Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1989, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1989, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1989. Fréttir Hörð gagnrýni ríkisendurskoðunar á störf Jóns Helgasonar: Einn milljarður án lagaheimilda - forsetar þingsins ákveða viðbrögð Alþingis eftir þingslit Jón Helgason og Ingi Tryggvason skrifa undir búvörusamninginn umdeilda. Að sögn Guðrúnar Helgadóttur, forseta sameinaðs þings, hafa forset- ar þingsins ekki ákveðið viðbrögð við skýrslu ríkisendurskoðunar um framkvæmd búvörulaga. Sú skýrsla er harðorð gagnrýni á framkvæmd þeirra laga og meðal annars er Jón Helgason, þáverandi landbúnaðarráðherra, sakaður um að hafa úthlutað fullvirðisrétti langt umfram samþykktir Alþingis og að reglugerðir hans hafi ekki átt sér lagastoð. Guðrún sagði að forsetar þingsins hefðu rætt skýrsluna en vegna anna yrði þeim viðræðum frestað þar til eftir þingslit. Einn milljarður án nokkurra lagaheimilda Samkvæmt skýrslu ríkisendur- skoðunar hefur framkvæmd búvöru- laga orðið allt önnur en lögin, sem Alþingi samþykkti, gerðu ráð fyrir. Ríkisendurskoðun telur að þær breytingar, sem gerðar voru á reglu- gerðum um framkvæmd laganna árið 1987, „eigi sér ekki lagastoö". Jón Helgason, þáverandi landbúnað- arráðherra, gaf samkvæmt þessu út reglugerðir án þess að hafa heimild tíl þess í lögum. Samkvæmt þessum reglugerðum var úthlutað fullvirðis- rétti sem var umfram þær verð- ábyrgðir sem búvörulögin gerðu ráð fyrir. Þessi ólöglegi fullvirðisréttur jafngildir um 2.800 til 2.900 tonnum á samningstímanum en samningur- inn gildir til 1992. í skýrslunni segir: „Ríkisendurskoðun álítur að ríkis- valdið sé ekki bundið af greiðslu- skyldum í formi verðábyrgðar vegna fuilvirðisréttar sem úthlutað hefur verið á fyrrgreindan hátt. Þá fram- leiðslu yrði að flytja út og er kostnað- ur vegna útflutningsbóta áætlaður um 1 milljarður króna.“ Með öðrum orðum: Reglugerðin, sem Jón Helgason setti án nokkurrar lagaheimildar, mun kosta ríkissjóð um 1 milljarð króna. Hættið að misnota Framleiðnisjóð! Ríkisendurskoðun gagnrýnir Jón Helgason fyrir að vinna gegn sam- þykktum Alþingis á fleiri vegu. í skýrslunni segir að með samningi hans við Stéttarsamband bænda hafi möguleikar Framleiðnisjóðs tíl að sinna hlutverki sínu verið skertír verulega. „Alltof stór hluti af ráðstöfunarfé sjóðsins hafi farið.til viðhalds hefð- bundinna búgreina. Það sama gildir um tilmæli stjómvalda um aö Fram- leiðnisjóður veiti fé til loðdýraræktar vegna rekstrarvanda greinarinnar en það fé hefur aðallega verið í formi ódýrra lána,“ segir meðal annars í skýrslunni. Ríkisendurskoðun áminnir stjóm- völd síðan um að nota sjóðinn ekki frekar til aðgerða vegna rekstrar- vanda hefðbundinna búgreina og loðdýraræktar. Of miklar útflutnings- bætur og skuldbindingar í skýrslu ríkisendurskoðunar kem- ur fram að Framleiönisjóður hefur nú þegar skuldbundið sig með samn- ingum til lengri tíma en hann hefur fjárveitingar tíl. Samkvæmt lögum um sjóðinn hefur hann ekki tekju- stofn nema til ársins 1992. Ríkisend- urskoðun áminnir stjórn hans um að gæta þess að eiga fé þá til að greiða niður þá samninga sem gilda til lengri tíma. í þessari áminningu felst að annars sé sjóðurinn í raun að eyöa fjánnunum ríkissjóðs án samþykkis Alþingis. í skýrslunni kemur einnig fram að framlög ríkisins til útflútningsbóta umfram áætlanir búvörulaga