Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Blaðsíða 52
FR ÉTTAS KOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst,óháð dagblað Ritstjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 27022 LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989. DC-8 þota Flugleiöa: Hætt við f lug vegna elds í bensíni - farþegar komnir um borð Flugleiðir urðu að fresta flugi til Orlando á fimmtudag eftir að eldur kviknaöi undir einni af DC-8 þotum félagsins. Þotan var tilbúin í flugtak og farþegar voru komnir um borð er eldurinn kviknaði undir öðrum væng þotunnar. Enginn mun hafa verið í hættu og vel gekk að koma farþegum frá borði. Hætt var við flug á fimmtudag en flogið var til Orlando í gær. Fyrr um daginn hafði farið fram viðgerð á bensínleka í hreyfli. Þotan ’**&vár færö þar sem óttast var að bens- ín gæti verið á brautinni undir hreyflinum. Ekki tókst betur til en svo að á aðkeyrslubrautinni þar sem þotan var sett var bensín frá annarri þotu. Við gangsetningu gaus upp talsverður eldur. Hætt var við ílugið og þotan sett í rannsókn. í gærkvöldi var þeirri rannsókn ekki lokið. Því var ekki vitað hvort skemmdir hefðu orðið á þotunni eða búnaði hennar. -sme Verðlagsstofrum: Óheimilt að selja pokana Verðlagsráð ákvað á fundi sínum í gær að vegna verðstöðvunar væri verslunarfyrirtækjum óheimilt að selja kaupendum burðarpoka úr plasti undir keyptar vörur. Sú ákvörðun að selja shka poka hafði verið tekin af Landvernd, Kaupmannasamtökum íslands og verslunardeild Sambands íslenskra samvinnufélaga. Höfðu flestar mat- wöruverslanir hafið sölu á pokun- um frá og með áramótum. -JSS - sjá viðbrögð bls. 7 NÝJA SENDIBÍLASTÖÐIN 68-5000 GOÐIR BILAR ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR LOKI Þá er að hamstra plastpoka næstutvo mánuðina! Veggjatítla grandar V iifli w húsi á EskHirði Tvær fjölskyldur misstu hús- næði sitt á Eskifirði vegna þess að skorkvikindi, sem heitir veggjatitla á íslensku, eyðilagði húsið. „Allir burðarbitar hússins eru ónýtir og þakið hefur sigið um nokkra sentímetra," segir Anna Óðinsdóttir en hún bjó ásamt eigin- manni sínum, Hafsteini Hinriks- syni, og tveim börnum á annarri hæð i tvíbýlishúsinu Haukabergi, á Strandgötu 1. „Það sjást ekki nein ummerki eftir veggjatítluna á veggjum húss- ins. En allir viðarbitar og timbur á milh þilja er útétið af bjöllunni,1* segir Anna. Þau hjónin keyptu húsnæðið fyr- ir íjórum árum og tóku ekki eftir neinu grunsamlegu fyrst í stað. „Þaö er aðeins á vorin sem bjallan kemur út úr göngum sem hún gref- ur sér. Fyrsta vorið sem ég tók eft- ir bjöllunni hélt ég aö hún kæmi utan frá, því að ég sá hana úti í garöi,“ segir Anna. Húsið er byggt árið 1939 og mest- ar líkur eru á að bjallan hafi um langa hríð búið í húsinu. Að sögn Sigurðar Richters líffræðings er þess nokkur dæmi að veggjatítlan hafi borist hingað til lands og unn- ið skemmdir á timburhúsum. „Lirfa veggjatítlunnar nagar sig inn í viöinn og lifir þar. Hún púpar sig í viðnum og litlar bjöllur fljúga út og para sig siðan,“ segir Sigurö- ur. Götin, sem hrfan nagar, eyði- leggja smátt og smátt viðmn. Sig- urður segist hafa komið í hús þar sem mátti taka handfylli úr burðar- bitum sem voru ónýtir eftir ágang veggjatítlunnar. Ur holum veggjatitlunnar kemur örfint sag sem getur verið heilsu- spillandi. Dóttir Önnu og Hafsteins var komin með ónæmisasma í nóv- ember þegar þau fluttu úr húsinu. Þau hjónin sitja uppi með ónýta eign og að sögn Hafsteins gengur erfiðlega að fá tjónið bætt. Það virö- ist sem enginn viti hvernig á að bæta tjón sem veggjatítlan veldur. *Pv Fyrsti skammturinn af nýju bílnúmerunum kom til Bifreiðaskoðunar Islands í gær. Þeir sem pöntuðu ný númer fyrsta starfsdag hins nýja fyrirtækis voru mættir til að ná í númerin sín. Upp frá þessu má því sjá æ fleiri bíla með ný númer. Númerin eru framleidd á Litia-Hrauni og er um þriggja daga afgreiðslufrestur á þeim. Helgi Björnsson og Dagbjört Valdimars- dóttir, starfsmenn Bifreiðaskoðunar, halda þarna á einu númerapari en á vagninum er fyrsti skammturinn. Parið kostar 3.800 krónur. DV-mynd Brynjar Gauti Eldvamareftirlitið: Viðurkenning fyrir góðar eldvarnir í Gúmmívinnustofunni „í afgreiðslunni uppi á Réttarhálsi hékk viðurkenningarskjal frá Eld- varnareftirlitinu fyrir góðar eld- varnir. Þeir fengu það núna nýlega og ég hafði það í fhmtingum að þetta hefði átt að koma til okkar hjá Gúmmívinnustofunni í Skipholti. En það fór ekki milli mála að skjalið var til Gúmmívinnustofunnar að Réttar- hálsi 2. Það stóð skrifað stórum, skrautrituðum stöfum á skjalinu," sagði Gunnlaugur Ingimundarson, starfsmaður Gúmmívinnustofunnar í Skipholti, við DV. Starfsmenn frá Réttarhálsi staðfestu þessi orð Gunn- laugs. Gunnlaugi fannst rétt að þetta kæmi fram vegna gagnrýnisradda um eldvarnir að Réttarhálsi 2. Hann sagði ennfremur að Eldvarnareftir- litið hefði gefiö Gúmmívinnustof- unni frest til 1. mars til að setja við- unandi hurð í stóra gatið á milli hús- anna eða loka því. Gunnar Ólafsson sagði í viðtali við blaðið að gerðar hefðu verið athugasemdir við gatið í veggnum í fyrra en að Eldvarnareft- irlitið væri ekki í stakk búið til að setja Gúmmívinnustofunni stólinn fyrir dyrnar varðandi úrbætur. DV hafði samband við slökkvistöð- ina og þar var blaðamanni tjáð að viðurkenningarskjöl kæmu frá Eld- varnareftirhtinu. Ekki náðist í slökkviliðsstjóra eða forstöðumann Eldvamareftirlitsins vegna þessa. -hlh - sjá einnig bls. 4 Veðrið á sunnudag og mánudag: Kaldi og norðanátt gert ráð fyrir kalda og breytilegri átt. Þurrt og bjartveður á Suðausturlandi en skýjað og él í öðrum A mánudag er spáð norðan- og norðaustanátt um land allt. É1 verða við norður- og austurströndina, annars þurrt. Á sunnanverðu landinu verður víða léttskýjað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.