Alþýðublaðið - 27.08.1968, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 27.08.1968, Blaðsíða 1
ÞriSjudagur 21. ágúst 1968 — 49- árg. 167- tbl. Rússar kalla heim herinn, en Tékkar fá ritskoðun Talið er víst, að leiðtogar Rússa og Tékka hafi kom izt að samkomulagi í Moskvu í gærkvöldi. Samn- ingurinn kveður svo á, að innrásarherimir hverfi á brott frá Tékkóslóvakíu á næstimni, en Tékkar verði að hverfa frá prentfrelsi. Þá munu hersveit- ir frá Varsjárbandalaginu vera áfram við landamæri Þýzkalands og Tékkóslóvakíu. Innrásarsveitimar herða hins vegar tökin í Tékkóslóvakíu og í gær höfðu þær algjörlega einangrað Prag. F,rá Bonn bárust þær fréttir seint í gærkvöldi. aS útvarps stöðin ,,frjáls Prag“ hefði skýrt frá því, að Cernik for sætisráðherra hefði talað við Strougal varaforsætisráðherra í síma frá Moskvu og sagt honum að viðræðurnar héldu áfram og væri nú verið að ræða mikilvægustu atriðin í samningunum. Jafnframt* hefði Cernik skýrt svo frá, að sendinefndin legði kapp á að ljúka viðræðunum sem fyrst. Hann hefði og sagt, að sendi- nefndin fylgdist með ástand- inu í Tékkóslóvakíu og að hann hygðist ræða niðurstöð ur samningaviöræðnanna við embættismenn og almenning, þegar sendinefndin kæmi heim. Talið er, víst' að sovézkir og tékkneskir leiðtogar hafi gengið frá samkomulagi í Moskvu í gærkvöldi. Samkvæmt því munu árásarhersveitirnar fara frá Tékkóslóvakíu, en hins vegar verður prentfrelsi afnumið í landinu. Tékkar fá að framfylgja framkvæmdaáætlun sinni og allir opinberir starfsmenn fá að halöa stöðum sínum, einnig þeir sem Rússar höfðu stimplað sem hægri sinnaða endurskoðun- arsinna. Brottflutningur herja Varsjárbandalagsins hefst, þegar stjórn landsins og flokksforyst- an hefur verið styrkt í sessi. i .................. Flokksþing demákrata i Það getur á hinn bóginn tekið allt frá nokkrum dögum og upp í tvo mánuði að því er upplýst var í sendiráði Tékkóslóvakíu í Moskvu, en talsmaðnr sendi- ráðsins skýrði frá samkomulagl inu, sem nást hafði. Annars bar fréttum af samn- ingaviðræðunum ekki alveg sam- an. í einni frétt sagði, að mála- miðlun hefði tekizt í gærmorg- un, en rætt yrði um smáat.riði um kvöldð. Önnur frétt hermdi hins vegar, að samningaviðræð- um væri lokið og efnt yrði til fundar æðstu manna árásarríkj- anna og Tékkóslóvakíu. Svo til öll forsætisnefnd tékk- neska kommúnistaflokksins tók þátt í viðræðunum í Moskvu und ir forystu gvoboda forseta, Dub- ceks flokksleiðtoga og Cerniks forsætisráðherra. Enginn stað- festing hefur fengizt á samkomu laginu né heldur þeirri frétt, að hersveitir frá’ Varsjárbandalag- inu verði við landamæri Tékkó- slóvakíu og Vestur-Þýskalands. Sovézkar fréttastpfnanir hafa ekkert minnzt á samningana. Sumar fréttir hermdu, að öll tékkneska sendinefndin vildi komast til Prag í gærkvöldi, en í öðrum fréttum var sagt, að að- eins hluti sendinefndarinnar vildi snúa heim. Sovézk blöð héldu áfram ár- ásum sínum á Tékkóslóvakíu