hafi numið um 588 milljónum króna. Hluti af þessu. eða um 158 milljónir, er tilkominn vegna vaxta sem hafa komið til vegna dráttar á því að ríkið gerði upp við afurðastöðvamar. Eftir standa 430 milljónir. Markmiðin enn langt undan Þetta er einungis lítill hlutí þeirrar gagnrýni sem kemur fram í skýrslu ríkisendurskoðunar. í henni kemur einnig glögglega í ljós hversu fjarri framkvæmd búvörulaga er því aö ná markmiðum þeirra. í skýrslunni kemur fram að spár um innanlands- neyslu hafa verið um 2.500 tonnum of háar á síðustu þremur ámm. Minni framleiðslu má að stórum hluta rekja til niðurskurðar á riðufé. Ríkisendurskoðun gerir ráð fyrir að stærsti hlutínn af þeirri framleiðslu, sem þannig hefur dottíð út á undan- förnum ámm, komi aftur inn eftír tilskihnn tíma. Niöurstaða ríkisend- urskoðunar er sú að áriö 1992, þegar búið átti að vera að aðlaga fram- leiðsluna innanlandsmarkaði, verði kindakjötsframleiðslan 3.000 tonnum of mikfl og mjólkurframleiðslan 4 til 5 milljón lítrar umfram innanlands- neyslu. Til þess að ná markmiðum búvörulaga þyrfti því að fækka kindabúum um 400 og mjólkurbúum um60fyriráriðl992. -gse Jón Ragnarsson eigandi Hótel Arkar: Gistirými auktó um 50 prósent - ætlar að eiga Hótel Vaihöll áfram „Ég hef miklar væntingar um „Sú hugmynd er frá. Ég ætla að glæsilegan rekstur hér á Hótel Örk. reka bæði hótelin. Það er hægt að Gistirýmiö veröur aukið um 50 pró- samnýta þau á ýmsan hátt,“ sagði sent. Hér eru 60 herbergj og þeim Jón. veröur fjölgaö i 90. Ég vona að þau Jón'hefur ekki ráöiö hótelstjóra herbergi verðj komin í notkun um en reiknar meö að gera það fljót- mitt sumar. Útreikningar, sem ég lega. Hann tekur við rekstrinum hef gert, sýna að þetta getur orðið l. júní. fýsilegur kostur þegar búiö er að Framkvæmdasjóöur seldi Jóni fjölga herbergjunum. Þaö era Hótel Örk á 265 milljónir. Hluti komnar margar bókanir fyrir sum- kaupverðsins var greiddur með arið svo þetta lítur vel út,“ sagði kvikmyndahúsinu Regnboganum. Jón Ragnarsson, eigandi Hótel Jónvildiekkigefaupphversumik- Arkar í Hveragerði. ill hluti kaupverðsins greiddist Jón keypti hótelið á fimmtudag meö kvikrayndahúsinu. Jón rekur og er þegar farinn að huga að breyt- Regnbogann til haustsins og jafn- ingum og lagfæringum á hótelínu. vel lengur. En ætlar Jón að selja Hótel Valhöll? -sme Aflaskipið Þórunn Sveinsdóttir VE: Hættir á vertíðinni með heimsmet að baki Ómax Garðaisson, DV, Vestmannaeyjum: Það var létt yfir áhöfninni á neta- bátnum Þórunni Sveinsdóttur VE er hún kom úr síðustu veiðferð þessar- ar vertíðar í gær. Um borð vora 27 tonn af fiski sem er afrakstur tveggja daga. Hennar beið löndun og frá- gangur báts og veiðarfæra. Síðan ætlaöi hún að gera sér glaðan dag og fagna glæstum árangri. Þórunn Sveinsdóttir hefur landað alls 1915 tonnum á vertíðinni sem hófst 7. janúar og lauk í gær, 12. maí. Þaö þarf vart að taka fram að hér um glæsilegt íslandsmet, ef ekki heimsmet, í vertíðarafla að ræða. „Þetta er búin að vera löng og ströng vertíö. Fyrri hluta vertíðar var miklil bræla. Annað sem hefur einkennt þessa vertíð er hversu fisk- urinn hefur verið smár. Það hefðu margir bátar getað fiskaö mjög mikið í vetur hefðu þeir haft kvóta. Það hefur verið sárt fyrir marga að taka upp netin í apríl þegar rótfiskirí var. Jóhann Gíslason ÁR er búinn að fá 1794 tonn. Sveinn Jónsson skipstjóri, sem er á sinni þriðju netavertíð, er mikið