Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1989, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1989, Blaðsíða 52
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í.hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Flugfreyjur: Strandaði á smáafriðum Guðlaugur Þorvaldsson ríkissátta- semjari sleit samningafundi flug- freyja og Flugleiða síðdegis í gær eft- ir 30 klukkustunda fund. Samkomu- lag hafði tekist um öll meginatriði samningsins. Hins vegar var hart deilt um tvö atriði sem sáttasemjari taldi ekki ýkja stór. Fundum verður fram haldið klukkan tíu á mánudags- morgun. -gse Grindavlk: Lögreglan ók á eftir fjórhjóli Lögreglan í Grindavík veitti öku- manni á fjórhjóli eftirför. Fjórhjólið var óskráð, ökumaðurinn aðeins 16 ára og því réttindalaus og auk þess var farþegi á hjólinu. Ökumaöurinn reyndi allt til að flýja lögregluna. Hann sikksakkaði fyrir framan lög- reglubílinn og svo fór að fjórhjólið skall á framhluta bílsins. Ökumaður flórhjólsins stakk af við svo búið. Engin slys urðu á fólki og ökutækin skemmdust aðeins lítillega. Þrátt fyrir að hinn réttindalausi flórhjólakappi hafi haft betur í elting- arleiknum er lögreglan búin að ná til hans. Aldrei fór á milli mála hver stýrði fjórhjólinu. Ökumaðurinn hef- ur játað aksturinn. -sme SKlÐASKACIIin LOKI Er Flannes þá ekki loksins oröinn heimasendiherra? Hannes Jónsson sendiherra segir upp: Sakar ráðherra um skemmdarverkastarf Hannes Jónsson heimasendiherra gekk á fund forseta íslands í gær og sagði starfi sínu lausu frá 31. október að telja. Gerir hann ráð fyrir að taka orlof þangað til en hverfa síðan á cftirlaun 1. nóvemb- er. Þar með virðist vera lokið deilu Hannesar og utanríkisráðherra en á blaðamannafundi Hannesar í gær var hann þungorður í garð Jóns Baldvins Hannibalssonar og skipu- lagstillagna hans. Hannes sakaði Jón Baldvin um að reyna að vinna skemmdarstarf- semi á utanríkisþjónustunni með tillögum sínum. Einnig sagðist hann ekki geta unað þeim vinnu- brögðum sem Jón Baldvin hefði innleitt meö því að „.. .embætt- ismenn utanríkisþjónustunnar njóti ekki grundvallarmannrétt- inda eins og skoðana- og tjáningar- frelsis; þeir skuli bara þegja eða segja af sér“. Einnig ásakaði Hannes Jón Bald- vin um að ástunda „.. .hávaða- fundi, fjölmiðiafár og pólitisk ævin- týri á kostnað þjóðarinnar“. Hannes sagðist ekki hverfa með gleði úr utanríkisþjónustunni eftir liðlega 35 ára ævistarf og þar af 15 ára sendiherrastarf. Þá vitnaði Hannes í Georg Bernard Shaw þar sem hann segir að þótt sú hætta vofi alltaf yfir lýðræðisríKjura „.. .að einn og ein þrjótur og lýð- skrumari geti flotið með til valda þá sjái kjósendur fyótlega við hon- um, leiðrétti mistökin og losi sig við hann“. Hannes sagðist aðeins hafa átt eitt samtal við ráðherra síðan Jón Baldvin kom til starfa síðasta haust. Á þeim fundi hefði ráðherra sagt Hannesi að ráðuneytisstjóri utanrikisþjónustunnar, Hannes Hafstein, væri ekki hrifmn af skipulagsbreytingum þeim sem Jón Baldvin hefur boðað. Hannes vék að ásökunum um að hann hefði lekið trúnaðarmálum frá utanríkismálanefnd. Vísaöi hann þeim ásökunum á bug um leið og hann gaf í skyn að umrædd- ur leki stæðinærri Alþýðublaðinu, Þá endurtók Hannes ummæli sín um ráðgjafa Jóns Baldvins og kall- aði þá fúskara. Sagðist Hannes ekki vilja nefna ráðgjafana en sagði þá hins vegar ekki vera í utanríkis- þjónustunni. „Það er mikil og almenn óánægja í utanríkisþjónustunni og hefur öll þau 35 ár, sem ég hef verið þama, aldrei verið eins og í tíð Jóns Bald- vins. Ég vill vekja athygli á því að þann litla tíma, sem Jón Baldvin starfaði í fjármálaráðuneytinu, lýsti hann því yfir að hann ætlaði að stokka allt upp en í raun og veru lagði hann alla stjórnun þar í rust. Afleiðingin var sú að átta embætt- ismenn sögöu upp starfi í tíð: Jóns Baldvins ú fiármálaráðuneytinu,“ sagði Hannes Jónsson. Hann sagö- ist ekki ná að kveðja í þeim löndum þar sem hann hefði verið sendi- herra eins og þó væri venjan. -SMJ Hannes Jónsson sendíherra hefur ekki mikið áiit á endurskipulagstillögum ráðherra og hefur nú sagt starfi sinu lausu. DV-mynd BG Jón Baldvin Hannibalsson: Fundur Hannesar án heimildar „Ummæli Hannesar um mig segja býsna mikið um Hannes Jónsson en næsta lítið um mig,“ sagði Jón Bald- vin Hannibalsson utanríkisráðherra þegar hann var spurður út í þau ummæli sem Hannes Jónsson sendi- herra lét hafa eftir sér á blaðamanna- fundi þegar hann tilkynnti uppsögn sína. Jón Baldvin staðfesti að hafa tekið við uppsagnarbréfi Hannesar. „Jafnframt frétti ég að sendiherr- ann hefði efnt til blaðamannafundar í húsakynnum ráðuneytisins en láðst að biðja um heimild frá ráðuneytis- stjóra um afnot af þessum húsakynn- um,“ sagði utanríkisráðherra. Þá sagði Jón Baldvin að alþjóðaskrif- stofa utanríkisráðuneytisins myndi sinna þeim löndum sem Hannes hefði verið sendiherra í þar til annað yrði ákveðið. -SMJ Léttskýjað fyrir austan Það verður hæg vestanátt um allt land á morgun. Himinninn verður léttskýjaður yfir Austfirðingum en vestanlands verður skýjað og þokuloft við ströndina. Heitast verður fyrir norðan og austan eöa allt upp í 20 stig. Annars staðar má búast viö að hitinn fari niður í 11 stig. Á mánudag versnar veörið. Þá gengur í vaxandi suðaustanátt. Rigningin skellur á um kvöldið á Suðvesturlandi. Það verður léttskýjað fram eftir degi á Norður- og Austurlandi en þykknar upp með ‘kvöldinu. Hitinn verður svipaður og á morgun og jafnréttlátlega skipt milli landshluta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.