í gær og gagnrýndu ýmislegt það, sem algengt er orðið í öðrum Austur-Evrópulöndum, svo sem betra samkomulag við vestræn ríki, efnahagsframfarir hyggðar á gróðarsjónarmiði og nektar Samkvæmt frétt frá frönsku fréttastofunni AFR sátu leiðtogar allra innrásarríkjanna fundinn í Moskvu í gærkvöldi. Heimildir fréttastofunnar í Moskvu segja, að tilgangurinn hafi verlð sá að fá þá til að gangast inn á sam- komulag það, sem tekist hafði með sovézkum og tékkneskum leiðtogum. Innrásarherirnir herða stöð- ugt tökin í Tékkóslóvakíu, eink- um í höfuðborginni Prag, sem nú hefur algjörlega verið einangruð. Fá engir að fara til borgarinnar eða þaðan. Frjálsar útvarpsstöðv- ar halda því fram, að Rússar dragi samningaviðræðurnar á Framhald á bls. 15. Samið í Reykjöyík í frétt frá utanríkisráðu neytinu segir að í gær hafi verið undirritaður í Reykjavík viffskiptasamn- ingur til þriggja ára miili íslands og Sovétríkjanna. Vt'íffa viðskipti landanna áfram á jafnkeypisgrund- velli og var samið um svipaffa árlega vörulista og vörumagn og verið hef ur undanfarin ár. Sovézk sendinefnd hef- ur dvalizt hér á landi við samningagerffíiína síffan 17. þ. m. A N. Manzhulo for- stjóri Vesturlandadeildar utanrikisviðskiptamála- ráffuneytis Sovétríkjarina ar og undirritaffi hann sam ar og udirritaffi hann sam komulagið í gær, en af ís- lands hálfu undirritaði það Emil Jónsson utanrík isráffherra Formaffur ís- lenzku samninganefndar- innar hefur verið Þórhall ur Ásgeirsson ráðuneytis- stjóri. MILLJO Sjá bls. 2, ■■■■■■■□■■■■■■■■■■■■■■■■■■■! Milljónajón varð afffaranótt snnnudagsins, er þrjú hús í Kópavogi brunnu til kaldra kola. í húsum þessum var Tré smiffja Kristins Ragnarssonar til húsa. Nýjar, fullkomnar vél ar og efni, bæffi unniff og ó- unniff, varff eldinum að bráff. Nærliggjandi íbúffarhús var lengi í stórhættu,. og voru íbúarn ir látnir yfirgefa þaff, en slökkvi liffsmönnum tókst aff koma í veg fyrir, aff eldurinn læsti sig í þaff einnig. Trésmiðja Kr. Ragnarssonar var mjög nýtízkulegt fyrirtæki og vann aff stórverkefnum fyrir Framkvæmdanefnd byggingar- áætlunar í Breiðholtshverfi. Stór hluti af því unna efni, sem varð eldinum aff bráff, voru innrétt ingar í nýbyggingar í Breiðliolts hverfi. Eldsupptök eru ókunn, en Ásmundur Guffmundsson, rannsóknarlögreglumaffur í Kópavogi vinnur nú að rann- sókn málsins. Slökkvilið Reykjavikulr féikk tilkynningu um brunann að Ný býlavegi 52 í Kópavogi ellefu mínútur eftir klukkan tólf á taugardagskrvöld. Þegar fyrsti slökkviliðsbíllinn kom (upp á Öskjuhlíðina, blöstiu eldtungur við hirninn. Var allt slöikkviliðið ka'llað út samstundis. Alls unnu um fjörutíu slökkviliðsmenn við slökkvistarfið. Húsin, ®em bruninu, voru þrjú sambyggð hús, itvö úr timbri og klædd bárujámi, en hið þriðja ,var með steyptum veggjum. Framald á 15. síðu. Myndina tók Bjarnleifur í fyrrinótt, þegar eldurinn var í liámarki.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.