Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1989, Blaðsíða 2
2
FÖSTOÖAGUR 18; ÁGÚST 1989.
Fréttir
Alþýðuflokkurinn ætiar ekki að eiga hlut að nýjum búvörusamningi:
Framlenging búvöru-
samnings væri siðleysi
segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra
„Það á ekki að framlengja búvöru-
samning fram yfir 1992 heldur á að
breyta um stefnu nú. Það á að líta á
næstu áratugi sem tímabil aðlögunar
að innflutningi til að mæta réttmætri
kröfu neytenda um eðlilegt matvæla-
verð,“ sagði Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra en nú hefur
Stéttarsamband bænda lagt fram
kröfur sínar varðandi endurskoðun
búvörusamnings sem nú stendur
fyrir dyrum.
„Reynslan af búvörulögum og bú-
vörusamningi, sem gildir til 1992 og
gerður var á grundvelli búvörulaga,
er ekki góð. Takmarkaður árangur
hefur náðst við að laga mjólkurvöru-
framleiðsluna að eftirspurn að mark-
aðnum - allt annað hefur farið úr
böndunum. Kostnaður ríkisins,
þ.e.a.s skattgreiðenda, við stuðning
þeirrar landbúnaðarstefnu, sem bú-
vörusamningurinn felur í sér, er nú
að nálgast 10 milljarða eða rúmlega
tíundu hverja krónu á fjárlögum. Við
alþýðuflokksmenn vorum eini þing-
flokkurinn sem var á móti búvöru-
lögunum á sínum tima og vöruðu við
afleiðingunum. Þaö var siðleysi hjá
ríkisstjórninni ’84 til ’87 að gera
-þennan búvörusamning til ’92 og
ætla sér þannig að binda hendur
næstu ríkisstjórnar og næsta þing-
meirihluta. Framlenging búvöru-
samnings til aldamóta væri sams
konar siðleysi nú.“
Jón Baldvin sagði að það sem ætti
að gera nú væri að hagnýta ákvæði
samningsins um endurskoðun sem
væri reyndar hafín. Þar ætti að bæta
fyrir mistök fyrri ára. Þar leggja al-
þýðuflokksmenn áherslu á tvö atriði:
1. Að ríkisábyrgð á verðlagi land-
búnaðarafurða verði takmörkuð við
raunverulega sölu næsta árið á und-
an. 2. Aö breytt verði fyrirkomulagi
niðurgreiðslna. Að niðurgreiðslur til
ársins 1992 gangi til framleiðenda
beint þannig að kostnaður leggist á
lægri grunn sem eigi að stuðla að
lækkun verðlags.
Eftir að þetta hefur verið gert á að
breyta um stefnu í grundvallaratrið-
um og einfaldlega að taka upp af-
komutryggingu þess hluta bænda-
stéttarinnar sem þarf á raunveru-
legri aðstoö að halda.
Þá sagði Jón Baldvin að til ýmissa
aðgerða þyrfti að grípa til að gæta
hagsmuna neytenda. Það þyrfti að
afnema kjarnfóðurskattinn en hann
héldi uppi verðlagi á eggja-, kjúkl-
inga- og svínaframleiðslu. Þá þyrfti
að rýmka um heimildir til innflutn-
ings á kartöflum og jafnframt, í tak-
mörkuðum mæli þó, á eggjum og
kjúklingum. Þá þyrfti að flytja
ákvarðanir um niðurgreiðslur til
viðskiptaráðuneytisins og flytja
ákvarðanir um útflutningsleyfi til
fjármálaráðuneytisins. Einnig þyrfti
að stöðva bakreikninga vegna land-
búnaöarkerflsins, sem streymdu til
fjármálaráðuneytisins, og þá þyrfti
að koma í veg fyrir að bændur, sem
skorið heföu niður vegna riðu, hæfu
aftur búskap.
-SMJ
Hann Sævar Þórir Þorisson datt heldur en ekki í lukkupottinn þegar stóri vinningurinn í áskrifendahappdrætti
Stöðvar 2 var dreginn út. Þá hreppti hann Daihatsu Charade-bifreið sem hann fékk afhenta í gær. Myndin var tekin
við það tækifæri og var Þórir, faðir Sævars (t.h.), í för með honum þegar hann tók við þessum veglega vinningi.
