Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1989, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989.
7
Unnið við múrverk á efri hæði dvalarheimilisins. DV-mynd Garðar
Akranes:
Stórgjafir til Höfða
Garöar Guðjónsson, DV, Akranesi:
„Safnarar okkar hafa fengið ágætar
viðtökur. En við settum okkur það
takmark að safna 12-15 milljónum
króna. Það er það sem viö þurfum
til þess að ljúka byggingunni á tilsett-
um tíma,“ sagði Gunnlaugur Har-
aldsson, formaður fjáröflunar- og
framkvæmdanefndar Dvalarheimil-
isins Höfða á Akranesi, við DV.
Umfangsmikil söfnun fram-
kvæmdaíjár hófst um síðustu helgi
og lýkur á morgun. Söfnunarféð
rennur til byggingar annars áfanga
en þar verða annars vegar íbúðir
fyrir 25 nýja heimilismenn og hins
vegar félags- og þjónustuaðstaða.
Söfnunin nær til Akraness og nær-
sveita. Fólk úr Félagi eldri borgara
gengur í hvert hús til þess að leita
eftir framlögum. Að sögn Gunnlaugs
eru þess dæmi að einstaklingar hafi
gefið 200 þús.kr. til byggingarinnar,
nokkrir gefið 100 þús.Hr. Flestir gefa
vitaskuld mun minna. Stefnt er að
því að klára efri hæð hússins í mars
á næsta ári en skila því svo fullbúnu
í lok næsta árs eða í byrjun árs 1991.
Bjartmar í vanskilum:
Nýtt uppboð
blasir við
Bjartmar hf., sem keypti eignir
þrotabús O.N. Olsen á ísafirði, hefur
ekki tekist að standa við gerða samn-
inga. Það hefur leitt til þess að eftir
rúma viku verður haldiö þriðja og
síðasta nauðungaruppboð á eignum
Bjartmars - Sundstræti 20 á ísafirði.
Eignin er þinglýst sem eign þrotabús
O.N. Olsen en talin vera eign Bjartm-
ars hf.
Það var fyrir rúmu einu ári, 10.
október 1988, sem Bjartmar keypti
eignirnar af þrotabúinu. Söluverðið
var 152 milljónir króna. Langmesti
hluti söluverðsins átti að greiðast
með yfirtöku skulda. Aðeins um 7
milljónir króna áttu að greiðast í
peningum - það er til þrotabúsins.
Af þeim peningum hefur aðeins verið
staðið í skilum með 2,1 milljón.
Það eru tveir veðhafar, Lands-
bankinn og Kristbjörg Olsen, sem
eru uppboðsbeiðendur. Talið er að
heildarkröfur í þrotabú O.N. Olsen
séu nú á milli 170 til 180 milljónir
króna.
Forráðamenn Bjartmars vildu fá
að ganga frá kaupsamningnum - það
er - skila fyrirtækinu aftur. Skipta-
fundur var sammála um að hafna
þeirri málaleitan. Þar kemur meðal
annars til að hluti eigenda Bjartmars
hefur tekið á persónulegar ábyrgðir.
Ef þeim hefði verið gert heimilt að
fara frá kaupunum hefðu þær
ábyrgðir, sem forráðamennirnir
tóku á sig, ekki staðið lengur.
Strax eftir að Bjartmar keypti eign-
irnar létu eigendur O.N. Olsen í ljós
óánægju og töldu að kaupendurnir
gætu ekki staðið í skilum. Það hefur
nú komið á daginn. Skarphéðinn
Þórisson bústjóri segir að Bjartmar
hafi boðið mun hærra verð en aðrir
og þvi eðlilegt að selja þeim fyrirtæk-
ið. -sme
Páll Pétursson um varaflugvöll:
Verður ekki byggður í
þessu stjórnarsamstarfi
Það er óþarft að eyða tíma í þessa
herstöð því það stendur ekki til að
byggja hana í þessu stjórnarsam-
starfi. Þannig komst Páll Pétursson,
þingflokksformaður framsóknar-
manna, að orði við umræður um
þátttöku mannvirkjasjóðs Atlants-
hafsbandalagsins í gerð varaflugvall-
ar hér á landi. Fyrirspurn þar að
lútandi kom fram á Alþingi í gær frá
Guðmundi H. Garðarssyni.
