Dagur - 22.12.1987, Blaðsíða 2

Dagur - 22.12.1987, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 22. desember 1987 Á dögunum voru afhent verðlaun í smákökukeppni Hljóðbylgjunnar. Birna Friðriksdóttir frá Grenivík hlaut 1. verðlaun fyrir „Frönsk horn“. Myndin er tekin þegar Birgir Snorrason afhendir Bimu verðlaunin. Mynd: tlv Góð afkoma Kísiliðjunnar Húsvíkingum boðið á ára- mótadansleik - tvær áramótabrennur við bæinn Áraniótadansleikur verður haldinn í Félagsheimili Húsa- víkur á vegum bæjarins. Ekki var gert ráð fyrir áramótadans- leik í fjárhagsáætlun fyrir árið 1987 en á síðasta fundi bæjar- stjórnar var samþykkt tillaga frá Kristjáni Ásgeirssyni, þes> efnis að dansleikurinn yrði haldinn á vegum bæjarins. Bæjarstjóra var falið að semja við hótelstjórann um framkvæmd málsins og leggja upplýsingar um kostnað vegna dansleiksins fyrir bæjarráðsfund. Undanfarin ár hefur Húsvík- ingum gefist kostur á að fagna nýju ári á dansleik í félagsheimil- inu í boði Húsavíkurbæjar. Kristján sagði á fundinum að því hefði verið vel tekið af bæjarbú- um að menn þyrftu ekki að hampa veskinu þó þeim gæfist kosur á að koma saman á slíkum tímamótum. Ánægjulegt væri að halda þessari hefð og mjög mið- ur ef hún telli niður. Tillagan var samþykkt með átta atkvæðum en einn bæjarfulltrúi greiddi atkvæði gegn tillögunni. Tvær áramótabrennur verða á Húsavík á gamlárskvöld. Bær- inn hefur samið við Kiwanis- klúbbinn Skjálfanda að sjá um áramótabrennu við skeiðvöllinn, verður kveikt í brennunni kl. 20 um kvöldið ef veður leyfir. Stefán Örn lngvarsson hefur fengið heimild til að standa fyrir áramótabrennu nyrst á Langholt- inu og áætlað er að kveikja í henni kl. 20:30. IM Híbýli hf.: Lóð fyrir fjölbýlishús Bygginganefnd Akureyrar samþykkti að veita Híbýli hf. vilyrði fyrir lóð sunnan lög- reglustöðvar til að byggja á fjölbýlishús. Híbýli hafði áður sótt um ein- hverja ótiltekna lóð til byggingar fjölbýlishúss en engar slíkar lóðir reyndust vera lausar til úthlutun- ar. Pá sótti fyrirtækið um umrædda lóð sem afmarkast af Þórunnarstræti, Helgamagra- ] stræti og Munkaþverárstræti. ET Aflabrögð báta frá Skaga- strönd hafa í það heila tekið verið frekar léleg að undan- förnu. Arnar kom inn með 100 tonn eftir 11 daga túr. Rækju- sjómenn eru svo til búnir með með kvótann. Arnarborgin var að fá allt að sex tonnum í róðri, en frekar hefur dofnað yfir veiðinni. Við náðum tali af Lárusi Ægi Guðmundsyni fram- kvæmdastjóra Hólaness hf. og leituðum frétta af aflabrögðum báta og skipa sem gerð eru út frá Skagaströnd. „Ég hef satt best að segja ákaf- lega litlar fréttir aðrar en þær, að það hefur verið afskaplega tregt Kísiliðjan í Mývatnssveit skil- aði 20,4 milljón króna hagnaði í fyrra. Þetta er fjórða árið í röð sem verksmiðjan skilar hagnaði. Þrátt fyrir verulegan samdrátt sölumagns var af- koman þetta góð. Helstu ástæðurnar er að finna í veru- legri lækkun olíuverðs, raun- lækkun rafmagnsverðs og góðu söluverði. Einnig eru kostnaðarsparandi aðgerðir undanfarinna ára að skila sér. Rekstrartekjur að frádregnum útflutningskostnaði voru 252 milljónir. Rekstrarniðurstaða fel- ur í sér 