Dagur - 12.05.1986, Blaðsíða 6

Dagur - 12.05.1986, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 12. maí 1986 íþróttÍL Óskar Gunnarsson látinn Óskar Gunnarsson knatt- spyrnumaður úr Þór er látinn. Jarðarförin hefur farið fram. Óskar var fæddur 2. ágúst 1957 og var því á 29. aldursári er hann lést. Óskar hóf að leika með meistaraflokki Þórs strax á sautjánda ári og lék með liðinu allar götur síðan. Óskar var elstur og leikreyndastur af þeim leikmönnum sem léku í liði Þórs á síðasta keppnistímabili. í fyrrasumar á 70 ára afmæli félagsins var Óskar heiðraður er hann lék sinn 200. leik með meistaraflokki félagsins. Óskar fékk snemma áhuga á knattspyrnu og hóf að leika í 6. fl. 9 ára gamall, fyrsta árið sem leikið var í 6. fl. hjá Þór. Hann var lengst af framherji og skor- aði mikið af mörkum. Óskar lék einnig sem framherji lengi eftir að hann byrjaði að leika með meistaraflokki en síðustu tvö ár lék hann sem miðvörður í lið- inu. Óskar lék frábærlega sem miðvörður, hann var mjög sterkur skallamaður og jafnvíg- ur á báða fætur. Skarðið sem Óskar skilur eft- ir sig í okkar hópi verður vand- fyllt en hans mun alltaf verða minnst sem góðs drengs sem vildi öllum vel. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að votta for- eldrum, systkinum og öðrum ættingjum og vinum Öskars inni- Jega samúð. Kristján Kristjánsson. Akureyrarmót í fimleikum: Matthea sexfaldur Akureyrarmeistari Akureyrarmót í fimleikum fór fram á laugardaginn og var það haldið í sjötta sinn. Keppendur voru 52 frá 8-17 ára. Keppt var í skylduæfingum á hesti, gólfi, slá og tvíslá en auk þess var keppt í frjálsum æfingum á slá og gólfi. Það eru æfingar sem keppendur semja sjálfír. Tveir dómarar komu frá Fim- leikasambandi íslands, þær Birna Björnsdóttir formaður sam- bandsins og Margrét Bjarnadótt- ir fyrrverandi formaður og hafa þær báðar alþjóðleg dómararétt- indi. Voru þær stöllur mjög ánægðar með mótið og kvöttu Fimleikaráð til dáða því hér væru engir eftirbátar Sunnlendinga á ferð. Auk verðlaunapeninga voru veittir sex bikarar. Einn bikar fyrir fyrsta sæti á hverju áhaldi og er viðkomandi Akureyrarmeist- ari á því áhaldi. Einnig var einn veglegur bikar sem gefinn var af Bautanum fyrir samanlagt, þ.e. úr skylduæfingum. Matthea Sigurðardóttir sýndi mikla yfirburði á mótinu og vann sex Akureyrartitla. Aðalheiður Ragnarsdóttir vann titilinn á gólfi. Úrslitin urðu sem hér segir: Flokkur 13 ára og eldri: Hestur: 1. Matthea Sigurðardóttir 9,55 2. Harpa M. Órlygsdóttir 9,20 3. Hildur B. Sigbjörnsdóttir 9,00 Slá: 1. Matthea Sigurðardóttir 8,10 2. Harpa M. Órlygsdóttir 7,95 3. Hildur B. Sigbjörnsdóttir 6,95 Tvíslá: 1. Matthea Sigurðardóttir 7,60 2. Harpa M. Órlygsdóttir 6,80 3. Kristín Hilmarsdóttir 6,40 Gólf: 1. Matthea Sigurðardóttir 8,80 2. Hildur B. Sigbjörnsdóttir 8,40 3. Sigrún H. Ingadóttir 7,70 Flokkur 11-12 ára: Hestur: 1. Hildur Rós Símonardóttir 9,20 2. Hjördís Óladóttir 9,00 3. Eva Ragnarsdóttir 8,90 Slá: 1. Harpa Ragnarsdóttir 8,75 2. Pálína Sigurðardóttir 8,35 3. Kolbrún Sævarsdóttir 8,30 Tvíslá: 1. Hildur Rós Símonardóttir 8,25 2. Rósa Karlsdóttir 7,80 3. Pálína Sigurðardóttir 7,75 Gólf: 1. Aðalheiður Ragnarsdóttir 8,90 2. Pálína Sigurðardóttir 8,80 3. Guðrún Yr Sigbjörnsdóttir 8,65 Flokkur 10 ára og yngri: Hestur: 1. Arnbjörg Valsdóttir 8,75 2. Hrefna Oladóttir 8,70 3. Helga Ólafsdóttir 8,60 Gólf: 1. íris Gunnlaugsdóttir 8,45 2. Kolbrún Sævarsdóttir 8,35 3. Arnbjörg Valsdóttir 8,15 Frjálsar æfingar: Slá: 1. Matthea Sigurðardóttir 5,40 2. Harpa M. Örlygsdóttir 4,80 3. Guðrún Gísladóttir 4,55 Gólf: 1. Matthea Sigurðardóttir 7,15 2. Aðalheiður Ragnarsdóttir 5,20 3. Sigrún H. Ingadóttir 5,05 Sigurvegarar í æfingum á hesti í flokki 10 ára og yngri. Arnbjörg Valsdóttir í miðið, Hrefna Óladóttir til vinstri og Helga Ölafsdóttir til hægri. Mynd: KK KA-mót í júdó: Skemmtileg keppni og fallegar glímur Matthea Sigurðardóttir varð sexfaldur Akureyrarmeistari í fimleikum um helgina. Mynd: KK KA-mót í júdó var haldið í íþróttahöllinni á laugardag. Var þetta opið mót og mættu 15 drengir frá Armanni til keppni. Einnig var von á kepp- endum frá Dalvík og Grinda- vík en þeir mættu ekki. Mótið þótti takast mjög vel og sáust margar fallegar glímur. Keppt var í 7 flokkum, 4 í drengja- flokki og 3 í flokki júníora. Var þetta síðasta mót akur- eyrskra júdómanna sem fara að hægja á sér við æfíngar úr þessu. Úrslit í einstökum flokkum urðu þessi: Drengjaflokkur: Dvergvigt, mínus 35 kg: 1. Þorgrímur Hallsteinsson KA 2. Rúnar Snæland KA 3. Viðar Sigþórsson KA 3. Kristófer Einarsson KA Lágvigt, mínus 42 kg: 1. Stefán Bjarnason KA 2. Friðrik Hreinsson KA 3. Kristján Ólafsson KA Léttvigt, mínus 47 kg: 1. Auðjón Guðmundsson KA 2. Hans Rúnar Snorrason KA 3. Sigurður Sölvason KA 3. Sigurður H. Ólafsson Áj Miðvigt, mínus 53 kg: 1. Aðalsteinn A. Jóhannesson KA 2. Vilhelm Þ. Vilhelmsson KA 3. Helgi Björgvinsson Á 3. Jón Arnar Jónsson Á Júníorar: Þrekvigt, mínus 60 kg: 1. Freyr Gauti Sigmundsson KA 2. Baldur Stefánsson KA 3. Vernharð Þorleifsson KA Þungavigt, mínus 67 kg: 1. Eríkur I. Kristinsson Á 2. Gunnar G. Gunnarsson KA 3. Trausti Harðarson KA Tröllvigt, plús 70 kg: 1. Davíð Gunnarsson Á 2. Njáll Stefánsson KA 3. Adam Traustason KA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.