Dagur - 07.05.1986, Blaðsíða 1

Dagur - 07.05.1986, Blaðsíða 1
69. árgangur Akureyri, miðvikudagur 7. maí 1986 84. töiublaö 'k Bitviimsluíoirít / k Aætlanagerðaifoirít -k Teikniforrít Tölvutæki sf. Gránufélagsgötu 4, 2. hæð Akureyri ■ Sími 96-26155 33,4 milljónir í gatnagerð - þar af 15 milljónir til malbikunar Tillögur um gatnagerð á Akur- eyri iiggja nú fyrir og hafa ver- ið samþykktar í bæjarráði. Voru þær til umfjöllunar í bæjarstjórn í gær og sam- þykktar þar. Tillögurnar hljóða upp á 33 milljónir og 440 þúsund krónur. Mest áhersla verður lögð á malbikun gangstétta í bænum og er áætlaður kostnaður yið það verk tæplega 7,8 milljónir króna. Malbikaðir verða 19 þús. 670 fer- metrar. Gangstéttar við eftirtald- ar götur verða malbikaðar: Ásabyggð, Goðabyggð, Norður- byggð, Suðurbyggð, Vanabyggð. Ásveg, Byggðaveg, Engimýri, Grænumýri, Kambsmýri, Kringlu- mýri, Löngumýri, Rauðumýri, Víðimýri, Áshlíð, Einholt, Langholt, Lyngholt, Miðholt, Stafholt, Stórholt, Þverholt. Austursíðu að Fjölnisgötu og gangstétt að Verkmenntaskólan- um. Áætlaður kostnaður við mal- bikun gatna er rúmar 7,1 milljón króna og verða eftirtaldar götur malbikaðar: Borgarbraut, Dals- braut að innkeyrslu SÍS, Dals- braut að Lundarskóla, Akur- gerði, Kaldbaksgata, Múlasíða, Vestursíða. Alls eru þetta 1.140 metrar og 9.560 fermetrar. Auk þessara verka eru í til- lögunum framkvæmdir við endurbyggingu gatna, nýbygg- ingu gatna, gerð gangstíga, mal- bikun bílastæða og fleira. gej- Steinullarverksmiöjan: Viðræður við Noið- menn skammt undan „Ég held að það sé óhætt að segja að miðað við allt og allt þá gangi reksturinn vel og það er ekkert fyrirsjáanlegt sem gæti orðið til þess að áætlanir okkar standist ekki,“ sagði Þórður Hilmarsson fram- kvæmdastjóri Steinullarverk- smiðjunnar á Sauðárkróki í samtali við Dag í gær. „Við munum hitta Norðmenn- ina 21. maí, en það hefur því miður orðið nokkur dráttur á því,“ sagði Þórður er við spurð- um hann hvað liði viðræðum við norska fyrirtækið sem framleiddi ofn verksmiðjunnar og hefur ekki skilað þeim afköstum sem ábyrgst var. „Við munum á þess- um fundi okkar með Norð- mönnunum leggja fram gögn um fjárhagslegar afleiðingar þess fyr- ir okkur að afköst ofnsins hafa ekki verið eins og til stóð, en þessi gögn eru enn í vinnslu.“ Þórður sagði að afköst verk- smiðjunnar í dag væru um 1100 kg á klukkustund en samkvæmt loforðum Norðmanna ættu þau að vera 1250 kg á klukkustund. Varðandi sölumálin sagði hann að þau væru í góðu gengi, að vísu væri samdráttur í byggingariðn- aði nú f augnablikinu sem hann teldi ekki óeðlilegan, en hann teldi að í kjölfar ráðstafana ríkis- stjórnarinnar í lánamálum hús- byggjenda kæmi fjörkippur í byggingariðnaðinn að nýju. „Þessi umræða kom bæði okk- ur og starfsmönnum hér á óvart,“ sagði Þórður er við spurðum hann hvað hæft væri í fréttum um ólgu meðal starfsmanna fyrir- tækisins. „Ég held að þetta megi rekja til þess að samningar eru ekki langt undan og það er í sjálfu sér ekki óeðlilegt að þá !leggi menn fram kröfur sínar,“ sagði Þórður. gk-. Hvíti miðinn settur á rúðuna tii merkis um að allt sé í lagi. - Sjá heimsókn í Bifreiðaeftirlitið á Akureyri bls. 8. Mynd: KGA. Dæmt í máli FM-90 - Hermann Sveinbjörnsson ábyrgðarmaður stöðvarinnar dæmdur í 6 þúsund króna sekt Dómur er fallinn í máli ákæru- valdsins gegn Hermanni Svein- björnssyni, ritstjóra, sem var einn skráður ábyrgðarmaður lútvarpsstöðvarinnar FM 90, sem