Dagur - 11.06.1958, Blaðsíða 8

Dagur - 11.06.1958, Blaðsíða 8
8 Baguk Miðvikudaginn 11. júní 1958 Gífurlegt tjón á bifreiðum á Ak. Við erum í siðferðilegri lægð í umgengni og um- ferðamálum - Umferðavika nauðsynleg Undanfarna daga og vikur hafa verið tíðir bifreiðaárekstrar og ,,útafkeyrslur“ hér um slóðir. — Slys á mönnum hafa þó verið færri en ætla mætti eftir útliti hinna skemmdu bifreiða að dæma., sem vart hafa verið þekkjanlegar á eftir, sumar h'verjar. Án þess að gera” neina skýrslu um þennan þáttumferða- mála, skal þó bent á eftirfarandi: Rússnesk bifreið valt út af vegi við Glerá, margar veltur. Skoda- bifreið lá á hvolfi á vegarbrún í Giljareitum. Báðar þessar bif- reiðrr stórskemmdust, en farþeg- ar sluppu ómeiddir að kalla. De Soto-bifreið ók út af vegi í Ong- ulsstaðahreppi og skemmdist mikið. Ford Junior sömuleiðis. Austin-bifreið hvolfdi á leið í Laugalandi- og bifreið gjöreyði- lagðist er henni var ekið út af vegi skammt frá Kristnesi. — 1 þessum veltum og útafkeyrslum urðu tveir menn fyrir beinbroti. A sanra tíma hafa orðið margir árekstrar í bænum og tjón af öllu jiessu alveg gífurlegt. Auk þessa alls hafa svo drukknir menn og ófyrirleitnir unglingar gert sér leik að því að grýta bifreiðir og valda skemmdum á þeim á annan hátt. Einn slíkur þurfti t. d. að greiða á fjórða þúsund krónur fyrir grjótkast á bifreið. Olvun hefur verið með meira móti að undanförnu og virðumst við vera í eins konar siðferðilegri lægð um þessar mundir í um- ferðamálum og almennri um- gengni. Mörgum þykir hægast að afgreiða slys og óknytti með því að skella skuldinni á Bakkus, en málið er engan veginn svona auð velt. Þó er víst, að á meðan for- stjórum stórra fyrirtækja, opin- berum embættismönnum, kenni- mönnum og fleiri framámönnum fólksins leyfist að drekka frá sér vit í vinnutíma og á almannafæi'i án algerrar fordæmingar al- mennings, gildir hið fornkveðna: „Hvað höfðingjarnir hafast að, hinir ætla að sér leyfist það.“ Badmintomnóti Akur- cyr ar lokið í umferðamálum þarf bæði strangt eftirlit, og þó fyrst og fremst leiðbeiningar. Umferðavika ætti að áorka miklu, ef hún er vel undirbúin og enginn efi er á því, að al- menningur tæki henni fagnandi. Engin veldur slysum viljandi og öllum er hollt að glöggva sig á umferðalögunum. Þótt umferða- vika kosti nokkurt fé, ætti það að sparast í færri slysum á mönnum og tækjum. Ólafur Stefánsson, Ánastöðum. Þessi mynd átti að fylgja grein- inni „Snjóflóð á Ánastöðum 1871“, en varð síðbúin í blaðið. — Frá ársþingi Ungmennasambands Skagafjarðar Badmintonmót Akureyrar fór fram í Iþróttahúsinu, og er því lok- ið lyrir nokkru siðan. Urðu úrslit sem hér segir: Einiiðaleik kvenna sigraði Elín Sigurjónsdóttir, K. A. Einliðaleik karla sigraði Gunnar Hjartarsnn, K. A. I'venndarkepþni sigruðu Elin Sigurjónsdóttir, K. A. og Gísli Bjarnason, K. A. Tvíliðaleik karla unnu Einar Helgason, K. A., og Gísli Bjarna son, K. A. DAGUK kenrur næst út á fimmtudaginn 19. júní. Auglýsingar þurfa að hafa borizt fyrir hádegi á mið vikudag. Ársþing Ungmennasambands Skagafjarðar var haldið á Sauð- árjcróki dagana 3. og 4. maí sl. — Þingað sátu yfir 30 fulltrúar frá 8 ungmennafélögum, auk stjórnar sambandsins. Formaður sambandsins, Guð- jón Ingimundarson, setti þingið og bauð fulltrúa velkomna til starfa. Þá bauð hann sérstaklega velkominn forseta ÍSÍ, Benedikt G. Waage, sem kominn væri um langan veg til þess að sitja þetta þing og