Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1994, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1994, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1994 Stuttar fréttir Kynlífsþrælar krefjastþessað fáskaðabætur Rjölmargar konur frá S- Kóreu, sem voru þvingaðar til að vera kyn- lifsþrælar fyrir hermenn Jap- anskeisara í seinni heims- styrjöldinni, ætia til Japans í þessum mánuði og hitta forsætis- ráöherra landsins, Tsutomu Hata, til að krefjast skaðabóta fyrir þær þjáningar sem þær urðu að þola. Konumar, sem eru á aldrinum 68-78 ára, ætla ekki aö snúa aftur frá Japan nema stjórnvöld verði við kröfum þeirra. Um 200 þús- und konum var rænt frá Kóreu, Filippseyjum, Indónesíu og Kína og þær síöan þvingaöar til að vera kynlífeþrælar í vændishúsum fyrir hermenn. Konstantín í málviðgrísk yfirvöld Fyrrum konungur Grikklands, Konstantín, segist ætla í mál við grísk stjómvöld vegna ákvörðun- ar þeirra um að yíirtaka eignir fjölskyidunnar og jafnframt taka gríska vegabréfið af henni. „Ég mun vissulega krefjast eigna minna með öllum tiltækum lögum sem gríska stjórnarskráin og grísk lög segja til um," sagði Konstantín nýlega í viðtali viö grískt dagblað. Konstantín, sem er 53 ára gam- all, hefur búiö í Bretlandi síðan hann flúði frá Grikklandi árið 1967, eftir aö herforingjastjóm tók völdin í sínar hendur. Hörðmótmæli viðfegurðar- samkeppni Kvenréttindakonur á Filipps- eyjum hafa mótmælt harölega keppninni Ungfrú heimur sem fram fer á Manila 21. maí. Þær segja aö þaö sé glæpur að halda svona keppni á meöan um hundr- að þúsund konur í landinu neyö- ast til að framfleyta sér með vændi og helmingur óléttra kvenna þjáist af vannæringu. „Þetta er glæpur gegn landinu og þjóðinni. Það væri hægt að nota peningana sem fara í aö halda keppnina í eitthvað nyt- samlegra. I hvert skipti sem karl- menn í stjóminni ætla sér aö auglýsa landið er fyrsta ráðiö alltaf að halda kroppasýningu á konum,“ segir í yfirlýsingu frá kvenréttindasamtökunum sem í eru 48 þúsund konum. Reuter Erlendar kauphallir: FallíHong Kong Hang Seng hlutabréfavísitalan í Hong Kong fór niður í 8.300 stig í vikunni sem er það lægsta á þessu ári. Talan hefur ekki verið lægri síð- an í október á síðasta ári. Hlutabréf í stóram hlutafélögum hafa lækkað töluvert í verði aö undanfornu og engin merki um verulegar hækkanir á næstunni. Um síðustu helgi náði nýja hluta- bréfavisitalan í Mílanó sögulegu há- marki, 1312 stigum, en lækkaöi fljót- lega niður fyrir 1300 stig. Helstu vísitölur eins og Dow Jones, FT-SE100 og Nikkei í Tokyo em svip- aðar og fyrir viku. Tölur á meðfylgjandi grafi em í öllum tilvikum frá því á fimmtudag nema frá Mílanó og Amsterdam sem emfrásíðustuhelgi. -Reuter Utlönd Harðir bardagar geisa enn í Jemen: Varpa sprengjum á helstu borgirnar Harðir bardagar geisa enn milli hersveita Norður- og Suður-Jemens og segja heimildarmenn að hvorugur aðilinn sé líklegur til að vinna afger- andi sigur um landið. Herþotur frá báðum aðilum hafa varpað sprengjum á Aden og Sanaa og skýrði diplómat frá því að flug- skeyti hefði næstum hæft forsetahöll Salehs í Sanaa í Norður-Jemen. Fregnir herma að hersveitir úr norðri stefni í áttina að Aden í suðri og ætli sér ekki að stoppa fyrr en þær hafi náð borginni á sitt vald. Símasambandslaust var við Jemen í allan gærdag og var því erfitt aö fá fregnir um hversu alvarlegt ástandið væri og hversu margir hefðu látiö lífið í átökunum. Ekki var vitað hve- nær sambandi yrði komiö á aftur. Franski sjóherinn flutti um 400 Vesturlandabúa frá Aden í gær og varnarmálaráðuneytið sagði að á meöal þeirra hefðu m.a. verið Frakk- ar og Bandaríkjamenn. Um tvö þúsund Vesturlandabúar búa í Jemen, auk fimm þúsund Jem- ena sem jafnframt eru af bandarísk- um