Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1989, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1989, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1989. Fréttir__________________ Blóðbankinn þavfari en Seðlabankinn - segir Jón Baldvin Hannibalsson Að sögn Jóns Baldvins Hannibals- sonar utanríkisráðherra er Blóð- bankinn sýnu þarfari en Seðlabank- inn. Þessi ummæli komu fram þegar rætt var utan dagskrár um vinnu- brögð í Seðlabanka íslands. Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæð- isflokksins, haíði óskað eftir að fá að koma að fyrirspurn til viðskiptaráð- herra vegna ummæla utanríkisráð- herra um að í Seðlabankanum störf- uðu menn aðallega við að naga blý- anta. Fyrirspumin var ekki leyfð en utandagskrárumræða um máhð sett á dagskrá. Þar sýndist sitt hverjum. Viðskiptaráðherra sagði að fárán- legt væri að spyija sig um ummæh og hugsanir annars manns og sagði að shkt minnti sig á hugmyndir um hugsanalögreglu. Viðskiptaráðherra sagðist ekki vera sammála ummæl- um utanríkisráðherra en taldi að starfsfólk Seðlabankans gæti vel haldið uppi vörnum fyrir sig. Utan- ríkisráðherra minntist á ummæh Sverris Hermannssonar um íjár- málaráðherra og spurði hvort þau ummæh væru samboðin virðingu Alþingis. Eiður Guðnason sagði að sjálfstæðismönnum hefði tekist með þessari umræðu að koma póhtískri umræðu niður á nýtt neðsta plan. Hahdór Blöndal sagði hins vegar að spaugilegasta atvikið, sem hefði komið fyrir í sögu Alþingis, væri th- raun Eiðs th að kenna öðrum hátt- vísi. Ólafur Þ. Þórðarson taldi að það hefði orðið gengisfelhng á æru Frið- riks Sophussonar en Svavar Gests- son spurði hvort Sjálfstæðisflokkur- inn teldi sig þuifa að verja htla manninn í Seðlabankanum. Albert Guðmundsson sagði að hann hefði ekki nema gott um starfsfólk Seðla- bankans að segja en Þorsteinn Páls- son sagði að það væri greinilegt að alþýðuflokksmenn skömmuðust sín fyrir ummæli Jóns Baldvins. -SMJ Leikfélag Akureyrar: Frumsýningu á „Wirginíu WoM“ frestað Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Það má e.t.v. segja aö við höf- um ætlað okkur um of og við ætlum að taka okkur eina viku til viðbótar th æfinga,“ sagði Ar- nór Benónýsson, leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akureyrar, en frumsýningu leikfélagsins á leik- ritinu Hver er hræddur við Wirginíu Wolf?, sem vera átti um helgina, hefur verið frestað um eina viku og verður fóstudaginn 17. febrúar. Æfingar hafa staðið yfir í nokk- um tíma og hófust þær í Reykja- vík vegna þess að allir leikaram- ir og leikstjórinn voru syðra. Það eru leikarahjónin kunnu, Helga Bachmann og Helgi Skúlason, sem fara með aðalhlutverkin í leikritinu. Deilt um greiöslur til BorgarafLokksins: Hausatalan á að ráða - segir Albert „Ég baö um að þaö yrði beðið með að skipta þessum fjármunum upp þar th menn vissu hvort að það væm einn eða tveir þingflokkar innan Borgaraflokksins,“ sagði Albert Guðmundsson en hann beitti sér fyr- ir því að greiðsla th þingflokks Borg- araflokksins væri stöðvuð um helg- ina. Þetta var árleg greiðsla Alþingis th þingflokka og átti Borgaraflokkur- inn að fá 9 th 10 mhljónir króna í sinn hlut. Sagðist Albert hafa snúið sér th ríkisféhirðis, sem á að greiða út féð, og beðiö hann að bíða. Hann Guðmundsson mun hafa orðið við þeim thmælum en peningamir hafa verið greiddir út