Dagur - 25.03.1986, Blaðsíða 6

Dagur - 25.03.1986, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 25. mars 1986 Húsavíkurflugvöllur: „Hér hefur verið flutt úr hreysi í höll“, sagði Matt- hías Bjarnason samgöngumálaráðherra meðal ann- ars þegar hann vígði nýja glæsilega flugstöð við Húsavíkurflugvöll á föstudaginn. Margt manna var við vígsluna, m.a. Sigurður Guðmundsson vígslu- biskup, Pétur Einarsson flugmálastjóri, Hörður Þórhallsson, forseti bæjarstjórnar Húsavíkur og Rúnar Sigmundsson umdæmisstjóri Flugmála- stjórnar, svo einhverjir séu nefndir. Karlakórinn Hreimur söng við athöfnina undir stjórn Úlriks Ólasonar. Nýja flugstöðin sem er hið glæsilegasta hús, er um 2.700 rúmmetrar, en gamla „flugstöðin“ var 9o rúmmetrar. Flugstöðin kostaði rúmar 28 m. kr. Aðalverktaki við bygginguna var Norðurvík hf. á Húsavík. Björn Hólmgcirsson við afgreiðslu í gömlu „flugstöðinni' Björn Hólmgeirsson, umboðsmaður Flugleiða á Húsavík: fleiri á sama stað. Á skrifstofunni í bænum verð- ur tekið á móti vörum sem eiga að fara suður. Skrifstofan á flug- vellinum verður opin frá tíu á morgnana og fram yfir komutíma vélanna, en aldrei skemur en til kl. fimm.“ - Eruð þið að ílytja úr léleg- ustu flugafgreiðslu á landinu í þá bestu? „Ég held að það sé ekki, enn eru svipuð hús í notkun víðar, að vísu fer þeim fækkandi. Við flytj- um þarna inn í stórt og fallegt hús.“ - Hvernig hefur aðstaðan eig- inlega verið fyrir ykkur á flugvell- inum hingað til? „Við höfum skotist þarna suður eftir. Þegar mikið hefur verið að gera hefur biðröðin náð langt út á plan. Pó að þétt sé rað- að komast ekki fyrir í húsinu nema svona 25-30 manns, stand- andi upp á endann. Þegar dyrnar standa opnar á veturna er níst- ingskalt.“ - En nýja húsið? „Umboð Flugleiða á Húsavík tekur hluta af þessu húsi á leigu hjá flugmálastjórn. Það sem að okkur snýr er nokkuð stór vöru- afgreiðsla, skrifstofuherbergi og kaffistofa, annað er á vegum flugmálastjórnar, þannig að að- eins lítið brot af húsinu fer undir okkar starfsemi.“ - Hvernig tilfinning er að flytja í húsið? „Maður er ekki alveg búinn að átta sig á í hverju þetta felst. Þetta verður mikil breyting, nú verður tekið fyrir það að fólk geti farið út að flugvél og beðið þar eftir farangri sínum. Það fær ekki farangur nema inni í húsinu eða heima við húsið. Einnig verður sú breyting að fólk verður að taka farangurinn sinn sjálft, við förum ekki með farangur í bæinn nema sérstaklega sé um það beðið. Þó að við flytjum í nýtt hús er eitt sem við kvíðum dálítið fyrir. Það er reiknað með að við flytj- um farangurinn á vögnum inn í Björn Hólmgeirsson er umboðsmaöur Flugleiða á Húsavík. Það er engin smá- breyting fyrir starfsmenn og farþega að flytja afgreiðsluna úr kofarætlinum á flugvellin- um í nýju flugstöðina. Skrif- stofa Flugleiða á Húsavík hef- ur verið opin á skrifstofutíma en starfsmenn hafa aðeins ver- ið á flugvellinum meðan á afgreiðslu flugvélanna stendur. Tilkoma nýju flugstöðvarinnar hlýtur að hafa breytingar í för með sér. - Björn flugvöllurinn okkar er ekki á Húsavík. „Nei, en hins vegar er nýbúið að löggilda nafnið á honum sem er Húsavíkurflugvöllur. Menn tala oft um að þeim þyki skrítið að flugfreyjurnar tilkynni lend- ingu á Húsavík en svo séu þeir staddir langt úti í sveit. Flug- völlurinn er 12 km frá Húsavík." - Veldur þetta oft misskilningi hjá fólki sem er að koma? Snæfríður Njálsdóttir annast veitingasölu Hægt er að kaupa veitingar á Húsavíkurflugvelli, sú ný- breytni komst á þegar nýja flug- stöðin var tekin í notkun. Það er Snæfríður Njálsdóttir sem býr í Árbót í Aðaldal sem annast veitingareksturinn. Hún býður til sölu sælgæti* kaffi, smurt brauð og heimabakaðar kökur. Til að byrja með verður veit- ingasalan opin meðan á af- greiðslu flugvélanna stendur og Snæfríður ætlar að sjá til með hafa opið lengur ef þörf krefur. „Ég vona að fólk verði ánægt með þessa þjónustu og vilji nota hana,“ sagði Snæfríður. IM á flugvellinum, þannig að fólk þarf sjálft að sækja vörur sínar þangað eða að notfæra sér þjón- ustu sem við bjóðum. Það er heimsending á vörum gegn gjaldi og kostar heimsendingin 70 kr. hvort sem pakkinn er einn eða Hér er Björn að bóka inn fyrstu farþegana í nýju flugstöðinni. „Nei, ég held að menn átti sig yfirleitt á þessu, hins vegar var þetta oft erfitt meðan við höfðum ekki akstur á völlinn því að þá voru leigubílar ekki heldur lil staðar og menn héldu stundum að styttra væri til bæjarins og auðveldara að komast á milli. Nú erum við með fastar ferðir á völl- inn en þær eru ekki nógu mikið notaðar. Oft telur maður 30 til 40 einkabíla þar við Iendingu.“ bókun og vöruafgreiðsla. Við erum áfram með sama símanúm- erið, 41140 og það verður sam- tengt milli skrifstofanna og ferðir frá skrifstofunni á Húsavík eru á völlinn eins og verið hefur. En vöruafhending verður framvegis - Hvaða breytingar verða á afgreiðslu með tilkomu nýju flug- stöðvarinnar? „Öll afgreiðsla hefur verið á Húsavík í mörg ár, við höfum rétt skroppið á völlinn til að afgreiða vélarnar og farið svo með allt okkar hafurtask í bæinn aftur. Nú verður breytingin sú að aðalstöðvarnar verða á flugvell- inum. Eftir sem áður verður söluskrifstofa í bænum opin frá níu til fimm. Hún á að sinna sölu og bókun. Á veilinum verður líka

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.