ættum. Sérstakur sendifulltrúi Bandaríkj- anna, sem sendur var til að leita sátta á milli norðurs og suðurs, yfirgaf landið í skyndi í gær eftir að hafa lent í miðjum átökunum. Hann fór til Oman en þar er staddur fyrir að- stoðarutanríkisráðherra Bandaríkj - anna í málefnum Mið-Austurlanda, Robert Pelletreau, sem er þar að ræða við háttsetta embættismenn vegna ástandsins. Reuter Þreyttir rússneskir hermenn nota tækifærið og fá sér lúr á meðan hlé er gert á undirbúningi fyrir „sigurdaginn“ sem haldinn var hátiðlegur í Moskvu i gær. Sigurdagurinn er sá dagur þegar Rússar fagna sigri sínum á Þjóðverjum i seinni heimsstyrjöldinni. Simamynd Reuter ANC hlaut tæp 63% atkvasða Afríska þjóðarráðið, ANC, hlaut alls 62,65% atkvæða í kosningunum í S-Afríku eða tæp 63% en talningu atkvæða lauk í gær. Litlu munaði að flokkurinn hlyti tvo þriðju hluta at- kvæða en hefði svo orðið þá hefði hann veriö einráður um gerð nýrrar stjómarskrár landsins. Þjóðarflokkur de Klerks, fráfar- andi forseta, hlaut alls 20,39% at- kvæða og Inkathahreyfmg Zúlu- manna hlaut 10,54% atkvæða. Nelson Mandela mun taka við for- setaembættinu næstkomandi þriðju- dag og samkvæmt niöurstöðum kosninganna fær ANC 252 þingsæti af 400, Þjóðarráðið fær 82 þingsæti og Inkathahreyfingin 43. Nelson Mandela hefur þegar skipað 17 ráðherra í hina nýju stjórn lands- ins en hans hægri hönd verður Thabo Mbeki, fyrram formaður ANC. Yfirmaður kosninganna, Johann Kriegler, sem tilkynnti úrslitin, sagði að kosningamar hefðu tekist vel og vilji þjóðarinnar hefði komist til skila. Alls greiddu 19.726.579 manns at- kvæði í kosningunum eða nokkra fleiri en menn þorðu að vona. Reuter Hlutabréfavísitölur í kauphöllum 12000 10000' 8000 8412,68 Kr. F M A M EESBZB 1550 1400 1501,33 Kr. f M A M - Stuttar fréttir i>v 20 slösuðust 20 slösuðust í óeirðumí Albaniu þegar lögreglan reyndi aö stööva mótmæli. Svíi handtekinn 43 ára gamall Svii var handtek- inn grunaður um aðild að stærsta listaverkaráni i Svíþjóð. Mismunun Chemomyrd- in. íorsætisráö- herra Rúss- lands, sakar Vesturlönd um aö mismuna Rússum meö því aö banna þeimaögangað heimsmörkuðum. ÉranogS-Afríka íran og S-Afrika ætla að koma á stjórnmálatengslum frá og með 10. mai. Nunnur krefjast valda Kaþólskar nunnur krefjast meiri valda innan kirkjunnar. Sjálfstjórn PLO Háttsettur foringi innan ísra- elshers segist ekki geta sagt til um hvenær PLO gæti tekið yfir stjórn á Gasasvæðinu og í Jeríkó. Lifstíðardómur Líbanskur dómstóll dæmdi þrjá menn í lífstíðarfangelsi fyrir moröið á sendiherra Bandaríkj- anna í Beirút árið 1976. ÆHaraðbetjast John Major, BP*" forsætisráð; 'W W herra Bret- P ll lands, sem beið mikinn ósigur í sveitarstjórn- arkosningum á fimmtudag, —------------------ segist ætia að berjast fyrir emb- ætti sínu. PLO'fangar ísrael hefur ekkert sagt til um hvenær fleiri PLO-fangar verða látnir lausir. 18 drepnir Kúrdískir skæruliðar drápu 18 manns í óeirðum í Tyrklandi. Engarheimsóknir Yfirvöld í Singapore hafa neitað fjölskyldu unglingsins Michael Fay, sem var hýddur, um að heimsækja hann. Morðingi laus Óttast er aö morðingi sem hermir eftir versta f]öldamorö- ingja S-Afríku gangi nú laus f S- Afríku. Vopnahlé Uppreisnarmenn í Rúanda samþykktu vopnahlé sem taka mun gjldi á morgun. Afsögn? Dómsmála- ráðaherra Jap- ans, Shigeto Nagano, hefur dregið til baka ummæli sín varðandi fjöldamorð á Kínverjum í seinni heimsstyrjöldinni. Hann útilokar ekki afsögn vegna máls- ins. Þýskur njósnari Kari Wienand, fyrrum toppur í Sósíaldemókrataflokknum í Þýskalandi, hefur verið ákæröur fyrir njósnir. ViljaGonzalezburt Andstæðingar Gonzalezar, for- sætisráðherra Spánar, vifia hann burt úr embætti vegna hneykslis- mála. Reuter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.