DV-mynd KAE
Bandaríkjanna
á íslandi
Nýr sendiherra Bandaríkjanna á
íslandi tekur brátt við embætti.
Hann heitir Charles E. Cobb og hefur
frá 30. júlí 1987 verið yflrmaður þró-
unardeildar bandaríska viðskipta-
ráðuneytisins. Charles E. Cobb er 53
ára.
Cobb er hagfræðingur, menntaður
í Stanford. Hann hefur setið í stjóm
og framkvæmdastjórn Walt Disney
Company. Þá má geta þess að hann
var varamaður í ólympíuliði Banda-
ríkjanna í fijálsum íþróttum árið
1960. -JGH
ítölsku ferðamennirnir, sem
stungu af frá ógreiddum reikningum
víðs vegar um iandið, fóru úr landi
í gærdag. Eftir að rannsókn á mis-
ferli þeirra var lokið var strax tekin
ákvörðun um brottvísun þeirra úr
landinu.
Þeir sem áttu kröfur á ítalina, sam-
tals um 70 þúsund krónur, munu all-
ir hafa fengiö kröfur sínar greiddar.
-hlh
ítalirnir
úr landi
Nýr sendiherra
Gæðingaskeiðiö á Evrópumótinu:
Gull og silfur
til íslands
- aðstæður á mótsstað lakari en búist var við
Eirikur Jónsson, DV, Danmöiku
Staða íslenska landsliðsins í
hestaiþróttum vænkaöist töluvert
í morgun. Þá sigröuðu íslendingar
í gæðingaskeiði, unnu raunar tvö-
faldan sigur og hrepptu bæði silfur
og gull. í fyrsta sæti varð Jón Pétur
Ólafsson á Glaunú. Annar varð
Hinrik Bragason á Vafa og 3. sæti
varð Ulf Lindgren á stóðhestinum
Hrafnkatli ffá Svíþjóð.
Þjóðveijar skipa tvö efstu sætin
í tölti eftir undankeppnina. Efstur
er Bemd Vith á hesti sem heitir
Röður, þá kemur EM meistarinn
frá því í Svíþjóð 1985: Wolfgang
Berg á Funa og þriðji er Aðalsteinn
Aöalsteinsson á Snjalli. í fjórða
sæti er Unn Kroghen á Strák og
Sigurbjöm Bárðarson er fimmti á
Skelmi.
• í dag verður keppt í fjórgangi, en
einnig verður opnunarhátíö og
mótið sett. Sennilega segi ég, því
dómaramir eru ákaflega ósattir við
sinn hlut. Danirnir eru afar að-
halssamir og krefja mótsgesti,
keppendur og starfsmenn um gjald
fyrir öll viðvik. Dómararnir hafa
til dæmis þurfl að borga fæði á
staðnum, þrátt fyrir sín störf. Þeir
era mjög ósáttir við þessa fram-
komu og hafa hugsað sér að taka á
málinu.
Því miður era aðstæður ekki eins
góðar og búist var viö. Jörð er ber
og því hætta á að ryk takist á loft
við minnstu vindhviöu. Ekki skán-
ar ástandið við rigningu, en þá
verður mótssvæðið að drullusvaði.
Áhorfendur vona að veðrið breyt-
ist ekki. Hér hefur verið gott veð-
ur, sól og hiti, þrátt fyrir rigningu
eina nóttina.
Umhverfismálaráð Reykjavíkur:
Stuðlasel feg-
ursta gatan
í ár er það Stuðlasel sem er feg-
ursta gata Reykjavíkurborgar, sam-
kvæmt mati dómnefndar Umhverfis-
málaráðs Reykjavíkurborgar.
Síödegis mun borgarstjórinn í
Reykjavík, Davíð Oddsson, veita fyr-
ir hönd Umhverfismálaráðs viður-
kenningar fyrir fegurstu götu borg-
arinnar, snyrtilegasta fjölbýlishúsið,
fyrir snyrtilegt umhverfl fyrirtækja
og stofnana. Jafnframt verða í fyrsta
sinn veittar viðurkenningar fyrir
gömul hús sem hafa verið endur-
byggð.