núna. „Þingið greiöir öhum þingflokkum miöaö viö hausatölu og ef það em fjórir þingmenn sem mynda stuðn- ingsflokk innan Borgaraflokksins - fylgja stjóminni - þá eiga þeir ekki að fá nema sem svarar fjórum haus- um,“ sagði Albert. Þingflokksformaður Borgara- flokksins, Óh. Þ. Guðbjartsson, sagð- ist ekkert vilja segja um máhð. -SMJ Landbúnaöarráöuneytiö: Neytendur fá ekki fulltrúa í nefndir - segir formaður Neytendasamtakanna „Þegar nefndir em skipaðar í land- búnaðarráðuneytinu minnist ég þess vart að fuhtrúar neytenda eigi þar hlut aö máh. Það em yfirleitt fram- leiðendur sjálfir sem ráða þar mestu,“ sagði Jóhannes Gunnars- son, formaður Neytendasam- takanna, þegar hann var spurður um starf nefndar þeirrar sem hefur nú skhað frá sér drögum að reglugerð um dreifingu á kartöflum. Jóhannes sagði að óeðhlegt væri að framleið- endur væm að skipta sér af síðari dreifingu á vörunni. Neytendasamtökin mótmæla ýms- um þeim hugmyndum sem fram hafa komið í drögunum. Þar væri gert ráð fyrir því að framleiðendur kartaflna fengju óeöhlega mikið vald á hehd- söludreifingunni. Telja samtökin að þessar einokunarhugmyndir muni eingöngu leiða th enn hærra verðs á þessari vöm. Sagði María E. Ingva- dóttir, varaformaöur Neytendasam- takanna, að með þessum hugmynd- um væm kartöfluframleiðendur að fara inn á sömu braut og aörir fram- leiðendur landbúnaðarafurða. -SMJ Börnin mynda „lið“ sem syngja fyrir starfsfólk í verslunum og öðrum fyrirtækjum. Hér er eitt „liðið“ að syngja í verslun í miðbæ Akureyrar i gærmorgun. DV-mynd gk Öskudagur á Akureyri Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Öskudagur er stór dagur fyrir börn á Akureyri sem fjölmenna um bæinn klædd í skrautlega búninga og syngja fyrir fólk í fyrirtækjum. Hápunkturinn er síöan að söngn- um loknum þegar börnin hópast saman í miðbænum og taka þar þátt í því að slá köttinn úr tunnunni. Starfsmenn Rafveitu Akureyrar sjá um að koma tunnunni fyrir á Ráð- hústorgi og er óhætt að segja að mik- hl hamagangur sé þegar bömin leggja til atlögu og láta höggin ríða á tunnunni hvert af öðru. í kvöld heldur hln heimsfræga rúmenska sópransöngkona lliena Cotrubas tónleika i Háskólabíói með Sinfóníu- hljómsveit íslands. Ljósmyndari DV, Brynjar Gauti, tók þessar skemmtilegu myndir af söngkonunni á æfingu í gærmorgun. . :. r; . , i i , j1 Ófærðin í Reykjavík: Gangstétta- hreinsun spurning um peninga „Hreinsun gangstétta er fyrst og fremst spuming um kostnað. Við veröum að ryðja göturnar og þá er snjórinn settur á gangstéttir. Þetta er óhjákvæmhegt. Þeim spjó, sem þá er á gagnstéttunum, verður að aka burtu. Eftir þvi sem lengra hð- ur á milli snjókomu batnar ástand- ið. Það er rétt aö margar fáfamar gangstéttir eru illfærar,“ sagði Sig- urður Skarphéðinsson, aðstoðar- gatnamálastjóri í Reykjavík. Reynt er að setja sand á sem flest- ar gangstéttir. Sandinum er dreift meö dráttarvélum á göngustíga og breiðari gangstéttir. Á þrengri gangstéttir er sandinum dreift með skóflum. Sú dreifmg tekst misvel og viða era nokkrir raetrar á mhli sandbletta. Það sem af er þessu ári hefur snjómokstur og hálkueyöing kost- að 10 til 12 milljónir króna. í fjár- hagsáætlun Reykjavíkur era 35 aónir króna ætlaöar í þennan fyrra kostaði hálkueyðing og snjómokstur 50 milijónir króna. -sme f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.