Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1989, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1989, Blaðsíða 6
22 M1ÐVIKUDAGUR! 11. OKTÓBBR 1989. Utanferðir r>v Ástralía: Andfætlinga- landið stóra Þegar íslendingar eru spurðir til hvaða lands þá langi helst aö ferðast ber Ástralíu oft á góma. Það er kannski engin furða því landiö er heil heimsálfa og fjölbreytt eftir því. Fjarlægðin sveipar landið einnig ævintýralegum blæ en Ástralíubúar eru andfætlingar okkar íslendinga og því þarf aö ferðast yfir hálfan hnöttinn til aö komast á áfangastað. Ævintýraleg saga landsins Saga landsins er hefilandi og óvenjuleg að mörgu leyti. Mark Twa- in skrifaði á sínum tíma að saga Ástr- alíu væri eins og lygasaga, full af óvæntum uppákomum, ævintýrum og margvíslegum ótrúlegum hlutum. Ástralía dregur nafn sitt af Terra Australis Incognita sem þýðir hið stóra land í suðri. Talið er að fyrstu íbúarnir hafi komið tfi landsins fyrir um 40.000 árum. Þeir dvöldu í landinu óáreittir þar til á 18. öld þeg- ar Bretaveldi sló eign sinni á Ástral- íu og fyrstu innflytjendurnir byrjuðu að streyma yfir hafið. Frumbyggjarnir voru á þessum tíma um 300 þúsund en eru nú ekki nema rétt tæplega helmingur af því eöa um 150 þús. Þeir búa nú aðallega á lokuðum svæðum, oftar en ekki þeim afskekktustu og hrjóstrugustu. Fanganýlenda Breta Á 17. öldinni villtust evrópskir landkönnuðir stöku sinnum til landsins, aðafiega að norður- og vest- urströndinni, og leist illa á það sem fyrir augu bar: „Ekkert drykkjar- Sydney og hið heimsfræga óperuhús. vatn, engir ávextir og eymdarlegasta fólk í heimi.“ Það var því ekki fyrr en 1770 þegar kapteinn James Cook lenti fyrir til- vOjun á austurströnd Astralíu, byggOegasta hluta landsins, að ber- ast tóku sögur af sólríkri og frjós- amri jörð. Cook sló eign breska konungsveld- isins á landið og ekki leið á löngu þar tíl Bretar fundu Ástralíu hlutverk; landið skyldi verða fanganýlenda og létta þannig á yfirfuUum fangelsum Bretlands. 1788 lögðu fyrstu skipin, troðin sakamönnum, að í nýja landinu, nánar tiltekið þar sem nú heitir Sydney Harbour í Nýju Suður- Wales. Fangasendingarnar lögðust síðan ekki af fyrr en 80 árum og meira en 160.000 sakamönnum síðar. Gullæði grípur um sig MikO breyting varð á högum íbúa fanganýlendunnar þegar guU byrjaði að finnast þar í stórum stíl upp úr 1851. Gullæði gekk yfir og fólk frá öUum heimshornum flykktist til ÁstraUu í von um skjótfenginn gróða. Varanlegur hagnaður í kjölfar gullfundarins varð þó aðeins eftir í höndum örfárra manna. Fljótlega eftir gullfundinn fóru að heyrast raddir um sjálfsstjórn og árið 1901 varð ÁstraUa svo sjálfstætt samveldisríki sem samanstendur af sex fylkjum og tveimur sjálfsstjóm- arhéruðum. Höfuðborg Ástralíu er Canberra, borg sem ekki margir þekkja. Can- berra var byggð frá gmnni til að þjóna þeim tUgangi einum að verða höfuðborg. Áður höfðu borgirnar Melboume og Sydney barist hart um titilinn svo að leið málamiðlunar var farin og Canberra reist miðja vegu miUi þeirra. Sydney; sólrík og spennandi Borgin Sydney og ótvírætt tákn hennar, óperuhúsið, er sennilega það fyrsta sem fólki dettur í hug þegar talað er um Ástralíu. Sydney er elsta, fiölmennasta (3 'A miUj.) og líflegasta borg Ástralíu. Bæjarstæðið er ein- staklega fallegt og á hafnarsvæðið, Sydney Harbour, mestan þátt í því. Hafnarsvæðið er fullt af lífi enda eru þar veitingastaðir og kaffihús á hverju strái. Fallegar strendur og víkur heiUa sóldýrkendur og aUar hugsanlegar vatnaíþróttir blómstra þar. í nágrenni Sydney er mikla fiöl- breytni að finna í landslaginu. Þar eru grænir akrar og eyðimerkur, himinhá fiöU og glæstar strendur. Snowy Mountains, Snjófiöllin eru skammt undan. Þar leika Ástral- íubúar sér á skíðum á sumrin enda er þeirra vetur frá júní tíl ágúst. Kóralrifið mikla Á norðausturströnd ÁstraUu er að finna hið mikla náttúmundur, The Grear Barrier Reef eða kóralrifið mikla. Rifið, sem er eins og nafnið gefur til kynna einungis samsett úr kóröllum og því lifandi, heldur sér sífellt við. Það nær yfir meira en 2000 kílómetra langt svæði og tekur hin margbreytilegustu form og liti. Inn á milU er að finna hundruð U- tilla paradísaeyja með pálmatijám þar sem tílvaliö er að dvelja og eyða tíma í aö skoða þetta undur veraldar með því að taka þátt í neðarisjávar- skoðunarferðum í litlum kafbátum eða bara kafa sjálffur). Auðnin heillar Outback er nafnið sem Ástralir hafa gefið hijóstrugasta hluta lands síns. Hér er aðallega um að ræða miðhluta landsins en auðnin teygir anga sína um stór svæði Suður- og Vestur-Ástralíu. Þetta er gífurlegt landflæmi sem samanstendur af eyðimörkum, klettalandslagi, draugabæjum og regnskógaflæmum. íbúarnir, gamfir harðjaxlar, guUgrafarar, landkönn- uðir og frumbyggjar eru örfáir en afar vingjamlegir þegar svo óhklega viU til að einhver á leið um þessi svæði. Sem dæmi um fámennið komast aUir íbúar Norður-ÁstraHu, sem er landflæmi álíka stórt og Frakkland, Spánn og Ítalía til samans, fyrir á aöeins 81 síðu í símaskránní! Tannlækningar í Búlgaríu Farid verður i 2|a til 3|a vikxia ferdir með fólk til kvíldar og taxinvidgerda til Búlgaríu í allan vetur. Hafid samband vid skrifstofuna. FERDAiiiiVAL hf VF/ Hafnarstræti 18 - simar 14480 12534 VISA FARKORTI FÍF GRIPTU TÆKIFÆRIÐ MEÐAN ÞÚ ERT UNGUR ÆVINTYRAFERÐIR UM ASÍU, AFRIKU OG S-AMERÍKU MEÐ ENCOUNTER OVERLAND ff NÝIR FERÐAMÖGULEIKAR hafa bæst í safniö. H SKIPULAGÐAR HÓPFERÐIR á sérbyggöum trukkum í boði. f HEIMSREISUR - ævintýraferöir meö sveigjanlega brottfarardaga og gildistíma Kynntu þér okkar verö á heimsreisuferðunum í nýja bæklingn- um sem við gáfum út í samvinnu við stúdentaferöaskrifstofur á Norðurlöndum. VIÐ BJÓÐUM EINNIG almenna ferðaþjónustu, málaskóla í flestum löndum, Interrail og námsmannafargjöld um allan heim. CC D O LU > cc <

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.