Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992. Meiming Nemendur Söngskólans í Reykjavík sem tóku lokapróf að þessu sinni. Söngskólinn í Reykjavik: Aldrei jaf nmargir lokið lokapróf i Aldrei í sögu Söngskólans í Reykjavík hafa jafnmargir nem- endur tekið lokapróf og á þessu vori. 120 nemendur stunduðu fullt nám í vetur og luku fimmtán 8. stigs prófi, það er lokaprófi úr al- mennri deild. Þrír nemendur luku burtfararprófi (Advanced certific- ate) og þrír nemendur luku söng- kennaraprófum. Prófdómari að þessu sinni var Desmond Sergeant frá Associated Board of the Royal Schools of Music. Tónleikar þeirra sem luku próf- um standa nú yfir og voru fyrstu tónleikamir síðastliðiö finuntu- dagskvöld. Alls eru þetta sex tón- leikar og eru þeir haldnir í íslensku óperunni og verða þeir síöustu á miðvikudagskvöld. Þeir þrír nemendur sem luku burtfaraprófi, Alda Ingibergsdótt- ir, Ágústa Sigrún Ágústdóttir og Harpa Harðardóttir, eru ekki með tónleika nú. Alda hélt sína tónleika í mars en Ágústa og Harpa hyggja á tónleika í haust. LOGSUÐUTÆKI MARGAR GERÐIR argon- og propangas- mælar súr- og gasmælar, tvöfaldar slöngur, kveikjur, logsuöugleraugu, einstreymislokar, logsuðutæki í settum, súr- og gaskútar. t Varahlutaþjónusta. ÁRVÍK HF. AHMÚU I • PÓSTHÓLF 8000-128 REYKJAVÍK • SiMI 687222 • TELEX 3012 • TELEFAX 687295 Myndlist á listahátíð Mósaíkverkin á sýningunni 2000 ára litadýrð i Listasafni íslands eru mjög gömul, þau elstu frá 6.-8. öld eftir Krist. Verkin eftir hinn fræga myndlistarmann, Joan Míró, eru komin í hús á Kjarv- alsstöðum og er unnið að uppsetningu þeirra. DV-myndir GVA í tilefni listahátíðar í Reykjavík verða um næstu helgi opnaðar merk- issýningar í flestum sýningarsölum Reykjavíkurborgar. Rjórar sýningar eru af erlendum uppruna en íslensk- ir myndlistarmenn leggja einnig sitt af mörkum. Erlendu sýningarnar eru af ólíkum toga og fiölbreyttar. Á Kjarvalsstöðum er nú verið að koma fyrir verkum eftir Joan Míró sem er vafalítið einn frumlegasti og þekktasti myndlistarmaður tuttug- ustu aldarinnar. Hann fæddist á Spáni 1893. Þar hlaut hann hefð- bundna myndlistarmenntun. Hann fluttist ungur til Parísar þar sem hann kynntist súrrealistunum snemma á þriðja áratugnum. Míró var hugmyndalega nátengdur þeim hópi listamanna, þó svo að hann hafi snemma farið sínar eigin leiðir - leiddur áfram af óvenju frjóu hug- myndaflugi. Míró lést 1983. Sýningin á Kjarvalsstöðum inni- heldur málverk, teikningar og skúlp- túra frá seinni árum listamannsins, það er eftir 1960, og kemur sýningin frá listasafninu Maeght í Suður- Frakklandi. Þá má geta þess að Kjarvalsverk verða einnig til sýnis á Kjarvalsstöðum. Er um aö ræða verk úr einkasafni Eyrúnar Guðmunds- dóttur og Jóns Þorsteinssonar. Kjarvalsstaðir munu einnig í sam- starfi við Kringluna efna til yfirlits- sýningar á verkum eftir yngstu kyn- slóð íslenskra myndhöggvara þar sem listamönnum er úthlutað ákveðnu rými í verslunarmiðstöö- inni til að glíma við. Mósaík og búningar í Lástasafni íslands er ekki síður merkileg sýning sem kemur frá Jórd- aníu og Palestínu, nefnist hún Mósa- ík - búningar og skart. Þessi merki- lega sýning er í tveimur hlutum, annars vegar eru sýnd mósaíkverk, er lánuð hafa verið af þjóðminjasafni Jórdaníu, en hins vegar búningar og skart sem koma úr hinu merka einkasafni frú Widad Kawar í Amm- an. Verkin á mósaíksýningunni eru mjög gömul. Elsti hlutinn er verk sem fundust í Jórdaníu við fomleifa- uppgröft í byggingum frá býsönskum tíma, bæði trúarlegum og veraldleg- um, á fiallinu Nebo. Verk þessi eru talin vera frá 6.