Snyrtilegasta fjölbýlishúið er, sam-
kvæmt mati dómnefndar, Hvassa-
leiti 56-58. í niðurstöðu dómnefndar
segir meðal annars um húsið; að þaö
fái viðurkenningu fyrir glæsilega
byggingu og lóð. Tengsl húss og lóðar
séu skemmtilega leyst og notagildi
lóðarinnar sé margvíslegt.
AIls fá átta fyrirtæki og stofnanir
viðurkenningu fyrir fegrun um-
hverfis, þau eru:
Mjólkursamsalan, Bitruhálsi 1,
fyrir góðan frágang á suðvesturhluta
lóðarinnar, sem sést víða aö.
Ingvar Helgason hf., Sævarhöfða
2, fyrir góðan heildarfrágang á lóð á
áberandi stað.
J.S. Helgason hf„ Draghálsi 4, fyrir
fegrun umhverfls í iðnaðarhverfi.
Islenskt franskt eldhús, Dugguvogi
8-10, fyrir fegrun umhverfis í gömlu
iðnaðarhverfi.
Söluturn og biðskýli, Sogavegi 3, fá
viðurkenningu fyrir snyrtilegan frá-
gang lóðar, sem tengist með grænu
belti meðfram Miklubraut.
Skipholt 50 B og C, fyrir opið svæði
á mörkum íbúðar- og verslunar-
hverfis, þar sem frágangur er snyrti-
legur.
Hótel Lind, Rauði kross íslands,
Rauðarárstíg 18, fyrir góðan frágang
á lítilli lóð í grónu hverfi.
Háteigskirkja, fyrir skemmtilegan
frágang á lóð, þar sem holtið nýtur
sín áfram.
Og loks fær Sjúkrastöðin SÁÁ,
Stórhöfða 45, viðurkenningu fyrir
góðan frágang á lóð, sem blasir við
íbúðarbyggðinni í Grafarvogi.
í fyrsta sinn era veittar viðurkenn-
ingar fyrir gömul hús sem vel hefur
tekist til með varöveislu á. Að þessu
sinni eru veittar fjórar viðurkenn-
ingar fyrir endurbyggingu og varð-
veislu húsa sem flest voru byggð á
síðustu öld. Þau eru: Bernhöftstorf-
an, Frakkastígur 9, Garðarstræti 11
og Vesturgata 29.
-J.Mar
Ennþá von fyrir
flugmennina
- malin eru í athugun 1 Kaupmannahöfn
Enn bíða Eppo Numan og Andrés-
Georges Lafitte eftir svari frá dönsk-
um flugmálayfirvöldum varðandi
flug þeirra um Grænland áleiðis til
New York. Ýmsir aðilar vinna nú að
því að fá flugleyfm í höfn fyrir flug-
för þeirra sem era af minni gerðinni.
Franska sendiráðið í Kaupmanna-
höfn hefur formlega farið fram á það
við flugmálayfirvöld þar að Lafitte
fái að halda ferð sinni áfram.
Eppo sagði í samtali við DV að
Bandaríkjamenn hefðu þegar gefið
honum leyfi til flugsins á sínu flug-
umferðarsvæði og biðu menn
spenntir þar eftir framvindu mála.
Eppo sagði að Danirnir heföu stað-
fest að hugsanlegt væri að hann fengi
leyfi ef hann flygi með fylgdarvél og
legði fram tryggingu. „Möguleikinn
er því enn fyrir hendi,” sagði Eppo.
Fjölmiðlar hafa verið í stöðugu
sambandi við flugmennina sem eru
orðnir langeygir eftir jákvæðu svari.
Þegar DV spurði Lafitte í morgun um
horfur á áframhaldandi flugi sagði
hann: „Hefurðu litið út um glugg-
ann? - það er hræðilegt að vera að
bíða eftir svari þegar veðurhorfur
eru jafngóðar hér og við Grænland.
Ég mun fljúga aftur til Frakklands
ef neikvætt svar berst frá Dönum.
En þá mun ég einbeita mér að fluginu
umhverfis Sahara eyðimörkina í
september - þaö er um 4500 kíló:
metra langt. Alsírmenn hafa boðið
mig velkominn til sín. En ég vona
bara að svar komi sem fyrst frá Dan-
mörku,” sagði Lafitte.
-ÓTT