Utanríkisráðherra, Jón Baldvin
Hannibalsson, sagði að engar við-
ræöur hefðu farið fram á milli íslend-
inga og mannvirkjasjóösins. Hann
sagði hins vegar að það væri ekki
brot á stjórnarsáttmála að leyfa for-
könnun. Sagði Jón Baldvin að
ákvæðið í sáttmálanum hefði tekið
til framkvæmda en það að heimila
forkönnun hefði engar skuldbinding-
ar í fór með sér um framkvæmdir.
Hjörleifur Guttormsson sagði að
forkönnun vær skýlaust brot á
samningi stjórnarflokkanna. Stefán
Valgeirsson tók undir það.
Forkönnunin hlaut stuðning
stjórnarliðanna Karls Steinars
Guðnasonar, Jóhanns Einvarðsson-
ar og Guðmundar G. Þórarinssonar.
-SMJ
Fréttir
Hagstofuráðherrann hætti 1 gær hjá Stálvík:
Sólnes enn í
þrem stjórnum
stefni að því að hætta fyrir jól, segir Júlíus Sólnes
Júlíus Sólnes, ráðherra Hagstofu
íslands, sagði af sér formennsku í
stjóm Stálvíkur hf. á stjórnarfundi
í gærmorgun. Júlíus situr hins veg-
ar enn í þrem stjórnum og gegnir
þar af formennsku í tveim þeirra.
Hann situr í stjórn Steypustöðvar-
innar hf. og þá er hann formaður
Útvarpsfélags Seltjarnaness. Einn-
ig er hann formaður í Bygginga-
nefnd Þjóðminjasafnsins.
„Ég sit ýmsum stjórnum og
nefndum sem ég þarf að losa mig
úr,“ sagði Júlíus þegar hann var
spurður um þetta.
- En finnst þér ekki klaufalegt
að hafa látið t.d. Stálvíkurmálið
koma upp með þessum hætti?
„Það lá í sjálfu sér ekkert á að
losa mig út úr þessari stjóm því
að ég hef ekkert skipt mér af þessu
hvort eð er. Ég var búinn að segja
þeim í Stálvík að ég yrði að fara
úr stjórninni og ég skal viðurkenna
að auðvitað hefði verið hægt að
flýta því ef ég hefði lagt á það
áherslu en ég hef haft svo mikið
að gera að ég hef ekki sjálfur ýtt á
eftir því.“
- En ætlar þú að flýta þér að losa
þig út úr hinum stjórnunUm?
„Ég vil vera búinn að losa mig
úr þessu öllu fyrir jól. Það var það
markmið sem ég var búinn að setja
mér. En þetta er nú ekki þannig
að það trufli mín störf sem ráð-
herra á einn eða annan hátt og þar
af leiöandi þurfti ekki að hlaupa
upp til handa og fóta til þess að
fara í þetta.“
Júlíus sagði að fundur yrði hald-
in í stjórn Steypustöövarinnar um
mánaðamótin nóvember/desember
og þá gerði hann ráð fyrir að hætta
þar. Hann er formaður Útvarps-
félags Seltjarnaness en engin
ákvörðun hefur verið tekin um
hvenær hann hættir þar. Sama á
við um formennsku hans í bygg-
inganefnd Þjóðminjasafnsins.