-8. öld eftir Krist. Frú Widad Kawar sem lánað hefur búningana og skartið byrjaði að safna búningum og skarti kvenna þegar á sjötta áratugnum en þá sýndu fáir áhuga á þessari hefð sem hefur gengið kynslóð fram af kyn- slóð. Þó að búningamir, sem hér verða sýndir, séu ekki eldri en frá 19. öld sýna þeir vel hefðina sem gekk kynslóð fram af kynslóð. Búningam- ir em ekki sýndir sem þjóðhátta- fræðileg fyrirbæri heldur sem hsta- verk. Listasafn íslands hefur einnig í samvinnu við Lástahátíð og Gallerí 11 boðið heimsþekktiun frönskum listamanni, Daniel Buren, að vinna útilistaverk við Gallerí 11 og Lásta- safniö. Verkið nefnist Staðsetning, framsetning, tilfærsla - staðbundið verk. Buren, sem kom fram á sjónar- svið á hinum róttæku tímum í kring- um 1968, hefur ávallt unnið þannig að þungjamiðja verksins er sam- hengið milli umhverfisins og verks- ins sjálfs. Buren hefur unnið verk sín í samvinnu við listasöfn víða um heim og er einn eftirsóttasti lista- maður Frakka í dag. Fjórða sýningin af erlendum upp- runa er sýning sænska listamanns- ins Bjöm Bmsewitz í Lástasafni ASÍ. Bjöm er einn þekktasti myndlistar- maður Svía og hefur haldið fiölda einkasýninga úti um allan heim. Á sýningu hans hér verða teikningar unnar á síðustu ámm og hefur sýn- ingunni verið lýst sem þroskasögu ungs manns í myndum og vakið mikla athygli. Hjörleifur og Kristján Framlag Félags íslenskra mynd- listarmanna til listahátíðar verður yfirhtssýning á verkum Hjörleifs Sigurðssonar og verður sýningin bæöi í Norræna húsinu og FIM- salnum. Hjörleifur er einn af fmm- heijum íslensks módemisma í myndhst og tók þátt í þeim sýningum í upphafi sjötta áratugarins er mörk- uöu tímamót í myndhstarsögu ís- lands. Elstu verkin á sýningunni em frá 1949ogþau nýjustu frá þessu ári. í Listasafni Siguijóns verður opn- uð sýning á æskuverkum Siguijóns Ólafssonar. Em flestar teikningarn- ar gjöf til safnisins og hafa aldrei verið sýndar áður. Annars býður Lástasafn Siguijóns upp á fiölbreytta dagskrá flesta daga meðan hstahátíð stendur yfir. í Ásmundarsal verður sýning sem hefur yfirskriftina Arkitektinn sem hönnuður. Er það Arkitektafélag ís- lands sem stendur að þessari sýn- ingu og fiallar hún um hönnun í starfi arkitekta. Tilgangur sýningar- innar er að varpa ljósi á sköpunar- verk íslenskra arkitekta á þessu sviði. Sýnd verða húsgögn og lampar auk annarra nytjahluta er spanna yfir aha sögu íslenskra arkitekta frá Rögnvaldi Ólafssyni og Guðjóni Samúelssyni til vorra daga. Nýleg verk eftir Kristjón Davíðsson verða sýnd í Nýhöfn, auk þess sem bók um hann kemur út Síðast en ekki síst bera að geta sýn- ingar á verkum Kristjáns Davíðsson- ar í Nýhöfn. Er um að ræða tæplega tuttugu ný málverk eftir einn virt- asta hstamann þjóðarinnar. Sýning- in er öðrum þræði haldin tíl að heiðra hstamanninn á 75 ára afmæh hans. í tílefni sýningarinnar munu Nýhöfn og bókaútgáfan Mál og menning gefa út vandaða bók um hstamanninn með ritgerð um hann, htmyndum ag nýjustu verkum hans og svo úrvah verka frá 35 ára tíma- bih. Eins og sjá má af þessari upptaln- ingu verður mikh gróska í myndhst í borginni meðan á hstahátíð stendur og óhætt að segja að hver sýning sé mikih viðburður og fiölbreytnin slík að allir ættu að finna eitthvað fyrir sinnsmekk. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.