Dagur - 21.05.1986, Blaðsíða 1

Dagur - 21.05.1986, Blaðsíða 1
69. árgangur Akureyri, miðvikudagur 21. maí 1986 92. tölublað Filman þm á skiliö þaö besta! FILMUHUSIÐ Hafnarstræti 106 Sími 22771 Pósthólf 198 gæðaframköllun Filman inn fyrir kl. 10.45. Myndirnar tilbúnar kl. 16.30. Opið á laugardögum frá kl. 9-12. Hlutabref i Drangi: Seld á 10% af nafnverði - Siglir áfram á Það er Ijóst að Finnbogi Kjeld mun kaupa hlutabréf ríkis, sveitafélaga og Jóns Steindórs- sonar sem var framkvæmda- stjóri Drangs á Akureyri. Ekki er fullfrágengið með undir- skrift samnings, en allt bendir til þess að af kaupunum verði. Finnbogi Kjeld á sjálfur 30% af hlutabréfum fyrirtækisins og kaupir væntanlega þau 70% sem upp á vantar, en þau eru í eigu ríkisins, Siglfirðinga, Ólafsfirð- inga, Hríseyinga, Grímseyinga og Akureyringa. Allir þessir aðil- ar hafa tekið afstöðu til kaup- anna, nema Ólafsfirðingar og Siglfirðingar, auk Jóns Steindórs- sonar. Eins og komið hefur fram, eru Siglfirðingar óánægðir með að hafa ekki fengið að sjá endur- skoðaða reikninga félagsins. Eft- ir því sem næst verður komist hafa þeir átt greiðan aðgang að öllum reikningum félagsins, en hafa ekki mætt til boðaðra funda þess. Krístján syngur á Akureyri Kristján Jóhannsson, óperu- söngvari, er staddur á Akur- eyri um þessar mundir og heldur tónleika í íþrótta- skemmunni laugardaginn 24. maí klukkan 21. Ennfremur heldur hann tónleika fyrir gamla fólkið á Dvalarheimil- inu Hlíð í dag kl. 4. Kristján sagði að þetta yrðu léttklassískir tónleikar með ísienskum og skandinavískum lögum, auk óperuaría. Undir- leikarar eru tveir, Kristinn Örn Kristinsson í íslensku lögunum og Maurizio Barbacini í hinum hluta söngskrárinnar. í athugun er að Kristján syngi einnig fyrir sjúklinga á Fjórðungssjúkra- húsinu. Forsala aðgöngumiða er í Bókabúðinni Huld. HS Karabíska hafinu Kaupverð hlutabréfanna er 10% af nafnverði og þykir mörg- um sem það sé of lágt verð fyrir þau. Eftir því sem næst verður komist ætlar Finnbogi Kjeld að halda áfram siglingum Drangs í Karabískahafinu, en þar hefur skipið verið undanfarna mánuði. Er því ljóst að samgöngur með Drangi eru úr sögunni. Eða eins og einn stjórnarmaður Drangs h/f sagði: „Eftir að vegakerfið batn- aði og samgöngur á landi hafa aukist er rekstur flóabáta eins og Drangs vonlaus og jafnvel úreltur og ætti að leysa með ferðum með þyrluflugi. Hins vegar er því ekki að leyna að Grímseyingar verða harðast úti vegna þessara aðgerða." gej- Norðurland: Tæp 50% aukning á þorskafla bátanna Þorskafli bátaflotans á Norðurlandi jókst verulega fyrstu fjóra mánuði ársins mið- að við árið í fyrra, eða úr rösk- lega 9.300 lestum í 13.700 lestir, samtals um 4.400 lestir. Þetta er um 47% aukning milli ára. Þorskafli togaranna jókst miklu minna, eða úr 17.100 lest- um í 18.900 Heildarþorskaflinn á Norðurlandi jókst því úr um 26.450 lestum í 32.650 lestir. Heildarafli norðlenskra skipa fyrstu fjóra mánuðina í ár varð allmiklu minni en í fyrra, eða 46.900 lestir á móti 68.900 lestum. Munar þar mest um það að loðnuveiðin það sem af er árinu varð ekki nema 28 þúsund lestir á móti 54.300 lestum á sama tíma í fyrra. HS Þetta er nú