöi Herbert. Félagið hefur fyrirskipað sérstaka varkárni í sambandi við póst og frakt. Einnig verður mun strangara eftirlit með farangri farþega en verið hefur. Starfsfólk er beðiö um að vera sérstaklega varkárt. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.