-SMJ
Eðlileg regla að segja af sér
- segir Jón Baldvin Hannibálsson utanríkisráðherra
„I upphafi stjórnarsamstarfs
lýsti forsætisráðherra þeim óskum
sínum að menn hefðu þá reglu að
segja af sér í stjórnum fyrirtækja,
sem kynnu að bjóða upp á hags-
munaárekstur, um leið og þeir
tækju við ráðherraembætti," sagði
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra þegar hann var spurður
um skoðanir hans á því að Júlíus
Sólnes hagstofuráðherra sæti enn
í stjórn Stálvíkur eins og kom fram
á Alþingi á miðvikudaginn.
„Ég man að Ólafur Ragnar gerði
það t.d. að því er varðar stjómarað-
ild að Landsvirkjun. Ég hef ekkert
meira um þetta að segja nema hvað
að mér þykir þessi regla eðlileg og
sjálfsögð," sagði utanríkisráð-
herra.
-SMJ
GIFURLEGT URVAL FJORHJOLADRIFSBIFREIÐA
WAGONEER LIMITED 4,0 I, ár-
gerð 1987, ekinn aðeins 38 þús.
km, sjálfskiptur, álfelgur, rafm. í
rúðum og i sætum, samlæsing,
topplúga o.fl. o.fl. Skipti koma til
greina á ódýrari bifreið. Verð
1890 þús.
SÝNISHORN
SUBARU 1800 COUPÉ 4x4
TURBO, árgerð 1988, ekinn að-
eins 25 þús. km, 4ra þrepa sjálf-
skipting, rafm. í rúöum, topp-
lúga, samlæsing, útvarp/segul-
band, sumar-/vetrardekk á ál-
felgum, skipti koma til greina á
ódýrari bifreið. Verð 1320 þús.
ÚR SÖLUSKRÁ:
TOYOTA COROLLA 1,3 DX, ár-
gerö 1987, ekinn aöeins 13 þús.
km, sem nýr bill, útvarp/segul-
band, litur blásans., skipti gætu
komið til greina á litiö eknum
Subaru 4x4, árg. 1987-88, eöa
bein sala. Verð 630 þús.
NISSAN PATROL HIGH ROOF
TURBO disil, árgerö 1987, ekinn
107 þús. km, 6 cylindra, 5 gíra,
vökvastýri, white spoke felgur, 7
manna, litur silfur, skipti koma
til greina á ódýrari bifreið. Verð
1680 þús.
AudMOOCC..........árg.'86 Verð 790 þús.
Bluebird disil....árg. '89 Verð 1100 þús.
Bronco XL.........árg. '88 Verö 1650 þús.
Charade CX........árg. '88 Verð 570 þús.
Colt 1500 GLX.....árg. '88 Verð 640 þús.
Fiat Uno 45S......árg. '88 Verö 380 þús.
GalantGLSI........árg.'89 Verö1160þús.
Golf GT............árg. '88 Verð 850 þús.
Lada 1500 station..árg.'87 Verð 230 þús.
Lancer 1500GLX.....árg.'89 Verö 830 þús.
Lancia Y-10.......árg. '88 Verð 290 þús.
LandCruiser Stu....árg. '87 Verð 1330 þús.
Mercury Topaz 4x4... árg. '87 Verð 850 þús.
Micra GL...........árg. '88 Verö 480 þús.
Pajero, stuttur, D..árg. '83 Verð 560 þús.
Pathfínder 2,4......árg. '89 Verð 1800 þús.
Pickup Hilux........árg. '84 Verð 980 þús.
Sendib. Vanette.....árg. '89 Verö 870 þús.
Subaru station......árg. '89 Verö 1250 þús.
Sunny 1300 LX.......árg. '88 Verö 600 þús.
Sunny 4x4 Sedan.....árg. '88 Verð 800 þús.
OPIÐ VIRKA DAGA Kt. 9-18.30, LAUGARDAGA KL. 10-17.
RORGARRTT.ASAT.AW
GRENSASVEGI 11, SÍMAR 83085 OG 831SO - SÆVARHÖFÐA 2, SÍMI 674848