Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1991, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1991, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1991. Utlönd Nýjatann- kremidreyndist hættulegt Alsírbúar, sera hafa keypt nýja tegund af innlendu tannkremi, hafa verið varaðir viö að nota það. í skærbláu túpunum er nefnilega ekki tannkrem heldur háreyðingarkrem. Apótekarar og almenningur hafa verið beðnir um að skila tannkremstúpunum hið snar- asta, að sögn fréttastofúnnar APS Rifistútyfirgröf ogdauda Fjölskyldurifrildi á Englandi, sem náði alla leið ofan í gröfina, verður til lykta leitt á næstunni. Með uppgrefti líks. Ekkjan Diane Richards sagði að eiginmaöurinn hennar sáiugi, hann Albert, hefðí fyrirlitið Alf- red, stjúpa sinn. Þeir hvíla í sömu gröf en Díane hefur fengið leyfi til að grafa Alfred upp og flytja hann, Hún segir að miklu fargi verði af sér létt og segist vera handviss um að Albert muni vel iika flutn- ingurstjúpansínýjagröf. Reuter GULL- & SILFURSMIÐIR SKIPHOLTI 3, S. 20775 Opið 10-18, laugardaga 10-14 „Veggur í dós" Nýja linan - frábært - einfalt Fibrite er efni á veggi og ioft innan- húss. Fibrite kemur i staðinn fyrir t.d. málningu. hraun. fínpússningu. vegg- fóður, striga og margt fleira. Fibritör- erna veita ráðleggingar og gera verðtil- bo*' bér að kostnaðarlausu. Sími: 985-35107 45107 - 675980 RNA Álftröð 1 200 Kópavogui- m W Konfekt Sími: 91-41760 Talaðu viðokkurum BÍLASPRAUTUN BÍLARÉTTINGAR Á geisladisk og snældu Rokksöngvarinn Freddie Mercury látinn úr eyðni Freddie Mercury, söngvari hljómsveitarinnar Queen, lést í gærkvöldi úr eyöni skömmu eftir að hann viðurkenndi að vera sýktur af eyðniveirunni. Símamynd Reuter Freddie Mercury, söngvari bresku rokkhljómsveitarinnar Queen, lést seint í gærkvöldi úr eyðni. Fregnir af dauða hans komu mjög á óvart því aðeins voru liðnir fáir dagar frá því hann viðurkenndi opinberlega að vera með eyðni. Enginn átti von á að Mercury væri að dauöa kominn þótt sögur heföu lengi gengið um að hann væri sýktur. Það var lungnabólga sem dró söngvarann til dauða en ekki tókst aö ráöa niðurlögum sjúkdómsins vegna eyðnisýkingarinnar. Blaöa- fulltrúi Mercury sagði að hann hefði fengið hægt andlát á heimili sínu í Kensington í Lundúnum. Freddie Mercury var ein litríkasta stjaman í bresku rokki. Hann var 45 ára þegar hann lést og hafði verið í sviðsljósinu í nær aldaríjórðung. Á þeim ferli söng hann mörg af fræg- ustu rokklögum sögunnar. Freddie Mercury var hommi og fór aldrei leynt meö kynhneigðir sínar. Undanfarið hafa birst myndir af hon- um í blöðum þar sem berlega kemur í ljós að eyðnin hefur leikið hann grátt. Hann kom síðast fram fyrir 18 mánuðum og tók þá á móti verðlaun- um. Seinast fór hann í söngferðalag með hljómsveit sinni árið 1986. Hnan var fæddur á Zanzibar í Tanzaníu árið 1946, sonur bresks rík- isstarfmanns. Hljómsveitina Queen stofnaði hann ásamt þremur félögum sínum árið 1971 en fyrsta platan kom út árið 1973. Queen var meö fyrstu hljómsveitum til að gera myndbönd með lögum sínum. Reuter Dýrt sturtað niður Gizur Helgason, DV, Kaupmannahöfii: Hjónahandserjur leiddu til þess hér á dögunum að dýrasta niö- ursturtun ársins 1991 átti sér staö i einum af útbæjum Kaupmanna- hafiiar. Hringt var i klóakhreins- unardeild hverfisins og spurt hvort möguleiki væri á því að ná í hluti sem sturtað hafði verið niður gegnum klósettið. Þegar hreinsunardeildin spurði hvaö um væri að ræða sagði maðurinn að 21 þúsund dönskum krónum eða 200 þúsundum ís- lenskum hefði verið sturtað nið- ur. Hreinsunardeildin fór um- svifalaust að leita fjársjóðsins en hafði ekki erindi sem erfiði. Þegar öll kurl voru komin til grafár upplýstist að hjónin höiðu farið að rifast yfir því hvað gera skyldi við peningana. Þegar rifr- ildið stóð sem hæst greip frúin seðlabúntið, reif það í tætlur, henti í klósettið og sturtaði niður. Ástæða rifrildisins var þar með úr sögunni, enda þótt hætt sé við að eitthvað kunni að ganga á hjá þeim hjónum þegar atburöurinn kemst næst á dagskrá. Svartahöndin drepurtólf Útlagahópur 1 Kólumhiu, sem nefndur er Svarta höndin, skaut tólf manns til bana í borginni Matyanza á laugardag, þar á meðal fátæklinga,.fikniefnaneyt- endur og vændiskonur. Morðin eru hluti herferðar hópsins gegn þeim öflum þjóöfé- lagsins sem hann er andsnúinn. Reuter ▲ TjTIIL & 1+ O; <S *ylv Veistu aó þriðja hver fjölskylda í land- inu á um sárt að binda af völdum áfengisneyslu einhvers eða einhverra í fjölskyldunni? Veistu að áfengisneysla hefur aukist um 17-20% með tilkomu bjórsins? Veistu hve mörg börn og unglingar verða að öllum líkindum fórnarlömb áfengis næstu árin? Er ekki tímabært að staldra við og at- huga sinn gang, barnanna vegna? Bindindisdagur fjölskyldunnar — ekki bara í dag. Samstarfsnefnd um Bindindisdag fjölskyldunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.