kynnast störfum þessara félagssamtaka. Taldi hann slíkar heimsóknir gagnlegar fyrir báða aðila. Þá drap hann á það, að á þeim árum, sem nú væru að líða ættu mörg ungmennafélög að minnast 50 ára starfs. Oðum styttist nú til þess að Ungmenna- samband Skagafjarðar fyllti sína 50 ára tilveru, þar sem það væri stofnað 1910. Þingforseti var kosinn, ásamt formanni, Stofán Guðmundsson og ritarar Gísli Felixson og Egg ert Olafsson. Forseti ÍSÍ, Ben. G. Waage, flutti kveðjur frá ÍSÍ til Ung- mennasambandsins og þingsins. Færði hann Umf. Tindastól á Sauðárkróki oddfána ÍSÍ, en það félag hafði nýlega minnzt 50 ára starfsafmælis. Þá gaf hann bikar til að keppa um í 200 m. bringu- sundi kvenna á sundmóti sam- bandsins. Voru honum þakkaðar góðar gjafir og árnaðaróskir. Á starfsskýrslu sambands- stjórnar, sem formaður flutti, kom skýrt í ljós, að starfsemin hafði verið mikil og margþætt á sl. ári, og meiri en nokkru sinni áður. Á árinu hafði sambandið meðal annars staðið fyrir íslands meistaramóti í handknattleik kvenna úti, en það mót var háð á Sauðárkróki 10. og 11. ágúst. Er það í fyrsta skipti, sem samband ið sér um framkvæmd á lands- móti. Margs konar tillögur voru sam- þykktar varðandi málefni sam- bandsins, svo sem um mót og kappleiki. Héraðsmótið verður haldið á Sauðárkróki síðustu helgi í júlí (27. júlí). Sundmót sambandsins verður haldið á Sauðárkróki 13. júlí. Ennfremur var knattspyrnumót ákveðið, drengjamót, svo og skákmót, svo að nokkuð sé nefnt. Samþykktar voru tillögur um aukna mál- fundastarfsemi, kvöldvökur, þar sem kynnt væru verk listamanna eða listamenn, skráning á sögu ungmennafélaganna í héraðinu og ýmislegt fleira. Síðasta umferð í skákmóti sambandsins var háð að kvöldi 3. maí. Sex ungmennafélög tóku þátt í því og hafði hvert félag fjögurra manna sveitir. Sigur- vegari að þessu sinni varð Umf. Glóðafeykir og hlaut Axelsbikar- inn að sigurlaunum. í stjórn sambandsins voru kosnir: Guðjón Ingimundarson, Gísli Felixson, Sigurður Jónsson, Stefán Guðmundsson og Eggert Olafsson. Giinnars-keppnin hafin Ein stærsta keppni Golfklúbbs Akureyrar, Gunnars-keppnin Stendur yfir. Keppni þessi er haldin til minningar um hinn ágæta kylf- ing, Gunnar heitinn Hallgríms- son. Að 36 holum loknum er röðin þannig: Ragnar Sigurðsson 152 högg. Magnús Guðmundsson 155 högg Jón Guðmundsson 156 högg. Hafliði Guðmundsson 157 högg. Árni Jónsson 157 högg Ragnar er aðeins 15 ára og sýn- ir óvenjumikið leiköryggi svo ungur. Þar sem þetta mun vera hans fyrsta keppni í golfi, verður fróðlegt að vita hvernig honum tekst n.k. sunnudag, en þá verða síðari 36 holurnar leiknar. Starfsemi G. A. hefur aldrei verið meiri en nú, og eru 20 keppnir á keppnisskrá í klúbbn um fyi'ir sumai'ið 1958. Næstkomandi laugardag, þann 14. júní, vei'ður keppt um Æf- ingabikarinn. Takmarka Svíar mjólkurfram- leiðsluna með stórfelldri slátrun? Lagt til, að 225 |)ús. kúni verði slátrað á næstu þremur árum og fóðurbætir hækkaður í verði Að loknum löngum undirbún ingi, hefir sérstök nefnd manna í Svíþjóð nú loks skilað tillög- um sínum til lausnar hinni svo- nefndu „smjörkreppu“. Tillög- urnar hafa að geyma ákvæði um hækkun smjörlíkisverðs, en lækkun á smjörverðinu. Fækkað um rúmlega 200 þús- und kýr. Til þess að minnka smjörfram- leiðsluna er lagt til, að ríkið greiði um þriggja ára skeið 200 ki'. fyrir hvei-ja kú, sem slátrað er, og verji til þess 15 millj. kr. á ári, sem svai'ar til þess, að 