Dagur - 21.11.1951, Blaðsíða 1

Dagur - 21.11.1951, Blaðsíða 1
12 SÍÐUR Auglýsendur! Munið, að aug- lýsingar verða að vera komn- ar til afgreiðslunnar eða í prentsmiðjuna fyrir kl. 2 á þriðjudögum. Afgreiðslan biður kaupendur að innleysa greiðlega póst- kröfur þær fyrir andvirði blaðsins, sem hafa verið send- ar út þessa dagana. XXXIV. árg. Akureyri, miðvikudaginn 21. nóvember 1951 46. tbl. Fáni Sameinuðu þjóðanna blaktir yfir París Fáni Sameinuðu þjóðanna sést hér blakta yfir Palais de Chaillot, þar sem S. Þ. opnuðu sjötta aðalþing sitt 6. þ. mán. og sitja nú að störfum. — Á baksviði myndarinnar sést Eiffelturninn. 1946 voru 9,36 af hundraði í 3. og 4. gæða- fiokki, en nú ekki néma 3,98 Vöndun mjólkurframleiðslunnar liefur aukizt mjög liér á landi síðustu árin. 9,36% rannsakaðrar mjólkur hjá 6 mjólkurbúum voru í 3. og 4. gæðaflokki árið 1946, en aðeins 3,98% árið 1950. Hefur þeim bændum fjölgað jafnt og þétt, sem aldrei senda 3. og 4. flokks mjólk til búanna, og allmargir láta nánast aldrei frá sér fara 'annað en 1. flokks mjólk. Eðvarð Friðriksson mjólkur- eftirlitsmaður ríkisins hefur und- anfarin 5 ár (1946—1950, að báð- um meðtöldum) gert ýtarlega at- hugun á mjólkurframleiðslunni og lagt kapp á að leiðbeina fram- leiðendum til meiri vöi'uvöndun- ar. Hefur hann nú ritað bækling, sem heilbrigðismálaráöuneytið gefur út ,og skýrir hann þar frá athugunum sínum og ber fram tillögur um aukna vöruvöndun mjólkurinnar. ElSvarð hefur fei'ðazt um land- ið þessi ár og rætt við framleið- endur, og samkvæmt athugunum hans má skipta þeim í þrjá aðalflokka: A þeir, sem vegna heilbrigðisvenja, metnaðar og kunnáttu framleiða eing'ingu 1. fl. mjólk án tillits til fyrirhafnar og verðs, B þeir, sem fást til þess r að notfæra sér leiðbeiningar um vöruvöndun í von um aukinn hagnað, og C þeir, sem hvorki hafa metnað né framtak til þess að framleiða óskemmda vöru. í síðasttalda flokknum kveður hann vera aðeins um 1 af hverj- um 300. Það kemur í ljós, að „beztu“ og „verstu“ framleiðendurnir búa við sömu flutningaskilyrði, fjósbyggingin hefur ekki áhrif á gæði mjólkurinnar, góð kæling á mjólkinni heima hjá framleið- anda er mikilvæg, óhrein mjólk- urílát eru ein aðalorsök mjólk- urskemmdanna o. s. frv. Þá þykir sannað með saman- burði, að eins góð - mjólk að minnsta kosti sé framleidd hér á landi og í Svíþjóð t. d. r r Oþokkaverk Nýlega bar svo við í húsi einu, er stendur neðarlega við Oddeyrargötu hér í bæ, að hnefastórum steini var skyndilega varpað inn um glugga á svefnherbergi hús- ráðenda. Þetta mun hafa verið um miðnæturskeið, og voru hjónin gengin til náða, en barn þeirra, fárra vikna gamalt, svaf þar í vöggu skammt frá rúmi foreldra sinna. Hrundu glerjabrotin langt inn á gólf í svefnherberginu, en stcinninn hafnaði rétt hjá vöggu barns- ins. Svo heppilega vildi þó til, að hvorki barnið né foreldra þess sakaði. — En því er þessa fúlmennskuverks getið hér m. a., að gjarnan mætti óþokk- inn, sem var þarna að verki, hugleiða það, að ekki er það honum að þakka, að eltki hlauzt stórslys af þessu tiltæki hans, heldur er það guðsmildi, að ekki fór ver í þetta sinn. Kaupgjaldsvísitalan Kauplagsnefnd hefur í'eiknað út kaupgreiðsluvísitölu fyrir nóvember með tilliti til ákvæða 6. gr. laga nr. 22/1950, og reyndist hún 144 stig, og greiðist á kaup frá 1. desember. Hefur vísitalan því hækkað um 5 stig ,en frá 1. september hefur hún verið 139 stig. Kauplagsnefndin hefur enn- fremur reiknað út vísitölu fram- færslukostnaðar í Reykjavík hinn 1. nóvember sl. og reyndist hún 151 stig miðað við grunntöl- una 100 hinn 1. marz 1950, og hefur hækkað um tæpt eitt stig, en síðast var hún 150,55. N Útvarp liafið frá Keflavík Síðastl. fimmtudag tók til starfa á Keflavíkurflugvelli lítil útvarpsstöð á vegum varnarliðs- ins. Hófst útvarpið kl. 6 með því að E. J. McGaw hershöfðingi ávarp- aði menn sína, en síðan var út- varpað fréttum, hljómlist og þar fram eftir götunum. Útvarpað verður framvegis — nema sunnudaga — kl. 6—12. Er út- varpið á 1484 kc., eða 20 m. LEIKSKÓLI Ingibjargar Steins- dóttur leikkonu var settur síðastl. miðvikudag, og er honum ætlað að starfa