Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1990, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1990, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1990. Utlönd Gjaldþrot bandarísku sparisjóöanna: Pólitísk sprengja - sonur forsetans í viðkvæmu máli Hrun sparisjóðanna í Bandaríkj- unum ógnar nú sætum margra fulltrúa bæði fulltrúadeildarinnar sem og öldungadeildarinnar í kom- andi kosningum í nóvember og stefnir í að verða eitt alvarlegasta hneykslismál Bush-stjómarinnar. Þetta mesta íjármálahneyksli í bandarfskri sögu er nú orðið að pólitískri sprengju. Að auki snertir það forsetafjölskylduna persónu- lega; sonur Bush forseta er nú helsta fréttaefni í Bandaríkjunum. Tvö þúsund dollarar á mann Daglega eru birtar fréttir af frek- ari misgjörðum nokkurra þeirra sem þátt tóku í rekstri sparisjóð- anna og kaupunum á sparisjóðun- um í byrfun og um miðjan níunda áratuginn. Þá var markaðsöflun- um gefinn laus taumurinn, stórlega var dregið úr opinberu efdrliti með sparisjóðum og eignarréttur á þeim rýmkaöm-. Brautin var þar með George Bush, forseti Bandaríkj- anna, hefur lýst því yfir að hann muni ekki hlutast í mál sonar sins. Símamynd Reuter rudd fyrir ævintýramennsku og í kjölfarið nýttu nokkrir óprúttnir eigendur sér annarra manna fé til að spila með og verfa í alls konar vitleysu. Niðurstaðan er þetta mesta fjármálahneyksli landsins. Mál þetta kraumaði lengi undir yfirborðinu, þá sem fjármála- hneyksli. Nú er það orðið að pólit- ískri tímasprengju þar sem banda- rískur almenningur er vakna upp við vondan draum og er ekki ánægður með að þurfa aö greiða stórar upphæðir við uppgjör þess- ara gjaldþrota. Samkvæmt upplýs- ingum Alríkisendurskoðunar Bandaríkjanna nemur kostnaður- inn við björgun sparisjóðanna allt að 500 miíljörðum dollara á þrfátíu til fjörutíu ára tímabili. Þetta leggst á skattgreiðendur sem þýðir að hvert mannsbarn - maður, kona og bam - þarf að greiða tvö þúsund dollara. Kosningar nálgast í Bandaríkjun- um og því reyna allir sem þeir frek- ast geta - hvort sem um er að ræða demókrata eða repúblikana - aö koma sökinni hver á annan. Marg- ir fréttaskýrendur segja þó að bæði Hvíta húsið, þar sem repúblikanar eru við völd, sem og þingið, þar sem demókratar eru í meirihluta, eigi Fjöldi bílasala, bíla- umboóa og einstaklinga auglýsa fjölbreytt úrval bíla af öllum geróum og í öllum veróflokkum meó góöum árangri í DV-BÍLAR á laugardögum. Athugió aö auglýsingar í DV-BÍLAR þurfa aö berast í síóasta lagi fyrir kl. 17.00 á fimmtudögum. Smáauglýsingadeildin er hins vegar opin alla daga frá kl. 09.00 til 22.00 nema laugardaga frá kl. 09.00tiI 14.00 og sunnudaga frá kl. 18.OOtil 22.00. Smáauglýsing í HELGARBLAÐ veröur að berast fyrir kl. 17.00 á föstudögum. Auglýsingadeild Neil Bush, sonur Bandarikjaforseta, er nú helsta fréttaefni fjölmiðla vestan hafs. Teiknlng Lurie að axla ábyrgðina sameiginlega á þessu viðamikla gjaldþrotamáli. Forsetasonur í klípu Mál þetta snertir forsetafjöl- skylduna persónulega og er Neil Bush, sonur Bandaríkjaforseta, í sviðsljósinu þessa dagana. Neil Bush var yfirmaður Silverado- sparisjóðsins í Denver í Colorado- fylki frá árinu 1985 til ágústmánaö- ar árið 1988. í desember það sama ár varð Silverado gjaldþrota á sama hátt og hundruð annarra spari- sjóða; eftir að hafa