20,2 milljónir í afskriftir og 11,8 milljonir króna í nettó fjármagnskostnað. Þar af eru 12,6 milljónir króna reiknuð gjaldfærsla vegna verðbreytinga og váxtatekjur 2,5 milljónir. Hvort tveggja er til marks um góða stöðu félagsins. Þessar upplýsingar koma fram í skýrslu iðnaðarráðherra til Alþingis sem dreift var í þessari viku. I skýrslunni kemur fram að flutt voru út rúm 23 þúsund tonn af fullunnum kísilgúr á síðasta ári. Helstu markaðir fyrir fram- leiðslu verksmiðjunnar eru í Evr- ópu og hefur því fall dollarans verið óhagstætt fyrir markaðsað- stæður þar. fiskirí að undanförnu. Það má segja að þessi deyfð sé yfir heilu línuna og sama hvaða veiðar eru stundaðar. Arnar kom inn um daginn með 100 tonn eftir 11 daga veiðiferð. Þeir á Arnari eru búnir að fiska hinn eiginlega kvóta skipsins, en eiga eftir 250 tonn vegna þátttöku í hinu svo- kallaða „rannsóknaralli" fiski- fræðinga sem er orðinn árlegur viðburður," sagði Lárus Ægir. Þá sagði Lárus að Arnarborgin hefði verið að fá þetta 4-6 tonn í róðri á línuna þegar hefði gefið á sjó, en sér virtist eitthvað vera að dofna yfir línuveiðunum, í bili að minnsta kosti. Rækjusjómenn Engar breytingar urðu á fram- kvæmdastjórn á árinu 1986. Fjöldi fastráðinna starfsmanna var 63 yfir vetrarmánuðina og 70 á þeim tíma, sem dæling hráefnis úr Mývatni fór fram. Launa- greiðslur til starfsmanna og stjórnar voru á árinu 1986 49,5 milljónir. Öllum kísilgúr hefur frá upp- hafi verksmiðjunnar verið skipað út frá Húsavík. Aðstaða til útskipunar þar er nú afar bágbor- in, hafnargarðurinn er orðinn mjög lélegur og liggur reyndar undir stórskemmdum. Garðurinn er auk þess allt of mjór til þess að þjóna gámaútskipun. Við upphaf gámavæðingar Kísiliðjunnar hf. var tekið myndarlega á því að útbúa svæði til gámageymslu við „Þarna fellur til mikið efnis- magn og maður getur varla ímyndað sér að sá kostnaður sem væri af því fyrir ríkið að aka efninu örfáa kílómetra fara sér að engu óðslega, fiska sinn hluta af heildarkvótanum úr flóanum og Ijúka sennilega við hann í vikunni. Reyndar var um 150 tonnum bætt við heildar- rækjuveiðikvótann á Húnaflóa, en Lárus sagði að rækjusjómenn á Skagaströnd ætluðu að geyma sinn hluta af þeim kvóta fram yfir nýárið. Á skrifstofu Skagstrendings hf. fengum við þær fréttir að Orvar hefði komið inn 11. desember úr síðustu veiðiferð ársins með um 110 tonn. Skiptist aflinn í 80 tonn áf ýsu- og þorskflökum og 30 tonn af heilfrystum fiski, mest grálúðu. pbv Húsavíkurhöfn. Ekki er síður mikilvægt að tekið verði skjótt og myndarlega á framkvæmdum við hafnargarðinn. Þessar tölur eru miðaðar við fyrri hluta 1987. Flest bendir þó til þess að seinni hluti þessa árs hafi verið erfiðari. Bandaríkja- dollarinn hefur haldið áfram að falla og þar með hefur sam- keppnisaðstaða bandarísks kísil- gúrs styrkst. Samkeppnin er mik- il og því lítill möguleiki á því að verðið hækki. Heimsmarkaðs- verð á olíu hefur einnig hækkað og mun það hafa áhrif á afkomu verksmiðjunnar. Laun hafa einn- ig farið fram úr áætlun, en samt má gera ráð fyrir því að Kísiliðj- an hf. geti vel við unað á þessu ári. AP væri nema smávægilegur