Dagur - 28.05.1986, Blaðsíða 1

Dagur - 28.05.1986, Blaðsíða 1
69. árgangur Akureyri, miðvikudagur 28. maí 1986 97. tölublað + Ritvinnslufonit + Áætlanagerðaiforrít + Teikniforrít f Tölvutæki sí. Gránufélagsgötu 4, 2. hæð ■ Akureyri ■ Sími 96-26155 Farsæl lausn „stólamálsins“: „Kótó-stólar' fyrirVMA - Búið að ganga frá hönnunarsamningi - Framkvæmdasjóður styrkir hönnunarvinnuna Bæjarstjóm Akureyrar hélt sinn síðasta furmlcga fund í gær, þó svo að hún hafi umboð kjósenda til 15. júní nk. Ljóst er að alla vega 5 af 11 núverandi bæjarfulltrúum munu víkja úr stólum sínum á næsta kjörtímabili. Þeir eru: Jón Sigurðarson Framsóknarflokki, Jón G. Sólnes og Margrét Kristinsdóttir Sjálfstæðisflokki og Sigfríður Þor- steinsdóttir og Yalgerður Bjarnadóttir Kvennaframboði. Á myndmni er fráfarandi bæjarstjóri Helgi M. Bergs að útskýra reikninga bæjarsjóðs fyrir bæjarfulltrúum. Mynd: KGA. Iðngarðar Akureyrar: 3 fyrírtæki fengu inni - Samþykkt að taka „Lund“ einnig undir starfsemi iðngarða Búið er að ganga frá uppkasti að hönnunarsamningi um stóla af ýmsum gerðum sem eiga að prýða Yerkmenntaskólann á Akureyri. Samningsaðilar eru Akureyrarbær annars vegar og Form og Kótó hins vegar. í samningnum er gert ráð fyrir að Framkvæmdasjóður styrki hönnunarvinnuna með 200 þús- und króna fjárframlagi. Jafn- framt mun einhver fjárupphæð renna til hönnunarinnar af bygg- ingafé Verkmenntaskólans. Verið er að vinna að samningi milli sömu aðila um framleiðslu borða í Verkmenntaskólann sem einnig verða hönnuð af Form. Með þessum samningum er tal- ið tryggt að myndarlega verði að hönnuninni staðið en það er talin höfuðforsenda þess að þessi hús- gögn geti orðið markaðsvara víð- ar en í Verkmenntaskóla Akur- eyrar. „Ég er mjög ánægður með að maður skuli sjá fyrir endann á þessu máli og að bæjarstjórn hef- Togarar ÚA: Ágæt veiði að undanförnu Ágæt veiði hefur verið að undanförnu hjá togurum Útgerðarfélags Akureyringa. Samtais hefur verið landað hátt í átta hundruð tonnum á tæpum hálfum mánuði, aflinn hefur verið nokkuð blandaður en þó hefur verið mest af þorski, eða rúmlega 260 tonn. Svalbakur landaði 16. maí 114 tonnum og voru rúm 80 tonn af aflanum karfi, 20. maí landaði Kaldbakur rösklega 180 lest- um og bar mest á karfa þar einnig, þann 21. kom svo Slétt- bakur inn með um 120 tonn og af því voru 108 tonn þorskur, í afla Harðbaks sem landaði þann 23. var grálúða aðaluppistaðan og að lokum kom svo Hrfmbakur inn í gær með um 100 tonn en þar af var þorskur um 65 tonn. Hrímbakur var á rækjuveiðum í mánaðartíma fyrir þessa veiði- ferð, og aflaði á milli 60 og 70 tonna af rækju sem lögð var upp hjá K. Jónssyni & Co h/f, en Hrímbakur er eini togari Útgerðarfélags Akureyringa sem er með sóknarmark. G.Kr. ur sýnt í verki að hún vill styrkja norðlenska framleiðslu," sagði Ingólfur Hermannsson hjá Kótó er Dagur innti hann álits á þess- um málalokum. BB. Feröamálafulltrúi: Tveir sóttu um Tveir umsækjendur voru um starf ferðamálafulltrúa Ferða- málasamtaka Norðurlands, en umsóknarfrestur um stöðuna er útrunninn. Umsækjendurnir tveir eru Yngvi Kjartansson fyrrum blaða- maður á Degi og Jón Gauti Jóns- son sem ritstýrir blaðinu Feyki á Sauðárkróki. Að sögn Kolbeins Sigurbjörns- sonar formanns Ferðamálasam- taka Norðurlands hefur enn ekki verið tekin ákvörðun um það hvort annar umsækjendanna fær starfið. „Við erum að vinna í þessu máli einmitt þessa daga og það er jafnvel inni í myndinni fyrst ekki voru fleiri umsækjendur að skipta þeim verkefnum upp sem þessum manni er ætlað að vinna og fá ýmsa menn til