Alþýðublaðið - 12.05.1968, Blaðsíða 1
Sunnudagur 12. maí 1968 — 49. árg 82. tbl.
FÆST SUMARDVÚL
FYRIR BARNIÐ?
Á sumardvalarheimilum er kostnaðurinn
3500-4000 kr. á mán. - mörgum of dýrt
Æ erfiðara hefur reynzt nú á
síðarí árum aS koma bömum og
ungiingum til sumardvaiar í sveit,
en fáir efast um gildi slíkrar dval
ar fyrir ungviðiS. Yfirleitt er
um tvenns konar dvöi aS ræða í
sveit, annars vegar dvöl á sveita-
heimili og er þá um dvöl yfir
heilt sumar að ræða, en hins
vegar stutta dvöl, 1-2 vikur á
vegum ýmissa félaga og samtaka.
þar sem mörg börn dvelja sam-
an- Flóttinn úr sveitunum og
fjölgun barna hafa valdiS því, aS
erfitt reynist nú að koma börnum
fyrir á sveitaheimilum og aS-
sóknin aS sumarbúðum félaganna
er mjög mikil og aS jafnaði marg
ir á biðlista. Þá hefur einnig bor
ið á því að foreldrar hafi ekki,
fjárhagsins vegna, efni á aS senda
börn sín í sifka dvöl.
□ RÁÐNINGARSKRIFSTOFA
BÍJNAÐARFÉLAGSINS
Gert er ráð fyrir, að í júní
mánuði hafi um 8 hundruð
börn sótt um sumardvöl til
skrifstofunnar, en hins vegar
verði ekki hægt að ráðstafa
nema þess hóps, í mesta
lagi. Er. hér einungis um.
Reykjavíkurbörn að ræða. A1
gengt er að jafnframt því að
foreldrar leiti til skrifstofunn
□ VATNASKÓGUR -
VINDÁSHLÍÖ
KFUM og KFUK hafa í mörg
ár staðið fyrir sumarbúðum
fyrir börn og unglinga. Á veg
um KFUM munu um 700 dreng
ir á aldrinum 10—17 ára dveij
ast í Vatnaskógi. Er þar af
um 600 innan við fermingu.
gr þegar fullskipað í flokka
10—11 ára drengja og um 170
nú þegar á biðlista. Er hér um
að ræða eins til tveggja vikna
dvöl. Á vegum KFUM dvelja
um 600 stúlkur í Vindáshlíð í
sumar. Dvalartími í Vindás-
hlíð er yfirleitt vika til 9 dag
ar. Yfirfullt er í flesta flokka
og margir á biðlista. Meirihluti
stúlknanna er á aldrinum 10
til 12 ára. Aðsóknin að þess-
um tveim sumarbúðum er
Framhald á bls. 3
ar reyni þeir sjálfir að útvega
börnum sínum dvalarstað, og
fer hlutfallstala þeirra sem
Kægt verður að koma fyrir á
vegurrí félagsins eftir því
FERDAMÁLARÁÐSTEFNA
hvernig foreldrum tekst til.
HALDIN UM NÆSTU HELGI
3. viötaliÓ
Þriðja viðtalið við Jón
Sigurðsson birtist í Al-
þýðublaðinu í dag á 4. og
5 síðu. Þar segir frá því
er Jón gerðist erindreki
og fyrstu afskiptum hans
af verkalýðsmálum.
Ferðamálaráð he'fir ákveðið að
boða til ferðamálaráðstefnu
að Höfn í Hornafirði, laugar
daginn og sunnudaginn 18. og
19. maí n.k. Ráðstefnan verð-
ur sett kl. 10 f.h. 18. maí.
Fyrirkomulag ráðstefnunnar
verður með svipuðum hætti
og sl. ár.
■ Á dagskrá verður m.a.:
Skýrsla um störf Ferðamála-
ráðs á árinu 1967. Ferðamála
sjóður og framtíð hans (Ólaf-
ur St. Valdimarsson, deildar-
stjóri). Ferðir um óbyggðir ís-
lands (Hallgrímur Jónasson
kennari) Veiðimál (Þór Guð-
jónsson, veiðimálastjóri) Land
kýnning (Ludvig Hjálmtýsson)
Um íslenzkan heimilisiðnað
(Gerður Hjörleifsdóttir).
Auk hinna fyrirfram á-
kveðnu dagskrármála er ákveð
ið að undir dagskrárliðnum
önnur mál verði opinn vett-
vangur til að ræða önnur atr-
iði ferðamálanna.
Vegná ferðámálaráðstéfn-
unnar verður flugferðum hátt
að þannig: Flogið verður frá
Reykjavík föstudaginn 17. maí
kl. 15.30, og farið verður frá
Höfn á sunnudagskvöld kl.
23.30,
Flugfélag íslands hefir nú
Framhald á bls. 3
| Umferðar-
[ breytingar
i MIKLAR framkvæmdir
[ standa yfir á Suðurlands-
1 braut e'inkum á kaflanum
[ á milli Álfheima og Grens-
= ásvegar. Þar er unnið að
því að breikka Suðurlands
brautina og vérður hún á
þessum kafla tvöföld ak-
braut á svipaðan hátt og
Miklabrautin. Uppdráttur-
inn sýnir, livernig Suður-
landsbrautin mun líta út
aö loknum breytingum.
Stefnt er að því, að þeim ;
verði lokið fyrir H-dag. =
Ný umferðarljós koma j
bæði á gatnamótin við ]
Álfheimana og Grensás- É
veginn. í sumar verður |
lagt malbiksyfirlag á Snð I
urlandsbraut frá Álfheim- |
um að Elliðaám.
«
lllllllllllÍllllÍIIIÍIIIHlÍÍIIHIIIIMIIHIHIIIIlÍmillimilllÍllllllllrtllllllÍllllMllMIIHIIIÍÍIW'HIIIWtl