Dagur - 12.05.1986, Blaðsíða 2

Dagur - 12.05.1986, Blaðsíða 2
2 - DAGUR -12. maí 1986 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SfMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 40 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN, GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík), YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRlMSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÚRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. leiðari.______________________________ Vímulaus æska Sú umræða sem fram hefur farið að undanförnu um vímuefni og neyslu þeirra hefur vakið marga til umhugsunar um stöðu þessara mála hér á landi í dag. Áfengisneysla hefur tíðkast hér frá því landið byggðist og er engan veginn ný af nálinni. Utilokað er að meta hvað sú neysla, ásamt fylgikvillum og afleiðingum, hefur kostað okkur í peningum né heldur hvað hún á eftir að kosta í framtíðinni. Ógæfa þeirra einstaklinga sem eru ofurseldir áfenginu og þau slys og hörmungar sem oft á tíð- um fylgja neyslunni verða hins vegar aldrei metin til fjár. Mörg félagasamtök hafa unnið mikið og gott starf í baráttunni gegn áfengisneyslunni og orðið nokkuð ágengt. En betur má ef duga skal. Hvað fíkniefnaneyslu varðar hafa íslendingar lengi lifað í þeirri trú og von að það vandamál yrði aldrei landlægt hér. Fréttir af stórfelldum fíkniefna- innflutningi og aukinni afbrotatíðni, sérstaklega í Reykjavík, hafa þó opnað augu almennings fyrir því að engin þjóð er óhult gagnvart ógnvaldinum. Ef einhverjir hafa samt sem áður velkst í vafa, hef- ur væntanlega runnið upp fyrir þeim ljós á miðviku- dagskvöldið þegar sjónvarpið sendi út þátt sem bar heitið „Vímulaus æska." Þar var brugðið upp eftirminnilegum svipmyndum af fórnarlömbum eit- urlyfjanna og sjónvarpsáhorfendur leiddir eitt andartak inn í undirheima þar sem lög og reglur þjóðfélagsins eru úr gildi fallin en frumskógarlög- málið ræður ríkjum og lífið snýst um „næsta skammt". Sífellt hefur sigið á ógæfuhliðina á undanförnum árum en ástandið á örugglega eftir að versna. Reynsla grannþjóðanna bendir til þess. Þótt í óefni sé komið er betra seint en aldrei að spyrna við fót- um og takast á við vandann. Verkefnin eru mörg og stór. Forvarnirnar eru mikilvægastar og þar hafa foreldrarnir mest að segja. Með því að ræða við börn sín um þessi mál, fræða þau um skaðsemi vímuefna á fordómalausan hátt og vinna trúnað þeirra geta foreldrar átt stór- an þátt í að afstýra ógæfunni. í skólum þarf að stór- efla fræðslu um vímuefni og skaðsemi þeirra og íþrótta- og æskulýðsfélög og önnur félagasamtök skipa mikilvægan sess í forvarnastarfinu með því að sjá börnum og unglingum fyrir heilbrigðri dægrastyttingu af ýmsu tagi. Sú opinskáa umræða sem fram hefur farið er af hinu góða. Vandinn er að nokkru leyti skilgreindur og nú þarf að taka á honum og leysa hann að svo miklu leyti sem hægt er. Brýnt er að veita þeim ein- staklingum, sem ánetjast hafa eiturlyfjum, með- ferð við hæfi, ekki bara „afeitrun", heldur áfram- haldandi meðferð og stuðning þegar þeir snúa aft- ur út í daglega lífið. Þá er mjög nauðsynlegt að stemma stigu við innflutningi eiturlyfja með öllum tiltækum ráðum og torvelda aðfengi þeirra svo sem hægt er. Til þess þarf að margfalda löggæsluna, herða refsilöggjöfina stórlega og greiða leið mála í gegn um dómskerfið. Allir verða að leggjast á eitt og ekkert má til spara. Sjúkdómurinn er það alvar- legur að aðgerðin þolir enga bið. BB. __viðtal dagsins. Asgeir og Sigurpáll, nýkomnir úr Danmerkurferð: „Það vantar alveg fjöllin“ í haust komu nemendur frá Álaborg í Danmörku í heim- sókn til Húsavíkur. Álaborg er vinabær Húsavíkur og var nemendum níunda bekkjar gagnfræðaskólans boðið að endurgjalda heimsóknina en í haust gistu