að skipta þeim á milli sín. Jafnframt erum við að ræða við umsækjendurna tvo og mun það skýrast í vikunni hver niðurstaðan verður,“ sagði Kolbeinn. gk-. Allt útlit er fyrir að kartöflu- bændur við Eyjafjörð setji óvenju seint niður þetta vorið. Jarðvegur er víðast hvar of blautur til að vélum verði kom- ið við með góðu móti, og jafn- Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa samþykkt að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við S.S. Byggi s.f. um að ljúka byggingu suður- hluta 2. áfanga Síðuskóla fyrir 2. september n.k. Samningurinn verður lagður fyrir bæjarráð til samþykktar. Bæjarstjórn Akureyrar hefur að tillögu atvinnumálanefndar úthlutað þremur fyrirtækjum leiguhúsnæði í Iðngörðum Akureyrar. Fyrirtækin eru Höfði h.f., Kjarnafæði s.f. og þriðja fyrirtækið er í eigu Bjarna Ingvarssonar en hefur ekki hlotið nafn enn þá. Höfði h.f. er fyrirtæki sem annast fatalitun og með tilkomu þess geta t.d. verslanir flutt inn ólituð föt og látið lita þau hjá Höfða og losnað þannig við að vel þó hægt væri að byrja að setja niður þá er spurning hvort það hefði nokkuð upp á sig sökum kulda. Guðmundur Þórisson formað- ur Félags kartöflubænda við Samþykkt bæjarráðs varðandi þetta er háð því að aukafjárveit- ing fáist úr ríkissjóði til greiðslu á skuld vegna skólabygginga ca. 12,4 milljónir króna skv. ný- gerðum samningi við ríkissjóð. gk-- liggja með stórar fatasendingar í litum sem seljast e.t.v. ekki. Kjarnafæði s.f. er matvælafyr- irtæki sem sérhæfir sig í full- vinnslu tilbúinna kjötrétta ýmiss konar, sem síðan eru settir á markað að verulegu leyti utan Akureyrar. Þriðja fyrirtækið sér- hæfir sig einnig í fullvinnslu mat- væla. Þá hefur atvinnumálanefnd lagt til að Viðjulundi 2 (Lundi) verði breytt þannig að hægt verði að nota það húsnæði undir Iðn- garða og skapa þar með fleiri nýj- Eyjafjörð sagði að það væru mjög margir bændur sem ekkert væru farnir að setja niður sökum bleytu og kulda og horfurnar um uppskeru færu versnandi með hverjum deginum sem liði. „Annars er það aðallega seinni- partur sumarsins sem skiptir mestu máli ef það kemur hlýtt sumar þá er hægt að ná ótrúlega góðri sprettu þó það sé seint sett niður,“ sagði Guðmundur. Hann kvaðst ekki búast við neinum samdrætti í þessari bú- grein heldur kannski aukningu. Varðandi hringrot í kartöflum í Eyjafirði sagði Guðmundur að ekki væri vitað til þess að það væri fyrir hendi á svæðinu en aldrei væri of brýnt fyrir mönnum að setja ekki niður matarkartöfl- ur. G.Kr. um fyrirtækjum á Akureyri at- hafnarými. Bæjarstjórn vísaði þeirri til- lögu til bæjarráðs. BB. „Afbakað og tekið úr samhengi" - segir Ásgeir Arngrímsson „Það sem ég sagði um bygg- ingariðnaðinn á fundi í SvarT- fugli 11. maí hefur verið afbak- að mjög og tekið úr samhengi sem fram kom í máli mínu á þeim fundi,“ sagði Ásgeir Arngrímsson, 3. maður á lista Framsóknarflokksins á Akur- eyri. „í svari mínu við fyrirspurn kom fram að ég hefði eftir ýms- um forsvarsmönnum í byggingar- iðnaði á Akureyri að næg verk- efni væru framundan og nóg að gera. Einnig lagði ég á það áherslu að það skaðaði bæjarfé- lagið út á við að vera með of mik- inn barlóm. Efnisatriði þess sem ég sagði hafa verið rangtúlkuð af pólitísk- um andstæðingum, sem ég held þó að verði þeim ekki til fram- dráttar," sagði Ásgeir, en grein eftir hann um málið er á bls. 11 í dag. HS Kartöflubændur við Eyjafjörð: Gott sumar gæti bjargað miklu Síðuskóli: Samið við S.S. Byggi - um að Ijúka suðurhluta 2. áfanga í sumar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.