um fjögurra mánaða skeið. Nemendur eru 9 að tölu, oe hefur frú Ingibjörg loforð þjóð- leikhússstjóra fyrir því, að efni- legir nemendur frá henni verði (eknir beint í leikskóla Þjóðleik- hússins, ef þeir óska. ast kjötskort í landinu Nægilegt kjöt eftir til innanlandsneyzlii Helgi Petursson, framkvænida- dilkakjöti en vér höfum tök á að stjóri útflutningsdeildar Sam- notfæra oss að þessu sinni, og að bands íslenzkra samvinnufélaga, því er virðist fyrir hærra verð en hefur sent blöðunum svolátandi áður segii'. Af ýmsum mikilvæg- greinargerð um útflutning SÍS á um ástæðum væri óverjandi að dilkakjöti af framleiðslu þessa árs: Atvikin hafa hagað því þannig, að Samband íslenzkra samvinnu- félaga varð á undan öðrum aðil- um að taka afstöðu til útflutnings á íslenzku dilkakjöti, þar sem það er í verkahring Sambandsins að sjá um sölu á kjötframleiðslunni. Vegna margra frásagna, og sumra villandi, um þetta mál, telur Sambandið rétt að skýra stutt- lega frá málavöxtum fyrir þá, sem vilja hafa það, er sannara reynist. Betra verð erlendis. Tilraunir, sem Sambandið gerði á síðastliðnu ári með útflutning á dilkakjöti til Bandaríkjanna, hafa þegar leitt til þess, að hægt er að ná þar í landi hærra verði fyrir íslenzka kjötið en hinu lög- bundna verði hér heima. Þegar upplýsingar bárust um þetta síð- ustu dagana í september, sótti Sambandið til ríkisstjórnarinnar um útflutningsleyfi fyrir 800 smá lestum af dilkakjöti af fram- leiðslu samvinnufélaganna, sem eiga flestöll sláturhús landsins, en þetta var það magn, sem kaupendur óskuðu að festa kaup á þá þegar. Eftir nokkra daga veitti ríkisstjórnin útflutnings- leyfi fyrir 700 smálestum af til- teknu verði, og er oss ókunnugt um, hvers vegna • leyfið var minnkað um 100 smál. Vai' þá sti'ax gengið frá sölusamningum um þetta magn, og var söluverðið að meðaltali 45,286 cent fyrir enskt pund cif. New York, en það svarar til kr. 14,95 fyrir kg. frítt um borð á íslenzkum höfnum. Af kjötinu voru 502,5 smálestir sendar vestur með „Lagarfossi" 31. október, og afganginn, 197,5 smálestir, á að senda í desember eða janúar næstkomandi. Þetta er allur sannleikurinn um sölu og útflutningsleyfi, það sem af er. Hægt að selja meira. En nú er komið á daginn. sem öllum íselndingum ætti að vera fagnaðarefni, að engin fyrirstaða er á sölu til Bandaríkjanna á miklu meira magni af íslenzku láta þetta tækifæri ónotað. Safn- aði Sambandið því við lok slátur- tíðar upplýsingum um, hve mik- ið væri óselt af útflutningsverk- uðu dilkakjöti. Virðist vera um 600 smálestir að ræða. Sendi Sambandið ríkisstjórninni um- sókn um útflutningsleyfi fyrir þessu kjöti fyrir nokkrum dög- um, en svar ríkisstjórnarinnar er ókomið enn, og ekki vitað hvað veldur drættinum. Nægjanlegt efíir af kjöti. Nú er það fyllilega ljóst, að ís- lendingar geta sjálfir neytt allrar dilkakjötsframleiðslu sinnar, eins og hún er nú. Spurningin er að- eins, hvort það sé nauðsynlegt eða skynsamlegt. Arnór Sigur- (Framhald á 12. síðu). Almennur fundur um áfengismál var haldinn í samkomuhúsinu á Akureyri þann 15. nóv. sl., að tilhlutun Umdæmisstúku Norð- urlands, Áfengisvarnarnefndar Akureyrar og Áfengisvernar- nefndar kvenna á Akureyri. — Fundui'inn var mjög fjölmennur. Fundarstjóri var Þorsteinn M. Jónsson, skólastjóri. Aðalræðu- maður var séra Jakob Jónsson, sóknarprestur í Reykjavík. Flutti hann afbui'ðasnjalla ræðu um áfengismál þjóðarinnar, og hvað helzt er hægt að gera til varnaðai' ufengisbölinu. Aðrir ræðumenn á fundinum voru: Brynleifur Tob- iasson, skólameistari, Eiríkur Sigurðsson, yfirkennari, frú Filippía Kristjánsdóttir, Guð- mundur Karl Pétursson, yfir- læknir, og Stefán Ág. Kristjáns- son, forstjóri. Meðal annars, sem fram kom á fundinum, var það, að framleiðsla á sterku öli í landinu væri hættulegt fyrir þjóðina, og ekki kæmi til mála, að Alþingi samþykkti það án þess að leggja það fyi'st undir þjóðar- atkvæði, þar sem það væri það eina, sem eftir væri af hinu gamla áfengisbanni. í lok fundarins voru sýndar tvær kvikmyndir og var önnur þeirra frá Stórstúkuþinginu á Akureyri í sumar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.