ungu Danirnir á heimilum þeirra. Þann 28. apríl fóru 34 nemendur ásamt fjórum fararstjórum til Dan- merkur, þau komu heim aftur 3. maí og voru mjög ánægð með ferðalagið. Einn farar- stjóranna sagði að framkoma unglinganna í ferðinni hefði verið hreint til fyrirmyndar en við skulum heyra hljóðið í tveim af ungu ferðalöngunum Ásgeiri Sæmundssyni og Sig- urpáli Aðalsteinssyni. - Ásgeir þið fóruð ekki beint til Danmerkur. „Nei, við notuðum ferðina og kepptum í blaki fyrir sunnan. Bæði A og B liðin okkar unnu og fóru létt með það, en stelpurnar töpuðu. Á laugardaginn förum við til Egilsstaða og keppum um íslandsmeistaratitilinn í þriðja flokki." - Gerðuð þið fleira en keppa í blaki í Reykjavík? „Já, við fórum á Músíktilraun- ir í Tónabæ, það var rosalega gaman. Greifarnir frá Húsavík voru valdir besta hljómsveitin." - Svo farið þið út, hvert var farið fyrst? „Við flugum til Kaupmanna- hafnar og fórum síðan með lest til Álaborgar." Þetta var fyrsta utanlandsferð margra nemendanna, Sigurpáll hafði ekki komið út áður en Ásgeir hefur ferðast talsvert, báðum fannst þeim rosalega gaman. - Gistuð þið hjá sömu krökkunum sem voru hjá ykkur í haust? „Sumir en ekki allir því í haust komu bara 20 krakkar frá Álaborg hingað, það var gaman að hitta þau aftur." - Hvernig gengur ykkur að tala dönskuna? „Ágætlega, sumir töluðu ensku með.“ - Finnst ykkur krakkarnir búa öðruvísi í Danmörku en hér eða hafa aðrar aðstæður? „Nei, þetta er mjög líkt nema þau geta keypt bjór og gera það flest." - Mega sextán ára krakkar í Danmörku kaupa bjór og drekka þau sterkan bjór? „Ég veit ekki hvert aldurstak- markið er og veit ekki hvað bjór- inn er sterkur, smakkaði hann ekki, en þessu tók ég mest eftir að krakkarnir voru meira með bjór en vín. Þetta er öðruvísi en hér heima." - Hvað gerðuð þið í Dan- mörku? „Við fórum í skoðunarferðir, skoðuðum marga skóga og kom- um á nyrsta punktinn í Dan- mörku. Við sáum kirkju sem var komin á kaf í sand aðeins turninn stóð upp úr. Ég held samt að skemmtilegast hafi verið að fara í tívolí í Álaborg. Það var tekið mjög vel á móti okkur og allir voru sér- staklega kurteisir." - Hvaða álit hefur þú á svona vinabæjartengslum? „Það er gaman að fá krakkana í heimsókn og að heimsækja þau og kynnast þeim. Kannski skrif- ast einhverjir á.“ - Hvernig fjármögnuðuð þið ferðalagið? „Við vorum búin að safna 300 þús. í ferðasjóð og bærinn styrkti okkur um 400 þús. Við vorum búin að halda diskótek í vetur og unnum eina helgi í rækjuvinnsl- unni fyrir ferðasjóðinn. Gjald- eyrinn borguðum við svo sjálf og gistingu í Reykjavík.“ Ásgeir borgaði ferðakostnað sinn af sumarkaupinu í fyrra en Sigurpáll fékk peninga hjá pabba. - Sigurpáll hvað fannst þér skemmtilegast í ferðinni? „Að fara í tívolí og dýragarð- inn. Þetta er flott land en það vantar alveg fjöllin. Það er svo hálfvitalegt þegar allt er svona slétt. Við fórum tvisvar í fótbolta við krakkana og unnunt í bæði skiptin.“ - Var eitthvað talað um Euro- vision við ykkur í Danmörku? „Ég heyrði aldrei talað um það hjá krökkunum. Við komum heim sama kvöldið og keppnin var svo við misstum af henni." - Hvernig var veðrið úti? „Alveg ofsalega gott, hitinn var frá 23 stigum niður í 17 á dag- inn en svo var kaldara á nóttunni. Það var kalt að koma heim eftir þetta, vont að koma út úr flugvél- inni í sumarfötunum." - Fannst ykkur þið læra eitt- hvað á ferðinni? „Já, svolítið í dönsku og af að sjá landslagið þarna. Gaman að koma inn á heimilin og sjá hvern- ig fólkið hefur það. Ég sé ekki eftir að hafa farið þetta. Sumir krakkarnir höfðu verið smeykir við að þurfa að vera í heimahús- um en svo voru aliir ánægðir með ferðina. Ég hef ekkert um ferðina að segja nema allt gott og blessað." IM

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.