75 þús. mjólkui'kúm yi'ði sláti’að ár- lega, og myndi mjólkui'kúm þá fækka um 225 þús. í Svíþjóð næstu þx'jú árin. Til þess að auka smjörneyzluna í sjúkrahúsum og öði'um opin- berum stofnunum o. s. fi'v. er Mmningarsjóðiir dr. Urhancic lagt Tl, að þremur milljónum ki'óna verði varið til niður- greiðslu á smjöri til þess háttar stofnana. Hækka toll af fóðurbæti. Fulltrúar bændanna hafa fyrir sitt leyti lýst stuðningi við þess- ar tillögur, sem auk þess, sem áður er nefnt, geyma ákvæði um enn fi'ekari stöðvun í aukningu mjólkurframleiðslunnar með því að hækka innflutnings- og fram-’ leiðslugjöld af innfluttum fóðui'- vörum um 10—15 kr. pr. 100 kg. Komist þessar tillögur til fram kvæmda, mun smjöx'vei'ðið lækka um kr. 1.50 (sænskar) úr kr. 7.50 í kr. 6.00. Smjöi'líkið hækkar um 50 aura pr. kg. úr kr. 3.50 í kr. 4.00. Ekki er ólíklegt, að sú kjöt- aukning, sem yi'ði, ef þessar til- lögur næðu fram að ganga, vei'ði til þess að stöðva eða takmarka kjötinnflutning fi'á Danmöx-ku, en hann nemur nú allmiklu magni, eða sem svarar 100 þús. skepnum og fer til þeirra kaupa mikið af gjaldeyi'i. Eins og áður hefur vei’ið getið um í blöðum hefur Þjóðleikhúss- kói-inn stofnað minningai'sjóð í þakklætis- og vix'ðingai'skyni fyrir ómetanleg störf hins látna stjórnanda kói'sins. Sjóður þessi er ætlaður til styrktar lækni til séi'náms í heila- og taugaskui'ðai'lækning- um, en tilfinnanlegur skoi'tur hefur verið á sénnenntuðum lækni í þessari grein hér á landi, svo að ekki var unnt að veita dr. Ui'bancic hjálp. Stjórn sjóðsins hefur nú gefið úr tvenns konar gjafakort: Minningai'kort eins og aðx'ir sjóðir hafa, en auk þess gjafa- kort við hátíðleg tækifæi'i til að minnast dr. Urbancic einnig á gleðistund. Kortin fást á afgi-eiðslu Dags, Hafnarstræti 90, Akureyri, er einnig tekur um leið á móti beinum framlögum til sjóðsins, og er fólk beðið vinsamlegast að minnast þessa. Slökkvilið í knatt- spyrnu Slökkvilið Rvíkur efndi til slökkviliðssýningar með óvenju- legum hætti. Sýningin var fólgin í knattspyrnukeppni milli Slökkvililðs Rvíkur og slökkvi- liðs frá Keflavíkurflugvelli. En í stað þess að nota fætur á knött- inn voru vatnsslöngur notaðar og háþi'ýstidælur. Fékk þar mai'gur væna gusu og völlui'inn vætu. — Áhorfendur voru margir og skemmtu sér hið bezta. Arnfirzkur listamaður opnar málverkasýningu Samúel Jónsson frá Arnarfii’ði, sem oft hefur haldið málvei'ka- sýningar á Vestfjöi'ðum, bg einn- ig í Rvík, er kominn hingað til bæjarins og opnar málvei'kasýn- ingu í Barnaskóla Akureyrar í dag. Ennfremur vei'ða þar nokkrir listmunir til sýnis. Sýningin er opin daglega frá kl. 1—10 e. h. Samúel er 74 ára að aldi'i, unnandi lista og vel þekktur á Vestui'landi. Virðuleg gjöf Skylt er að vekja athygli á veglegri gjöf, sem Dýraverndun- arfélagi Akureyrar hefur borizt í hendur frá Jóni Thorarensen, fyrrv. bóndi í Lönguhlíð. — Þessi sæmdax'maður hefur afhent fé- laginu 10 þúsund kr. gjöf til minningar um son sinn, Stefán Thorarensen, sem lézt hér á Fjórðungssjúkx-ahúsinu 24. jan. 1958. Það er möi'gum kunnugt, að Stefán var frábær dýravinur. Þar áttu fuglar fi-iðland. Samúð og mannúð hafa vissu- lega stjórnað hug og hönd gamla bóndans frá Lönguhlíð, þegar hann ákvað þessa vii’ðulegu gjö£ og tilgang hennar. Guð blessi minningu sonai'ins og ævikvöld hins aldraða heið- ui'smanns. Stjóru Dýraverpdunarfélags Akureyrar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.