Dagur - 17.12.1987, Blaðsíða 16
\r - nuaAti - xw.t xt
16 - DAGUR - 17. desember 1987
Lærdómslistir
Hinn 20. júlí s.l. varö dr. Jakob
Benediktsson áttræður. Af því
tilefni hefur Mál og menning gef-
ið út safn 26 ritgerða eftir hann í
samvinnu við Stofnun Árna
Magnússonar. Hefur bókin hlot-
ið heitið Lærdómslistir.
Jakob Benediktsson er einhver
kunnasti fræðimaður íslendinga
og hefur á löngum starfsferli birt
eftir sig fjölmargar ritgerðir um
íslensk fræði, mál, sögu og bók-
menntir í innlendum og erlend-
um ritum. Flestar ritgerðanna í
Lærdómslistum eru á íslensku en
nokkrar eru skrifaðar á dönsku
og ensku. Efni þeirra er fjöl-
breytt, bókin er eins konar sýnis-
bók af þeim fjölda verka sem
Jakob hefur látið frá sér fara.
Halldór Guðmundsson, Sverrir
Tómasson og Örnólfur Thorsson
önnuðust útgáfuna. Bókin er 306
bls. og geymir auk ritgerðanna
ritskrá Jakobs Benediktssonar og
Tabula gratulatoria.
Handa honum
Jóhanna Á.Steingrímsdótfir
Á bökkum Laxár
Út er komin bókin Á bökkum
Laxár eftir Jóhönnu Álfheiði
Jólaafsláttur
Veitum 10% afslátt
af fatnaöi, skóm
og sportvörum
fram að jólum.
Komiö og geríð góö kaup.
• •
Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275
■ ..........■ . A't s .,
Steingrímsdóttur í Árnesi í
Aðaldal. Útgefandi er Almenna
bókafélagið.
Jóhanna í Árnesi segir frá
margs konar atburðum sem gerst
hafa á bökkum þessarar frægu
laxveiðiár, flestir á hennar
dögum, en Jóhanna er borin og
barnfædd á Nesi í Aðaldal. Og
hún segir frá mannlífinu á þess-
um slóðum og baráttunni við
hina fögru á, sem svo margir
þekkja og unna, en getur stund-
um orðið erfið viðfangs, ekki síst
að vetrinum.
Efni bókarinnar er afar fjöl-
breytilegt, skemmtilegar lax-
veiðisögur, fyrirburðir, slysfarir,
þættir um heimamenn á bökkum
Laxár, svo sem Steingrím í Nesi,
föður Jóhönnu, Huldu skáld-
konu, Lissý á Halldórsstöðum,
Egil á Húsavík o.s.frv.
Bókin er prýdd allmörgum lit-
myndum frá Laxá og umhverfi
hennar.
Margaret Atwood
SAGA ÞERNDNNAR
Saga þemunnar
Hjá Almenna bókafélaginu er
komin út Saga þernunnar eftir
Margaret Atwood, í þýðingu
Áslaugar Ragnars. Bókin heitir á
frummálinu The Handmaid’s
Tale.
Saga þessi gerist í náinni fram-
tíð í samfélagi sem nefnist Gíle-
að. Það hefur risið þar sem áður
voru Bandaríkin. Gíleað er ein-
ræðisríki. Því er stjórnað af bók-
stafstrúar kristnum karlmönnum.
í þessu nýja samfélagi eru konur
flokkaðar eftir því til hvers þær
þykja nýtar, meðal annars:
Þernur, Frúr, Ókonur og Hag-
konur.
Þernur, eins og sú sem segir
sögu sína, eru í rauðum klæðum
sem hylja líkamann og bera hvít
höfuðföt með vængjum sem skýla
andlit þeirra og takmarka sjónar-
sviðið. Mánaðarlega eru þær
leiddar undir Liðstjóra í von um
að þær ali þeim og Frúm þeirra
börn. Það er notagildi þeirra.
Saga þernunnar lýsir geggjuðu
samfélagi en athygli vekur að
minningar þernunnar um tíma-
bilið fyrir einræðisríkið sýna að
ýmislegt miður geðslegt henti þá.
Fasistaríkið Gíleað er hræðilegt
en það gerir árið 1987 ekki sjálf-
krafa stórkostlegt.
Bókin er 278 bls. að stærð.
Á krossgötum
Út er komin hljómplata, sem ber
heitið „Á krossgötum“. Á plöt-
unni eru 10 trúarlegir söngvar í
flutningi sjö systkina á aldrinum
19-35 ára, en þau heita: Hrefna,
Ingibjörg, Sigríður, Sólveig og
Þórey Guðnadætur og Karl og
Loftur Guðnasynir.
Birgir Jóhann Birgisson hefur
samið rúmlega helming laganna á
plötunni og sá hann einnig um
allar útsetningar, lék á hljóm-
borð og stjórnaði jafnframt upp-
tökum. Aðrir hljóðfæraleikarar
eru: Friðrik Karlsson, Gunnlaug-
ur Briem, Jóhann Ásmundsson,
Kristinn Svavarsson og Stein-
grímur Guðmundsson.
„Á krossgötum“ var hljóðrituð
í Stúdíó Stefi. Útgefandi er
Krossgötur.
W.V.
mm
mm
WmM.
mmm