Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Blaðsíða 38
38 MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1989. Viðskipti mín við Bifreiðar ’ Frá árinu 1980 höfum við hjónin keypt fimm Ladabíla enda hafa jJeir reynst okkur traustir og ódýr- ir farkostir. Ég starfa nú á Húsa- vík. Er ég kom þangað um áramót- in-1987-88 áttum við tvo Ladabíla, Lada Samara 1988 og Lada Lux 1600 fimm gíra 1986. . Til að tryggja góðan bíl . Sl. vetur var þér snjóþungur og - Y átti ég því oft erfitt með að komast leiðar minnar og fór þvi að-attíuga rróð að. fá fiórhjóladrifinn bilr ■ Vegna fyrri kynna minna.af,Lada- bílum en einnig vegna verðsins -ieist mér best á Lödu.Spori ;Ég hafði því samband við söludeild-. . Bifreiöa og landbúnaðarvéla hf. og bauð að aö mér yrði gert tilboð um skiþti á Lödubílunum minum og . Uödú Sport og var mér boðiff að; . ‘ LödiríiUXinn yrði tekinh upp.í á*. kr. 150.000 og Samaran á kr. 270.Ó00' Ég hafði áður kynnt mér að mark- , aðsverð á þessum tíma fyrir Lödu Luxinn var kr. 190.000: Mismuninn skyldi ég staðgreiða. Okkur var boðið upp á að Lödu Sportinum yröi reynsluekið til að tryggja að við fengjum góðan bíl. Um páskana fengum við tikynn- ingu að bíllinn okkar væri kominn til Húsavikur og fór ég þá og leit á hann. Ég tók eftir því að öskubakk- inn var fullur af sælgætisbréfum og kílómetramælirinn stóð nokkuð hátt. Um hvítasunnuna vorum viö í Reykjavík og sá ég þá dagblaðið Tímann frá 4. mars. Er þar lýst torfæruakstri á Lödu Sport bifreið og fylgdu með frásögninni myndir af okkar bíl. Höfðu Bifreiðar og KjaHaiinn Asgeir Leifsson iðnráðgjafi hans var heldur ekki í vandræðum með aö draga Spþrtarann upp á slóð hennar, Vegna þess hversu allt ætlaði að fara að ganga vel var ákveðiö að fara lengri leiðina heim og dró hann Sportarann Kóngsveg- inn á enda í, stað þess að snúa hon- um við.“ „Pajero dreginn upp“ Á leiðinni austur var. farið um Þrengsli Og farið. upp í Hveradali og'sjá-dýrðfná:- „Þar urðu ferða- .inéiBi^svodþeppnir að hitta skíða- mann 'einn á Mitsubishi Pajero er fest hafði jeppa sinn við að reyna aö komást íítið eitt upþ á óruddan heiðarveginn. Ériskemmst frá þvi ap segja að Ladan naut sín vel í lágadrifmu við að rífá uþp Pajeró- «r ■*' - ínn,- 1 1 „Ég tók eftir þ ví aðöskuóakkinn var fuHur af sælgætisbréfura ög kilóraetra- mælirinn stóð nokkuð hátt.“ landbúnaðarvélar hf. lánað blaða- manni Tímans bílinn í tvígang til prófunar. Hafði hann ekið honum í miklum snjó 1 Grímsnesinu og fest hann nokkrum sinnum en að lokum svo rækilega að þrátt fyrir miklar tilraunir tókst ekki að losa hann og kom þá að „raunverulegur Lödu Sport eigandi" og var beðist vægðar fyrir hönd Lödunnar. „Hún væri ekki alvond." Var farið til Selfoss og náð til manna sem voru á sérbúnum fjallabíl. „Toyotan „Þegar í bæinn var komið var því gripið til þess úrræðis að hleypa loffi úr öllum dekkjum og aka inn í næsta snjóskaíl. Viti menn, þaö var ekkert sem stöðvaði tækið, - eða því sem næst ekkert. Þá kom annar Hilux til hjálpar.