varið inni- stæðufé sínu að mestu í húsnæðis- veðlán á vöxtum langt undir mark- aðsvöxtum og tekið lán sem hann stóð ekki undir að greiða. Áætlað er að gjaldþrot Silverado kosti skattgreiðendur einn milljarð dollara, eða sem svarar til sextíu milljarða íslenskra króna. Neii Bush mun koma fyrir dóm- ara þann 25. september næstkom- andi en þá verður stjómun hans á Silverado tekin til gaumgæfilegrar skoðunar. Það sem liggur til grund- vallar rannsókninni á Silverado em meintir hagsmunaárekstrar; að á sama tíma og Bush hafi setið við stjóm sparisjóðsins hafi hann átt í viðskiptatengslum við stærstu lánþegana. Alríkisyfirvöld segja að Bush hafi ekki gert nógu góða grein fyrir fyrri tengslum sínum við stærstu viðskiptavini bankans og hafi þar með brotið gegn reglum og reglugerðum. Forsetasonurinn og hagsmunaárekstrarnir Alríkisyfirvöld hafa skýrt frá því að árið 1985 hafi Bush greitt at- kvæði með því að sparisjóðurinn lánaði Bill Walters, viðskiptafélaga Bush, háa fjárupphæð og keypti af honum fasteignir. Lánið féll í van- skil og kostaði skattgreiðendur 45 milljónir dollara þegar Silverado lagði upp laupana. Þetta var á sama tima og Bush og Walters vom við- skiptafélagar og segja yfirvöld að Bush hefði átt að skýra formlega frá tengslum sínum við Walters. Þau segja þaö brot að hann hafi greitt atkvæöi um lán til viðskipta- félaga. Bush segir að viöskipta- tengsl sín við Walters hafi verið á allra vitorði. Það sem er einna neyðarlegast í máli Neils Bush er einkalán sem hann fékk áður en hann hóf störf hjá Silverado. Árið 1984 fékk Bush eitt hundrað þúsund dollara að láni frá viöskiptafélaga sínum, Kenneth Good, lán sem hann „þurfti“ ekki að greiða aftur - og gerði aldrei. Lánið var með þeim skilyrðum að lántakandi legði þaö í fjárfestingu þess sem lánaði féð. Ef fjárfestingin borgaði sig ekki þyrfti Bush ekki að endurgreiða lánið. Það kom á daginn að fjárfestingin borgaði sig ekki og forsetasonurinn þurfti ekk- ert að endurgreiða. Good, ekki síður en Walters, var stór viöskiptavinur Silverado- sparisjóðsins. Hann, eins og Walt- ers, fékk síðar lán frá sparisjóðn- um. Það lán féll einnig í vanskil. Svo kann aö fara að mál forseta- sonarins gangi lengra og að banda- rísk alríkisstofnun höfði mál gegn honum. Stofnunin, FDIC, sem tryggir að vissu marki bankainni- stæður í þeim bönkum sem aðild eiga að henni, kannar nú hvort höfða eigi mál gegn hinum unga Bush, eða öðrum embættismönn- um Silverado, í einkamálarétti. Slík málsókn myndi byggjast á þeirri staðhæfingu að gjaldþrot Sil- verado megi að hluta til rekja til vanrækslu Neils Bush og átta ann- arra yfirmanna sparisjóðsins. Neil neitar ásökunum Neil Bush vísar á bug ásökunum um misgjörðir í starfi og segir rannsóknina á sínum högum af pólitískum toga spunna. Og satt er það að mál hans er smávægilegt miðað við mál margra annarra sparisjóðsstjóra sem sumir hverfir eru sakaðir um bein fjársvik. En þetta mál hefur fært spari- sjóðahneykslið einhvem veginn nær kjósenduni, af viðskiptasíðum blaðanna yfir á forsíður þeirra. Bush Bandaríkjaforseti hefur tjáð sig opinberlega um þetta mál, lýst því yfir að hann treysti fyllilega á heilindi sonar síns og að hann muni ekki hlutast í mál hans. Heimildir m.a. gagnabanki Reuters

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.