eiginlega of hátt fyrir mig. Almennur fundur á Kópaskeri: Innflutt rækjuskip eini kosturinn“ - segir í ályktun fundarins Almcnnur fundur um sjávarút- vegs- og atvinnumál var hald- inn á Kópaskeri sl. fimmtudag. Fundurinn var fjölmennur og auk heimamanna sóttu fund- inn fimm alþingismenn Norðurlandskjördæmis eystra. Sjávarútvegsráðherra og for- maður og framkvæmdastjóri Byggðastofnunar sáu sér ekki fært að mæta en Sigfús Jóns- son stjórnarmaður í Byggða- stofnun mætti fyrir hönd stofn- unarinnar. Á fundinum urðu miklar umræður um sjávarútvegsmál, neyðarástand sem blasir við hjá Rækjuvinnslunni á Kópaskeri vegna hráefnisskorts, svo og atvinnu- og byggðamál að ógleymdri sölu á raðsmíðaskipi frá Slippstöðinni á Akureyri sem íbúar Kópaskers gagnrýndu harðlega. Á fundinum var samþykkt ályktun um sjávarútvegsmál og er hún svohljóðandi: „Algjör málefnafátækt“ - segir Sigurður Jóhannesson um gagnrýni minnihlutans í bæjarstjórn Akureyrar, sem hann telur raunar vera sjálfsgagnrýni „Frá hendi minnihlutans í bæjarstjórn Akureyrar hafa aldrei á kjörtímabilinu komið fram neinar sérstakar tillögur um nýjar leiðir í atvinnumál- um, auk þess sem bæjarstjórn stóð einhuga að þeim aðgerð- um sem framkvæmdar voru. Frambjóðendur minnihluta sjálfstæðismanna og alþýðu- flokksmanna eru því ekki síst að gagnrýna sína eigin menn í þeim ræðum og ritum sem nú dynja á Akureyringum, svona rétt fyrir kosningarnar“. Þetta sagði Sigurður Jóhannes- son, efsti maður á framboðslista Framsóknarflokksins á Akureyri í viðtali við Dag, en nokkuð hef- ur borið á gagnrýni minnihlutans hvað varðar atvinnumálin. „1 stefnuskrám og ræðum frambjóðenda þessara flokka er ekki heldur að finna tillögur um neinar nýjar leiðir í atvinnumál- unum. Þeir tala bara og gagnrýna en hafa engar lausnir á málum og boða engar nýjar hugmyndir. í gegnum há\aða þessara manna skín algjör málefnafátækt um nýjar leiðir í atvinnumálum. En talandi um meirihluta og minnihluta vil ég benda á að um 90% allra mála sem afgreidd voru í bæjarstjórn á síðasta kjör- tímabili voru afgreidd samhljóða með öllum greiddum atkvæðum. í þeim málum sem ekki náðist samstaða var oftar um að ræða klofningu innan flokka en á milli þeirra. Þetta á ekki síst við um Sjálfstæðisflokkinn, þar sem skoðanaágreiningur var oft mikill og einhugur lítill," sagði Sigurður Jóhannesson að lokum. HS „Almennur fundur haldinn á Kópaskeri 15. maí 1986 skorar á stjórnvöld að hlutast nú þegar til um að rækjuvinnslunni á Kópa- skeri, sem hefur verið lokuð síð- an í byrjun ágúst sl., verði tryggt nægilegt hráefni til vinnslu, svo koma megi í veg fyrir neyðar- ástand í atvinnumálum og áfram- haldandi byggðaröskun. Fundur- inn bendir á að heimamenn hafa gert það sem í þeirra valdi stend- ur til að komast yfir skip til veið- anna en án árangurs. Að veita undanþágu til innflutnings á skipi til rækjuveiða á Kópaskeri virðist eini kosturinn í dag. Því verður ekki trúað að stjórnvöld stefni atvinnumálum og byggðarþróun heils byggðarlags í voða með því að veita ekki undanþágu fyrir innflutningi á skipi sem einungis yrði notað til rækjuveiða.“ IM

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.