“ „Síðari hluti lofthleypinga hófst svo tveimur dögum síðar er Lada- umboðið léði Timanum aftur sama bíl með 15 tommu felgum 1 stað sextán tommu sem hann kemur á til landsins.“ Er ekki hægt að sjá hvaö þessi torfæruakstur á sameiginlegt með reynsíuakstri sem væri e.t.v. 5 km á góðum vegi. I handbók bifreiðarinnar, sem með henni fylgir, er tekið fram að það eigi að keyra bílinn varlega fyrstu 2.000 til 3.000 kílómetrana. Það er því augljóst að við fengum notaðan tilraunabíl í .stað nýrrar bifreiðar sem við höfðum stað- greitt; Ekki boðin sömu verðmæti. Þegar þetta lá fyrir skrifaöi ég ■ Bifreiðum og láhdþúnaðarvéhtm hf. bréf og krafðist þess að fá aðra og rtýja bífreið. Það varhaft saiíh- band við mig og þessu hafiiað þar sem búiö væri að aka bifreið minni' yfir 4.O0O km. . ■; • , Ég er meðlifhur í Neytendasam-- tökúnum. Staðréyndip er sú að. þegar það er brotið á marini eiris, og í þessu tilfelli, en óhægt ura vik fyrir einstakling að standa í mála- ferlum við stórfyrirtæki, þá er gott að eiga aðgang að aðila sem Neyt- endasamtökunum sem geta tekið svpna mál að sér. Ég hafði því í júní bæði sámband við framkvæmdastjóra Neytenda- samtakanna og skrifaði þeim bréf þar sem ég lýsti málavöxtum. Mér var vel tekið og var farið að ganga í málið. Haft var samband við fram- kvæmdastjóra Bifreiða og land- búnaðarvéla hf. sem gerði tilboð þar sem mér var boðið aö láta kaupin ganga til baka á þann veg að ég tæki bifreiðarnar til baka og ég fengi afgang kaupverðs Lödu Sportsins endurgreitt á sama verði og ég keypti hann en greiddi gjald fyrir ekna kílómetra sem óvilhall- ur aðili myndi meta. Þetta var óframkvæmanlegt þar sem Samaran hafði selst rétt eftir að hún kom í sölu og Lödu Luxinn var kominn suður til Reykjavíkur. Auk þess hafði Lödu Sportinn hækkað umtalsvert í verði í milli- tíðinni svo ekki voru boðin sömu verðmæti til baka, Ekkert gekk við að þoka málinu áfram enda við érfitt fyrirtæki að eiga. Mér var sögð saga af öðru til- viki því viðkomandi, þar sem kona ■ kvartaði. undan því að kúplingin entist illa í bílnum hennar, að skýr- ..ingin væri hve konur væru vondir bílstjórar.. . . ■ Éghefveriðaðfylgjastmeðfrám- vindir mála-hjá Neytendásamtök- unum og í dág f4: október), fimnr mánuðum eftir að ég hafði sam- band við þau, er mér sagt af fram- kvæmdastjóra þeirra eftir stjóm- armanni og lögfræðingi að ef ég vilji taka á þessu máli þá verði ég að fara í mál og fylgdi það þessum skilaboðum að hann myndi ekki vilja taka þetta mál að sér. Þetta em Iíklega endalok málsins því erfitt verður að fá lögfræðing til að taka svo lítið og fyrirhafnar- samt mál að sér þó niðurstaöan ætti að liggja skýrt fyrir. Þetta vita þeir sem reka fyrirtæki á borð við Bifreiðar og landbúnað- arvélar hf. og koma þeir því fram með fullri ósvífni viö viðskiptavini sína ef því er að skipta. Ásgeir Leifsson Fréttir Ungver^ar leita eftir samstarfi við EFTA: Vilji til að lið- sinna Ungverjum - segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráöherra „Það er mikill pólitískur vilji innan EFTA og Evrópubandalagsins fyrir að liðsinna