Alþýðublaðið - 24.05.1967, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 24.05.1967, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 24. maí 1967 - 48. árg. 121. tbl. -■ VERÐ 7 KR. Kortið sýnir legru Ísraelsríkis inn á milli Arabaríkjanna. Örin bendir á mynni Akabaflóans, en Egyptar hafa nú hótað að loka honnm fyr- ir ísraelskum skipum. KAIRÓ, 23. maí. NTB-Reuter) — U Thant, fram- kvæmdastjóri SÞ, kom í dag til Kairó il að reyna að afstýra ófriði fyrir botni Miðjarðarhafs, samtímis því sem Egyptar ”og ísraelsmenn héldu áfram liðssafn- aði á landamærum. Fréttaritarár í Kairó sögðu í kvöld, að ekki færi á milli mála að ísraelsmenn og Egyptar römbuðu á barmi styrjaidar og ef Egyptar létu verða af hótun sinni um að setja hafnbann á Akabaflóa, myndu bardagar brjótast út á þessum slóðum. Hafnbann á Aíkabaflóa mundi einangra hinn mikilvæga hafnar- bæ ísraelsmanna, Eilat, og sfcöðva viðskipti ísraelsmanna við Afr- íku og Asíu. ísraelsmenn hafa áð- ur sagt, að hafnbann á Akabaflóa mundi jafngilda stríðsyfirlýsingu og má þvi búast við að þeir grípi til gagnráðstafana, ef af' hafn- banninu verður. Áreiðanlegar heimildir í Kairó hermdu í kvöld, að egypzkt beiti skip, fjórir tundurskeytabátar og tveir kafbátar hefðu farið um Sú- ezskurð áleiðis til Rauðahafs til að framfylgja hafnbanninu. Israel: EGYPTAR LOK AKABAFLÓANU Augtýst eftir umsóknum um 260 íbúðir í Breiðholti Húsnæðismálastofnun ríkisins hefur nú auglýst til umsóknar þær íbúðir, sem Framkvæmda- nefnd byggingaáætlunar er að láta byggja og verða seldar efna- litlum meðlimum veríkalýðsfélag- anna. íbúðirnar eru í fjölbýlis- húsum, sem eru staðsett á svo- nefndu Móholti (Breiðholti I), isem er iægð i vestanverðu Breið- holtshverfi, í um 70 m hæð yfir sjó. Einnig er um að ræða ein- býlishús. Fjölbýlishúsin standa við göturnar Ferjubakka, Grýtu- bakka, Hjaltabakka og írabakka, og í hverju fjölbýlrshúsi verða 52 íbúðir, 14 tveggja herbergja, 19 þriggja berbergja og 19 fjögurra herbergja. íbúðum verður skilað fullfrágegnum og tilbúnum til íbúðar, áætlað er að foúið verði að afhenda 260 fbúðir fyrir 15. júlí 1968. Verð íbúðanna er áætl- að á tveglgja Iherb. íbúð kr. 655- 745 þús. eftir stærð, 3. herb. kr. 785 þús. - 860 þús. eftir stærð og 4. herb. kr. 910 þús. - 970 þús. eftir stærð. Kaupendur greiða 20 % af andvirði íbúðarinnar á fjór- um árum þannig, að 5% greiðast 12 mánuðum áður en íbúðin er fullgerð og afhent kaupanda. Síð- an greiðir kaupandi 5% af and- virðinu á ári, næstu þrjú árin, á sama gjalddaga og fyrstu afborg- un. Afgangur andvirðis íbúðarinn ar, 80 % af söluverði, greiðist með láni frá Húsnæðismálastofn- un ríkisins, sem vera skal til 33 ára og endurgreiðist á 30 árum. Ef eigandi vill svo aftur selja íbúð sína á Húsnæðismálastofnun ríkisins rétt á að kaupa hana á kostnaðarverði og yfirtekur eftirstöðvar lánsins. þá Einbýlishúsin verða 23 og verða við Skriðustekk og Lambastekk. Þau eru af tveim stærðum 101 fermetri og 116 fermetrar og er verð þeirra áætlað kr. 900 þús. og kr. 1.040. þús. Borgarstjóm Reykjavíkur ráð- stafar þeim 250 íbúðum, sem Framhald á 14. síðu. \ □ Árás segir Eskhol Levi Eskhol, forsætisráðherra ís- raels sagði í þingræðu í kvöld, að sú ákvörðun Nassers forseta að loka Akabaflóa fyrir siglingum ísraelskra skipa væri gróft brot á þjóðarrétti og árásaraðgerð gegn ísraelska ríkinu. Eskhol sagði, að ef Nasser léti verða af hótunum sínum, mundi það hafa hinar alvarlegustu af- Sjá bls. 3 Danmerkurferð fyrír 4700 kr. Nú eru síðustu forvöð að tilkynna þátttöku í ferð Alþýffu- flokksfélags Keykjavíkur til Danmerkur dagana 18. júlí til 1. ágúst næstkomandi. Öllum er heimil þátttaka. Þeir sem áhuga hafa á þessu ódýra ferffalagi, vinsamlegast hringi í skrifstofu Alþýffuflokksins, símar 1-50-20 og 1-67-24, eigi síðar en 1. júní næstkomandi. A- lista fundir um land allt 9 9 Eggert G, Þorsteinsson sjáixtr- útvegsmálaráöherra hefur síchistu daga tekið þátt í fimm kjósenda- fundum bæði á Suður- og Norður- landi ásamt efstu mönnum A-list- ans í vi ðkomandi kjördsemum. Fundirnir, sem Eggert sótti voru haldnir í Vestmannaeyjum, Eyrar bakka, Siglufirði, Sauðárkróki og Ólafsfirði. Alþýðublaðið hafði tal af Egg- erti G. Þorsteinssyni síðdegis í gær, en liann var þá nýkominn til Reykjavíkur úr ferð um Norður- land. Um fundina sagði Eggert: Það sem einkennt hefur þessa fundi er hin mikla fundarsókn á þá' alla og hinar góðu undirtektir fundamanna undir ræður frum- mælenda. Hvarvetna virðist vax- andi áhugi fyrir málflutningi Al- býðuflokksmanna og verður ekki annað séð en vel sé unnið í öllum kjördæmum að undirbúningi Al- þingiskosnínganna. Langfjölmennastur var síðasti fundurinn, sem haldinn var á Ól- afsfirði í gærkvöld, en þar sóttu fundinn um 300 manns eða svo sem húsrými frekast leyfði. Persónulega er ég mjög ánægð- ur með þessa för mína. Ég er mjög ánægður með að geta orðið þátt- takandi í kosningabaráttunni, sem háð er í þessum kjördæmum. hverju fyrir sig. Eggert G. Þorsteinsson.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.