starfsmenn Dags og nokkrir aðrir settu á laggirnar í verkfalli starfsmanna Ríkisút- varpsins í október 1984. Ákærði var dæmdur til greiðslu Unglingar á Akureyri: Erfiðleikar með sumarvinnu Samkvæmt þeim upplýsingum sem Dagur hefur aflað sér virðist nokkuð Ijóst að erfitt er fyrir unglinga á Akureyri á aldrinum 16-20 ára að verða sér úti um sumarvinnu, og Akureyri: í veg fyrír skellinöðru Ekið í fyrrakvöld varð umferðar- óhapp á Skipagötu á Akureyri er bifreið var ekið þar í veg fyr- ir skellinöðru. Bifreiðin var á leið suður Skipagötu og hugðist ökumaður hennar beygja inn á bifreiðastæði austan götunnar. Hann ber að hann hafi ekki séð til ferða skelli- nöðrunnar sem kom á móti bif- reiðinni fyrr en um leið og öku- tækin skullu saman. Meiðsli urðu óveruleg við þennan árekstur, bifreiðin var lítillega dælduð að framan en skellinaðran skemmd á vinstri hlið. gk-. virðist jafnvel hætta á að ein- hver fjöldi komi til með að ganga atvinnulaus í sumar þess vegna. „Það er gífurleg aðsókn meðal unglinga í vinnu hjá okkur,“ sagði Gunnar Skarphéðinsson starfsmannastjóri Slippstöðvar- innar er við ræddum þetta mál við hann. „Við ráðum um 30 unglinga til sumarstarfa og aðsóknin hefur verið mjög mikil í þessi störf og sennilega höfurn við þurft að vísa tvöföldum þess- um fjölda frá. Síðustu dagana hefur verið hingað stanslaus straumur og þetta eru aðallega unglingar á aldrinum 16-19 ára.“ „Við ráðum ekki mikið af unglingum til sumarstarfa," sagði Birgir Marinósson starfsmanna- stjóri hjá Iðnaðardeild Sam- bandsins. „Það er ýmislegt sem spilar þarna inn í, við ráðum ekki unglinga undir 16 ára aldri vegna bónusvinnunnar og helst ekki unglinga undir 18 ára aldri vegna þess hversu mikið er um véla- vinnu. Það er þó töluvert spurt urn vinnu þótt við lokum hér í 5 vikur í sumar og heppilegra sé þess vegna fyrir unglingana að leita annað fyrst.“ Hilmar Gíslason bæjarverk- stjóri sagðist vera búinn að fylla „kvóta“ sinn, en mikil aðsókn er meðal unglinganna eftir vinnu. „Það er orðin stefna að mér skilst að reyna að ráða sem mest af 15 ára unglingum til starfa hjá bæn- um í gegnum vinnuskólann og mér sýnist að það verði til þess að 16 ára unglingarnir verði harðast úti og fái síðar vinnu en aðrir árgangar," sagði Hilmar Gísla- son. gk-. 6 þúsund króna sektar og greiðslu málskostnaðar, sem var hverfandi þar sem hann varði mál sitt sjálfur. Talið var að um hefði verið að ræða brot á ákvæðum útvarpslaga.um einkarétt ríkisins til útvarpsrekstrar og á fjar- skiptalögum. Svipaðar varnir voru hafðar uppi í málinu og öðr- um keimlíkum, sem dómar hafa þegar fallið í. „Þessi dómur er í samræmi við aðra sem fallið hafa og hann kemur mér ekki á óvart. Við sem að þessu stóðum gerðum okkur grein fyrir því strax í upphafi að svona myndi líklegast fara. Éggeri ekki ráð fyrir að áfrýja dómnum," sagði Hermann í viðtali við Dag. Hann var spurður að því hvort hann hygðist kæra ólöglega starf- semi myndbandakerfa á Akur- eyri og Ólafsfirði í kjölfar þessa dóms: „Ég verð nú víst litlu bættari með því. Ég veit það fyrir víst að ríkissaksóknari fékk málefni þessara ólöglegu myndbanda- stöðva inn á sitt borð, en taldi ekki ástæðu til að aðhafast neitt í málinu, þrátt fyrir ótvírætt brot á einkarétti útvarpsins. Réttvísin verður víst að hafa sinn gang, þó að í þessum málum verði varla sagt að menn séu jafnir fyrir lögunum." gk-.>

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.