Ungveijum. Ég átti í gær viðræður við Tibor Mealga, við- skiptaráðherra Ungverjalands, þar sem hann afhenti skriflega skýrslu með hugmyndum þeirra og óskum um samstarf við EFTA,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra í viðtali við DV þar sem hann er staddur í Genf vegna funda um samvinnu EFTA og Evrópubanda- lagsins. Jón sagði að enn hefði ekki borist frá Ungveijum ósk um inngöngu í EFTA þótt sú hugmynd hefði verið viðruð á dögunum í ungverska þing- inu. „Þótt þróunin í Ungveijalandi sé ör þá á margt eftir að gerast enn til að innganga sé möguleg," sagði Jón. „Ríkisafskipti af atvinnulífinu eru þar enn mikil þótt stjómvöld hafi nú lýst því yfir að taka beri upp mark- aðshagkerfi." Nú undir lok mánaðarins verður haldinn fundur í ráðherranefnd EFTA þar sem Jón Baldvin leggur skýrsluna frá Ungverjum fyrir. Eftir þann fund fer Jón Baldvin í opin- berra heimsókn til Ungveijalands 31. október til 3. nóvember og færir hann þá ungversku stjóminni svar EFTA. Jón sagðist reikna með að svarið yrði Ungverjum hliðhollt. Jón Baldvin hefur einnig verið í forsæti fyrir EFTA á fundum þess og Evrópubandalagsins vegna við- ræöna um sameiginlegan markað bandalaganna. Þar hefur náðst sam- komulag um að halda viðræðimum áfram ef stjórnir viðkomandi landa reynast samþykkar fyrstu drögum að viðræðum. Þau verða kynnt ríkis- stjórn og Alþingi 27. nóvember. -GK Jón Baldvin Hannibalsson heilsar hér Kjell Magne Bondevik, hinum nýja utanríkisráðherra Noregs, í Oslo fyrir helgina. Reuter Hlúð að hinum „slösuðu" i æfingunni á Akureyri. DV-mynd GK Almannavamir á Akureyri: Slys sett á svið á flugvellinum Gylfi Knstjánsson, DV, Akureyri: Bæjarbúum á Akureyri brá mörgum í brún sl. laugardagsmorgun þegar þeir urðu varir viö mikla umferð slökkvibifreiða, sjúkrabifreiða, lög- reglubifreiða og hjálparsveitabíla að flugvellinum og álitu margir aö þar hefði orðið alvarlegt flugslys. Svo var þó ekki heldur hafði veriö sett á svið slys á velíinum í því skyni að prófa nýja neyðaráætiun sem starfa á eftir þegar slík slys gerast í raunvemleikanum og er talið að 400-500 manns hafi tekið þátt í æfing- unni. „Ég hef ekki séð niðurstöður úr þessari æfingu en þetta virtist allt rúlla vel og allir höfuðþættir áætlun- arinnar gengu rétt fyrir sig,“ sagði Guðjón Pedersen hjá Almannavörn- um ríkisins sem fylgdist með æfing- unni. Guðjón sagði að þó hefðu kom- ið upp smámál sem þyrfti að laga, nokkurt sambandsleysi hefði verið við vettvang, ein björgunarsveit var rangt boðuð á æfinguna en í heild væri ástæða til að vera ánægður með hvemig málin gengu fyrir sig. Sett var á svið nauölending flugvél- ar með 31 farþega sem búið var að „útbúa með meiðsli'Lú ýmsan hátt. Unglingar tóku að sér að vera í hlut- verki hinna slösuðu ög léku sumir þeirra mjög vel hlutverk sín, „skreytt" meiðslum og áverkum af ýmsu tagi. Greiðlega gekk að flytja hina „slös- uðu“ af vettvangi til greiningar í hús á flugvallarsvæðinu og segja má að æfingin hafi. í heild tekist mjög vel.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.