fiskimannsefni. Það er sama með hvaða veiðarfæri hann er. Hjá okkur hefur verið gott samstarf í all- an vetur,“ sagði Sigurjón Óskarsson, skipstjóri á Þórunni Sveinsdóttur VE. Sigurjón varð í gær aflakóngur Vestmannaeyja í ellefta sinn. Fiskaflinn til aprilloka: Þorskaflinn 10 þúsund lestum meiri en í fyrra - heildaraflinn kominn í 869 þúsund lestir Samkvæmt tölum Fiskifélags ís- lands var þorskaflinn um síðustu mánaðamót orðinn 161.692 lestir á móti 151.652 lestum á sama tíma í fyrra. Þessi munur varð í aprflmán- uði einum. Þá var feikna góð veiði viðast hvar og veiddust 51.522 lestír af þorski á mótí 41.982 lestum í sama mánuði í fyrra. Heildarfiskaflinn þessa fjóru fyrstu mánuði ársins varð 868.958 lestir á móti 869.867 lestum í fyrra. í báðum tilfellum er um mjög góðan afla að ræða. -S.dór Jón Baldvin um efasemdir sænskra embættismanna um forystu Islendinga 1 EFTA-nefnd: Þeir ættu að halda þessum skoðunum hjá sjálfum sér „Ef þetta er mat sænskra stjóm- valda á íslendingum þá er tvennt um það að segja,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra í viðtali við DV þegar bomar voru undir hann fréttir sænsku fréttastof- unnar TT um áhyggjur sænskra embættismanna af forystu utanríkis- ráðherrafyrirviðræðumEFTA-ríkja • við Efnahagsbandalagið. „í fyrsta lagi hefðu sænskir ráð- herrar átt að lýsa þessum áhyggjum sínum á réttum stað og réttri stundu, það er í EETA-ráöinu sjálfti: í öðru lagi, ef þama er rétt með farið og við mættum gefa Svíum góð ráð, þá hefði ég ráðlagt þeim að halda þessum skoðunttm hjá sjálfum sér svona rétt áður en forsætisráðherra þeirra kemur tfl íslands." í skeyti TT er fullyrt að sænsk stjómvöld hafi verulegar áhyggjur af hæfni íslendinga til aö veita for- ystu viðræðum EFTA-ríkja við Evr- ópubandalagið en þær viðræður munu fara fram síðari hluta þessa árs með Jón Baldvin í broddi fylking- iar EETA þar semhann.verðurí for-. sætí ráðherranefndar bandalagsins. Hefur fréttastofan þaö eftir hátt- settum embættismanni aö sænsk stjómvöld telji íslendingum illa treystandi tíl að gæta hagsmuna ann- arra en sinna eigin og er gefið í skyn að íslenskir aðflar muni varla hafa áhuga á að semja um annað en fisk. Líkir embættismaðurinn forystu ís- lendinga viö þaö ef Malmö ættí að vera fulltrúi Svía í viðræðum af þessu tagi. í fréttinni kemur einnig fram að í for. með Ingyar Carlsson, forsætis; ráðherra Svíþjóðar, þegar hann kem- ur hingaö til lands nú um helgina, veröi sendiherra að nafni Dinkelspi- el, sem sé sá aðili er mest hefur með viðræður Svía viö Evrópubandalagið að gera. Gerir fréttastofan því skóna að Dinkelspiel og Carlsson muni reyna að „koma íslendingum til aö- stoðar í þessu erfiða verkefni - án þess að raska sjálfsáhti þeirra“. Jón Baldvin Hannibalsson sagðist hafa verið mjög upptekinn og þvi ekki vita með vissu hverra viðhorf væri þarna um að.ræða. , ,Þegar ég fréttí þetta fól ég embætt- ismönnum að grennslast fyrir með opinberum hætti undan hverra rifj- um þetta væri runnið, hvort þetta eru viöhorf sænskra stjórnvalda, ráðherra og samstarfsaðila í EFTA. Að sjálfsögðu höfum viö ekkert um það að segja ef aðrir lýsa skoðunum sínum á okkur. Ég vil hins vegar vita hver það er sem lýsir, hvort þaö er utanríkisráðherra og viöskiptaráð- herra Svía eða jafnvel forsætísráð- herra þeirra. Meira er ekki um þetta aðsegjaiíbili." uYj"n -HV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.