Dagur - 14.09.1939, Blaðsíða 1

Dagur - 14.09.1939, Blaðsíða 1
DAGUR kemur V. á hverjum fimmtudsgi Kostar kr. 6.00 áig. Gjaldk. Árni Jóhannsson • Kaupfél. Eyfirðinga. Gjaldd. fyrir 1. júli. XXI! . árg. j AFGREIÐSLAN er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Tal- simi 112. Uppsögn, butidin við áramót, sé kornin til afgreiðslu- manns fyrir 1. des. Akureyri 14. september 1939. Stríði Pjóðverjar herða stöðugt sókn sína í Póílandi. Pólski herinn ver Varsjá af mikilli hreysti. - Pjóðverjar á undanhaldi fyrir Frökkum á vest- urvígstöðvunum. Allt brezka heimsveldið hefir lýst yfir stríði við Pýzkaland. Þjóðverjar sækja ákaft fram í Póllandi. Fyrir nokkru brutu þeir sér braut gegnum pólsku göngin og auk þess náðu þeir námuhérað- inu í Efri-Slésíu á sitt vald. Þeir segjast og hafa unnið Kraká, hina fornu höfuðborg landsins, en Pól- verjar neita því að það sé rétt. Nú síðustu dagana hafa Þjóð- verjar lagt megináherzlu á að ná höfuðborginni, Varsjá, á vald sitt, en mætt hinni hörðustu mót- spyrnu. Pólska stjórnin flutti 6. þ. m. frá Varsjá til Lublin, sem er 200 km. sunnar og austar í land- inu. Undanfarna daga hafa bar- dagar um höfuðborgina verið í al- gleymingi, og hafa þýzkar flug- vélar gert ákafar og endurteknar árásir á hana, en allt til þessa hef- ir hún verið í höndum Pólverja og segjast þeir verja hana til síð- asta manns. Franskur her hefir ráðizt inn í Þýzkaland, og hófust þá bardagar við landamærin, milli Mosel og Rín. Hefir her Frakka sótt fram með fótgönguliði, flugvélum og skriðdrekum í Saarhéraðinu og til stærstu borgar þess, Saarbriicken. Hafa fallbyssudrunurnar heyrst þaðan alla leið til Luxemburg. Tóku Þjóðverjar þá að senda liðs- auka til vesturvígstöðvanna og jafnframt var farið að flytja fólk af stórum svasðum í Rínarhéruð- unum austur á bóginn. Síðan hef- ir stórskotalið Frakka haldið uppi stöðugri skothríð á víggirðingar Þjóðverja við landamærin. Her Þjóðverja heldur hægt undan og sprengir á eftir sér bæði brýr og vegi, til þess að tefja sókn Frakka. Margar kolanámur eru sagðar fallnar í hendur franska hersins á þessu svæði. Skriðdrekar Frakka eru 75 smá- lestir að þyngd og fylgir fótgöngu- liðið á eftir þeim. Bretar eru ekki aðgerðarlausir. Brezki flotinn eltir uppi öll þýzk skip á höfum úti. Er þegar fjöldi af þeim tekinn, en önnur hafa leitað sér hælis í hlutlausum höfn- um. Er tilgangur Breta að hreinsa höfin af öllum þýzkum skipum. Auk þess halda Bretar áfram flugi yfir Þýzkaland og varpa niður miljónum af áróðursmiðum. Þá eru Bretar og í óðaönn að flytja lið yfir til Frakklands, til þess að taka þátt í sókn Frakka á vestur- vígstöðvunum. Það bar til nýlundu s. 1. mánu- dag, að tveir íslenzkir snilldar- menn létu til sín heyra í sam- komuhúsi bæjarins. Björn Ólafs- son lék á fiðlu, en undirleik ann- aðist Árni Kristjánsson. Björn Ól- afsson er kornungur maður, en hefir lokið prófum frá tónlistar- skóla Reykjavíkur og tónlistarhá- skólanum í Vínarborg, og var þá strax tekinn í Fílharmoni-orkester Vínarborgar, sem er heimsfræg hljómsveit. Það eitt sýnir hvers vænta má af hinum unga manni. Björn á til listamanna að telja í báðar ættir. Ólafur faðir hans var ágætur raddmaður, en Björn Jóns- son, ráðherra, afi hans, var þre- menningur við Gest Pálsson skáld. í móðurætt er Björn fjórði maður frá séra Guðmundi Einarssyni á Breiðabólsstað, en Guðm. var móðurbróðir Matthíasar Jochums- sonar; málarinn Guðm. Thor- steinsson var móðurbróðir Björns. Árni Kristjánsson er öllum hér kunnur. Björn Ólafsson sýndi á þessu tónleikakvöldi, að hann hefir numið mikið og tækni hans á öll- um sviðum mikil og skilningur hinn bezti, en fullkominn er nú enginn í upphafi, og eg geri ráð fyrir því, að nazkur listdómari hefði eitthvað sett