hjá heildarkostnaðinum við gerð ganganna,“ sagði ísak Ólafs- son, bæjarstjóri á Siglufirði. Siglfírðingar hafa fullan hug á að láta byggja upp betri veg yfir Lágheiði og nota til þess afgangsefni frá jarðganga- gerð í Ólafsfjarðarmúlí*. Að sögn ísaks væri kostnaður við að aka efninu í veginn yfir Lágheiði hverfandi miðað við þær stóru upphæðir sem nefndar hafa verið sem kostnaðartölur við jarðgöngin. Skipti þá ekki máli þótt 10 eða 20 milljónir færu til vegarbóta á Lágheiði. Bæjarstjórn Siglufjarðar sam- þykkti ályktun á dögunum þar sem ánægju var lýst með ákvörð- un um gerð jarðganga gegnum Ólafsfjarðarmúla. Stjórnvöld voru hvött til að hefja vinnu við endurbyggingu vegarins yfir Lág- heiði, jafnframt því sem jarð- göngin yrðu gerð. Forsvarsmenn Vegagerðar rík-, isins hafa, síðan ályktun þessi var samþykkt, lýst því yfir að hluti útgreftrarins verði notaður til að gera aðkeyrslu að göngunum. En ef Ólafsfirðingar vilji nota eittr hvað af efninu til að lagfæra veg- inn um Lágheiði sé þeim það velkomið en þeir verði þá að greiða fyrir þær framkvæmdir sjálfir. EHB Húsavík: Fækkun um 23 heil störf - meðan íbúum fjölgar um 40 Atvinnumálakönnun var gerð á Húsavík í haust. Þar kom fram aö fækkað hefur um 23 heil störf í bænum frá því á sama tíma í fyrra en atvinnu- rekendum hefur fjölgaö um tvo. Þessi niðurstaða kemur nokkuð á óvart þar sem íbúum Húsavíkur hefur fjölgað á sama tíma og ekki er um atvinnuleysi að ræða. Atvinnumálakönnunin er mið- uð við stöðu fyrirtækja 1. októ- ber sl. Fram kemur að 50,14% Húsvíkinga vinna við þjónustu- störf en 49,86% við framleiðslu og úrvinnslustörf. Heildar starfs- mannafjöldi er 1121 en í fyrra var hann 1144. Atvinnurekendur á Húsavík eru 177 en voru 175 fyrir ári. Á sama tíma og störfum hefur fækkað hefur Húsvíkingum fjölg- að um 40. íbúar Húsavíkur voru 2.507 þann 1. september sl. en 1. desember 1986 voru 2.467 íbúar í bænum. IM Húsavík: Gjöld og gjaldskrár samþykkt - á fundi bæjarstjórnar Á fundi í Bæjarstjórn Húsa- víkur sl. fimmtudag voru sam- þykkt fasteignagjöld 1988. Fasteignaskattur af íbúðar- húsnæði mun hækka um 12,5% en fasteignaskattur af atvinnuhúsnæði um 25%, umfram hækkun fasteignamats. Fasteignaskattur verður 0,575% af fasteignamati íbúðar- húsnæðis en 1,25% af fasteigna- mati atvinnuhúsnæðis. Lóðaleiga verður óbreytt 1,5% affasteigna- mati. Vatnsskattur verður 0,2% af íbúðarhúsnæði og 0,4% af atvinnuhúsnæði en holræsagjald 0,15% af fasteignamati. Sorpgjöld hækka um 100%, sorppokagjald af íbúðarhúsnæði verður 2.000 krónur, sorpeyðing- argjald fyrirtækis í 1. fl. 7.120 en fyrirtækis í 2. fl. 20.200 kr. Gjalddagar fasteignagjalda verða fimm, þeir sömu og á síð- asta ári. Á fundi bæjarstjórnar var einnig samþykkt samhljóða að hækka dagvistargjöld á Bestabæ um 15% frá 1. janúar. Gjaldskrá fyrir íþróttamann- virki var samþykkt samhljóða. Gjaldskrá sundlaugar verður óbreytt en gjaldskrá íþróttahúss var hækkuð um 25% og gjaldskrá skíðamannvirkja var hækkuð um 20-25%. IM Skagaströnd: Léleg aflabrögð að undanfömu Siglfirðingar: Vilja betri veg um Lágheiði

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.