út á, t. d. að eigi væru allir tónar jafnfagrir og vissir, en þessi ungi maður á svo mikið af músík, að eg tel lít- inn vafa á, að með aldri og þroska geti hann öðlast sæti við hlið snillinganna. Viðfangsefnin sýndu list hans Þjóðverjar herða á kafbátahern- aði sínum og hafa grandað all- miklu af brezkum skipum. Suður-Afríka og Kanada hafa sagt Þjóðverjum stríð á hendur, og eiga þá Þjóðverjar í stríði við allt brezka heimsveldið. Chamberlain hefir lýst yfir, að friður yrði ekki saminn, fyrr en Hitlers-hættunni væri rutt úr vegi. Þá hefir þýzka stjórnin tilkynnt, að hér eftir verði beitt öllum ráð- um til þess að færa Pólverjum heim sanninn um, að öll vörn frá þeirra hálfu sé árangurslaus. Mun það ætlun Þjóðverja að knýja sem fyrst fram úrslit í Póllandi, en snúa síðan öllum herstyrk sín- um að vesturvígstöðvunum gegn Frökkum og Bretum. og leikni frá öllum hliðum. Erfið- asta viðfangsefnið var Fiðlukon- sert Beethovens, og gerði hann honum ágæt skil, en svo frábær var undirleikur Árna Kristjáns- sonar, að nærri stappaði, að hann skyggði á fiðluleikarann sjálfan í þessum þáttum Beethovens. í Romance Svendsens, sónötu Paga- ninis, Slavneska dansinum hans Dvðráks og Aríu Matthesons, var leikur Björns snilldarfagur og mesta unun á að hlusta. Undir- leikur Árna Kristjánssonar var rneð þeim ágætum, að eg hefi sjaldan orðið svo gagntekinn af píanoleik, sem þetta kvöld. Styrk- ur, festa, natni, músikþroski, dýpt: listfengi í orðsins bezta skilningi, — snilld. Björn Ólafs- son og Árni Kristjánsson eru þjóðarprýði. Ef dæma ætti eftir aðsókn þetta kvöld, þá mætti ætla, að sú göf- uga list ætti hér ekki upp á pall- borðið. Vitanlegt er þó það, að ein eru það andlegu verðmætin, sem því hafa valdið og valda enn, að íslendingar eru að nokkru metnir; því ber oss eftir getu að styðja listir og bókmenntir. Auditor. Dansskemmtun heldur U. M. F. Saurbæjarhrepps laugardaginn 16. sept. n. k. að Saurbæ, kl. 9 e. h. Haustfundur Kennarafélags Eyjafjarðar hefst í barnaskóla Ak- ureyrar 30. sept., kl. 1 e. h. Svar til „Spuruls“ verður að bíða næsta blaðs sökum rúmleys- is í blaðinu í dag. j 37. tbl. KIRKJAN: Messað n. k. sunnu- dag í Akureyrarkirkju kl. 5 e. h. Knattspyrnumót III. fl. fer fram næstk. sunnudag, kl. 11 f. h., á „Þórs“-vellinum. — K. A. og „Þór“ keppa. Fundur verður haldinn í Kven- félagi Akureyrarkirkju í kirkj- unni, eftir messu n. k. sunnudag. Ferðanefnd F. F. A. biður þess getið, að vegna takmarkana á bílanotkun, geti ekki orðið af skemmtiferð félagsins að Hrauns- rétt, næsta sunnudag. liislóli Akureyrar verður settur mánudaginn 16. okt. n. k. kl. 8 e. h. Nýir iðnnemar og þeir, sem hafa í hyggju að taka próf milli bekkja í haust, tali við undirritaðan sem fyrst. KVÖLDDEILD skólans tekur, svo sem að undanförnu, við nemendum í íslenzku, dönsku, reikningi, bókfærslu og jafnvel teikningu. — Ennfremur verður kennd þýzka í byrjenda- og fram- haldsflokkum. — Skólagjald mjög sanngjarnt. Þar sem húsnæði er all-takmarkað ættu umsækjendur að tala sem fyrst við undirritað- an, sem gefur allar nánari upp- iýsingar um skólann. Til viðtals í Klapparstíg 1, sími 274. JÓN SIGURGEIRSSON. Hefi herbergi til leigu fyiir einhleypa. Sig. Jónsson Oddeyrargötn 88. Ráðskonu vantar á fámennt heimili í bænum. R. v á. Handa skólapilfi: Góð stot'a með húsgögnum. Fæði á sama sfað. Uppl. í Verzl. „Esfa“. Jöfðin Dvergsstaiir í Hrafnagilshreppi er laus til á- búðar í næstu fardögum. Túnið er slétt og mestallt véltækt, fóðr- ar 7 kýr. Ræktunarskilyrði góð. Um 300 hesta engjar. Vel hýst. Frekari upplýsingar veitir Björn Halldórsson málafl.m., Akureyri. Herbergi til leigu, fyrir einhleypa, i Strandgötu 51. Simi 152. Fiðlutónleikar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.